Morgunblaðið - 18.11.2003, Blaðsíða 1
Andrúm kalda
stríðsins
Kappsamir
krakkar
Ungt frjálsíþróttafólk í ÍR tekur æf-
ingar föstum tökum Íþróttir 42
SERGEI Ívanov, varnarmálaráðherra
Rússlands, hvatti í gær til meiri yfirráða
ríkisins yfir olíuauðlindinni og sakaði helstu
olíufélögin í landinu um
að hafa látið leit að nýj-
um lindum sitja á hakan-
um. „Ríkið má ekki
missa yfirráð sín yfir
undirstöðugreinum
efnahagslífsins,“ sagði
Ívanov er blaðið Kom-
mersant ræddi við hann
um saksóknina gegn ol-
íufélaginu Yukos og
helsta eiganda þess,
Míkhaíl Khodorkovskí, en hann er nú í fang-
elsi, sakaður um skattsvik og annað mis-
ferli. Margir telja, að saksóknin sé að und-
irlagi svokallaðra „sílovíkí“ í Kreml, fyrr-
verandi starfsmanna sovésku leyni-
þjónustunnar, en Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, og Ívanov eru í þeim hópi.
Ívanov lagði áherslu á, að olían og aðrar
auðlindir í jörðu væru „eign ríkisins, ekki
einkafyrirtækja“ og neitaði, að rannsóknin
á Yukos væri af pólitískum rótum runnin.
Ný skoðanakönnun í Rússlandi sýnir, að
vinsældir Pútíns meðal kjósenda hafa rokið
upp og er það fyrst og fremst rakið til aðfar-
arinnar að auðjöfrunum í landinu. Nú eru
82% sammála stefnu hans en kosningar
verða í Rússlandi í mars næstkomandi.
Rússneska
ríkið styrki
tök á olíunni
Moskvu. AFP.
KGB-menn/29
Sergei Ívanov
FULLTRÚAR embættis skattrannsóknar-
stjóra ríkisins, 15–20 talsins, gerðu í gærmorg-
un húsleit hjá Baugi Group og fjárfestingar-
félaginu Gaumi, sem er í eigu fjölskyldu
Jóhannesar Jónssonar í Bónus. Lögreglurann-
sókn hefur farið fram undanfarið ár á meintum
lögbrotum forsvarsmanna Baugs Group og seg-
ir Hreinn Loftsson, stjórnarformaður fyrirtæk-
isins, að sér hafi verið tjáð að húsleitin væri
sprottin úr þeirri rannsókn. Í fréttum Ríkis-
sjónvarpsins í gærkvöldi var sagt að talið væri
að rannsóknin beindist öðrum fremur að Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group.
Aðgerðinni frestað fram yfir helgi
Hreinn Loftsson sagði í samtali við Morg-
unblaðið að 10–12 manns hefðu komið á starfs-
stöðvar Baugs í gær og fengið bókhaldsgögn
fyrir árin 1998–2002. Að sögn Hreins tók að-
gerðin um tvær klukkustundir. „Við lítum svo á
að þetta tengist því sem þegar hefur verið í
rannsókn og vonum bara að þessu fari að ljúka.“
Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknar-
stjóri ríkisins, staðfestir þá frásögn Hreins
Loftssonar að upphaflega hafi staðið til að
sækja gögnin til fyrirtækjanna sl. föstudag, en
því hafi verið frestað vegna frétta um að til
stæði að undirrita samninga vegna kaupa Baugs
á Oasis Stores-verslanakeðjunni.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði
húsleit hjá Baugi Group 28. ágúst í fyrra vegna
ásakana Jóns Geralds Sullenberger um auðg-
unarbrot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, þáver-
andi stjórnarformanns, og Tryggva Jónssonar
forstjóra. Um hálfum mánuði síðar gerðu
starfsmenn efnahagsbrotadeildarinnar húsleit í
höfuðstöðvum verslanakeðjunnar SMS í Fær-
eyjum, sem Baugur Group var þá helmingshlut-
hafi í. Ekki var gerð húsleit í öðrum fyrirtækj-
um tengdum Baugi vegna þessarar rannsóknar.
Í yfirlýsingu sem Jón Ásgeir Jóhannesson
sendi frá sér vegna málsins í september í fyrra
var sagt að fjárfestingarfélagið Gaumur hefði
lánað Jóni Gerald 38 milljónir króna vegna
kaupa á skemmtibátnum Thee Viking. Gaumur
er í eigu Jóhannesar Jónssonar í Bónus, barna
hans, Jóns Ásgeirs og Kristínar, og móður
þeirra, Ásu Karenar Ásgeirsdóttur.
Húsleit á skrifstofum
Baugs og Gaums
Morgunblaðið/Kristinn
ARNOLD Schwarzenegger sver
embættiseið sem ríkisstjóri Kali-
forníu á tröppum stjórnarbyggingar
í Sacramento í gær. Eiginkona hans,
Maria Shriver, heldur á Biblíunni en
Ronald George, forseti hæstaréttar
Kaliforníu, tekur við eiðstafnum.
Embættistökuathöfnin var einföld
og henni lauk á 45 mínútum. Sagðist
austurríski innflytjandinn
Schwarzenegger finna til auðmýkt-
ar að taka við embættisskyldum
sem 38. ríkisstjórinn í sögu Kali-
forníu, fjölmennasta ríkis Banda-
ríkjanna. Í ávarpi til yfir 7.500 boðs-
gesta og um 600 blaðamanna víðs
vegar að úr heiminum sagðist hann
staðráðinn í að koma efnahags-
málum „gullna ríkisins“ í lag, en
gríðarleg skuldasöfnun íþyngir nú
mjög rekstri þess.
AP
Tekur „auðmjúkur“ við
ANITRA Steen, forstjóri sænsku áfengiseinkasölunnar Systembolaget,
hélt í gær blaðamannafund eftir stjórnarfund í ríkisfyrirtækinu til að
verjast ásökunum um að hún væri sjálf flækt í mútuhneyksli sem nú
skekur fyrirtækið. Fullyrti Steen,
sem er sambýliskona Görans
Perssons, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, að hún bæri enga ábyrgð í
mútumálunum sem fjöldi útibús-
stjóra Systembolaget er talinn
eiga aðild að.
Gagnrýnin á Steen og stjórn
Systembolaget hefur farið vax-
andi eftir að í ljós kom um helgina
að mörgum útibússtjórum voru
boðnir starfslokasamningar gegn
því að þeir segðu störfum sínum lausum og slyppu þannig við ákærur.
Eftir því sem vefútgáfa Aftenposten greinir frá kvað útibússtjórunum
hafa verið boðið að fá átta mánaðarlaun greidd segðu þeir upp þegar í
stað. Að minnsta kosti sjö þeirra kváðu hafa afþakkað boðið á þeim for-
sendum að þeir teldu sig ekkert til saka hafa unnið. Í gær ásökuðu úti-
bússtjórarnir sjö nafngreinda menn á aðalskrifstofu Systembolaget um
að vera flækta í hið meinta spillingarmál.
Olof Johansson, stjórnarformaður fyrirtækisins, tjáði blaðamönnum í
gær að engir stjórnendur í fyrirtækinu hefðu reynt að hylma yfir stað-
reyndir málsins eða sýnt tregðu til að afhenda gögn vegna rannsóknar
þess. Vísaði hann öllum þaraðlútandi sögusögnum á bug.
Hneykslið upphófst er það upplýstist að margir útibússtjórar höfðu
fengið mútugreiðslur frá ríkisrekna áfengisframleiðandanum Vin &
Sprit fyrir að hampa drykkjarföngum frá honum í hillum verzlana.
Steen verst
ásökunum
Sótt að forstjóra Systembolaget
í Svíþjóð vegna mútuhneykslis
Anitra Steen Göran Persson
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs Group, segir að-
spurður í samtali við Morg-
unblaðið að hann kunni
„ekki eina einustu skýringu
á því“ hvers vegna húsleit
var gerð hjá fyrirtækjunum.
„Þeir sóttu bara möppur
hingað og þangað. Ég fékk
engar skýringar, þeir hefðu
alveg eins getað sent mér bréf og ég hefði getað
sent þeim þetta. Ég veit alveg hvað ég er með á
hreinu,“ sagði Jón Ásgeir.
Aðspurður eftir hverju skattrannsókn-
arstjóri hefði sóst hjá Gaumi, svaraði Jón Ás-
geir: „Þeir vildu bara fá að sjá bókhald 1998 til
2002. Eftir því sem endurskoðendur mínir segja
mér þá eiga þessi mál að vera alveg á hreinu og
ég hef valið þar til bestu menn í því fagi.“
Kann ekki eina
einustu skýringu
Ein í sviðs-
ljósinu
Margrét Eir sendir frá sér sína
aðra sólóplötu Fólk 48
STOFNAÐ 1913 313. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hefur ekki áhrif/4
15–20 fulltrúar skattrannsóknarstjóra tóku bókhaldsgögn
Ný skáldsaga Sigurjóns Magnússonar
um Kristmann Guðmundsson Bækur 1