Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 49 Stórkostleg gamanmynd sem er búin að gera allt sjóðvitlaust í USA með Jamie Lee Curtis og Lindsay Lohan í aðalhlutverki. Yfir 100 M$ í USA! Þetta er sko stuðmynd í lagi! KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. . B.i. 12. KRINGLAN Sýnd kl. 6. Ísl tal AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal Frá leikstjóranum Ridley Scott sem færði okkur myndirnar Gladiator, Hannibal, Blade Runner og Alien  "Skotheldur leikur og frábært handrit." HP KVIKMYNDIR.COM KVIKMYNDIR.IS EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. B.I. 16. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Topphasarmyndin í USA í dag. Fór beint ítoppstætið í USA Topphasarmyndin í USA í dag. þrælmögnuð yfirnáttúruleg spennumynd sem hefur slegið rækilega í gegn. SV MBL HK.DVKVIKMYNDIR.IS KVIKMYNDIR.IS SV MBL KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 6. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Frá framleiðanda Fast & the Furious og xXx Löggur þurfa líka hjálp! FRUMSÝNING KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. hafslagi, „Svaraðu eins og skot“, með svakalegu gítarforspili vísa þeir óbangnir í „Paperback Writer“ og önnur kröftug gítarlög frá þeim tíma, sungið og raddað með hinu eina sanna Hljóma-nefi. Vissulega keimlíkt mörgu öðru en svo innilega Hljómalegt að það er ekki hægt ann- að en að hrífast með og komast í gír- inn. Og svei mér þá ef maður bara helst ekki í þessum gír uns hin tæp- lega 40 mínútna langa plata rennur sitt skeið á enda. Ekki eru öll lögin þó í þessum háa gæðaflokki. „Mývatnssveitin er æði“ er t.a.m. ekki að virka, er alltof billegt og suðrænt fyrir rokkarana sem Hljómar í huga manns eru. „Til Íslands“ er eitthvað ómarkvisst og hljómgervlahlaðið, útsetningin fellur engan veginn að heildinni. Ekki er heldur sannfærandi að loka plötunni með ballöðunni „Gamli bærinn minn“. Þótt innihald textans finni því samastað á plötu keflvísku Bítlanna þá virkar það miklu fremur á mann sem Ljósalag en Hljómalag – með fullri virðingu fyrir þeirri vinsælu sönglagakeppni. Helst til of gamal- dags lag og þá meina ég líka fyrir fjörutíu ára gamla Bítlasveit. Aðrir hnökrar eru minni og óverulegir, þótt þá megi vissulega finna á stöku stað. Textarnir eru t.d. æði misjafn- ir. Sumir myndu t.d. flokka undir leirburð textabrot eins og: „Mý- vatnssveitin er æði/allan sólarhring- inn/alveg stórkostlegt svæði/fyrir þennan eða hinn.“ Í flestum tilvikum er þetta þó trúlega með vilja gert, „ort“ með stílbrigði dægurlagatexta frá 7. áratugnum í huga, þegar sak- leysið réð ríkjum og mál málanna voru blöðrulegir textarnir um að allt væri æði og maður ætti að pæla í hinu og þessu og slappa svo bara af. Sé svo, hafi textarnir meðvitað verið samdir með það í huga þá fyrirgefst það – enda eru þeir sumir hverjir bráðfyndnir á sinn hallærislega hátt. Góðu sprettirnir eru nægir á plöt- unni og eiga þeir Hljómamenn hver sínar gullnu stundir. Fyrst ber að nefna þátt Gunnars, sem líkt og áður fyrr er fyrirferðarmestur. Hann semur meirihluta laganna og syngur meira að segja einsöng í einum þremur þeirra. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að sem höfundur grípandi poppsmella hafi hann ekki átt betri spretti í háa herrans tíð. Lög eins og „Við saman“ og „Ást og friður ’68“ eru grípandi popplög og haganlega samin og „Veröld sem var“ einhver fallegasta ballaða sem Gunnar hefur samið. Ekki er heldur amalegt að hafa til taks mann eins og Jensen til að syngja slíkar perlur en hann hefur ennþá þessa einstöku silkimjúku og tregablendnu rödd sem gæðir hvert lag slíkum sannfær- ingarkrafti að maður getur ekki ann- að en trúað hverju einasta orði sem hann segir. Og talandi um sönginn þá kemur Gunnar ótrúlega sterkur þar inn. Maður þóttist vita að hann væri lúmskt góður söngvari og hafi alls ekki gefið nægilega mikið af sér í gegnum tíðina sem slíkur. Það sann- ast hér. Rúnar og Erlingur gera svo sitt, síðarnefndi með skemmtilegri bítlaröddun og fyrrnefndi náttúrlega með nærverunni því rétt eins og hér áður fyrr gæðir hann bandið rétta „attitjúdinu“, rétta rokkandanum. Og lögin tvö sem hann á og syngur, sýna þar að auki að styrkur síðustu plötu hans, Það þarf fólk eins og þig, sem kom út fyrir síðustu jól, var eng- in tilviljun. Karlinn er einfaldlega í fantaformi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Hljómaplatan sem kom út árið 2003 býr yfir öllu því sem góð Hljómaplata þarf að gera. Hún rokk- ar, er uppfull af spilagleði, hnyttnum lagasmíðum á köflum, hæfilegum hallærisskap, kæruleysislegum text- um og töffaratöktum í bland, allt á réttum stöðum. Hún er plata sem gefur góða hugmynd um hverjir eru og verða hinir einu sönnu Hljómar. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Hinir keflvísku Hljómar ná að endurvekja gamla neistann á nýju plötunni. Skarphéðinn Guðmundsson Í KVÖLD á Ellefunni mun rokksveitin Vínyll kynna nýja fjögurra laga stuttskífu sem ber einfaldlega tit- ilinn Vinyl EP. Þar er að finna lögin „Nobody’s Fool“ og „Who Gets The Blame“ sem hafa hljómað talsvert á öldum ljósvakans. Einnig er þarna „nýja“ lagið, „Miss Iceland“, og lag sem minna hefur heyrst, „Le Ballad“. „Þetta er náttúrlega bara fyrsta sýnishorn,“ segir Egill Tómasson, gítarleikari sveitarinnar um plötuna. „Þetta er undanfari að stórri plötu sem kemur líklega út eftir áramót.“ Egill gekk til liðs við sveitina fyrir um þremur árum en fyrsta útgáfa Vínyls hóf starfsemi árið 1997. „Þetta er nánast nýtt band,“ segir Egill. „Undanfarið hafa verið miklar pælingar í gangi og við erum búnir að henda fullt af lögum. Þetta er búið að vera hið ágæt- asta púsluspil að koma þessu saman.“ Vínyll er búinn að vera á allnokkrum þeytingi í út- löndum þetta árið og hafa leikið m.a. í Bretlandi og Bandaríkjunum. „Það er búið að ganga mjög vel,“ segir Egill. „Og eft- ir Airwaves förum við svo beinustu leið til New York að spila á CMJ-hátíðinni.“ Téð hátíð er mikil kynningarhátíð fyrir ungar og efnilegar sveitir og verða Íslendingar áberandi þetta árið en fjórar sveitir hafa verið staðfestar; Quarashi, Singapore Sling, Leaves og Vínyll. „Það er fullt af bransaliði að fylgjast þarna með,“ segir Egill. „En það eru 750 hljómsveitir að spila! Ís- lensku hljómsveitirnar eru þó á góðum tíma og á fínum stöðum. Þetta verður ógeðslega gaman.“ Að lokum má geta þess að í vikunni verður frumsýnt nýtt myndband við „Miss Iceland“ og er það eftir Biogen. Vínyll heldur útgáfutónleika vegna nýrrar stuttskífu Ballöður og fífl Morgunblaðið/Sverrir2/5 Vínyls slaka á fyrir kvöldið. Egill er sá til vinstri. Útgáfutónleikarnir hefjast kl. 22.00. www.vinyl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.