Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 39
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert svo fjölhæf persóna
að þú átt í erfiðleikum með
að velja þér ævistarf. List-
irnar heilla. Á þessu ári
munu sambönd blómstra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nú er heppilegur tími til að
sækja um lán. Þið munuð
njóta aðstoðar frá öðrum
þennan mánuð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samskipti ykkar við aðra
munu batna til muna á næstu
vikum. Þið njótið samskipta
við aðra og aðrir vilja hafa
samskipti við ykkur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Allt í tengslum við starfið fer
batnandi á næstu vikum.
Samstarfsmenn sýna meiri
samstarfsvilja og tækifæri
gefast til að bæta sig í starfi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Allt sem tengist ást, róm-
antík, fríi, samkvæmum og
skemmtunum fær aukið vægi
á næstu sex vikum. Þið skul-
uð gera ráð fyrir skemmti-
legum tímum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þið einbeitið ykkur að heim-
ilinu og fjölskyldunni um
þessar mundir og hugmyndir
um fegrun heimilisins vekja
áhuga ykkar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Venus fer milli stjörnu-
merkja í dag og það gerir
ykkur kleift að skilja betur
hvað ástin hefur mikla þýð-
ingu. Samskipti við systkini
skipta miklu máli á næstunni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þið getið búist við að fá aukin
tækifæri í fjármálum, bæði
að afla fé og eyða því. Þið
hafið ánægju af versl-
unarferðum á næstunni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Venus fer inn í merki ykkar í
dag og það gerir ykkur meira
aðlaðandi í augum annarra.
Þetta mildar einnig geð ykk-
ar og eykur umburðarlyndi í
garð annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er mikið að gera í fé-
lagslífinu og því er sá tími
dýrmætur sem ykkur gefst
til að draga ykkur í hlé og
íhuga málin. Þið þurfið á því
að halda til að hlaða batt-
eríin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þið munið eiga góðar stundir
með vinum á næstu vikum.
Takið öllum heimboðum og
bjóðið öðrum heim.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aðrir sjá ykkur í óvenju já-
kvæðu ljósi næsta mánuðinn
án þess að þið gerið nokkuð
sérstakt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Grípið tækifærið til að
ferðast eða auka þekkingu
ykkar og þjálfun. Góð tæki-
færi gefast til að auka færni
ykkar og þekkingu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
NÆTURREGN
Hljótt er inni, úti kyrrð og friður,
aðeins regnið drýpur niður,
yfir þurran, þyrstan svörð.
Nóttin heyrir bænir alls, sem biður
við brjóst þín, móðir jörð.
Allir hlutu einn og sama dóminn.
Alla þyrstir, líkt og blómin,
hverja skepnu, hverja sál.
Um allar byggðir blikar daggarljóminn,
bláma slær á sund og ál.
Öllum sorgum sínum hjartað gleymir.
Svalinn ljúfi um það streymir,
eins og regn um sviðinn svörð.
Blómin sofna, börnin litlu dreymir
við brjóst þín, móðir jörð.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 9.
október, er sextug dr. Sig-
rún Klara Hannesdóttir
landsbókavörður, til heim-
ilis á Hofsvallagötu 61,
Reykjavík. Sigrún Klara
tekur á móti gestum á Sal-
arvegi 2 í Kópavogi á afmæl-
isdaginn kl. 17–21.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 12. október
verður fimmtug Vilborg
Pétursdóttir, Ólafsgeisla 2 í
Reykjavík (Lyngholt, Leir-
ársveit). Eiginmaður henn-
ar er Hafþór Harðarson. Af
því tilefni taka þau á móti
gestum laugardaginn 11.
október frá kl. 20:30 í Síðu-
múla 11, 2. hæð (Stélið).
VESTUR tekur upp flata
skiptingu og 13 punkta og
vekur á einum tígli. Þar með
lýkur þátttöku hans í sögn-
um, en við tekur erfitt verk-
efni í vörn gegn þremur
gröndum dobluðum:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KG983
♥ ÁDG4
♦ 104
♣83
Vestur
♠ Á74
♥ K86
♦ KG82
♣D62
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Dobl á þremur gröndum
hefur oft útspilsvísandi
merkingu, en vestur minnist
þess ekki að hafa rætt slíkar
stöður við makker sinn og
spilar út í sínum lengsta lit –
litlum tígli. Það er ekki upp-
örvandi að sjá tíu blinds eiga
fyrsta slaginn og vestur fær
bakþanka: „Var makker að
biðja um spaða út?“
En það er of seint séð.
Sagnhafi spilar laufi í öðrum
slag á gosann heima, sem
vestur tekur með drottning-
unni og skríður undir feld-
inn. Hvað á hann að gera?
Makker á sennilega
spaðadrottningu, en ekki
færi hann að dobla út á hana
eina. Hann hlýtur að eiga
kjöt í laufinu, vonandi ásinn.
Spilið kom upp í rúbertu-
keppni í London fyrir margt
löngu, og í vestursætinu sat
pólskur spilari að nafni
Michael Wolach. Og hann
fékk frábæra hugmynd –
spilaði tígli frá KG beint upp
í gaffal suðurs:
Norður
♠ KG983
♥ ÁDG4
♦ 104
♣83
Vestur Austur
♠ Á74 ♠ D65
♥ K86 ♥ 10932
♦ KG82 ♦ 9753
♣D62 ♣Á4
Suður
♠ 102
♥ 74
♦ ÁD6
♣KG10975
Þar með var lauflitur suð-
ur úr leik og sagnhafi gat
ekki komist hjá því að gefa
fimm slagi.
Vel á minnst. Makker var
bara að dobla út á punktana,
en hafði engan sérstakan
áhuga á einu útspili öðru
fremur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 9. október,
eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Þorgerður Magnús-
dóttir og Ingólfur Sigurðsson, Mýrarvegi 113, Akureyri.
1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3
Bg7 4. e4 d6 5. d4 0-0 6. h3
e5 7. d5 Rbd7 8. Bg5 a5 9.
g4 Rc5 10. Rd2 c6 11. Hg1
De8 12. h4 h6 13. Be3 Rfd7
14. Dc2 Rb8 15.
0-0-0 Rba6 16.
Rb3 Rb4 17. Db1
Rxb3+ 18. axb3
cxd5 19. Rxd5
Rxd5 20. Hxd5
Be6 21. Hd2 b5
22. Dd3 bxc4 23.
bxc4
Staðan kom
upp í Evr-
ópukeppni tafl-
félaga sem lauk
fyrir skömmu á
Krít. Sigurbjörn
Björnsson (2.302)
hafði svart gegn
Alarich Lens
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
(2.189). 23. – Bxc4! 24.
Dxd6 hvítur yrði drottn-
ingu undir eftir 24. Dxc4
Hc8. 24. – Bxf1 25. Hxf1
Da4 26. Dd3 Had8! 27.
Dxd8 Da1+ 28. Kc2 Dxf1
29. Dd3 Hc8+ 30. Kb3 Da1
31. Dd5 Bf8 og hvítur gafst
upp.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Nú er lokið hausttvímenningi fé-
lagsins, þriggja kvölda mitchel þar
sem tvö bestu kvöldin telja til verð-
launa. Á þriðja spilakvöldinu mættu
20 pör til leiks og eftirtalin pör náðu
hæsta skorinu í NS:
Guðlaugur Sveinss. – Magnús Sverriss. 265
Örlygur Örlygsson – Páll Þórsson 248
Árni Bragason – Alfreð Kristjánsson 238
Keppni var ótrúlega spennandi í
AV-áttirnar:
Unnar A. Guðm. – Jóhannes Guðm. 240
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónsson 239
Sigurlaug J. Bergv. – Sveinn Símonars. 238
Tvö af þremur bestu kvöldum
töldu til verðlauna og lokastaða efstu
para í þeirri keppni varð þannig:
Guðlaugur Sveinss. – Magnús Sverriss. 120
Eðvarð Hallgrímsson – Júlíus Snorras. 101
Unnar A. Guðm. – Jóhannes Guðm. 52
Einar Guðmundss. – Sigurgeir Sveinss. 35
Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 26
Næsta keppni félagsins er þriggja
kvölda Butler-tvímenningur sem
spilaður verður 13., 20. og 27. októ-
ber. Í Butler-tvímenningi er skorið
miðað við impa og spilamennskunni
því háttað líkt og verið sé að spila
sveitakeppni.
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu brids á 14
borðum í félagsheimilinu Gullsmára
mánudaginn 6. október.
Miðlungur 264. Efst voru:
NS
Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 335
Karl Gunnarsson – Ernst Backmann 322
Kristjana Halldórsd. – Eggert Krist. 304
Sigríður Ingólfsd. – Sigurður Björnss. 294
AV
Valdimar Lárusson – Einar Elíasson 311
Guðmundur Helgas. – Helga Haraldsd. 301
Haukur Guðmundss. – Þórhallur Árnas. 279
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnl. 276
Spilað alla mánu- og fimmtudaga.
Skrá þarf sveitir sem allra fyrst í
sveitakeppni sem hefst 20. október.
Munið: Það er ekki eftir sem af er!
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Ný sending
Flauelisbuxur -
flauelispils
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina í 3 vikur á
hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann
25. nóvember. Það er um 25 stiga hiti á Kanarí í nóvember, og hér er auðvelt að njóta
lífsins við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin. 4
dögum fyrir brottför hringjum við í þig og
látum þig vita hvar þú gistir og á meðan á
dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra
fararstjóra okkar allan tímann.
Síðustu sætin
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.950
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð.
25. nóvember, flug, gisting, skattar,
Heimkoma, 19. des. M.v. netbókun,
símbókunargjald kr. 2.000 á mann.
Stökktu til
Kanarí
25. nóvember
frá 32.963
Verð kr. 32.963
Verð fyrir mann, m.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára. 25. nóv., flug, gisting og
skattar. Heimkoma, 19. des. M.v. net-
bókun, símbókunargjald kr. 2.000 á mann.