Morgunblaðið - 18.11.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það er nýbúið að vísa þér úr
Verkamannaflokknum. Hversu
mikið áfall var sú niðurstaða?
Brottreksturinn var áfall, enda
hef ég verið í flokknum í 36 ár. Ég
get þó ekki sagt að niðurstaðan hafi
komið mér á óvart. Ég hafði átt von
á því að haldin yrðu sýndarrétt-
arhöld yfir mér og það er nákvæm-
lega það sem gerðist.
Hefurðu tekið ákvörðun um hvað
þú gerir næst: muntu reyna að fá
brottreksturinn ógiltan eða ætl-
arðu einfaldlega að bjóða þig
fram næst sem óháður?
Við erum að undirbúa stofnun
nýrrar stjórnmálahreyfingar sem
mun bjóða fram í öllum kjör-
dæmum í Englandi og í Wales í
kosningum til Evrópuþingsins í júní
á næsta ári. Um er að ræða breið-
fylkingu ýmissa afla – þ.á m. hreyf-
inguna Stöðvum stríðið sem í apríl
skipulagði mótmælaaðgerðir í
London sem tvær milljónir manna
tóku þátt í – og helstu stefnumál
framboðsins verða krafan um að
Írakar fari sjálfir með völd í Írak,
andstaða við hina fyrirhuguðu
stjórnarskrá Evrópu, andstaða við hnattvæðinguna,
auk þess sem byggt verður á umhverfissjónarmiðum.
Ég hyggst jafnframt höfða mál fyrir dómstólum
gegn Verkamannaflokknum.
Hvernig hafa íbúarnir í kjördæmi þínu brugðist við
ákvörðun forystu Verkamannaflokksins?
Þeir hafa fylkt sér á bakvið mig. Rödd fólksins, eins
og hún hefur birst í fjölmiðlunum, staðfestir þetta.
Enda hef ég fjórum sinnum borið sigur úr býtum í
kosningum í kjördæminu.
Talar þú fyrir hönd „hins þögla meirihluta“ eins og
Nixon sagðist á sínum tíma gera eða ert þú einn
þíns liðs, á reiki um hina pólitísku eyðimörk?
Skoðanakannanir benda allar til þess að meirihluti
landsmanna deili sjónarmiðum mínum að því er varð-
ar stríðið í Írak. Raunar sýnir sú nýjasta að meira en
60% almennings í Bretlandi telur að náið samband
Blairs og Bush sé skaðlegt fyrir þetta land. Ég er að
tala á fundum víðs vegar um landið á degi hverjum –
stundum er ég á þremur fundum einn og sama daginn
– og ég get fullvissað þig um að meirihluti fólksins er
allt annað en þögull.
Hverju svararðu þeirri ásökun að þú hafir hvatt
araba til að berjast við breska hermenn í Írak?
Hún er ósönn. Ég hvatti breska hermenn til að
óhlýðnast „ólöglegum“ skipunum,
nokkuð sem hermönnum hefur ver-
ið skylt að gera allt frá Nürnberg-
réttarhöldunum í Þýskalandi, og ég
bað líka ríkisstjórnir arabaland-
anna um að skrúfa fyrir olíu-
kranann. Ég hvorki reiknaði með
því, né fór fram á, að herir araba-
ríkjanna gripu til vopna gegn okkar
hermönnum – ljónunum sem
stjórnað var af ösnum.
Þú hittir Saddam Hussein nokkr-
um sinnum. Fæstir geta sagt
sömu sögu. Hvernig kom hann
þér fyrir sjónir?
Ég hitti hann tvisvar sinnum, í
fyrra skiptið í örskamma stund fyr-
ir áratug, og síðan rétt fyrir stríðið
en þá var ég að reyna – án árang-
urs, eins og átti eftir að koma á dag-
inn – að stuðla að einhverju sam-
komulagi. Saddam tók afskaplega
vel á móti mér – arabar eru jafnan
höfðingjar heim að sækja – og hann
var afskaplega áhugasamur og
fróður um Bretland og Evrópu.
Hann býr líka, hvaða skoðun svo
sem þú hefur á honum, yfir miklum
persónutöfrum.
Ert þú ósammála þeim yfirlýsingum Blairs og Bush
að veröldin sé öruggari staður í dag nú þegar Sadd-
am Hussein er ekki lengur við völd í Írak?
Það grætur engin stjórn hans, aðeins hvernig staðið
var að því að koma henni frá. Aðstæður Íraka munu
kannski fara batnandi – í veraldlegum skilningi hafa
þeir það ennþá mun verr en þeir áttu áður að venjast –
en innrásin, þetta ólöglega stríð, hefur gert það að
verkum að veröldin er hættulegri staður en áður. Og
hún á eftir að verða enn hættulegri.
Hvert er álit þitt á Bush?
Bush er hálfgerður fáráðlingur og stríðsæsinga-
maður. Lítils virtur hugmyndafræðingur sem var
kjörinn forseti á óréttlátan og ólýðræðislegan máta.
Er einhver eðlislæg þversögn milli fyrirbærisins
stjórnmálaflokkur og hugmyndarinnar um að menn
leyfi sér sjálfstæða hugsun?
Þannig ætti það ekki að vera en í reynd er það
kannski þannig. Stjórnarmálahreyfing sem sann-
arlega er öflug ætti að hvetja til að menn nýti mál-
frelsi sitt og beiti sjálfstæðri hugsun. Slíkt leiðir
venjulega til framfara. Því miður er Verkamanna-
flokknum í dag stjórnað af lítilli klíku sem má ekki
heyra orðið sjálfstæði nefnt.
Spurt og svarað | George Galloway
Saddam býr yfir
persónutöfrum
Breski þingmaðurinn George Galloway er umdeildur í meira lagi. Hann
hefur lengi verið forystu Verkamannaflokksins óþægur ljár í þúfu og
hann var meðal helstu andstæðinga þess að Blair-stjórnin styddi árásina á
Írak. Galloway svaraði nokkrum spurningum sem lagðar voru fyrir hann.
George Galloway
’ Því miður erVerkamanna-
flokknum í dag
stjórnað af lítilli
klíku sem má ekki
heyra orðið sjálf-
stæði nefnt. ‘
Davíð Logi Sigurðsson | david@mbl.is
FYRIR ári stóð Let-
izia Ortiz í ökkla-
djúpri, svartri drullu
niðri á strönd og
flutti þjóðinni fréttir
af olíumeng-
unarslysi. Næsta
sumar mun þessi
fréttaþula leggja frá
sér hljóðnemann,
taka í hönd Felipe
krónprins og verða
væntanleg drottning
á Spáni.
Það er ekkert nýtt
í Evrópu að almúga-
fólk giftist inn í kon-
ungsættir og Ortiz
er eins mikil al-
múgakona og hægt
er að verða. Þrjátíu
og eins árs, útivinn-
andi og fráskilin.
Móðir hennar, sem
er einnig fráskilin,
er hjúkrunarfræð-
ingur.
En þetta er í
fyrsta sinn sem kona
af almúgaættum
mun væntanlega
taka við krúnunni
sem eitt sinn prýddi
höfuð Ísabellu sem
gerði út Kristófer
Kólumbus.
Samkvæmt skoð-
anakönnunum eru Spánverjar
himinlifandi, og þá ekki einungis
yfir því að krónprinsinn þeirra,
sem er 35 ára, kvænist spænskri
konu, heldur líka að tilhugalíf
væntanlegra konungshjóna hefur
alveg verið laust við öll hneyksl-
ismál, sem plaga svo margar evr-
ópskar konungsfjölskyldur.
Val Felipes á brúði end-
urspeglar þær breytingar sem
orðið hafa á spænsku þjóðfélagi.
Skilnaður var ólöglegur í landinu
til 1981. „Núorðið er svo að segja
ógerningur að kalla saman fimm
eða sex fullorðna án þess að ein-
hver þeirra eða barnanna þeirra
hafi gengið í gegnum skilnað,“
segir Carmen Iglesias, fram-
kvæmdastjóri opinberrar hugveitu
um stjórnarskrá og dómskerfi
Spánar.
Fyrir tuttugu árum voru konur
einungis 28% af vinnuafli í land-
inu. Nú er áætlað að hlutfallið sé
komið nær 40 prósentum. Þetta
konunglega brúðkaup, sem í
vændum er, telst „sögulegt en í
fullu samræmi við það samfélag
sem við lifum í við upphaf 21. ald-
arinnar“.
Spænska konungsfjölskyldan
nýtur mikillar virðingar, ekki síst
vegna þess stóra þáttar sem faðir
Felipes, Jóhann Karl konungur,
átti í að koma aftur á lýðræði á
Spáni eftir nærri fjögurra áratuga
einræðisstjórn sem lauk með
dauða Franciscos Francos 1975.
Þess hafði verið beðið með
óþreyju að krónprinsinn veldi sér
konu. Í mörg ár hafa sambönd
hans við konur verið endaslepp,
sumir segja að foreldrar hans hafi
bundið enda á sum þeirra. Hann
kynntist Ortiz í kvöldverðarboði í
Madríd fyrir rétt rúmu ári og síð-
astliðið vor varð sambandið fyrst
alvarlegt. Trúlofun þeirra var til-
kynnt 1. nóvember.
Mikið var talað um það á Spáni
í síðustu viku þegar parið kom
fram opinberlega og Ortiz átaldi
Felipe fyrir að grípa fram í fyrir
sér. Hún var að útskýra fyrir
fréttamönnum hvernig hún myndi
takast á við breytta hagi þegar
Felipe reyndi að koma að orði.
„Leyfðu mér að klára,“ sagði hún
og greip í handlegginn á honum.
Prinisinn hló hjartanlega en orð
Ortiz fóru sem eldur í sinu um
spænska fjölmiðla. Spænska rík-
isarfanum og væntanlegum æðsta
yfirmanni hersins hafði verið sagt
að þegja. Á skopmynd í blaðinu El
Mundo var Felipe að vara föður
sinn við því að hann mætti búast
við sömu ádrepunni frá vænt-
anlegri tengdadóttur ef áramóta-
ávarpið hans yrði of langt.
Í skoðanakönnun kváðust 60%
þátttakenda ánægð með vænt-
anlega prinsessu, og margir eldri
Spánverjar telja hana mun betri
kost en þær erlendu stúlkur sem
prinsinn hefur sýnt áhuga, t.d.
norsku fegurðardísina Evu Sann-
um sem sat fyrir í undirfataaug-
lýsingum og var mynduð ber-
brjósta á baðströnd.
El Mundo birti nýverið á for-
síðu viðtal við fyrrverandi eig-
inmann Ortiz, lítt þekktan rithöf-
und að nafni Alonso Guerrero
Perez. Hann óskaði fyrrverandi
konu sinni og prinsinum alls hins
besta.
Spænska
ríkisarfanum
sagt að þegja
Madríd. AP.
Reuters
Letizia Ortiz sýnir hringinn þegar trúlofun hennar
og Felipes krónprins, sonar Jóhanns Karls kon-
ungs og Soffíu drottningar, var tilkynnt.
Spánverjar eru sagðir hæstánægðir með
væntanlega brúði Felipes krónprins, frá-
skilda sjónvarpsfréttakonu sem greinilega
er með munninn fyrir neðan nefið.
’ Val Felipes ábrúði endurspeglar
þær breytingar
sem orðið hafa
á spænsku
þjóðfélagi ‘
BANDARÍSKIR vísindamenn
greindu frá því í síðustu viku að
sér hefði tekist að búa til gervi-
veiru sem étur bakteríur. Einung-
is tók tvær vikur að búa veiruna
til, en hún er gerð úr tilbúnum
erfðavísum.
Gerviveiran nefnist Phi-X174
og var hönnuð samkvæmt erfða-
lykli sínum. Verkið tók aðeins
tvær vikur, en með öðrum aðferð-
um tekur nokkur ár að ná sam-
bærilegum árangri, samkvæmt
upplýsingum Bandarísku vísinda-
akademíunnar.
Þetta gæti orðið fyrsta skrefið í
átt að lækningu við ýmsum sjúk-
dómum sem nú eru ólæknanlegir,
að sögn vísindamannanna.
Einnig kann að verða mögulegt
að bakteríuætan eyði eitruðum
úrgangi og geri kleift að búa til líf-
verur sem þrífast við mjög erfiðar
aðstæður, t.d. í sterkri geislun eða
mikilli mengun.
Við smíði veirunnar notuðu vís-
indamennirnir efni sem þegar eru
á markaðinum og tækni sem þeg-
ar var fyrir hendi. Stjórnandi
verksins var Craig Venter, yfir-
maður Institute for Biological
Energy Alternatives, og naut það
styrks frá bandaríska orkumála-
ráðuneytinu.
Bakteríuæta búin til
Gæti nýst gegn
eitruðum úrgangi
Washington. AFP.
GARRY Kasparov vann í fyrradag
þriðju skákina í einvíginu við ofurtölv-
una „X3D Fritz“ og standa þau nú
jafnt að vígi með 1,5 vinninga hvort.
Síðasta skákin verður tefld í dag.
Í fyrstu skákinni í einvíginu, sem
fer fram í New York, var jafntefli en
„X3D Fritz“ vann aðra skákina. Við
taflmennskuna notar Kasparov þrí-
víddargleraugu og horfir á skákborð,
sem virðist fljóta í lausu lofti. Getur
hann snúið borðinu á alla vegu með
stýripinna og leikur sína leiki með
munnlegum fyrirmælum.
Kasparov, sem almennt er talinn
besti skákmaður í heimi þótt hann
hafi tapað heimsmeistartitlinum til
Vladímírs Kramníks fyrir þremur ár-
um, er nú að tefla sitt þriðja einvígi
við tölvu. Hann tapaði fyrir „Deep
Blue“ 1997 og gerði jafntefli við
„Deep Junior“ í febrúar sl.
„X3D Fritz“ og Kasparov
Úrslita-
skákin í dag
New York. AFP.