Morgunblaðið - 18.11.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 29
A
LEXANDER Lebedev
var njósnari í mörg ár.
Eftir að hafa lokið
námi við Alþjóða-
tengslastofnunina í
Moskvu varð hann sérfræðingur í
erlendum skuldum og hagkerfum
sovétblokkarinnar. Hann varð
njósnari KGB í London á níunda
áratug aldarinnar sem leið.
Nú er öldin önnur og þegar
Lebedev fer til London er hann
líklegri til að fara í leikhús í vest-
urhluta borgarinnar en að fylgjast
með störfum erlendra kaupsýslu-
manna. Lebedev er stjórn-
arformaður seðlabanka Rússlands
og á stóran hlut í rússneska flug-
félaginu Aeroflot. Hann hefur
einnig gefið kost á sér í borg-
arstjórakosningum í Moskvu.
Lebedev er ekki eina dæmið um
KGB-njósnara sem komist hafa til
metorða í stjórnkerfinu, ríkisfyr-
irtækjum eða einkafyrirtækjum.
Þvert á móti hefur þeim stór-
fjölgað frá því að Vladímír V. Pút-
ín, sem er sjálfur fyrrverandi
KGB-foringi, varð forseti.
Að minnsta kosti fjórðungur
æðstu embættismanna Rússlands
er úr röðum fyrrverandi her- eða
KGB-foringja og allt að 2.000
þeirra hafa fengið háa stöðu í
stjórnkerfinu eða atvinnulífinu,
samkvæmt nýlegri rannsókn Fé-
lagsfræðistofnunar rússnesku vís-
indaakademíunnar. Þrír rússneskir
héraðsstjórar eru fyrrverandi for-
ingjar í KGB og þaðan koma einnig
yfirmenn Eldsneytisfyrirtækis
Sankti Pétursborgar, olíufélagsins
Slavneft, flugfélagsins Domoded-
ovo, símafyrirtækis Pétursborgar
og vatnsveitna Moskvu.
„Kæra sig ekki um lýðræði“
Þessir menn hafa verið kallaðir
„sílovíkar“, eða „hinir voldugu“, og
hermt er að þeir hafi einsett sér að
knésetja svokallaða olígarka sem
auðguðust mjög á einkavæðingunni
í forsetatíð Borís Jeltsíns. Sílovík-
arnir eru einnig sagðir hafa hert
eftirlitið með óháðum fjölmiðlum
og kappkostað að minnka vægi
fjölþjóðafyrirtækja í rússneska at-
vinnulífinu.
Fréttaskýrendur segja að sílov-
íkarnir hafi að öllum líkindum ver-
ið helsta pólitíska aflið á bak við
handtöku auðkýfingsins Míkhaíls
Khodorkovskís, fyrrverandi for-
stjóra olíufyrirtækisins Yukos, sem
hafði gagnrýnt völd sílovíkanna í
stjórn Pútíns.
„Þessir menn eru vanir að beita
aðferðum valdboðsstjórna. Þeir
skilja ekki lýðræðið og kæra sig
ekki um það. Þeir telja að það mik-
ilvægasta sem Pútín sé að gera
núna sé að styrkja stöðu þeirra og
koma þeim aftur til áhrifa,“ sagði
Olga Kryshtanovskaja, sem ann-
aðist rannsóknina á „elítu Pútíns“
fyrir vísindaakademíuna.
Láta lítið á sér bera
Valdamestu sílovíkarnir hafa
fullkomnað þá list leyniþjónustu-
mannsins að láta lítið á sér bera.
Til að mynda vita fáir hvernig að-
stoðarskrifstofustjóri Kremlar og
einn af áhrifamestu aðstoð-
armönnum forsetans, Ígor Setsjín,
lítur út, enda eru ljósmyndir sára-
sjaldan teknar af honum. Setsjín er
fyrrverandi þýðandi og hermt er
að hann hafi starfað fyrir leyni-
þjónustuna. Hann og Viktor Ív-
anov, sem starfaði fyrir KGB í tvo
áratugi og er nú á meðal helstu að-
stoðarmanna Pútíns í Kreml, eru
þekktir fyrir mikla hollustu við for-
setann og þola engum að sýna ekki
ríkisvaldinu tilhlýðilega virðingu.
„Setsjín er hámenntaður. Tjá-
skiptahæfni hans er frábær, en
hollustan er samt helsti kostur
hans. Hann myndi aldrei leyfa sér
að láta í ljósi eigin skoðun á
ákvörðun sem Pútín hefur þegar
tekið,“ sagði Valerí Pavlov, rit-
leyniþjónustuna erlendis hefðu
verið góður undirbúningur fyrir
þátttöku í viðskiptalífinu í Rúss-
landi eftir hrun kommúnismans.
„Ég bjó yfir mikilli þekkingu á
hagkerfum Bretlands og Banda-
ríkjanna, fékk upplýsingar sem
öðrum Sovétmönnum var ekki
leyft að sjá.“
Óttuðust að olígarkar
kæmust til valda
Rússneskt sérfræðingaráð tók
undir sjónarmið sílovíkanna í
skýrslu sem gefin var út fyrr á
árinu. Þar var varað við „valdaráni
olígarka“ sem stefndu að því að
tryggja sér og stuðningsmönnum
sínum meirihluta á þinginu, taka
völd af forsetanum og skipa olíg-
arka – Khodorkovskí? – í embætti
forsætisráðherra.
Höfundur skýrslunnar, Stanislav
Belkovskí, sagði að engin ástæða
væri til að óttast sílovíkana þar
sem það væri ekki í eðli þeirra að
sækjast eftir því að komast sjálfir
til valda. „Menn þurfa að skilja
hugsunarhátt rússnesku leyniþjón-
ustumannanna,“ sagði Belkovskí.
„Þeir eru tæki ríkisvaldsins en
sækjast ekki eftir völdum.“
Belkovskí skírskotar til mót-
mæla í Moskvu í ágúst 1991 þegar
um hundrað lýðræðissinnar gengu
að höfuðstöðvum leyniþjónust-
unnar við Lúbjanka-torg og drógu
niður styttu af Felix Dzerzhínskí,
stofnanda fyrirrennara KGB.
„Inni í byggingunni voru 2.000
KGB-menn með byssur og gátu
hæglega varið styttuna en þeir
stóðu bara við gluggana og störðu
á Lúbjanka-torgið. Enginn þeirra
fór út og enginn reyndi að verja
styttuna,“ sagði Belkovskí.
„Hvers vegna? Vegna þess að
enginn gaf þeim fyrirmæli.“
Dmítrí Medvedev í stöðu skrif-
stofustjóra Kremlar. Medvedev er
38 ára lögfræðingur frá Sankti
Pétursborg og lét strax í ljósi efa-
semdir um handtöku Khodork-
ovskís. Hann varaði við því að hún
gæti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir efnahag Rússlands.
„Hafa ber í huga að Pútín teflir
nokkrar skákir í einu. Hann þarf
að hafa hliðsjón af ástandinu al-
mennt og viðhalda valdajafnvæg-
inu,“ sagði Gleb Pavlovskí, stjórn-
málaskýrandi sem hefur varað við
auknum áhrifum sílovíka.
„Voru það sem
fyrirtækin þurftu“
Margir leyniþjónustumannanna,
eins og Lebedev, eru hámenntaðir
og miklir tungumálamenn og það
er því engin furða að þeir skuli
hafa verið valdir í stjórnir rúss-
neskra stórfyrirtækja sem kunna
einnig vel að meta hollustu þeirra.
Auk þess þykja þeir ólíklegri en
aðrir til að gefa sig spillingu á vald.
„Þótt KGB hafi verið skelfileg
stofnun verðum við að hafa í huga
að starfsmenn leyniþjónustunnar
voru valdir mjög vandlega,“ sagði
fyrrverandi KGB-foringi sem hefur
haslað sér völl í viðskiptum í
Moskvu.
Þegar kommúnisminn hrundi og
komið var á kapítalisma stóð stjórn
Rússlands frammi fyrir því verk-
efni að semja nýja stjórnarskrá,
koma upp dómskerfi og byggja
upp markaðshagkerfi. „Allt í einu
var mikil spurn eftir sérfræðingum
á ýmsum sviðum. Og í ljós kom að í
Rússlandi voru hvergi til neinir
sannir sérfræðingar – nema hjá
KGB,“ sagði njósnaforinginn fyrr-
verandi. „Öll þessi ár snerust störf
okkar um að vinna og greina upp-
lýsingar, draga ályktanir af þeim
og þegja yfir því sem við vissum.
Og þetta er einmitt það sem fyr-
irtækin þurftu.“
Lebedev sagði að störf sín fyrir
stjóri sem starfaði með Setsjín og
Pútín á skrifstofu borgarstjóra
Sankti Pétursborgar á níunda ára-
tugnum.
Mislíkaði
klæðaburðurinn
Kryshtanovskaja, sem er í nán-
um tengslum við embættismenn úr
röðum sílovíka, sagði að þeir væru
mjög óánægðir með afskipti Khod-
orkovskís af stjórnmálum. Þeir
hefðu fengið sig fullsadda á honum
þegar hann hefði farið til Kremlar í
hversdagslegum klæðnaði, sport-
jakka og skyrtu með óhnepptan
kraga. „Hann fór á fund Pútíns án
bindis,“ sagði hún. „Þessir menn
sögðu mér í hreinskilni að þetta
hefði verið kornið sem fyllti mæl-
inn, hann hefði farið út fyrir vel-
sæmismörkin.“
Sílovíkarnir unnu aðra lotu í
valdabaráttunni þegar skrif-
stofustjóri Pútíns, Alexander S.
Voloshín, lét af embætti. Voloshín
þótti hallur undir rússnesk stórfyr-
irtæki og beitti sér fyrir umbótum
að vestrænni fyrirmynd. Hermt er
að hann hafi sagt af sér nokkrum
klukkustundum eftir að Khodork-
ovskí var handtekinn og afsögnin
benti til þess að eina fylkingin í
Kreml, sem gat veitt sílovíkunum
mótspyrnu, væri nánast úr sög-
unni.
Það reyndist þó ekki alveg rétt
því að Pútín sýndi varkárnina sem
honum er eðlislæg með því að
koma í veg fyrir fullnaðarsigur
sílovíkanna í valdataflinu og velja
Gamlir KGB-menn orðnir
voldugir í viðskiptalífinu
Moskvu. Los Angeles Times.
Fyrrverandi KGB-foringjar eru orðnir
mjög áhrifamiklir í Rússlandi, ekki
aðeins í stjórnkerfinu heldur einnig í við-
skiptalífi landsins. Margir þeirra stjórna
nú öflugum fyrirtækjum.
’ Allt að 2.000 fyrr-verandi her- og
KGB-foringjar hafa
fengið háa stöðu í
stjórnkerfinu eða
atvinnulífinu ‘
KONSTANTÍN Preo-
brazhenskí, fyrrverandi
KGB-foringi, undrast það
ekki að gamlir félagar hans í
leyniþjónustunni skuli vera
orðnir voldugir í Rússlandi
en telur ekki að Vladímír
Pútín forseti láti þá ráðskast
með sig.
Preobrazhenskí, sem hætti
störfum fyrir KGB árið 1991
og býr nú í Bandaríkjunum,
segir að margir gleymi því að
Pútín hafi nánast alist upp í
leyniþjónustunni og verið
njósnari hennar í Austur-
Þýskalandi.
„Þegar ég heyri hann tala í
sjónvarpi fæ ég strax á til-
finninguna að ég hafi upp-
lifað þetta áður, að ég sé aft-
ur á níunda áratugnum, í
byggingu KGB,“ segir Preo-
brazhenskí. „Hann hefur alla
eiginleika KGB-manna –
hann er af fátæku fólki kom-
inn og það er þess vegna sem
hann hefur hatað auðkýfinga
alla ævina. Hann er bitur og
afar langrækinn.“
„Það er rangt að halda að
Pútín sé saklaust lamb innan
um KGB-úlfa sem hafi loksins
komist til valda og ráðskist
með hann,“ bætir Preo-
brazhenskí við. „Pútín er
sjálfur úlfur. Og ég hef alltaf
viljað útskýra fyrir öllum,
sem vilja hlusta á mig, að
leyniþjónustumennina, sem
hafa nú komist til áhrifa,
dreymir aðeins um eitt – að
koma aftur á alræði í Rúss-
landi.“
„Pútín
er sjálfur
úlfur“
AP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sjálfur fyrrverandi foringi í KGB.
tonna til ársins 2007, þar af kæmu
um 500 þúsund tonn í aukinni fram-
leiðslu frá þeim álverum sem væru
fyrir.
Varðandi aukna álframleiðslu í
Kína taldi Nappi enga ógn stafa af
Kínverjum fyrir markaðina í Evrópu
og Bandaríkjunum. Álverin í Kína
næðu ekki að sinna eftirspurninni
heima fyrir eða annars staðar í Asíu
og lítil hætta væri á að kínversk ál-
fyrirtæki færu að flytja út ál til ann-
arra landa, t.d. í Evrópu, líkt og
Rússar hefðu gert.
Fjarðaál mikilvægt í vexti
Alcoa í vinnslu hrámálma
Mike Baltzell, framkvæmdastjóri
álvinnslusviðs Alcoa, kynnti fyrir-
tækið í heild sinni, áform þess hér á
landi og hvaða væntingar væru til ál-
versins í Reyðarfirði, Fjarðaáls.
Hann sagði Alcoa hafa valið Ísland
m.a. fyrir þær sakir að álverinu væri
ætlaður mikilvægur þáttur í vexti Al-
coa í vinnslu hrámálma. Unnið yrði
eftir strangri umhverfisstefnu og
stefndi Alcoa að því að í stað orku úr
jarðefnaeldsneyti kæmi náttúruleg,
endurnýjanleg orka. Baltzell sagði
stefnu íslenskra stjórnvalda um
aukna fjölbreytni í atvinnulífi, end-
urnýjun á Austurlandi og styrkingu
efnahagslífsins hafa haft mikið að
segja fyrir Alcoa.
Baltzell sagði að ráðningar starfs-
fólks til álversins í Reyðarfirði
myndu aðallega fara fram árið 2006.
Fá ef nokkur bein handverksstörf
yrðu fyrir ófaglærða en meirihluti
starfa yrði fyrir fólk með framhalds-
skóla- eða tækniskólamenntun.
Nokkrar yfirmanna- og stjórnunar-
stöður myndu krefjast menntunar í
vísindum eða viðskiptum. Öll störf
stæðu báðum kynjum til boða og Al-
coa myndi ráða fólk eftir verðleikum
þess. Konur yrðu þó hvattar sérstak-
lega til að sækja um. Vonaðist Balt-
zell eftir góðu samstarfi við Íslend-
inga og sagðist telja að Alcoa ætti sér
bjarta framtíð hér á landi.
raunverðs
ð munum
appi til að
uppskar
í áliðnaði
ara á milli
ar málm-
og fram-
ramt að
fyrirtækj-
ð fleiri ál-
Rússlandi.
yrirtækin
áli í heim-
andi hlut-
70. Nappi
n eftir áli
t í hendur
svo komið
mi næmi
onna á ári
milljónum
að til að
lugetu á
rn eftir áli
ann dæmi
ætta starf-
alls hefðu
tonn. Á
tækin að
sem gætu
und tonn.
0 þúsund
nærri 900
að rísa í
árið 2005
á síðustu
rirlestrar
fyrir árin
tækkunar
coa. Alls
milljónir
fiskinn
ordica
kin
ningu.
ræddi
rtsýni
Morgunblaðið/Ásdís
ásamt fulltrúum álfyrirtækjanna þriggja sem
i Guðmundssyni frá Norðuráli.
bjb@mbl.is
ar, að ógleymdu stálinu. Chase bendir á að frá
þeim tíma sem ál hafi fyrst verið fjöldaframleitt í
lok 19. aldar hafi um 600 milljónir tonna verið
framleiddar í heiminum. Þar af séu enn í notkun
um 400 milljónir tonna. Þessar tölur sýni að ál sé
að verulegu leyti sjálfbær og langlíf afurð. Ál
tengist flestum sviðum mannlífsins í kringum
okkur, hann hafi t.d. komið til Íslands í flugvél
úr áli og eitt hið fyrsta sem útlendingar sjái við
komuna til Íslands sé álver Alcan í Straumsvík.
„Staðan á Íslandi er þannig að hér starfa leið-
andi fyrirtæki í áliðnaði þar sem flestar stað-
reyndir og tölur eru langt fyrir ofan meðaltal.
Hér er lítil mengun, álverin eru knúin af end-
urnýjanlegri og hreinni orku og vinnuaflið er vel
menntað. Okkar helsta verkefni hjá IAI er að
bæta meðaltal fyrir áliðnaðinn í heild sinni. Fyr-
irtækin innan stofnunarinnar reyna að læra af
hvert öðru. Við veitum þeim ýmsar upplýsingar
sem geta komið þeim að gagni. Upplýsingarnar
frá Íslandi hafa almennt verið jákvæðar og það
sem fer fram hér á landi getur verið góð fyr-
irmynd annarra álfyrirtækja víða um heim,“
segir Robert John Chase.
u í áliðnaði