Morgunblaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 38
DAGLEGT LÍF
38 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lið-a-mót
FRÁ
Extra sterkt
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
-fyrir útlitið
„ÞAÐ hefur reynst mér vel að vera
snemma á ferðinni með bakstur og
matarstúss og eiga svo notalegar
stundir á aðventunni,“ segir Mar-
grét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hús-
stjórnarskóla Reykjavíkur, en þar á
bæ var verið að baka randalín og
búa til svínasultu einn morguninn
fyrir skömmu.
„Það er svo margt sem má frysta
eða geyma fram að jólum og randa-
lín verður til dæmis miklu betri eft-
ir 2–3 vikur. Það er líka upplagt að
frysta bæði paté og svínasultu á
jólaborðið og tertur má líka frysta
og skreyta svo bara þegar þær eru
teknar upp. Það var líf og fjör í eld-
húsi skólans en 22 stúlkur útskrif-
ast nú um jólin. Þær voru ekki í
vandræðum með að lokka fram ran-
dalín og svínasultu. Uppskriftirnar
sem Margrét gefur lesendum að
réttum á jólaborðið má allar gera
með góðum fyrirvara.
Kjúklinga-paté
1 kjúklingur
1 laukur
2 lárviðarlauf
steinseljubúnt
125 g svínafita
salt og hvítur pipar
1 tsk. rósmarin
1 tsk. merian
2 egg
1 dl rjómi
3 þunnar sneiðar ferskt flesk
Bringan skorin frá beini og soðin
í litlum vökva ásamt lauk, lárvið-
arlaufi og steinselju í 20 mínútur en
þá er hún tekin úr vökvanum og
kæld.
Afgangurinn af kjúklingakjötinu
hreinsaður frá beini og kjötið hakk-
að ásamt beikoni eða sett í mat-
vinnsluvél.
Kryddi, eggjum og rjóma hrært
vel saman við og það er ágætt að
gera það í hrærivél eða matvinnslu-
vél. Kjúklingabringurnar eru skorn-
ar í bita. Form smurt að innan með
smjöri
farsið sett í ásamt kjúklingakjöti í
lögum. Pakkað inn og fryst.
Sett frosið inn í bakarofn og stillt
á 170 og bakað í 2 klukkutíma.
Borið fram kalt eða heitt.
Lifrar-paté
600 g lamba- eða svínalifur
350 g feitt kjöt t.d. lambaslag eða
flesk og kjöt
beikon
1–2 laukar
3 tsk. salt
½ tsk. pipar
½ tsk. basil
4 msk. hveiti
2 egg
3 dl mjólk
Lifrin og feita kjötið sett í mat-
vinnsluvél eða hakkað ásamt lauk.
Öllu hrært saman með sleif, sett í
leirmót sem klætt hefur verið að
innan með beikoni. Sett í plastpoka
og lokað vel fyrir og fryst.
Tekið úr frosti og sett inn í kald-
an ofn og hann stilltur á 175 gráður
og bakað í 60–75 mín.
Lifrar-paté með sveppum
375 g svínalifur
6 sneiðar ferskt flesk
375 g sveppir
3 saxaðir litlir laukar
2 hvítlauksrif
½ dl brauðrasp
2 dl rjómi
MATARKISTAN |Jólamat og jólakökur má oft útbúa með góðum fyrirvara
Randalín og paté í frystinn
Morgunblaðið/Ásdís
Margrét er hér að kenna Birnu og Arnheiði réttu handtökin.Hildur og Elfa smyrja sultu á kökubotn.
Lagkakan eða randalín eins og kakan er kölluð er þá tilbúin. Þegar hún er
orðin köld er hún skorin í 4–8 bita og fryst.
Brúna randalínin er smurð með
smjörkremi og sultu á víxl.
Sumir eru byrjaðir að stússast í bakstri og
matargerð fyrir jólin, baka randalín eða búa
til paté og frysta síðan. Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir fylgdist með jólaundirbúningi
í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík og fékk
að taka nokkrar uppskriftir með sér.
Sigurlaug og Heiðrún voru að undirbúa smjörkremið á randalín.