Morgunblaðið - 09.10.2003, Side 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 37
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2003
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2003
er til 15. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
————————————— —————————————
Frestur til að leggja fram
bækur vegna Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2003
er til 30. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
LAGERÚTSALA
Á ELDRI VÖRUM - ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
Minningarfyrirlestur Jóns Sigurðs-
sonar verður haldinn í dag, fimmtu-
daginn 9. október kl. 16.15 í Odda,
stofu 101. Gestur Sagnfræðistofn-
unar að þessu sinni er Alan Milward,
prófessor við Evrópuháskólann í
Flórens á Ítalíu. Fyrirlesturinn ber
yfirskriftina: Globalization in
Historical Perspective Smaller
Economies and the European Union.
Í fyrirlestrinum mun Alan Milward
fjalla um alþjóðavæðingu viðskipta
og tækni og hlutverk Evrópusam-
bandsins í því ferli. Hann mun einnig
ræða um tengsl Evrópusambandsins
og minni ríkja, einkum samskipti
Efnahagsbandalags Evrópu og Ís-
lands á tímum þorskastríðanna á átt-
unda áratugnum.
Félag kvenna í atvinnurekstri
heldur 1. púltfund sinn á þessu
starfsári í dag, fimmtudaginn 16.
október í Víkingasal Hótel Loftleiða.
Fundurinn hefst með morgunverði
kl. 8 en eiginleg dagskrá hefst kl.
8.30.
Gestafyrirlesari verður Magnús
Scheving, framkvæmdastjóri Lata-
bæjar. Magnús kallar erindi sitt;
Fókus – markmið – nýsköpun. Tvær
konur í FKA munu kynna fyrirtæki
sín á fundinum. Fundarstjóri verður
Lára Pétursdóttur hjá Congress
Reykjavík. Aðgangur kr. 1.500, með
morgunverði.
Hver er staða smáríkja við al-
þjóðaviðskiptasamninga Evrópu-
samtökin standa fyrir hádegisverð-
arfundi um alþjóðasamninga og stöðu
smáríkja, í Kornhlöðunni við Banka-
stræti í dag, fimmtudaginn 9. október
kl.12.05–13.
Frummælandi verður Árni Páll
Árnason, lögmaður og fyrrverandi
starfsmaður íslensku utanríkisþjón-
ustunnar. Hann mun fjalla um við-
skiptasamninga og hvort ávinningur
sé af því fyrir Ísland að semja eitt um
viðskiptakjör og hvaða ávinningar
séu af því að vera innan stærri heilda.
Allir velkomnir.
Fyrirlestur um heilsu kvenna
Farida Sharan stofnandi „The School
fo Natural Medicine“ heldur fyr-
irlestur um heilsu kvenna, í dag,
fimmtudaginn 9. október kl. 19.30 í
Gerðubergi. Verð kr. 1.000.
Farida Sharan verður einnig með
námskeið um að taka ábyrgð á heilsu
sinni, föstudaginn 10. október og 3
klst. námskeið sem kallast jurtir fyrir
börn, þriðjudaginn 14. október.
Fyrirlestur á vegum IEEE á Íslandi
Þorvarður Sveinsson, verkfræðingur
hjá Kögun hf, flytur fyrirlestur sem
nefnist: Ofurbandvíð (ultra-
wideband) þráðlaus fjarskipti. Mæl-
ingar, útbreiðslulíkön og áhrif á
bandþröng (narrowband) kerfi. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í dag,
fimmtudaginn 9. október, kl. 16.30 í
húsakynnum verkfræðideildar Há-
skóla Íslands VR-2, stofu VR-157.
Allir eru velkomnir. Í fyrirlestrinum
verða sýndar niðurstöður á mæl-
ingum fyrir Ultra-Wideband fjar-
skiptum (UWB) þráðlausa rás sem
fram fóru í 20 heimahúsum og 20 fyr-
irtækjum og kynnt slembið módel
fyrir rásina o.fl.
Rannsóknir á estrogen-viðtaka og
kynning á EMBO-styrkjum til vís-
indamanna Í dag, fimmtudaginn 9.
október, heldur prófessor Frank
Gannon, aðalritari EMBC, fyr-
irlestur í Læknagarði á 3. hæð og
hefst hann kl. 16 og er öllum opinn.
Annars vegar mun hann kynna rann-
sóknir sínar á estrogen-viðtakanum,
hinsvegar kynnir hann starfsemi
samtaka evrópskra sameindalíffræð-
ina, EMBO, og hvaða styrkir standa
til boða fyrir íslenska vísindamenn á
þeim vettvangi. Einn Íslendingur er
félagi í þessum samtökum, Guð-
mundur Eggertsson, prófessor við
Háskóla Íslands.
EMBO, European Molecular Biology
Organization, er nokkurs konar aka-
demía evrópskra sameindalíffræð-
inga, og hefur hún starfað í 40 ár.
Samtökin veita m.a. styrki til ungra
vísindamanna og hafa nokkrir Íslend-
ingar þegar hlotið slíka styrki.
Einnig gefa þau út tímarit og reka
stofnun á sviði sameindalíffræði í
Evrópu.
Málstofa um vanmenntun og of-
menntun á íslenskum vinnumark-
aði verður haldin í dag, fimmtudag
kl. 16, í Viðskiptaháskólanum á Bif-
röst. Fyrirlestur heldur Lilja Mós-
esdóttir prófessor. Efniviður fyr-
irlestrarins er m.a. sóttur í ESB
rannsóknarverkefnið „Frá velferð-
arsamfélagi til þekkingarsamfélags.“
Menntun launafólks á Íslandi ein-
kennist af skýrri skauthverfingu milli
ófaglærðs fólks og háskólamennt-
aðra. Í hópi ófaglærðra eru ein-
staklingar sem ekki áttu kost á
menntun á sínum tíma og þeir sem
dottið hafa út úr skólakerfinu. Há-
skólamenntuðu einstaklingarnir hafa
langflestir lokið háskólagráðu í fræði-
legu háskólanámi. Slík menntun er
ekki starfstengd, þannig að þetta fólk
hefur fjárfest í almennri menntun og
færni sem gefur því kost á að koma
víða við á íslenskum vinnumarkaði,
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Nellýs Café kl. 20.30 Bókaútgáfan
Nýhil kynnir útkomin og væntanleg
verk. Út eru komnar þrjár ljóðabæk-
ur, ljóðahljóðadiskur, heimspekirit.
Nú er nýjasta afurð kompanísins
komin á prent, ritgerðasafnið Afbók
#1, með verkum frá Arundhati Roi,
Slavoj Zizek, Steinari Braga, Van-
essu Badham o.fl. Von er á þremur
ljóðabókum til viðbótar á næstunni,
frá Vali Brynjari Antonssyni, Viðari
Erni Sævarssyni, og Ófeigi Sigurðs-
syni.
Í DAG
Flóamarkaður – kaffisala – köku-
basar Jórukórinn heldur Flóamarkað
í Tryggvaskála á Selfossi, á morgun,
föstudag, kl. 14–19 og laugardaginn
11. október kl. 10–17. Á boðstólum
verður fatnaður, bækur, tímarit. Tert-
ur verða á kökubasar og hægt verður
að kaupa kaffi og nýbakaðar vöfflur á
staðnum. Kórinn mun taka lagið á
föstudag kl. 18 og á laugardag kl.
13.30.
Ráðstefna um Keynes Viðskipta- og
hagfræðideild HÍ stendur fyrir ráð-
stefnu um hagfræðinginn John Meyn-
ard Keynes á morgun, föstudaginn 10.
október, í hátíðasal skólans. Ráð-
stefnan ber yfirskriftina Hagfræði 20.
aldarinnar – Keynes og nútíminn.
Geoff Harcourt, prófessor í hagfræði
við Cambridge-háskóla í Bretlandi,
heldur erindi um kenningarlegt og
pólitískt gildi Keynsískrar hagfræði.
Jesper Jespersen frá Roskilde-
háskóla og Torben Andersen frá há-
skólanum í Árósum. Meðal íslenskra
fyrirlesara eru hagfræðingarnir Gylfi
Zoëga, Már Guðmundsson og Ágúst
Einarsson. Ráðstefnan fer fram á
ensku og stendur kl. 13–17.
Málþing um nýbreytni og þróun á
sviði kennslu og umönnunar Rann-
sóknarstofnun Kennaraháskóla Ís-
lands heldur á morgun, föstudag, mál-
þing um rannsóknir, nýbreytni og
þróun í samvinnu við fagfélög á sviði
kennslu og umönnunar. Meginþema
málþingsins er Skóli fyrir alla – ein-
staklingsmiðað nám. Málþingið er
haldið í Kennaraháskólanum og hefst
kl. 15.30. Á laugardag hefst dagskráin
kl. 8.50 og verða um 30 málstofur í
boði. Haldin verða erindi um efni sem
tengist skólamálum og umönnun.
Dagskrá er á vefsíðunni http://
rannsokn.khi.is/
Á MORGUN