Morgunblaðið - 09.10.2003, Síða 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Vigri RE, Scharhorn,
Laugarnes og Stella
Pollux.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er væntanlegt
Reksnes.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 10 boccia, kl. 13
myndlist. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13–16
bókband, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan opin,
almenn handavinna.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
hárgreiðslustofan opin
og postulín, kl. 13
handavinna, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun, alm. handa-
vinna, smíðar og út-
skurður, kl. 13.30
boccia, kl. 15 kaffi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
bað og glerskurður, kl.
10–11 leikfimi, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 13.30
sönghópurinn, kl. 15.15
dans.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna. Bingó
kl. 15.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.45 gler-
list, kl. 13 málun, kl.
13.15 leikfimi karla og
bútasaumur, kl. 19.30
félagsvist á Álftanesi,
rúta kl. 19.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Bingó í fé-
lagsheimilinu Gjábakka
kl. 14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, vídeókrókurinn
opinn, kaffi. Pútt í
Hraunseli kl. 10–11.30.
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.20. Glerlist kl. 13,
bingó kl. 13.30, Gafl-
arakórinn, æfing kl.
16.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13,
námskeið í framsögn kl.
16.15. Félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellssveit. Opið
kl. 13–16, bókband, kl.
13 tréskurður, kl. 13.30
lesklúbbur, kl. 17 starf
kórs eldri borgara, Vor-
boðar.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna, kl.
9.05 og 9.55 leikfimi, kl.
9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 gler og
postulín, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna, brids kl.
13.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl. 13.30–16
félagsvist. Hársnyrting
og fótaaðgerðir.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Sundleikfimi í Graf-
arvogslaug föstud. kl.
10.
Norðurbrún 1. opin
vinnustofa kl. 9–16.45.
Kl. 10–11 ganga, leir.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræf-
ing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
perlusaumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og brids.
Félagsvist kl. 20.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK, Gull-
smára, spilar í félags-
heimilinu í Gullsmára
13 mánu- og fimmtu-
daga. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Félag áhugafólks um
íþr. aldraðra. Leikfimi í
Bláa salnum kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 tafl.
Ný dögun, samtök um
sorg og sorgar-
viðbrögð. Í kvöld kl. 20
er opið hús í safn-
aðarheimili Háteigs-
kirkju í umsjón sr.
Halldórs Reynissonar.
Í dag er fimmtudagur 9. októ-
ber, 282. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Jesús rétti út
höndina, snart hann og mælti: Ég
vil, verð þú hreinn! Jafnskjótt
hvarf af honum líkþráin.
(Lúk. 5, 13.)
Í vikulegum pistli sínumá bjorn.is fjallar Björn
Bjarnason dómsmála-
ráðherra um styttingu
framhaldsskólans.
Björn segir: „Í byrjunsíðustu viku lagði
Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra
fram skýrslu um stytt-
ingu framhaldsskólans úr
fjórum árum í þrjú. Er
þar velt upp álitaefnum
vegna þessa og hugað að
leiðum að markmiðinu,
verði ákvörðun tekin um
styttinguna, að lokinni
kynningu.
Umræður um þettaálitaefni hafa staðið
lengi. Þegar ég beitti mér
fyrir endurskoðun nám-
skráa fyrir leikskóla,
grunnskóla og fram-
haldsskóla var þetta að
sjálfsögðu eitt af þeim at-
riðum, sem komu til álita.
Niðurstaða mín var sú, að
óskynsamlegt væri að
blanda styttingu fram-
haldsskólans inn í nám-
skrárgerðina. Yrði að
forgangsraða og semja
námskrár fyrst, hrinda
þeim í framkvæmd og
taka síðan við að huga að
styttingunni, en við gerð
námskránna skyldi hafa
hliðsjón af því, að auðvelt
yrði að laga þær að
þriggja ára framhalds-
skólanámi. Gekk þetta
eftir.
Samhliða því sem aðþessu var unnið
hvatti ég til þess, að sam-
ið yrði við Ólaf H. John-
son, sem vildi stofna
einkarekinn 2ja ára
framhaldsskóla, Hrað-
braut, en hann tók ein-
mitt til starfa nú í haust
og byggist kennsla þar að
sjálfsögðu á námskrá
framhaldsskólanna, sem
þar er sniðin að tveggja
ára námi til stúdents-
prófs. Á alþingi snerist
Samfylkingin að sjálf-
sögðu gegn hugmyndum
um Hraðbrautina, þegar
þær voru fyrst kynntar,
eins og vinstrisinnar snú-
ast jafnan gegn því að
einkaaðilar fái að láta að
sér kveða í skólastarfi.
Að mínu mati á að verasveigjanleiki í lengd
náms innan framhalds-
skólanna og raunar er
það svo núna, að innan
áfangakerfisins er til-
tölulega auðvelt fyrir
nemendur að ljúka námi
á þremur árum auk þess
sem margir afla sér mun
fleiri eininga á fjórum ár-
um en nauðsynlegt er til
að taka stúdentspróf.
Spurningin um þriggja
ára nám snýr sérstaklega
að bekkjarkerfisskól-
unum.
Innan framhalds-skólastigsins er mest
um vert að mínu mati að
varðveita fjölbreytnina
og skapa sem flestum
tækifæri til að leita þar
menntunar. Áhugi á
starfsnámi ræðst ekki síst
af þeim kröfum, sem fyr-
irtæki gera til starfs-
manna sinna.“
STAKSTEINAR
Stytting
framhaldsskólans
Víkverji skrifar...
FRÉTTIR af því aðÍslendingar yrðu
hamingjusamari af því
að vakna snemma á
morgnana vöktu at-
hygli kunningja Vík-
verja, en þess ber að
geta að kunninginn er
hinn mesti nátthrafn og
notar hvert tækifæri til
að sofa út. Dæmigerður
háttatími hjá honum er
um klukkan 1:30 og á
fætur fer hann um
klukkan 9, dauðþreyttur. Samt fær
hann sjö og hálfrar klukkustundar
svefn sem ætti samkvæmt svefn-
rannsókninni sem fréttirnar
greindu frá, að duga honum vel.
Hann skildi bara ekkert í þessu,
maðurinn. Samkvæmt fyrrnefndri
rannsókn er kjörið fyrir fólk að sofa
a.m.k. sex tíma á sólarhring og ekki
meira en átta tíma. Hvað var þá að?
Kannski var vandamálið að kunn-
inginn fór hreinlega of seint að sofa
og vaknaði of seint. Það skiptir víst
máli á hvaða tíma sólarhringsins er
sofið, þannig að svefntíminn í
klukkustundum talið segir ekki alla
söguna. Þeim er hættara við
þunglyndi sem sofa fram yfir
sólarupprás þar sem þeir lenda í
lengstu REM, eða draumsvefnslot-
unum. Allt um það, kunninginn
prófaði að fara í bólið klukkan 22:30
nokkur kvöld og var glaðvaknaður
milli hálfsex og sex. Og ótrúlega
hress að auki. Kunninginn ætlaði
varla að trúa þessu. Víkverji var
auðvitað afar glaður fyrir hönd
kunningjans og hvatti hann áfram á
þessari braut, en var á hinn bóginn
fljótur að sjá vankantana á þessu
nýja heilsuátaki. Það var ómögulegt
að fá manninn út á krá, í bíó, eða
aðra kvöldskemmtan. Kannski er
best að Víkverji taki upp þessa siði
líka og hætti þessu næturgöltri. Hví
ekki?
VÍKVERJI er einnþeirra sem hlakka
til vetrar. Í raun er ekki
svo kalt hér á landi,
miðað við marga aðra
staði. Það eru nátt-
úrlega hinir íslensku
umhleypingar og lægð-
irnar sem er erfitt að
fást við. Myrkrið í
svartasta skammdeg-
inu léttir auðvitað held-
ur ekki lundina. Og
aldraðir eiga oft erfitt
með að komast leiðar sinnar í vondri
færð. En vetraríþróttir eru líklega
besta skammdegismeðal sem hægt
er að hugsa sér og þeir sem eiga
þess kost að stunda þær eru lán-
samir. Fyrr en varir er Ísland orðið
að 100 þúsund ferkílómetra leikvelli.
Gönguskíði, svigskíði, snjóbretti,
snjó- og ísklifur, skautar. Hafiði
prófað að fara á skauta í tunglsljósi
niður á Tjörn, eða bara þar sem
slétt svell er að finna utan við bæ-
inn? Eða missa næstum í buxurnar í
háum ísfossi, hangandi á tveimur
ísöxum? Eða bara kasta snjóbolta í
mark? Koma svo inn og fá sér glas
af mysu og steinsofna. Já, veturinn
er tilhlökkunarefni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nægur svefn er hverjum manni lífsnauðsynlegur, um það er
ekki deilt. Haldið bara ekki vöku fyrir öðrum með hrotum.
Nauðsynlegur
uppgröftur –
svar
Í GREIN í Velvakanda 3.
október sl. spyr kona að
norðan hvort nauðsynlegt
hafi verið að grafa upp forn-
an kirkjugarð í Keldudal í
Skagafirði.
Kirkjugarðurinn og
reyndar einnig leifar kirkju
í Keldudal komu í ljós þegar
grafið var fyrir húsi á lóð-
inni árið 2002. Fyrirfram
var ekki vitað um þessar
leifar sem taldar eru vera
frá fyrstu öldum kristni.
Þegar unnið var á skurð-
gröfu við gröft á húsgrunni
komu óvænt í ljós höfuð-
kúpur og fleiri leifar
mannabeina í skóflu gröf-
unnar. Svo sem ber skv.
þjóðminjalögum nr. 107/
2001 höfðu eigendur jarðar-
innar samband við Forn-
leifavernd ríkisins sem
kannaði síðan umfang og
eðli minjanna á eigin kostn-
að. Í framhaldi af könnunn-
inni veitti menntamálaráðu-
neytið fé til að rannsaka
minjarnar nánar og var það
gert nú í sumar. Við áfram-
haldandi rannsóknir kom í
ljós landnámsskáli. Í milli-
tíðinni kom í ljós kumlateig-
ur með fjórum kumlum í um
500 m fjarlægð frá kirkju-
garðinum.
Þegar fornleifar, þar með
talin mannabein, koma í ljós
við framkvæmdir eru fyrstu
viðbrögð Fornleifaverndar
ríkisins að óska eftir að
framkvæmdasvæðinu sé
hliðrað til þannig að hægt sé
að varðveita minjarnar á
upprunalegum stað. Reyn-
ist það ekki unnt, eins og
reyndin var í Keldudal, eru
minjarnar rannsakaðar af
fornleifafræðingum. Forn-
leifafræðingar eru þjálfaðir
til agaðra vinnubragða við
uppgröft og styðjast við
siðareglur sem fela m.a. í
sér að bera virðingu fyrir
leifum forfeðra okkar,
kristnum jafnt sem heiðn-
um, og meðhöndla þær í
samræmi við það.
Að loknum uppgrefti eru
beinaleifar yfirleitt varð-
veittar í sérstakri beina-
geymslu Þjóðminjasafns
Íslands. Bein úr kirkju-
görðunum á Hólum og í
Skálholti eru reyndar varð-
veitt inni í kirkjunum. Bein
hafa almennt mikið rann-
sóknargildi og er m.a. oft
stuðst við þau í tengslum
við rannsóknir á sjúkdóm-
um, erfðum og í ýmsum öðr-
um rannsóknum sem snerta
sögu og afkomu þjóðarinnar
almennt.
F.h. Fornleifaverndar
ríkisins,
Kristín Huld
Sigurðardóttir,
forstöðumaður,
Þór Hjaltalín,
minjavörður
Norðurlands vestra.
Tapað/fundið
Kvenreiðhjól
í óskilum
VÍNRAUTT kvenreiðhjól,
gamaldags, er í óskilum á
Hofsvallagötu. Þeir sem
kannast við hjólið hafi sam-
band í síma 551 0122 eða
823 9229.
Dýrahald
Gosi er týndur
12 ÁRA fresskötturinn Gosi
hefur ekki komið heim til
sín á Leifsgötu 7 í um tvær
vikur. Hann hefur svartan
feld en er farinn að grána,
eyrnamerktur R-2085 en ól-
arlaus. Hann er yfirleitt
styggur við ókunnuga, en
þeir sem hafa orðið varir við
hann vinsamlegast látið vita
í síma 551 7881.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Feðgar á ferð í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Ómar
LÁRÉTT
1 sjúkar, 8 sterk, 9 ves-
almenni, 10 sefa, 11 leik-
búningur, 13 fengum tök á,
15 smánarblett, 18 til sölu,
21 bókstafur, 22 hama-
gangurinn, 23 gosefnið,
24 tók til.
LÓÐRÉTT
2 kjánar, 3 krani, 4 blóð-
sugan, 5 óbeit, 6 þröng
leið, 7 athygli, 12 kriki,
14 hæða, 15 menn,
16 ólyfjan, 17 þekki,
18 karldýr, 19 tínt,
20 brún.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 urgur, 4 hress, 7 dúfum, 8 ýmist, 9 Týr,
11 reif, 13 ótti, 14 erjur, 15 hret, 17 arðs, 20 urt,
22 lúgan, 23 jeppi, 24 terta, 25 norpa.
Lóðrétt: 1 undir, 2 gifti, 3 rúmt, 4 hlýr, 5 efist, 6 sótti,
10 ýkjur, 12 fet, 13 óra, 15 helft, 16 elgur, 18 rípur,
19 skima, 20 unna, 21 tjón.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16