Morgunblaðið - 18.11.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 51
www .regnboginn.is
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Beint á
toppinn í
USA!
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i. 16.
Hann hélt alltaf að hann væri bara
venjulegur álfur, þangað til annað
kom í ljós. Nú er hann
á leiðinni í stórborgina að finna
pabba sinn.
Will Ferrell
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.
Stórkostleg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
OPEN RANGE
DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.15.
Frábær grínmynd um
strák sem skilinn er eftir
heilt sumar hjá tveim
snarklikkuðum frændum
sínum.
Stórleikararnir Michael
Caine, Robert Duvall og
Osment úr Sixth Sense
fara á kostum.
Sýnd kl. 4.
„ATH!
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKU O
G
ENSKU
TALI“
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Með ensku tali og íslenskum texta.
Will Ferrell
Stórkostleg grínmynd fyrir alla fjölskylduna.
Hann hélt alltaf að hann væri bara venjulegur álfur, þangað til annað kom í ljós.
Nú er hann á leiðinni í stórborgina að finna pabba sinn.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
SÍÐASTA plata Írafárs, Allt sem
ég sé, var ágæt um margt og forvitni-
leg meðal annars fyrir það hversu
kaflaskipt hún var;
innan um vinsælda-
poppið voru metn-
aðarmeiri lagasmíð-
ar sem bentu til
þess að sveitin væri
að ganga í gegnum
þroskaskeið, mótast. Á nýrri plötu
sveitarinnar má svo heyra að tónmál
sveitarinnar er nánast fullmótað,
heildarsvipur á plötunni sterkur og
stefnan skýr.
Vignir Snær Vigfússon, lagasmiður
sveitarinnar, hefur mjög ákveðinn
tónsmíðastíl og lög hans jafnan eins-
leit, eiginlega öll eins í uppbyggingu
og framvindu, riff og viðlag endurtek-
in eftir þörfum, mjög sérstæður og
um margt frumlegur lagasmiður þótt
ekki virðist hann fjölhæfur. Þáttur
Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar í
frama Írafárs er umtalsverður því
honum hefur verið lagið að færa lögin
hans Vignis Snæs í dægilegan búning,
gera lögin fjölbreyttari. Á Nýju upp-
hafi er hann líka í essinu sínu í útsetn-
ingum, hleður inn hljóðum og hljóm-
um, skýtur inn súrum fiðlum,
fönkuðum bassa eða víruðum hljóm-
borðum, en sérstaklega finnst mér
hann nota strengi vel á plötunni. Út-
setningar á lögum eru og margar
hreint afbragð frá tæknilegu sjónar-
miði og hljómur afskaplega góður.
„Fáum aldrei nóg“ hefur verið mik-
ið spilað undanfarið og þótt það sé
skemmtilegt lag, þrungið Todmo-
bílskri dramatík, er það alls ekki eina
lagið á plötunni sem hljómar vel.
„Aldrei mun ég“ er til að mynda eitt
besta lagið á plötunni, hrífandi viðlag
og góð stígandi í laginu. Píanóklasar,
massaðir strengir, tregafullur slide-
gítar og himnakór = fyrsta flokks
popplag.
Annað gott lag er „Nýtt upphaf“,
góð keyrsla, gott viðlag, strengir
smekklegir og söngur í góðu lagi. Eini
gallinn er hálfrar mínútu gítarfyllirí
um miðbikið. Því er reyndar svo hátt-
að víðar á skífunni, of mikið af rafgít-
ar; þungarokkriffum og stærðfræði-
legum skölum. Vert er einnig að
nefna „Annan dag“, gott stuðlag með
skemmtilegri útsetningu sem Vignir
Snær syngur af krafti.
Önnur lög eru almennt síðri, þreyt-
andi í yfirdrifinni keyrslu og þving-
aðri gleði. Mér finnst líka vanta á plöt-
una spilagleði, er ekkert gaman að
vera í vinsælli hljómsveit?
Eina lagið sem ekki er úr smiðju
Vignis á skífunni er síðasta lagið sem
Birgitta semur, „Í annan heim“. Lag-
ið er einfalt og lítið í það spunnið og
textinn endalaus þér/mér/hér/sér/fer-
klifun.
Textar á plötunni eru þokkalegir,
segja svo sem ekkert en eru ágætir til
síns brúks. Einna skemmtilegastur er
texti Stefáns Hilmarssonar við lagið
„Nýtt upphaf“, fornlegur eins og hans
er von og vísa, en lakastur er texti
Vignis Snæs við „Ef, ef?“ sem hann
syngur annars vel.
Birgitta er með mjög þokkafulla
rödd og syngur yfirleitt vel á plötunni,
sumstaðar afskaplega vel, hrasar ekki
illa nema í „Ég og þú“ enda fellur
rödd hennar ekki að hetjusópran-
söngvum. Félagar hennar standa sig
með ágætum. Vignir Snær er af-
bragðs gítarleikari þótt hann sé full-
æstur að sýna hvað hann getur, og
hljómborðsleikur á plötunni almennt
mjög góður, geri ráð fyrir að þar sé
yfirleitt Andri Guðmundsson á ferð.
Hrynpar sveitarinnar stendur sig líka
með prýði. Gestir eru fjölmargir og
skila sínu vel, nefni sem dæmi fram-
úrskarandi orgelleik Kjartans Valdi-
marssonar og góðar raddir þeirra
Margrétar Eir og Regínu Óskar.
Strengjaleikur er líka framúrskar-
andi.
Þessarar plötu Írafárs hefur verið
beðið með nokkurri eftirvæntingu,
enda sala á síðustu skífu með ein-
dæmum. Það er nokkuð djarft af
hljómsveitinni að kalla plötuna Nýtt
upphaf, en á þó rétt á sér því þetta er
eiginlega fyrsta „alvöru“ Írafársplat-
an, fyrsta heilsteypta verkið sem
sveitin sendir frá sér, og fróðlegt að
sjá hvernig aðdáendur hljómsveitar-
innar eiga eftir að taka henni.
Tónlist
Nýtt upp-
haf Írafárs
Írafár
Nýtt upphaf
Skífan
Nýtt upphaf, breiðskífa með hljómsveit-
inni Írafári. Írafár skipa þau Vignir Snær
Vigfússon gítarleikari og söngvari, Birg-
itta Haukdal söngkona, Andri Guðmunds-
son hljómborðsleikari, Jóhann Bachmann
trommuleikari og Sigurður Samúelsson
bassaleikari. Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son tók upp og vann útsetningar með
Vigni Snæ, annaðist einnig forritun og
lék á hljómborð. Lög á plötunni eru eftir
Vigni Snæ Vigfússon utan eitt sem Birg-
itta Haukdal semur, textar flestir eftir
Birgittu, en Vignir Snær semur einn með
henni og á að auki tvo texta, Friðrik
Sturluson á einn og Stefán Hilmarsson
annan. Skífan gefur út. Diskurinn er með
spilunarvörn.
Árni Matthíasson
Nýtt upphaf er réttnefni að því leyti að platan er fyrsta „alvöru“ Írafárs-
platan, fyrsta heilsteypta verkið, segir í umsögn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÖLLUM að óvörum læddi Álfurinn
sér á topp bandaríska bíólistans eftir
á daginn kom að flestir bíógesta
voru komnir í jólaskap og lögðu leið
sína á þessa léttu grínmynd fremur
en annað sem í boði var um helgina.
Álfamyndin varð, af eðlilegum
ástæðum, að láta sér lynda annað
sætið þegar Matrix-byltingin hófst
með látum um síðustu helgi en eftir
að draga tók úr byltingarkraftinum
greip Álfurinn tækifærið og hreiðr-
aði um sig á toppnum.
Upp á milli þeirra komst síðan
stórmyndin Skipstjóri og flotafor-
ingi: Á fjarlægum slóðum (Master
and Commander: The Far Side of
the World) með ástralska ósk-
arsverðlaunahafanum Russell
Crowe í aðalhlutverki. Myndina
gerði landi Crowes Peter Weir, sá
mikilsvirti leikstjóri, sem á að baki
myndir á borð við Picnic at Hanging
Rock, The Witness, Dead Poets Soc-
iety og Truman Show. Nýja myndin
hefur almennt fengið rífandi góða
dóma og margir af helstu gagnrýn-
endunum vestra talað um hana sem
einn af stórviðburðum bíóársins, ef
ekki þann stærsta.
Matrix-byltingin hélt ekki þeim
velli sem vonast hafði verið til því að-
sóknin féll um 66% frá síðustu helgi
– en það eiga margar myndir, sem
hafa byrjað vel á árinu, sameig-
inlegt.
Auk Skipstjóra og flotaforingja
komu tvær aðrar myndir inn nýjar;
Kalli kanína og félagar snúa aftur
(Looney Tunes: Back in Action) er
blanda af leikinni mynd og teiknaðri
þar sem Kalli kanína, Daffi önd og
félagar leika á móti leikurum af
holdi og blóði á borð við Brendan
Fraser. Tupac: Upprisan (Tupac:
Resurrection) er ný heimildarmynd
í fullri lengd um hipp-hopp goðið
margfræga sem myrtur var á dul-
arfullan hátt 1996.
"
#$%#
#&%$'
'(%!
'#%)
*%&
+%*
(%'
&%)
,%$
!%!
$'%!
#&%$
'',%#
(!%)
*%&
'*%)
')#%!
,!%$
,%$
,&%(
Álfurinn lagði Neo
Skipstjórinn og flotaforinginn:
Þykir líklegur Óskarsverðlauna-
kandídat.
Jólastemmningin allsráðandi í bíóhúsum vestra
DAGUR íslenskrar tungu var á sunnudag-
inn. Af því tilefni fóru leikarar úr Þjóðleik-
húsinu á milli grunnskóla í gær, mánudag,
og lásu fyrir nemendur. Hér má sjá þau
Brynhildi Guðjónsdóttur og Ívar Örn Sverr-
isson (annar frá hægri) en þau litu inn í
Vesturbæjarskóla. Morgunblaðið/Ásdís
Leikarar
lesa fyrir
skólabörn