Morgunblaðið - 09.10.2003, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 25
O
KTÓBERSÝNING Ís-
lenska dansflokksins
nefnist The Match
(Leikurinn) og sam-
anstendur af þremur
dansverkum. Dagskráin hefst á
Symbiosis eftir Itzik Galili, því næst
kemur Party eftir Guðmund Helga-
son og eftir hlé verður síðan heims-
frumsýning á The Match sem Lonn-
eke van Leth samdi sérstaklega fyrir
Íslenska dansflokkinn.
Itzik Galili er þekktur danshöf-
undur í Evrópu og listrænn stjórn-
andi Galili Dance í Groeningen í Hol-
landi. Hann samdi Symbiosis fyrir
Íslenska dansflokkinn sem frumflutti
það í febrúar 2003. Galili sá sjálfur
um sviðsmynda-, búninga- og lýsing-
arhönnun í verkinu. Katrín Johnson
dansar nú Symbiosis í annað sinn, en
Itzik Galili samdi verkið fyrir hana og
Yaron Barami sem dansar í dans-
flokki Galilis í Groeningen, en Guð-
mundur Elías Knudsen hefur tekið
við karlhlutverkinu af Barami.
Dans saminn fyrir
hinn almenna áhorfanda
Hvernig myndir þú lýsa Itzik Galili
sem danshöfundi?
„Itzik er mjög húmorískur í dans-
verkum sínum, en kannski ekki á
dæmigerðan hátt. Oft áttar fólk sig
ekki á honum og veit ekki hvort það
má hlæja að hlutum í verkum hans,
en auðvitað má alltaf hlæja,“ segir
Katrín.
Hvernig var að vinna með honum?
„Það var alveg magnað, því hann er
mjög sérstök týpa en mjög skemmti-
legur. Maður áttar sig ekki alveg á
því hvar maður hefur hann, en það er
kannski einmitt það sem hann vill til
þess að halda þér á tánum og fá alltaf
það mesta út úr þér.“
Hvernig myndir þú lýsa sam-
skiptum parsins á sviðinu?
„Eins og danshöfundurinn lýsti því
þá segir hann að verkið eigi að sýna
það hversdagslega og fáránlega í
samskiptum tveggja einstaklinga. Ég
myndi samt segja að dansinn sé frem-
ur í forgrunni í verkinu heldur en
samskipti parsins. En auðvitað mega
áhorfendur túlka verkið að vild. Það
þarf ekki endilega að túlka það á ein-
hvern ákveðinn hátt. Þess vegna er
svo asnalegt þegar fólk sem óvant er
að horfa á dans segir „ég vil ekkert
fara á svona sýningu“ og „ég skil
þetta ekkert“. Það er náttúrlega bara
mesta bullið af öllu, því það á ekkert
að geta skilið þetta og hitt. Þú átt
bara að koma, horfa á verkið og taka
því eins og þú vilt taka því, skilja hlut-
ina eins og þú vilt skilja þá. Dans er
ekki saminn fyrir fólk sem þekkir og
skilur dans, heldur saminn fyrir hinn
almenna áhorfanda.“
Skemmtilegast að
dansa leikræn verk
Dansverkið Party eftir Guðmund
Helgason var upphaflega frumsýnt í
dansleikhúskeppni sem Leikfélag
Reykjavíkur og Íslenski dansflokk-
urinn stóðu fyrir í sumar. Verkið
vakti mikla hrifningu áhorfenda sem
veittu því sérstök áhorfendaverðlaun.
Spurður hvað það sé í verkinu sem
höfði til áhorfenda segir Guðmundur
að finna megi ákveðinn húmor í verk-
inu sem nái að kitla fólk.
Nú er verkið afar leikrænt, finnst
þér skemmtilegra að semja dansverk
með atburðarás?
„Ég vil alltaf hafa eitthvað pínu
leikrænt með. Sjálfum finnst mér
langskemmtilegast að dansa verk þar
sem eitthvert ákveðið þema er
ríkjandi, eitthvað sem maður er að
hugsa um. Þannig að maður sé ekki
bara að hugsa um spor og talningu,
heldur að miðla einhverri tilfinningu
eða jafnvel sögu.“
Hefur þú verið að semja lengi?
„Þetta er fyrsta verkið sem Ís-
lenski dansflokkurinn sýnir eftir mig,
en meðan ég kenndi í Listdansskóla
Íslands samdi ég tvö til sex verk á ári
fyrir flokkana sem ég kenndi. Auk
þess samdi ég sóló fyrir sjálfan mig í
danshöfundakeppni sem dansflokk-
urinn stóð fyrir 1998 og vann önnur
verðlaun þar.“
Þátttakendur í Party eru Katrín
Ingvadóttir, Guðmundur Helgason,
Peter Anderson og Valgerður Rún-
arsdóttir dansarar og Eggert Þor-
leifsson leikari. Guðmundur sá sjálfur
um sviðsmyndina, búninga og hljóð,
en Kári Gíslason sá um ljósahönnun.
Frábær samvinna
Lonneke van Leth, höfundur The
Match, hefur þegar hlotið verðskuld-
aða athygli jafnt sem dansari og
danshöfundur. Verkið er samstarfs-
verkefni við Holland Dance Festival í
Den Haag í Hollandi sem fram fer í
lok mánaðarins.
Hvernig datt þér í hug að blanda
saman dansi og fótbolta?
„Ég var í Ástralíu í fyrra og sá þar
krikketleik, en þeir geta oft tekið
marga klukkutíma þó aldrei gerist
neitt. Leikvöllurinn var stappaður og
ég hugsaði með mér „vá, hér er allt
þetta fólk saman komið til þess að
njóta leiks sem tekur a.m.k. átta tíma
og þar sem ekkert gerist, en á sama
tíma nennir fólk ekki að fara í leikhús
til þess að horfa á dansverk“. Því
venjulega er bara afmarkaður hópur
sem horfir á dansverk. Svo ég hugs-
aði með mér „ef ég vil reyna að fá fólk
til þess að koma í leikhúsið þá verð ég
gera eitthvað sem stendur fólki nær
og höfðar til þess“ og datt því í hug að
semja íþróttatengt verk. Auk þess
sem boltinn og dansinn eiga ýmislegt
sameiginlegt, eins og t.d. hraðann og
öll stökkin.“
Myndir þú segja að þetta verk sé
dæmigert fyrir höfundarstíl þinn?
„Já, ég er mjög hrifin bæði af hraða
og húmor. Ég vil að áhorfendum finn-
ist auðvelt að horfa á verkin mín,
skilji þau og finnist gaman. Ég hef
engan áhuga á að skapa einhverja
„artí-fartí“ dansa. Ég hef miklu meiri
áhuga á hversdagslegum hlutum. Áð-
ur fyrr stóð dansinn fólki mun nær,
en í dag er því miður litið á dansinn
sem hámenningu, eitthvað leiðinlegt
sem fólk telur sig ekki skilja. Mér
finnst það mikil synd og vil því leggja
mitt af mörkum til þess að höfða til
áhorfenda.“
Hvernig valdir þú tónlistina?
„Ég fékk senda út diska með ís-
lenskri tónlist og féll hreinlega fyrir
Hljómsveitinni Ske og í framhaldinu
fórum við að vinna saman. Þetta er
afar kröftug tónlist og í raun krefj-
andi taktur. Ég var sérstaklega hrifin
af því að hafa tónlistina mjög rokkaða
því mér fannst það passa svo vel við
fótboltann.“
Hvernig hefur samvinnan við dans-
flokkinn verið?
„Alveg frábær og rosalega
skemmtileg. Það tók stuttan tíma að
skipa í hlutverk vegna þess að allir
dansararnir hafa svo mismunandi
karakter. Þeir eru ekki aðeins mjög
góðir leikarar, heldur hafa þeir afar
lífleg andlit sem njóta sín vel á sviði.
Öll vinnan hefur þannig gengið mjög-
vel, enda eru dansararnir afar fjöl-
hæfir og færir.“
Dansarar The Match eru Guð-
mundur Helgason, Guðmundur Elías
Knudsen, Katrín Ingvadóttir, Katrín
Johnson, Nadia Banine, Peter And-
erson, Steve Lorenz, Unnur Elísabet
Gunnarsdóttir og Valgerður Rúnars-
dóttir. Sviðsmynda- og búninga-
hönnun var í höndum Elínar Eddu
Árnadóttur, Benedikt Axelsson sá
um ljósahönnun og Jakob Tryggva-
son um hljóð.
„Vil að áhorf-
endum finnist
gaman“
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir þrjú
dansverk í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.
Silja Björk Huldudóttir ræddi við tvo dans-
höfundanna og dansara í þriðja verkinu.
Úr verkinu The Match (Leiknum) eftir Lonneke van Leth frá Hollandi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Katrín Johnson í Symbiosis en höfundur að því verki er Itzik Galili.
Guðmundur Helgason og Katrín Ingvadóttir í Party eftir Guðmund. silja@mbl.is