Morgunblaðið - 09.10.2003, Page 15

Morgunblaðið - 09.10.2003, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 15 KVIKMYNDALEIKARINN Arnold Schwarzenegger var kjörinn næsti ríkisstjóri Kaliforníu, fjölmennasta og auðugasta ríkis Bandaríkjanna, og kjósendur viku demókratanum Gray Davis úr embættinu í sögulegum kosningum á þriðjudag sem þóttu verðugt efni í Hollywood-kvikmynd. „Þið hafið tekið mér opnum örm- um, tekið á móti mér, gefið mér óend- anleg tækifæri,“ sagði Schwarzen- egger þegar hann lýsti yfir sigri í kosningunum. „Ég ætla að gera allt sem ég get til að standa undir þessu trausti. Ég mun ekki bregðast ykkur, eða valda ykkur vonbrigðum.“ Stærri sigur en búist var við Samkvæmt síðustu tölum, þegar 99% atkvæðanna höfðu verið talin, voru 54,9% hlynnt því að Davis léti af embætti, tæpu ári eftir að hann var endurkjörinn, og 45,1% á móti. Í at- kvæðagreiðslunni um hver ætti að taka við af honum fékk Schwarzen- egger 48,2% kjörfylgi og helsti and- stæðingur hans, demókratinn og vararíkisstjórinn Cruz Bustamente, 32,1%. Flestir stjórnmálaskýrendur höfðu búist við því að munurinn yrði talsvert minni. Repúblikaninn Tom McClintock, sem á sæti á þingi Kaliforníu, varð í þriðja sæti með um 13% atkvæðanna og á eftir honum kom ríkisstjóraefni Græna flokksins, Peter Camejo, með 2,8%. Alls voru frambjóðendurnir 135 og meðal þeirra voru klámkóngurinn Larry Flynt, sem varð í sjöunda sæti með 0,3% fylgi. Æðsti kosningaeftirlitsmaður Kali- forníu þarf að staðfesta úrslitin fyrir 15. nóvember og Schwarzenegger á að taka við embættinu ekki síðar en tíu dögum eftir staðfestinguna. Hann á að gegna embættinu út kjörtímabil Davis, í þrjú ár, og getur sóst eftir endurkjöri árið 2006. Bustamente verður áfram vararík- isstjóri næstu þrjú árin. Hann og fleiri forystumenn demókrata, sem eru með meirihluta á þinginu, hétu samstarfi við Schwarzenegger. Bustamente gerði þó að gamni sínu þegar hann ræddi vandræðalega stöðu sína sem vararíkisstjóri og gaf til kynna að hann hefði ekkert á móti því að kvikmyndaleikarinn héldi sig í Hollywood. „Arnold, þú ert frægur fyrir að gera kvikmyndir úti um allan heim. Ég vil að þú haldir því áfram eins og þig lystir,“ sagði hann. Þetta er í fyrsta sinn í 82 ár sem ríkisstjóra í Bandaríkjunum er vikið úr embætti í sérstakri atkvæða- greiðslu. Það gerðist síðast í Norður- Dakóta árið 1921. Kalifornía er fjölmennasta ríki Bandaríkjanna, með 35 milljónir íbúa, og jafnframt auðugasta sambandsrík- ið, með fimmta stærsta hagkerfi heims. Schwarzenegger stendur frammi fyrir mjög erfiðu verkefni þar sem því er spáð að fjárlagahalli Kaliforníu verði 8 milljarðar dollara, um 610 milljarðar króna, á næsta fjárhagsári. „Við stöndum frammi fyrir erfiðu vali,“ sagði Schwarzenegger þegar hann flutti sigurræðuna. „Eigum við að endurreisa ríkið saman eða berjast innbyrðis, valda jafnvel enn meiri sundrungu og bregðast íbúum Kali- forníu? Ég skal segja ykkur eitt – svarið er augljóst. Til að fólkið sigri þarf pólitíkin sem við eigum að venj- ast að tapa.“ „Ég mun ekki bregðast ykkur“ Reuters Schwarzenegger og eiginkona hans, Maria Shriver, kyssast er þau fagna sigri hans í ríkisstjórakosningunum. Los Angeles. AFP, AP. ’ Þið hafið tekiðmér opnum örmum, tekið á móti mér, gefið mér óendanleg tækifæri. ‘ Arnold Schwarzenegger sigrar í ríkisstjórakosningunum í Kaliforníu með miklum mun ARNOLD Schwarzenegger hefur nú fetað í fótspor Ronalds Reagans, Clints Eastwoods og Shirley Temple sem öll hösluðu sér völl í stjórn- málunum eftir mikinn frama í Hollywood. Reagan var kjörinn ríkisstjóri Kaliforníu árið 1967, gegndi seinna embætti forseta Bandaríkj- anna í tvö kjör- tímabil, 1981–89, og er nú þekktari fyrir efnahags- stefnu sína en kvikmyndaleik. Eastwood var kjörinn bæjar- stjóri Carmel í Kaliforníu 1986 og gegndi því embætti með allgóðum árangri í tvö ár. Temple gaf kost á sér í þingkosn- ingum á sjöunda áratugnum og varð seinna fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherra í Ghana og Tékkóslóvakíu. Fleiri stjörnur hafa leitað sér frama í stjórnmálunum, þeirra á með- al söngvarinn Sonny Bono, úr söngdúettnum Sonny og Cher. Hann var bæjarstjóri Palm Springs 1988– 92 og kjörinn á Bandaríkjaþing 1994. Hann lést í skíðaslysi fjórum árum síðar. Arnold Schwarzenegger getur leit- að ráða hjá vini sínum, fjölbragða- glímukappanum Jesse Ventura, sem var kjörinn ríkisstjóri Minnesota 1999. Schwarzenegger getur hins vegar ekki fetað í fótspor Reagans og gegnt æðsta embætti landsins nema lögunum verði breytt þar sem hann fæddist ekki í Bandaríkjunum. Stjörnur í stjórn- málum Clint Eastwood Ronald Reagan Los Angeles. AFP. FRÁ spjallrás á Netinu í Kína til æskuslóða Arnolds Schwarzeneggers í Austurríki furðaði fólk um allan heim sig á og/eða dáðistt að hinum einstaklega bandaríska stjórnmálasigri hans. „Margir tengja „Járn-Arnie“ enn við hetju sem bjargar heiminum frá vondu köllunum,“ sagði í morgunsjónvarpsfréttum rússnesku NTV-stöðvarinnar í Moskvu. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakk- lands, sagði í útvarpsviðtali að hann liti kosn- ingasigur Schwarzeneggers blendnum huga, en viðurkenndi að hann væri eftirtektarvert afrek. „Maður sem er útlendingur í landinu þar sem hann býr, sem ber nafn sem er ekki hægt að bera fram og getur samt orðið ríkisstjóri fjölmenn- asta ríkis Bandaríkjanna – það er ekki svo lítið,“ tjáði Sarkozy RTL-útvarpinu. Í Kína, þar sem alræðisstjórn kommúnista umber engan mótþróa við stefnu og ákvarðanir valdhafanna sem ekki eru kjörnir í embætti í lýð- ræðislegum kosningum, sendu ýmsir netnotend- ur athugasemdir inn á skoðanaskiptatorg hinnar vinsælu spjallrásarsíðu Sohu.com. „Þetta væri óhugsandi í Kína,“ skrifaði einn, en lét nafn sitt ekki fylgja undir skeytinu. Ameríski draumurinn Í sjónvarpsfréttum í Japan var mikið gert úr fréttunum frá Kaliforníu, sem féllu vel að áhuga Japana á bandaríska afþreyingariðnaðinum og bandarískum stjórnmálum. „Þetta er ameríski draumurinn orðinn að veruleika,“ sagði Hideya Sugio, fréttaþulur TBS-sjónvarpsstöðvarinnar japönsku. Erik Aasard, sem stýrir sænskri rannsókna- stofnun um norður-amerísk málefni við Upp- salaháskóla, sagði að úrslitin mætti skýra með óánægju kjósenda með stöðuna í efnahagsmál- um. „Eina leiðin til að finna skýringar á þessu liggur ekki svo mjög í því að Schwarzenegger sé aðlaðandi frambjóðandi – sem hann þó er – held- ur hinu, að kjósendur eru vonsviknir með hvern- ig haldið hefur verið á stjórn Kaliforníu.“ Og Joseph Estrada, fyrrverandi forseti Fil- ippseyja, sem nú situr af sér spillingardóm, sendi Schwarzenegger skeyti og hvatti hann til að þjóna kjósendum með því að beita bíómynda- hetjuskap sínum í stjórnmálunum. „Hinir svo- kölluðu menntamenn, með allar sínar meistara- gráður, hafa engan einkarétt á að fara með völd,“ sagði Estrada. Umheimurinn hlessa á sigrinum Graz. AP. AUSTURRÍKISMENN vöknuðu upp við það í gærmorgun, að landi þeirra, Arnold Schwarzenegger, væri orðinn ríkisstjóri í Kaliforníu. Var því tekið með miklum fögnuði og ferða- málafulltrúinn í fæðingarsveit hans var ekkert að tvínóna við það, heldur lýsti yfir, að Wolfgang Amadeus Mozart væri ekki lengur frægasti sonur landsins. Benita Ferrero-Waldner, utan- ríkisráðherra Austurríkis, sagði í yfirlýsingu, að hún vonaði, að Schwarzenegger kæmi sem fyrst í opinbera heimsókn og Thomas Klest- il, forseti landsins, hafði samband við ríkisstjórann nýja og lýsti því hve landar hans væru stoltir af honum. „Mozart er ekki lengur frægasti Austurríkismaðurinn, heldur Schwarzenegger – hann er hetjan okkar,“ sagði Dieter Hardt- Stremayr, ferðamálafulltrúi í Graz, en í því héraði fæddist Schwarzen- egger 1947. Bætti hann síðan við, að vonandi hættu Bandaríkjamenn nú að rugla saman Austurríki og Ástr- alíu. Wolfgang Schüssel, kanslari Aust- urríkis, sagði í sinni yfirlýsingu, að Schwarzenegger hefði aldrei gleymt uppruna sínum og væri sigur hans góður fyrir ímynd landsins. Austurríska sjónvarpið rauf dag- skrána er ljóst var, að Schwarzen- egger hafði borið sigur úr býtum í ríkisstjórakosningunum og leitaði viðbragða hjá fjölda manns. Voru þau öll á eina lund, mikil ánægja og stóru orðin ekki spöruð. „Nú mun sólin aldrei setjast í Aust- urríki,“ sagði Waltraud Klasnic, fylk- isstjóri í Steiermark, þar sem hún fagnaði úrslitunum á krá í Thal bei Graz, fæðingarbæ Schwarzeneggers. „Þegar sólin er að ganga til viðar hér, er hún að koma upp í Sacramento.“ Átti hún þá við höfuðborg Kaliforníu. Sagði hún, að nú myndu Bandaríkja- menn fá aukinn áhuga á æskuslóðum Schwarzeneggers og það væri að sjálfsögðu hið besta mál. Jörg Haider, leiðtogi hins um- deilda hægriflokks FPÖ, sendi einnig Schwarzenegger heillaóskir og Kurt Marnul, þjálfari hans í vaxtarrækt- inni á sínum tíma, sagðist aldrei hafa efast um, að hann myndi vinna. Mozart ekki lengur frægastur – nú er það Arnold Schwarzenegger AP Kurt Marnul, er kom Schwarzenegger af stað í vaxtarrækt, er næstum hálf- áttræður og virðist gefa sínum gamla lærisveini lítið eftir í líkamsburðunum. Mikill fögnuður meðal Austurríkismanna með „frægasta son“ landsins Thal bei Graz. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.