Morgunblaðið - 09.10.2003, Síða 11

Morgunblaðið - 09.10.2003, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 11 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábær- um kjörum með beinu flugi í haust. Allsstaðar nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar sem eru á heimavelli á söguslóðum, og bjóða spennandi kynnis- ferðir á meðan á dvölinni stendur. Not- aðu tækifærið og kynnstu mest spenn- andi borgum Evrópu, mannlífi og menn- ingu og upplifðu ævintýri í haust. Barcelona Budapest Prag í beinu flugi í haust frá 19.950 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Budapest Október • Fimmtud. og mánud. • 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslend- ingum býðst nú að kynnast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða. Verð kr. 29.950 Flugsæti til Budapest, 16. okt. Skattar innif. Verð kr. 39.550 Helgarferð til Budapest, 16. okt., 4 nætur. M.v. Mercure Duna, 2 í herbergi, með morg- unmat. Innifalið flug, gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. • Fimmtud. og mánud. • 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 19.950 Flugsæti m.v. tvo fyrir einn, 13. okt. Skattar innifaldir. Gildir frá mánud. til fimmtud. Verð kr. 39.950 Flug og gisting, 23. okt, Expo hótel, m.v. 2 í herbergi með morgunmat. Innifalið flug, gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 22./26.okt. 4 nætur 30. okt. 3 nætur 22. okt. - uppselt Einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú beint flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heimsækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýning og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrúlegu úrvali verslana. Far- arstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 3 nætur m.v. 2 í herbergi á Aragon, 30. okt., 4 nætur. Skattar innifaldir. Flutningur til og frá flugvelli kr. 1.800. Verð kr. 36.550 Flugsæti til Barcelona með sköttum. Að seljast upp í haust HOLLENSKI hópurinn er í Ís- landsferð sinni einnig að afla sér þekkingar um eðli íslenskra bygg- inga og kynnast um leið jarð- skjálftarannsóknum. Um liðna helgi hertóku þau hollensku gamla bæinn og kirkjuna á Ár- bæjarsafni, ásamt því að fram- kvæma hljóðmælingar við Lög- berg á Þingvöllum. Síðustu daga hafa Hollendingarnir verið í vett- vangsrannsóknum í Glaumbæjar- safni í Skagafirði og nú í lok vik- unnar verða þeir aftur sunnan heiða og ætla að skoða Perluna, Nesjavelli og sækja fyrirlestra í verkfræðideild Háskóla Íslands. Í hópnum eru tíu nemendur og tveir kennarar. Leiðangursstjóri er Joost van Hoof, sem er á loka- ári í námi sínu við skólann. Nem- endur úr sama skóla fóru í leið- angur til Lapplands á síðasta ári þar sem eðlisfræðirannsóknir fóru fram á hóteli sem byggt er úr ís í bænum Jukkasjärvi. Vöktu niðurstöður þeirra rannsókna at- hygli og fengust m.a. birtar í vís- indatímaritum í Hollandi og Belg- íu. Var þetta árið ákveðið að rannasaka eitthvað „heitt, rakt og þurrt“ og hvar er þá betri staður til þess en á Íslandi? Hvergi, var svar þeirra hollensku og urðu þau sammála um að fara til Íslands í vikuferð. Morgunblaðsmenn heimsóttu Hollendingana í Árbæjarsafn. Inni í torfkirkjunni var búið að koma fyrir flóknum búnaði til hljóðmæl- inga þar sem rannsaka átti endur- ómun í byggingunni og fleiri þætti hljóðeðlisfræðinnar. Í gamla bænum voru svo nokkr- ir nemendur við mælingar á hita- og rakastigi, lýsingu og vind- hraða, hversu undarlega sem hið síðastnefnda kann að hljóma. Fyr- ir ókunnuga var óneitanlega kyndugt að sjá öll mælitækin inn- an um forna muni og húsgögn en auk innanhússmælinga fóru einn- ig fram rannsóknir á bygging- unum að utan. „Helsta verkefni okkar í Ís- landsferðinni er að kanna gæði lofts í torfbyggingum eins og koltvísýring, rakastig, lykt og fleira,“ segir Joost van Hoof og bætir því við að niðurstöður þess- ara rannsókna muni nýtast söfn- unum hér á landi um hvernig við- halda megi betur þessum torfbyggingum. Einnig sé ætlunin að koma einhverjum af þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn. Leitað að besta ræðu- staðnum á Lögbergi Á Þingvöllum fóru fram svolítið sérstakar hljóðmælingar hjá þeim hollensku. Búnaði var komið fyrir við þingstaðinn á Lögbergi og að sögn Gemmu Tegalaers, eins nem- endanna, var ætlunin að reyna að finna út úr því hvar ræðumenn stóðu andspænis þingmönnum. Markmið þessara hljóðmælinga væri að finna út hvar á þing- staðnum væri best að halda ræður án aðstoðar nútímahljóðkerfis, þannig að endurómunin frá berg- inu gæti nýst sem best. Van Hoof segir takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um eðl- isfræðina á bakvið byggingarlag torfhúsa, jafnt hér á landi sem í Hollandi og víðar. Meira sé vitað um byggingaraðferðir og sögu húsanna. Constant Hak, annar kennaranna í hópnum, segir að í norðurhluta Hollands finnist nokkrir torfbæir enn í dag og þá aðallega á söfnunum Schoonoord og Barger-Compascuüm. Þeir séu mun minni í sniðum en þeir ís- lensku og ekkert grjót notað, enda lítið af slíku byggingarefni í Hollandi. Lítið sem ekkert sé af torfbæjum sunnar í landinu og því hafi verið lögð áhersla á það í Ís- landsferðinni að skoða torfbygg- ingar bæði norðan- og sunn- anlands. Mældu raka í torfbæjum og hljóð á Lögbergi Morgunblaðið/Árni Sæberg Nemendur og kennarar tækniháskólans í Eindhoven fyrir utan Árbæjar- kirkju, fremur kuldalegir. Enda sögðust sumir alveg kjósa að hafa verið frekar staddir í hlýjunni heimafyrir. Hollendingarnir höfðu á orði að hljóðmælingartækið sem sett var á altari Ár- bæjarkirkju minnti á eitthvað allt annað en prest! Þau Gemma Tegelaers og Josst van Hoof stilla tækið og með þeim fylgist kennarinn, Constant Hak. Eðlisfræðinemendur og kennarar frá tækniháskólanum í Eindhoven í Hollandi eru staddir hér á landi við rannsóknir á íslensk- um torfbyggingum og fleiri vísindastörf. Björn Jóhann Björnsson og Árni Sæberg hittu hópinn í Árbæjarsafni. bjb@mbl.is SENDIHERRA Jap- ans á Íslandi, Masao Kawai, er um þessar mundir að kveðja og heldur til starfa í heimalandi sínu í lok mánaðarins. Hann er einnig sendiherra í Noregi og hefur þar aðalaðsetur en kemur reglulega til Íslands og dvelur þá nokkra daga í senn. Hann telur ný- byrjaða japönsku- kennslu í Háskóla Ís- lands mikilvægan hlekk í samskiptum landanna enda sé þar meira á ferðinni en að- eins tungumálakennsla. Sendiherr- ann kveðst yfirgefa Ísland með eft- irsjá enda sé það áhugavert og hann hafi kynnst hér mörgu góðu fólki. „Ég hef verið mjög heppinn að fá að vera sendiherra á Íslandi síðustu tvö árin og við höfum unnið að mörgum þýðingarmiklum og áhuga- verðum verkefnum,“ segir sendi- herrann í samtali við Morgunblaðið og nefnir þar samskipti landanna á sviði menningarmála, menntamála, ferðamála og viðskipta. Hann segir heimsóknir Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra snemma á þessu ári og Halldórs Ásgrímssonar fyrir um tveimur árum hafa verið mjög mik- ilvægar. Gagnkvæmur áhugi þjóðanna „Utanríkisráðherra ykkar opnaði íslenska sendiráðið í Tókýó í heim- sókn sinni og var eftir því tekið hversu vel var mætt í boð við það tækifæri. Um það bil 700 Japönum var boðið og um 600 komu sem er miklu hærra hlutfall en í hliðstæðum boðum hjá utanríkisþjónustum landanna. Þetta sýnir að það er mikill áhugi á Íslandi í Japan. Þið Íslendingar segið að landið ykkar sé lítið en það er mjög stórt í augum margra Jap- ana,“ segir Masao Kawai og kveðst ekki geta útskýrt það gjörla nema ef vera skyldi almenn forvitni um þetta þróaða þjóð- félag svo langt í burtu í miðju Atlantshafi og hitt að löndin eigi ýmislegt sameiginlegt. Bendir hann þar á eldvirkni, jarðskjálfta og sjávarútveg og að fólkið sé sumpart svipað, nokkuð feimið og hlédrægt. „Þjóðirnar virða hvor aðra og eiga margt sameiginlegt í stefnu í al- þjóðamálum og eru nánar á þann hátt. Ég hygg að Íslendingar líti svipað á Japan og hafi áhuga á menningu þessa lands í svo mikilli fjarlægð. Þið kaupið líka mikið af japönskum vörum, ekki síst bílum.“ Mennta- og menningarmál hafa talsvert verið á könnu sendiherrans og hann kveðst meta mjög mikils það framtak Háskóla Íslands að taka upp kennslu í japönsku. Þakk- ar hann einnig Vigdísi Finnboga- dóttur, fyrrverandi forseta, fyrir þátt hennar í því efni. „Þetta er nefnilega miklu meira en bara tungumálanám. Þarna kynnast menn um leið menningu, stjórnmál- um, efnahag, tækni og hugsunar- hætti okkar. Nemendur sem sækja námskeiðið mynda eins konar brú milli landanna og þekking á tungu- máli getur alltaf varpað nýju ljósi á skilning og samskipti þjóða.“ Masao Kawai kveðst hafa getað nýtt Íslandsdvalir sínar vel og getað flutt fyrirlestra um land sitt m.a. við Háskóla Íslands, Háskólann á Ak- ureyri og Viðskiptaháskólann að Bifröst en þar hafa m.a. tveir jap- anskir nemar stundað nám. Sendi- herrann segir mikilvægt að Norð- urlöndin skuli hafa náð samstöðu um að taka þátt í heimssýningunni sem vera á í Japan 2005. Segir hann Davíð Oddsson hafa átt drjúgan þátt í þeirri ákvörðun landanna. Hvalveiðimál bar á góma og telur Masao Kawai mikilvægt að Norð- menn, Íslendingar og Japanir standi saman um skynsamlega nýt- ingu hvalastofna enda séu hvalir í samkeppni við manninn um ýmsa nytjastofna í fiski. Þá segir hann áhugavert að skoða mögulega sam- vinnu landanna um nýtingu á fram- taki og möguleikum Íslands á sviði vetnis sem orkugjafa framtíðarinn- ar. Sér fram á aukningu í ferðaþjónustu Í lokin er minnst á ferðamál og telur sendiherrann ljóst að Japanir muni í enn auknum mæli leggja leið sína til Íslands sem ferðamenn. Mikill áhugi hafi verið á þeim þrem- ur beinu leiguflugsferðum milli landanna nú í haust og þeim muni fjölga. Telur hann að í fyllingu tím- ans komist á loftferðasamningur milli landanna sem geri kleift að hefja reglulegt áætlunarflug. Japönskukennsla mikilvægur hlekkur Masao Kawai, sendi- herra Japans á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.