Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.20. B.i. 10.
Topphasarmyndin
í USA í dag.
Fór beint ítoppstætið
í USA
þrælmögnuð
yfirnáttúruleg
spennumynd sem
hefur slegið
rækilega í gegn.
Topphasarmyndin
í USA í dag.
KVIKMYNDIR.IS
Sjáið sannleikann!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 8 og 10.kl. 6.
H.J. MBL
S.G. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
THE
MAGDALENE
SISTERS
Skonrok Fm 90.9 H.K. DV
SG DV
SV. MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12.
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
H.K. DV
Nói Albinói
sýnd um helgar
SV MBL
HK.DV
KVIKMYNDIR.IS
kl. 6. kl. 8. kl. 10.15.
SG MBL
SG DV
ÞAÐ skýtur svolítið skökku við að
tala um einhverja endurkomu eða
„kommbakk“ þegar Hljómar eiga í
hlut því þótt sú
goðsagnakennda
sveit hafi ekki
beint starfað
mikið saman síð-
ustu þrjátíu árin
þá hefur hún
aldrei farið neitt.
Tónlistin hefur lifað með okkur allt
síðan slitnaði uppúr hinu formlega
samstarfi um miðbik áttunda ára-
tugarins og hver kynslóð uppgötvar
eitthvað nýtt í fari hennar, eitthvað
allt annað en kynslóðirnar á undan
féllu í stafi yfir. Þar að auki er erfitt
að tala um eitthvert „kommbakk“
þegar menn eins og Gunnar Þórð-
arson og Rúnar Júlíusson eru annars
vegar því fáir hafa verið iðnari við
kolann síðan Hljómar hættu að vera
Hljómar og æxluðust í Ðe Lónlí blú
bojs, Lummur og Geimstein sem síð-
an leiddi til sólóferils beggja og ann-
arra verka. Þar með er það því úr
sögunni. Þetta er ekkert „komm-
bakk“.
En það var greinilegt á öllu er hin-
ir einu sönnu Hljómar komu saman
aftur eftir talsvert hlé fyrir tveimur
árum á tónleikum í Höllinni á Lág-
menningarhátíð Kidda kanínu, sem
kenndur er við Hljómalind, að sveit-
in átti enn fastan sess í hjörtum
landans. Það voru því gleðitíðindi er
þeir lýstu yfir að þeir ætluðu að gera
nýja plötu í tilefni fjörutíu ára starfs-
afmælisins. Gladdist ég þó ennþá
meira við þær fregnir að á plötunni
yrðu einvörðungu ný lög en ekki
brugðið á það ráð að rembast við að
lappa upp á gömlu perlurnar. Stund-
um lánast það reyndar alveg ágæt-
lega en þegar það klikkar, þá getur
fikt við lög, sem nákvæmlega ekkert
var að í upphafi, orðið æði sorglegt.
En ekki á nýju Hljómaplötunni. Þar
eru tólf spánný lög. Tíu eru eftir
Gunnar, tvö eftir Rúnna, við æði
misjafnlega lánaða texta eftir valin-
kunna hagyrðinga; Þorstein Egg-
ertsson, Einar Má Guðmundsson,
Guðmund Andra Thorsson, Halldór
Gunnarsson og þá Gunnar og Rúnar
sjálfa.
Þótt margt gott megi segja um
Hljóma á fyrstu starfsárunum, þeg-
ar sakleysið og ungæðishátturinn
var hvað mestur, þá var tónlistin
ekki beint frumleg. Átti heldur ekki
að vera það því þá voru menn hér á
landi sem annars staðar í Bítlaham
og bjuggu meðvitað til tónlist undir
sterkum áhrifum frá stefnum og
straumum er komu frá miðstöðvum
rokksins í Englandi og Bandaríkj-
unum. Eftir því sem samstarfi hinna
keflvísku Bítla miðaði áfram tókst
þeim að skapa sér sinn sjálfstæða
hljóm og þegar komið var fram á
Trúbrotsárin voru þeir farnir að
leita alveg nýrra leiða. En sem upp-
runalegu Hljómarnir drukku þeir í
sig Bítlarokkið hrátt og ómengað og
það er gleðiefni að þeir skuli hafa
valið nú að sækja í þann „fílinginn“.
Maður veit svo sem ekkert við
hverju var að búast af Hljómaplötu
sem kemur út árið 2003 en auðvitað
þegar litið er til þeirra hæfileika-
manna sem í sveitinni eru þá er ekki
annað hægt en að búast við miklu.
Og það er skemmst frá því að segja
að platan uppfyllir að mestu þær
væntingar. Það sem mest er um
vert, það sem eiginlega gerir plöt-
una, er að hún er sannfærandi. Þetta
eru Hljómar sem á plötunni leika,
Hljómar með heilum huga og hjart-
að á réttum stað. Hvergi örlar fyrir
tækifærismennsku, að þetta hafi
eina einustu mínútu verið hugsað
sem auðveldur og skjótfenginn
gróði. Það leynir sér heldur ekki að
þeir skemmtu sér konunglega við
gerð plötunnar og fundu aftur og
tendruðu á ný þennan gamla neista
sem aldrei vildi deyja.
Þetta kemur hvað sterkast í gegn í
þeim lögum sem draga hvað mestan
dám af því sem Hljómar voru að
gera er sveitin var í essinu sínu á sjö-
unda áratugnum. Í glæsilegu upp-
Sannir
Hljómar
Hljómar
Hljómar
Hljómplatan Hljómar með Hljómum.
Sveitina skipa Rúnar Júlíusson bassi og
söngur, Erlingur Björnsson gítar og söng-
ur, Engilbert Jensen slagverk og söngur
og Gunnar Þórðarson gítar og söngur.
Sigfús Óttarsson lék á trommur. Lögin
eru eftir Gunnar Þórðarson og Rúnar Júl-
íusson. Texta eiga Þorsteinn Eggerts-
son, Einar Már Guðmundsson, Halldór
Gunnarsson, Friðrik Erlingsson, Guð-
mundur Andri Thorsson, Gunnar Þórð-
arson og Rúnar Júlíusson. Gunnar Þórð-
arson útsetti öll lögin, en eitt þeirra með
Rúnari og annað með Joni Kjell Selje-
seth. Upptökumenn voru Guðmundur
Kristinn Jónsson og Gunnar Þórðarson.
Upptökur fóru fram í Thule Music, Arpa
stúdíói og upptökuheimili Geimsteins í
júní-september 2003.
Sonet
Tónlist
MARGRÉT Þórhildur Dana-
drottning tilkynnti á ríkisráðs-
fundi í Amalíuborg í Kaupmanna-
höfn í gær að konunglegt
brúðkaup yrði í Danmörku 14.
maí á næsta ári. Þá mun Friðrik
krónprins Dana ganga að eiga
ástralska lögfræðinginn Maríu
Elísabetu Donaldson. Danska rík-
isstjórnin hafði áður veitt leyfi
sitt fyrir því að þau gangi í
hjónaband. Um 20 þúsund manns
fögnuðu krónprinsinum og Maríu
Elísabetu þegar þau komu fram á
svalir á Amalíuborg eftir rík-
isráðsfundinn. Veifaði fólkið
dönskum og áströlskum fánum.
Hjónaleysin voru greinilega
hamingjusöm en Maríu virtist
koma mannfjöldinn á óvart. Þau
urðu ekki við óskum frá fólki um
að kyssast, en Friðrik gaf þó
heitkonu sinni koss á höndina.
Margrét Þórhildur Danadrottning
og Hinrik prins komu einnig út á
svalirnar ásamt John Dalgleish
Donaldson, föður Maríu Elísabet-
ar, og Susan Moody konu hans.
Friðrik er 35 ára og María El-
ísabet er 31 árs, en þau hittust
fyrst á Ólympíuleikunum í Sydn-
ey í Ástralíu í september 2000.
Brúðkaupið verður í Vor Frue
Kirke, sem er dómkirkjan í Kaup-
mannahöfn. Með þessu er brotið
gegn langri hefð, en vani er að
konungleg brúðkaup fari fram í
Holmens Kirke. Svend Norman
Svendsen, biskup í Kaupmanna-
höfn, og Christian Thodberg,
prófessor, gefa brúðhjónin sam-
an.
„Það er von ríkisstjórnarinnar
að hjónaband þeirra verði ham-
ingjuríkt og samstillt,“ sagði
Fogh Rasmussen um ráðahaginn.
Hann sagði að væntanleg Dana-
drottning muni ekki aðeins
standa við hlið krónprinsins á
fagran og virðulegan hátt heldur
einnig taka virkan þátt í lífi hans
og skyldum.
Danadrottning tilkynnir konunglegt brúðkaup
Friðrik og María Elísabet
gefin saman 14. maí
Reuters
Friðrik lét sér nægja að kyssa á hönd Maríu Elísabetar þegar þegnarnir
báðu þau um að kyssast. Öllum að óvörum ávarpaði hún svo á dönsku.