Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞEKKTUR og reyndur blaðamaður við franska dagblaðið Le Monde hefur verið rekinn úr starfi eftir að hann gaf út bók þar sem hann gagnrýndi m.a. ritstjóra blaðsins. Daniel Schneidermann er 45 ára gamall og hefur skrifað dálka sem birtast á fjölmiðlasíðum Le Monde. Í liðinni viku var hann kallaður fyrir aganefnd og honum tjáð að bók hans „Fjölmiðla- martröðin“ bryti gegn siðareglum franskra blaðamanna. Honum var síðan sagt upp á fimmtudag. Hin ýmsu fagfélög franskra blaðamanna hafa tekið upp hanskann fyrir Schneidermann. „Þetta er einstök ákvörðun í sögu blaðsins,“ sagði eitt stéttarfélagið og vísaði til þess að hún skapaði fordæmi þar eð hún kvæði á um að til væri ákveðin tegund „hugsunarglæpa“. Bók Schneidermanns er ein allsherjar árás á dagblöð í Frakklandi. Í kaflanum um Le Monde víkur Schneidermann að viðbrögðum ráðamanna Le Monde við eldri bók er nefnist „Hið hulda andlit Le Monde“. Sú bók er eftir þá Pierre Péan og Philippe Cohen en í henni ráðast þeir með sérlega óvægnum hætti gegn stjórnendum Le Monde. Schneidermann segir í nýju bókinni að ráða- menn Le Monde hafi valið að bregðast ekki við gagnrýninni á opinn og fölskvalausan hátt. Þess í stað hafi þeir hagað sér eins og „glæpaklíka á Sikiley“. Schneidermann segir að hann hafi reynt að koma á rökræðu höfundanna tveggja og að- alritstjóra Le Monde í þætti sem hann stýrir vikulega í franska sjónvarpinu. Ritstjórinn, Edwy Plenel, hafi hins vegar brugðist við með eftirfarandi hætti: „Við verðum að vita með hverjum þú stendur Schneidermann. Ert þú með okkur eða á móti?“ Gagnrýni Schneidermanns er í samræmi við þá sem þeir Péan og Cohen birtu. Þeir líkja Le Monde við Prövdu, hið gamla málgagn sovéska kommúnistaflokksins. Ritstjórinn, fram- kvæmdastjórinn, Jean-Marie Colombani og stjórnarformaðurinn, Alain Minc, ráði öllu á blaðinu og þar ríki „andrúmsloft óttans.“ Le Monde hefur hafið málarekstur gegn höf- undum og útgefendum bókarinnar „Hið hulda andlit Le Monde.“ Hún kom út í mars í ár og hefur náð metsölu. Tvær bækur til viðbótar hafa nýlega komið út um Le Monde og koma svipaðar áskanair fram í þeim; stjórnendur eru sagðir hrokafullir og yfirgangssamir. Rekinn fyrir að gagnrýna ritstjórann Paris. AFP. KONUR í Hamborg eiga góða daga í vændum en nú hillir undir, að þær þurfi ekki framar að draga á eftir sér nöldrandi eiginmenn í versl- unarferðum. Krá ein í borginni, Nox Bar, hef- ur komið upp sérstöku „karlalandi“ þar sem boðið er upp á bjór, heita rétti, knattspyrnuleiki í sjónvarpi og ýmislegt annað til að hafa ofan af fyrir körlunum meðan eigin- konur eða vinkonur þeirra stunda það, sem þeim þykir skemmtileg- ast, verslunarferðir. Sagði frá þessu á fréttavef BBC, breska rík- isútvarpsins, í gær. „Konurnar fá kvittun frá okkur þegar þær koma með karlana og verða síðan að framvísa henni þeg- ar þær koma til að sækja þá,“ sagði kráareigandinn, Alexander Stein. Sagðist hann hafa fengið hugmynd- ina frá konu, sem oft hefði skilið karlinn sinn eftir hjá honum meðan hún fór í búðir. „Henni fannst það svo stressandi að vera með hann og þetta reyndist vera lausnin fyrir þau bæði,“ sagði Stein. Fyrir 10 evrur, um 890 ísl. kr., fá karlarnir eina heita máltíð, tvö bjórglös, knattspyrnu í sjónvarpi og mega leika sér í tölvuleikjum. „Í síðustu viku fengu þeir að spreyta sig á fjarstýrðum bíl og í næstu viku verður það lítil kapp- akstursbraut.“ Vilja jafnvel vera lengur Stein segir, að fyrstu vikuna hafi hann verið með 20 karla í gæslu en síðastliðinn laugardag hafi verið komið með 27. Segir hann, að sumir hafi verið dálítið feimnir í fyrstu en samlagast fljótt og verið hinir ánægðustu þegar þeir voru sóttir, vildu jafnvel vera lengur. „Þetta er miklu skemmtilegra en að ráfa um verslanir, svo mikið er víst,“ sagði einn karlanna. Karlinn í gæslu meðan konan verslar AP Það er alla jafna mikið líf á þýskum krám, ekki síst við lok hinnar hefð- bundnu Októberhátíðar, þar sem þessi þjónustustúlka hélt á lofti svuntunni sinni þegar dagsverkinu var lokið. TVEIR Bandaríkjamenn munu skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði á þessu ári. Fá þeir þau fyrir að sýna fram á hvernig vatn og salt berast á milli frumna. Uppgötvanir lífefnafræðinganna Peters Agre, 54 ára, og Roderick MacKinnons, 47 ára, eru sagðar sér- staklega mikilvægar fyrir baráttuna gegn ýmsum sjúkdómum og sérstak- lega þeim, sem herja á nýru, hjarta, vöðva- og taugakerfið. Snúast þær um það hvernig vatn og salt berast inn í og út úr frumum og hvernig raf- boð í taugafrumum verða til og hvern- ig þau berast áfram. Nefnt er í þessu sambandi, að vafa- laust megi rekja þau mörgu dauðsföll, sem hitarnir í Evrópu ollu í sumar, til vandamála varðandi vökvajafnvægi í líkamanum. Því sé mjög líklegt, að aukinn skilningur á vatnsflutningi milli frumna muni auðvelda viðbrögð við ofþornun í framtíðinni. Nóbelsverðlaunin hafa yfirleitt fall- ið í skaut mönnum, sem hafa unnið langan dag og gert sínar merkustu uppgötvanir fyrir löngu, en Agre vann sitt afrek 1988 og MacKinnon fyrir aðeins fimm árum, 1998. Að því leyti er hann einstæður í annálum Nóbelsverðlaunanna. Vatns- og jónarásir Agre tókst að einangra eggjahvítu- efni í frumuvegg og það reyndist vera vatnsrásin, sem menn höfðu lengi leit- að að. Nú er unnt að fylgjast með ferð vatnssameindar í gegnum frumu- vegginn og menn vita nú hvers vegna rásin hleypir engum öðrum sameind- um í gegn. Mackinnon uppgötvaði aft- ur á móti jónarásina, sem hleypir að- eins salti í gegn, en jónarásir tempra eða stýra hjartslætti og hormóna- myndun og í þeim verða til rafboðin, sem gera flutning upplýsinga um taugakerfið mögulegan. Tveir Bandaríkjamenn fá Nóbelsverðlaunin í efnafræði Flutningur vatns milli frumna Stokkhólmi. AFP. Roderick MacKinnon Peter Agre SKÝRT var frá því í gær að Banda- ríkjamaðurinn Robert F. Engle og Bretinn Clive W.J. Granger hlytu Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár fyr- ir að þróa nýjar tölfræðilegar aðferð- ir til að reikna út hagfræðilegar tímaraðir. Engle, sem er sextugur, starfar við háskólann í New York og Granger, sem er 69 ára, er hjá Kali- forníuháskóla í San Diego. Í umsögn verðlaunanefndarinnar segir að rannsóknir þeirra séu not- aðar til að safna upplýsingum um þróun hagstærða og til að prófa kenningar í hagfræði. Slíkar tíma- raðir sýna t.d. þróun vergrar lands- framleiðslu, verðs, vaxta, hlutabréfa- verðs. Þessar rannsóknir séu mikilvægar vegna þess að flökt á hlutabréfamarkaði getur haft áhrif á hlutabréfaverð o.fl. Þær auðveldi hagfræðingum að gera hagspár og meta hvernig fjárfestingum á fjár- málamarkaði kunni að vegna. Nóbelsverðlaunin í hagfræði eru þau einu, sem ekki var getið um í erfðaskrá Alfreds Nobels, sem fann upp dínamítið. Sænski seðlabankinn stofnaði til verðlaunanna árið 1968 en þau eru afhent samhliða öðrum Nóbelsverðlaunum sem hafa verið veitt frá árinu 1901. Nóbelsverðlaun í hagfræði Rannsóknir á tímaröðum Stokkhólmi. AFP. VANGAVELTUR eru um að Jó- hannes Páll II páfi fái friðarverð- laun Nóbels þetta árið fyrir harða andstöðu sína gegn hernaðar- aðgerðum Bandaríkja- manna og fleiri þjóða í Írak. Tilkynnt verður á morg- un, föstudag, hver hlýtur verðlaunin en það er nefnd á vegum norska Stórþingsins sem ákveður hver þau fær. Ítalska blaðið Corriere della Sera fjallaði í löngu máli í gær um það hvers vegna páfi ætti að hljóta verðlaunin. M.a. var vísað til þess að enginn páfi hefði hlotið þessi verðlaun og í ljósi þess að Jóhann- es Páll II sé orðinn 83 ára og far- inn að heilsu kunni þetta að vera síðasta tækifærið sem gefst til að veita honum þessi verðlaun. Blaðið segir að það kunni að auka líkur á að páfi hljóti verð- launin, að Gunnar Stålsett, biskup í Ósló, hafi hætt í úthlutunar- nefndinni í fyrra en Stålsett hefur gagnrýnt páfa fyrir íhaldssemi, einkum varðandi getnaðarvarnir. Á móti komi að meirihluti nefnd- armanna sé konur og afstaða páfa til fóstureyðinga, getnaðarvarna, samkynhneigðar og hlutverks kvenna innan kirkjunnar, sé vel þekkt. Páfagarður hefur komið því á framfæri að Jóhannes Páll II verði viðstaddur verðlaunahátíðina 10. desember ef hann hlýtur verðlaun- in, jafnvel þótt háttsettir kardínál- ar virðist að undanförnu hafa verið að búa kaþólikka undir að ævi páfa kunni brátt að ljúka. Fær páfi friðar- verðlaun? Róm. AFP. SAMKVÆMT nýjum útreikn- ingum norska ríkisolíufyrir- tækisins Statoil kann að vera allt að 6 milljörðum fata meiri vinnanlega olíu að finna í norskri lögsögu en gert er ráð fyrir í útreikningum Olíumála- stofnunar Noregs, sem birtir voru í júní. Miðað við núverandi heimsmarkaðsverð væru þess- ar viðbótarolíubirgðir um 10.000 milljarða ísl. króna virði, eftir því sem greint er frá í vef- útgáfu Aftenposten. „Við telj- um nú að það finnist 28,3 millj- arðar fata af olíu og gasi í norskri lögsögu,“ segir Tor Fjæran, olíuleitarstjóri Statoil. Frakkar fá tiltal ESB FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins (ESB) hóf í gær næsta stig þrýstiaðgerða á stjórnvöld í Frakklandi að taka sér tak, ætli þau sér ekki að brjóta skilmála svonefnds stöðugleikasáttmála Efnahags- og myntbandalagsins, EMU. Í tilkynningu framkvæmda- stjórnarinnar er því slegið föstu að franska ríkisstjórnin hafi „ekki gripið til skilvirkra ráðstafana“ til að draga úr fjár- lagahalla. Samkvæmt fyrstu viðvörun sem framkvæmda- stjórnin hafði áður sent stjórn- völdum í París var þeim gefinn frestur til loka síðustu viku til að tilkynna hvað þau hygðust taka til bragðs til að afstýra því að fjárlagahallinn verði á þessu ári yfir 3% af vergri þjóðar- framleiðslu, en skv. reglum EMU um aga í ríkisfjármálum aðildarríkjanna ber hallanum að vera innan þessara marka, ella eigi viðkomandi land háar sektir yfir höfði sér. Bush vantrú- aður á lausn GEORGE W. Bush Banda- ríkjaforseti sagðist í fyrrakvöld efast um að rannsókn sem hafin er á því hvaða háttsetti stjórn- arliði lak nafni CIA-njósnara til fjölmiðla muni nokkurn tímann upplýsa málið. Hann sagðist þó vilja vita sannleikann í málinu. Starfsfólki Hvíta hússins var gefinn frestur til kl. 21 á þriðju- dag (að ísl. tíma) til að afhenda rannsakendum gögn sem gætu tengzt „lekamálinu“. STUTT Norð- menn enn ríkari?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.