Morgunblaðið - 09.10.2003, Page 16

Morgunblaðið - 09.10.2003, Page 16
Stjórntækniskóli Íslands Bíldshöfða 18 Sími 567 1466 MARKAÐSFRÆÐI Hnitmiðað 250 stunda nám í sölu og markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki sem vill bæta við þekkingu sína og fá innsýn í heim markaðsfræðinnar, og að nemendur tileinki sér markaðshugsun í íslensku viðskipta og athafnalífi, og nái þannig betri árangri. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og verkefnavinnu. Helsu námsgreinar: Markaðsfræði Sölustjórnun og sölutækni Vöruþróun Vörustjórnun Auglýsingar Áætlanagerðir Viðskiptasiðferði Lokaverkefni Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar. WWW.menntun.is Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00. „Ég mæli með náminu fyrir alla þá, er starfa við markaðs- og sölustörf. Ég hef verið í sölu- mennsku í 6 ár og nám- skeiðið hefur nýst mér vel í starfi. Fjölbreytt og áhugavert námskeið.“ Elísabet Ólafsdóttir Eggert Kristjánsson hf. „Ég mæli tvímælalaust með þessu námi fyrir alla þá sem eitthvað eru tengdir markaðs-, sölu-, upplýsinga-, skipulags- og/eða framleiðslumál- um sinna fyrirtækja.“ Hendricus Bjarnason Tæknilegur ráðgjafi og umsjónarmaður markaðstengdra verðbréfa kerfa ING-bankans í Amsterdam „Sölu- og markaðsfræði- nám Stjórntækniskóla Ís- lands er afar hagnýtt og ott nám fyrir alla þá er starfa við sölu- og mark- aðsmál. Námið er mjög markvisst og hefur nýst mér vel í starfi frá upp- hafi og kemur til með að gera það í framtíðinni.“ Gróa Ásgeir dóttir, Flugfélag Íslands. Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund skapti@mbl.is Spurn eftir fiski | Mikil spurn er eftir fiski á mörkuðum, bæði fyrir ferskan og frosinn fisk, skv. frétt á heimasíðu Útgerð- arfélags Akureyringa. Gunnar Vigfússon, verkstjóri á Akureyri, segir þar að afla- brögðin hafi almennt verið frekar léleg í september, auk þess sem tíðarfarið gerði erfitt fyrir. En hann segir að svo virðist sem aðeins sé að rætast úr. „Það hefur verið mikil spurn eftir fiski að undanförnu. Við höfum jöfnum höndum verið að vinna ferskan fisk og í frystingu. Ferski fiskurinn hefur jafnt og þétt verið að aukast á síðustu vikum og mánuðum. Yf- irleitt erum við að vinna rúm 20 tonn af ferskum fiski í hverri viku. Togararnir landa oftar en áður og þannig fáum við ferskari fisk. Núorðið erum við að vinna ferskfisk í flug nánast alla daga. Þá fara af- urðirnar á bíl hér seinnipart dags og eru komnar suður að kvöldi. Daginn eftir fara þær síðan með flugi á erlenda markaði,“ segir Gunnar. Að undanförnu hefur fyrst og fremst ver- ið veiði fyrir vestan. Gunnar segir að áber- andi meira los sé í þeim fiski en fiskinum sem er veiddur fyrir norðan eða austan land. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Háspennustrengur | Ágætlega hefur gengið að leggja háspennustreng frá enda- stöð innan leiðigarðsins við Seljalandsmúla að aðveitustöð við Stórurð, að sögn Skúla Skúlasonar, verkstjóra hjá Orkubúi Vest- fjarða. Þetta kemur fram á fréttavef Bæj- arins besta á Ísafirði. Skúli segir þó blauta tíð eins og verið hafi síðustu daga ekki heppilega til verka af þessu tagi. Ákveðið var að leggja jarð- streng eftir hlíðinni í stað loftlínu sem nú liggur um framkvæmdasvæði leiðigarðsins. „Það gekk frekar seint að grafa við Múla- land vegna strengja sem þar eru fyrir en að öðru leyti hefur okkur miðað bærilega. Við stefnum á að ljúka verkinu í lok þessa mán- aðar svo fremi sem veður hamli ekki,“ segir Skúli. Vegfarendur um vinsæla útivistarleið á innsta hluta Seljalandsvegar hafa orðið var- ir við skurðgröft á leiðinni en nú er búið að leggja strenginn þar í og ganga frá veg- inum aftur. „Við erum komnir að bílaverk- stæði Sigurðar og Stefáns á Seljalandsvegi. Þannig má segja að verkið sé hálfnað,“ seg- ir Skúli. Strengurinn verður tekinn upp í hlíðina við Vinaminni og lagður út eftir henni, ofan við Urðarveg, að aðveitustöðinni í Stórurð. Sverrir Páll Erlends-son, mennta-skólakennari, skrif- ar „pistla og raus um daginn og veginn“ á blogg- ið sitt á Netinu. Hann seg- ir: „Mikið er það skemmti- leg tilhugsun að fólk á Akureyri skuli versla við Kaupfélag Suðurnesja í Byggðavegi, Kaupfélag Suðurnesja í Hrísalundi og Kaupfélag Suðurnesja á Glerártorgi. Og ég held að Karl Eskil hafi aldrei náð sér eins á flug í Svæð- isnuddinu og þegar hann benti á að ef Akureyringar ætluðu að vera héraðs- hollir og versla í heima- byggð yrðu þeir að muna að Jóhannes í Bónusi væri heimilisfastur á Akureyri, en hér er um að velja Bón- us, Hagkaup og 10–11. Svakalega hlýtur gömlum Keamönnum að líða und- arlega þessa dagana.“ Kaupfélagið Haustið er komið og skammdegisskuggar ríkja íbænum. Laufin falla og rósirnar fölna. Um há-degi í haustrauðri sól varð þetta hús á vegi fréttaritara Morgunblaðsins. Líklega hafa blómálfarnir verið þar að verki og viljað lengja sumarið sem fólki þótti stutt þetta árið. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Blómálfar að verki Enn af leka Þórarinn Eldjárnminnir á að þegarframsókn kom í stað krata í ríkisstjórn hafi Davíð komist svo að orði í viðtali að helsti gallinn við kratana, þó góðir hefðu verið á margan hátt, væri sá að þeir mættu ekki sjá míkrófón þá byrjuðu þeir að leka. Þá orti hann í orðastað ráð- herrans: Ég kann ekki við krataflón sem koma í valdsins hallir. Þeir mega ekki sjá míkrófón þá mígleka þeir allir. Séra Hjálmar Jónsson segist vel muna yfirlýs- ingu Davíðs. Þegar framsókn hafi komið í stað krata hafi um leið orðið ein breyting á ráð- herraliði sjálfstæðis- manna. Þá sendi séra Hjálmar nýorðnum for- seta Alþingis vísu: Lekinn var stöðvaður, lokuðust vé, ljósvakinn fréttir af engu eftir að kratar og Ólafur G út úr stjórninni gengu. Reykjavík | Lífið gengur sinn vanagang við gömlu höfnina í höfuðborginni. Bátarnir koma og fara, fiskur kemur í kerjum á land og kerin fara tóm í bátana aftur sem stefna svo á haf út í fiskileit. Sjómenn og aðrir sem vinna við höfnina vinna hörðum höndum við að koma aflanum á land og undirbúa báta sína í enn eina sjóferðina. Einstaka sinn- um er þó mögulegt að slappa að- eins af þar til næsta törn hefst. Hugsanlega eru mennirnir á myndinni að rabba saman um gæftir að undanförnu, ef til vill um veðrið, jafnvel um landsleik- inn á laugardaginn. Hver veit? Morgunblaðið/Jim Smart Beðið eftir bátnum Bryggjuspjall Ísafirði | Lögreglan á Ísafirði fann á þriðju- dagskvöld fíkniefni, áhöld til neyslu fíkni- efna og peninga í tveimur húsleitum sem hún gerði á Ísafirði. Fjórir karlmenn voru handteknir í tengslum við málið. Einum fjórmenninganna, manni á þrí- tugsaldri, hefur verið sleppt, en hann við- urkenndi að hafa keypt fíkniefni af einum hinna þriggja. Hinir mennirnir þrír, sem eru á aldrinum frá 20 til 24 ára, voru hafðir áfram í haldi lögreglunnar vegna rannsókn- ar málsins. Húsleitirnar voru framkvæmdar að fengnum úrskurði Héraðsdóms Vestfjarða. Lögreglan á Ísafirði rannsakar málið sem fíkniefnadreifingarmál og vill ekki gefa upp hversu mikið magn af fíkniefnum fannst, né heldur hversu miklir peningar fundust í húsleitunum. Við húsleitirnar nutu lögreglumenn á Ísa- firði aðstoðar fíkniefnaleitarhundsins Dofra, sem er í eigu eins varðstjórans í liðinu. Fjórir handteknir í fíkni- efnamáli Blönduósi | Undirritaður hefur verið samningur milli trésmiðjunnar Stíganda hf. á Blönduósi og veiðifélags Vatnsdalsár um miklar endurbætur á veiðihúsinu Flóð- vangi. Upphæð verksamnings hljóðar upp á 57,6 milljónir króna og skal verki lokið í apríllok á næsta ári. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við verkið nemi um 75 milljónum króna. Nýbyggingin við Flóð- vang er 350 fermetrar og rúmar hún meðal annars 10 rúmgóð tveggja manna herbergi með allri hreinlætisaðstöðu svo og sauna- baði. Aðalhönnuður að endurbótum Flóð- vangs er Magnús H. Ólafsson, arkitekt á Akranesi. Að sögn Magnúsar Ólafssonar, formanns veiðifélags Vatnsdalsár, var veiðihúsið Flóðvangur tekið í notkun árið 1965 og hefur þar margur maðurinn dvalið í skjóli Vatnsdalshólanna, Jörundarfells og Flóðsins og safnað kröftum eftir strangar laxveiðar í Vatnsdalsá. Miklar end- urbætur á veiðihúsinu Flóðvangur í Vatnsdal ♦ ♦ ♦   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.