Morgunblaðið - 18.10.2003, Page 1
ÞAÐ ER hart barist um boltann í frímínútum
á Selfossi eins og víðar á landinu og ekkert
gefið eftir. Kannski eru það landsliðsmenn
framtíðarinnar sem þarna leggja sig fram af
lífi og sál svo leikgleðin skín úr hverri hreyf-
ingu. Mættu margir eldri knattspyrnumenn
taka sér þá til fyrirmyndar hvað það snertir.
Þegar allt kemur til alls skiptir mestu máli
að hafa gaman af leiknum.
Morgunblaðið/RAX
Fjör í frímínútunum á Selfossi
STOFNAÐ 1913 282. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kringlukast
laugardag og sunnudag
Nýtt kortatímabil
Börn á
laugardögumLaugardagur18. október 2003 PrentsmiðjaÁrvakurs hf.
Þessa dagana eru margir fjögurra, fimm
og sex ára krakkar uppteknir af því að
fylgjast með því hvað þeir borða og hreyfa
sig mikið. Ástæðan er sú að krakkarnir eru
að fylla út Orkubók Latabæjar þar sem
Erling Róbert Fanney Sif
Þorsteinn DavíðGuðrún Herdís
Orkukrakkar á
Stakkaborg
Það er stundum
sagt að líkaminn sé
hús sálarinnar en
með því er átt við
það að sálin búi eða
dvelji í líkamanum.
Aðrir eru enn hátíð-
legri og segja að lík-
aminn sé musteri
sálarinnar. Musteri
er hús, þar sem fólk
tilbiður þann guð
eða þá guði sem það
trúir á, og því vísar
þetta orðalag til
þess að líkaminn sé
ekkert venjulegt
hús sem menn geti
umgengist að vild
heldur merkilegt
hús sem þeim beri
að sýna virðingu.
Eins og þið
kannski vitið þá
þarf fólk í mörgum
löndum að fara úr
skónum áður en það
fer inn í moskur og
hof. Þetta ber vott
Förum vel með musteri sálarinnar
Orkukrakkar á Stakkaborg
Hvar varð Latibær til?
Lesbók á
laugardögum
Roni Horn Halldór Laxness
og Schwarzenegger
Daglegt líf á
laugardögum
Að vera gella Konur sækja
á karla Litadýrð
MEÐALVERÐ á öllum
tegundum ávaxta nema
banönum og rauðum epl-
um hækkaði á milli sept-
ember og október sam-
kvæmt könnun Sam-
keppnisstofnunar. Þannig
hækkaði meðalverð á app-
elsínum um 13% á milli
mánaða og epli, græn, gul
og jonagold hækkuðu um
5%. Venjulegt greipaldin
hækkaði um 11% og mel-
ónur hækkuðu um 10–15%
eftir tegundum. Þá hækkuðu jarðarber um 20%
og vínber um 5% en hækkun annarra ávaxtateg-
unda var minni.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónus, sagði spurður um skýringar á þessum
verðbreytingum að verð sveiflaðist mikið á þess-
um vörutegundum og það hefði verið sérstaklega
mikið um það síðustu mánuði. Þá hefði mikil
verðsamkeppni ríkt á þessu sviði og óeðlilegt
verð verið við lýði í þeim efnum í sumum til-
vikum. Það væru skýringarnar á þessum verð-
breytingum nú en það væri ekki um það að ræða
að verslanir væru að auka álagningu sína.
Nær vikulegar verðbreytingar
Sigurður Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Búrs, sagði að þarna væri um að ræða verðbreyt-
ingar sem væru að verða nær vikulega á þessum
ávaxta- og grænmetismarkaði, sem væri lifandi
markaður og hreyfðist eftir framboði og eftir-
spurn hverju sinni. Sigurður sagði að auk þess
væri að koma ný uppskera í mörgum tegundum
nú, sérstaklega í þessum hörðu ávöxtum svoköll-
uðu. Því myndu sjást hærri verð á næstunni og
þau væru sumpart farin að koma fram.
Hann sagði að þarna væri ekki um það að
ræða að álagning væri að aukast í þessum efn-
um. Það ríkti gríðarleg samkeppni á matvöru-
markaði og hefði aldrei verið harðari á síðari ár-
um, enda sæist það ef borið væri saman verð á
ávöxtum og grænmeti í dag og eins það var fyrir
tveimur árum að þá blasti við gjörbreytt mynd.
Samkeppnisstofnun hefur gert mánaðarlegar
verðkannanir í þessum efnum frá því í febrúar
árið 2002, fyrir þann tíma er tollar á ýmsum teg-
undum grænmetis voru afnumdir til þess að
fylgjast með verðþróun á þessum vörum.
!
"#!
"$!
""!
$%!
$!
"!
Verð á
ávöxtum
hækkar
Ný uppskera af
mörgum tegundum
að koma á markað
við því að beita meirihlutanum sem hún ræð-
ur yfir í efri deild þingsins, Sambandsráðinu,
til að hindra gildistöku áformanna. „Ég vona
að meirihluti kristilegu flokkanna í Sam-
bandsráðinu geri sér grein fyrir ábyrgð
sinni og fórni ekki framtíð lands vors fyrir
flokkspólitíska stundarhagsmuni,“ sagði
hann.
Meðal þess sem felst í umbótapakkanum
sem samþykktur var í gær er þrengri skil-
greining á réttinum til atvinnuleysisbóta, en
markmiðið með því er að gera láglaunastörf
eftirsóknarverðari, að ýta fleiri bótaþegum
út á vinnumarkaðinn og gera hann sveigj-
anlegri.
GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands,
gat í gær varpað öndinni léttar er naumur
meirihluti fulltrúa á þýzka Sambandsþinginu
samþykkti umdeildan lagabreytingapakka,
sem miðar að því að hleypa nýju lífi í at-
vinnulíf þessa stærsta þjóðhagkerfis Evrópu.
En íhaldsmenn í stjórnarandstöðu og for-
mælendur sumra verkalýðsfélaga hétu því
að þeir myndu hafa síðasta orðið um afdrif
umbótaáforma stjórnarinnar.
Schröder hafði í undirbúningsferli um-
bótatillagnanna – sem eru liður í metn-
aðarfullri umbótaáætlun kanzlarans kenndri
við „dagskrá 2010“ – ítrekað lagt eigið emb-
ætti að veði til að mótbárur liðsmanna
stjórnarflokkanna tveggja, Jafnaðarmanna-
flokksins SPD og Græningja, yrðu ekki til
að draga allt bit úr þeim ráðstöfunum sem
þær fela í sér.
Varaði stjórnarandstöðuna við
Samþykki þingmanna hins nauma „rauð-
græna“ stjórnarmeirihluta – aðeins einn
stjórnarþingmaður sat hjá – náðist í kjölfar
mikilla átaka innan stjórnarliðsins um fram-
tíð hins örláta velferðarkerfis sem byggt
hefur verið upp í Þýzkalandi á liðnum ára-
tugum.
Eftir að atkvæðagreiðslan var um garð
gengin varaði Schröder stjórnarandstöðuna
Berlín. AFP.
Umdeild umbótaáætlun
Schröders samþykkt
GONZALO Sanchez de Lozada, for-
seti Bólivíu, ákvað í gær að verða við
kröfum um afsögn en fullyrt er að
a.m.k. 65 manns hafi beðið bana í
óeirðum í landinu undanfarnar vikur.
Náinn samstarfsmaður Sanchez de
Lozadas greindi frá þessu. Forsetinn
mun hafa undirritað afsagnarbréf og
síðan yfirgefið höfuðborgina La Paz.
Fyrr um daginn hafði Sanchez de
Lozada orðið fyrir pólitísku áfalli
þegar Manfred Reyes Villa, leiðtogi
Nýja lýðveldisflokksins, lýsti því yfir
að forsetinn nyti ekki lengur stuðn-
ings flokksins. „Almenningur hefur
ekki lengur trú á þessari ríkisstjórn
og hann á engra annarra kosta völ en
segja af sér,“ sagði Reyes Villa.
Nýleg ákvörðun Sanchez de Loz-
ada um að hefja útflutning á gasi til
Bandaríkjanna og Mexíkó olli mikilli
úlfúð en andstæðingar forsetans
segja að aðeins hinir ríkustu muni
hagnast á ákvörðunni. Hafa stjórn-
völd beitt hernum til að brjóta á bak
aftur sífellt ofbeldisfyllri mótmæli.
Forseti Bólivíu segir af sér
Reuters
Þessi kona komst yfir brauð í gær
þrátt fyrir vöruskort í La Paz.
La Paz. AP.