Morgunblaðið - 18.11.2003, Síða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 45
JÓN Skaftason, knattspyrnumaður
úr KR, er genginn til liðs við ÍBV og
hefur skrifað undir þriggja ára
samning. Jón er tvítugur miðju-
maður sem lék níu leiki með Ís-
landsmeisturum KR á síðasta tíma-
bili, en hann var síðan lánaður til
Víkings og lék sex síðustu leiki
þeirra í 1. deildinni. Jón átti stóran
þátt í Íslandsmeistaratitli KR 2002
þegar hann jafnaði metin á loka-
mínútunum gegn Fylki í næstsíð-
ustu umferð. Þetta er eina mark
Jóns í 24 leikjum með KR í efstu
deild. Hann hefur leikið með yngri
landsliðum og var í leikmannahópi
21 árs liðsins í tveimur síðustu leikj-
um þess í undankeppni EM í ár.
Jón Skafta-
son til ÍBV
ÞAÐ fer ekki allt eins og ætlað er
á keppnisferðalögum erlendis. Í
gærmorgun stóð til að knatt-
spyrnulandsliðið æfði í San Franc-
isco og það var að sjálfsögðu gert,
en ekki á þeim velli sem í upphafi
var ætlað. Ástæðan var að til skot-
bardaga kom snemma um morg-
uninn við æfingasvæðið þar sem
æfingin átti að vera. Því var snar-
lega skipt um völl og farið á annan
ágætan völl, en gallinn við hann
var sá að þetta var gervigrasvöll-
ur.
Höfðu nokkrir á orði að líklega
hefðu Bandaríkjamenn skipt um
völl til að hvíla grasvöllinn því tals-
vert rigndi nóttina áður og völl-
urinn því rennandi blautur og
gervigrasið því hentugra en
alvörugrasvöllur. Ásgeir Sigurvins-
son og Logi Ólafsson, þjálfarar
liðsins, reyndu þó að gera gott úr
þessu, höfðu æfinguna styttri en til
stóð og báðu menn um að fara var-
lega en taka engu að síður vel á.
Það var gert og höfðu menn gam-
an af æfingunni líkt og venja er á
landsliðsæfingum, andinn sérlega
léttur og skemmtilegur þrátt fyrir
að menn taki æfingarnar alvarlega.
Síðari æfingin í gærkvöldi var á
Pac Bell Park, vellinum þar sem
leikurinn fer fram aðfaranótt
fimmtudags. Völlurinn er inni í
miðborg San Francisco og stutt að
fara frá hótelinu sem liðið dvelur
á.
Það er langt ferðalag að baki,menn eru stífir, stirðir og aðrir
þverir þannig að það þarf aðeins að
hrista þetta saman,“
sagði Logi.
Spurður um leik-
inn sagði hann að
markmiðin væru
alltaf þau sömu þó
svo áherslurnar væru aðrar en til
stóð upphaflega þegar ákveðið var
að taka boði Mexíkana.
„Upphaflega var ætlunin að
byggja ofan á það sem við höfum
unnið með að undanförnu og reyna
að átta okkur á því hvernig sá hópur
virkaði á móti liði eins og Mexíkó
sem leikur talsvert aðra tegund af
knattspyrnu en þær þjóðir sem við
leikum meira við. Það sem verður
uppi á teningnum núna, eftir allar
breytingarnar, er að við munum að
sjálfsögðu leika sama leikkerfið
enda höfum við Ásgeir ákveðið að
þetta sé það sem við ætlum að
byggja á, með einhverjum útúrdúr-
um þó miðað við þann mannskap
sem við höfum hverju sinni og mót-
herjana. Við munum sem fyrr reyna
að halda markinu hreinu og það
kann að vera að við verðum aðeins
meira varnarsinnaðir á vængjunum
en fyrr. Sterkur varnarleikur og við
reynum að nýta okkur fljóta og
tekníska leikmenn frammi. Ég sagði
við hópinn áðan að það væri langt
frá því eitthvert formsatriði að koma
hingað og þiggja eitthvert boð. Þetta
er mjög mikilvægt fyrir okkur, að
kenna nýjum mönnum leikkerfin því
þessir leikmenn hafa allir verið til
umfjöllunar hjá okkur þegar liðið
hefur verið valið. Þó svo við höfum
ekki átt þess kost að fylgjast mikið
með þeim þá vitum við nokk hvað
þeir geta og nú er tækifærið til að
sjá hvernig þeir falla inn í okkar
skipulag og okkar vinnulag.“
– Veistu eitthvað um lið Mexíkó?
„Nei!“ var svarið og nett glott
fylgdi í kjölfarið. „Við reyndum að fá
spólu af þeim en það gekk ekki upp
þannig að það litla sem við vitum er
það sem við höfum af veraldarvefn-
um. Þeir eru með nýjan þjálfara sem
tók við um áramótin og hafa tapað
nokkrum leikjum upp á síðkastið
þannig að það er einhver þrýstingur
á þeim. Campos, markvörðurinn lit-
skrúðugi, verður heiðraður sérstak-
lega og maður hefur heyrt að um
15–25 þúsund manns komi á leikinn.
Þannig að þetta er spennandi verk-
efni og mikil alvara á bak við þetta
hjá okkur,“ sagði Logi.
Langt ferðalag til blóma-
borgarinnar í Kaliforníu
Það var ekki auðvelt ferðalagið
sem íslensku landsliðsmennirnir í
knattspyrnu fóru í til blómaborgar-
innar San Francisco á sunnudaginn
var. Þeir leikmenn sem fóru frá Ís-
landi flugu með Flugleiðum til
Lundúna kl. 8.30, lagt var af stað frá
höfuðstöðvum KSÍ klukkan sex ár-
degis sem þýðir að strákarnir vökn-
uðu í síðasta lagi klukkan fimm. Á
Heathrow-flugvelli var beðið í tvær
klukkustundir áður en gengið var
um borð í flug British Airways til
San Francisco á vesturströnd
Bandaríkjanna. Það var ellefu
klukkustunda flug og því voru pilt-
arnir á flugi í rúmar þrettán klukku-
stundir auk þeirrar biðar sem verð-
ur alltaf á ferðalögum sem þessum.
Þrátt fyrir þetta voru leikmenn
merkilega hressir við komuna til
San Francisco þó svo enginn hafi
verið með blóm í hárinu eins og segir
í gömlum dægurlagatexta.
Það sem strákunum frá Íslandi
sveið ef til vill hvað mest var, að þeg-
ar búið var að fljúga í rúmar tvær
klukkustundir frá London áleiðis til
Bandaríkjanna og klukkan var langt
gengin í fimm að íslenskum tíma,
var um fimm klukkustunda flug í
raun óþarft. Fyrst flogið til Lund-
úna og síðan aftur yfir Ísland á leið-
inni til San Francisco. En svona var
nú lagt upp með ferðina þar sem í
upphafi áttu allir atvinnumenn okk-
ar að vera með en þeir heltust úr
lestinni hver af öðrum eins og kunn-
ugt er.
Hvað um það, svona var skipulag-
ið og við það var staðið. Þegar liðið
kom upp á hótel í miðborg San
Francisco var klukkan sex að stað-
artíma síðdegis á sunnudegi, eða tvö
aðfaranótt mánudags að íslenskum
tíma. Piltarnir höfðu því verið á
ferðalagi í tuttugu klukkustundir.
Morgunblaðið/Skúli
Nýliðarnir fimm í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í San Francisco aðfaranótt fimmtudags. Frá vinstri, Ómar Jóhannsson, Ólafur
Ingi Skúlason, Björgólfur Takefusa, Kristján Örn Sigurðsson og Guðmundur Viðar Mete.
„Mikil alvara á
bak við leikinn“
LOGI Ólafsson, annar landsliðsþjálfaranna í knattspyrnu, sagði við
Morgunblaðið eftir fyrri æfingu landsliðsins í San Francisco í gær
að hún hefði verið á rólegu nótunum enda ekki á því undirlagi sem
búist hafði verið við. Hann var ánægður með að allir komust heilir
frá æfingunni. Eftir að ungir leikmenn höfðu leikið á móti þeim
eldri, þar sem eldri strákarnir höfðu betur, 4:0, sagði Logi þetta
góða aðferð til að hrista leikmannahópinn saman. Ísland mætir
Mexíkó í vináttulandsleik í San Francisco aðra nótt og hefst leik-
urinn klukkan fjögur á fimmtudagsmorgni að íslenskum tíma.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
San Francisco
LEIKMENN landsliðsins í knatt-
spyrnu komu saman í Lundúnum á
sunnudag, allir nema Björgólfur
Takefusa, sem er við nám í Banda-
ríkjunum. Hann kom nokkrum
klukkustundum á undan öðrum leik-
mönnum til San Francisco enda
styttra fyrir hann að komast á leik-
stað. Hann varð þó að ferðast í sjö
klukkustundir til að komast til San
Francisco enda Bandaríkin stór og
langt að fljúga frá austurströndinni
yfir á vesturströndina.
MEXÍKANSKA liðið kemur ekki
til San Francisco fyrr en í kvöld,
daginn fyrir leik. Ástæðan er að
þjálfarinn, Ricardo La Volpe, segir
að ef hann komi of snemma með lið-
ið á leikstað þá missi hann leikmenn
í verslanir og það vill hann ekki.
Hann vill frekar stoppa stutt á leik-
stað og hafa menn einbeitta.
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir frá
Akureyri mun taka þátt í heimsbik-
armótum í Lake Louise í Kanada í
byrjun desember. Hún keppir á
tveimur brunmótum og einu risa-
svigsmóti. Dagný er fyrsta íslenska
skíðakonan sem tekur þátt í bruni á
heimsbikarmóti. Hún er nú í 87.
sæti á heimslista kvenna í risasvigi
og í 96. sæti í bruni.
SUÐUR-AFRÍKUBÚARNIR Tre-
vor Immelman og Rory Sabbatini
sigruðu á heimsbikarmótinu í tví-
menningi í golfi sem fram fór í Suð-
ur-Karólínu í Bandaríkjunum. Þeir
luku leik á 13 höggum undir pari en
þeir spiluðu síðasta hringinn á einu
höggi yfir pari. Englendingar skut-
ust upp í annað sæti en fyrir loka-
hringinn voru þeir í sjötta sæti.
ENGLENDINGARNIR Paul Ca-
sey og Justin Rose spiluðu loka-
hringinn á fimm höggum undir pari
og enduðu þeir fjórum höggum á
eftir þeim Immelman og Sabbatini.
FRAKKARNIR Thomas Levet og
Raphaël Jacquelin enduðu í þriðja
sæti einu höggi á eftir Englending-
unum.
FRAKKAR gjörsigruðu Pólverja í
þriðja leik sínum í undankeppni
Evrópumóts kvenna, en leikurinn
fór fram í Frakklandi á laugardag.
Frakkar unnu 7:1 sigur eftir að hafa
verið yfir, 3:0, í leikhléi. Marinette
Pichon skoraði þrennu fyrir franska
liðið, öll mörkin í síðari hálfleik, og
þær Woock, Tonazzi, Diacre og
Lattaf skoruðu eitt mark hver. Gi-
bek minnkaði muninn fyrir Pólverja
með síðasta marki leiksins.
BIRGITTA Þura Birgisdóttir úr
Keilufélagi Akraness setti Íslands-
met á Íslandsmeistaramóti ung-
lingaliða í keilu um helgina. Birg-
itta, sem keppir í flokki 13–14 ára,
náði 225 stigum í einum leiknum og
bætti gamla metið, sem var 216 stig,
um 9 stig. Birgitta á nú öll metin í
þessum aldursflokki í 1, 2, 3, 4, 5 og
6 leikjum.
FÓLK
Skotbar-
dagi við
æfinga-
völlinn