Morgunblaðið - 21.12.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Munið að slökkva
á kertunum
Aðgát skal höfð
í nærveru kerta
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Jólakötturinn fær sitt að venju.
Bág staða rjúpnastofnsins
Ekki séreign
skotveiðimanna
Rjúpnaveiðibanniðhefur mjög veriðtil umræðu í haust
og sér ekki fyrir endann
og deila menn fram og
aftur auk þess sem marg-
ar „rjúpnafjölskyldur“
hafa enn ekki ákveðið
hvað skuli vera á matseðl-
inum á aðfangadagskvöld
úr því að rjúpuna skortir.
Málið hefur klagað mest
upp á umhverfisráðherr-
ann sem geranda og skot-
veiðimenn og rjúpnaætur
sem þolendur, en fugla-
fræðingar á Náttúru-
fræðistofnun komu einnig
við sögu. Morgunblaðið
ræddi um málið við Ólaf
Karl Nielsen sem stundað
hefur rjúpnarannsóknir
um árabil og fara svör
hans hér á eftir.
– Hvers vegna að þínu mati er
nauðsynlegt að banna skotveiðar
á rjúpu?
„Bág staða rjúpnastofnsins
gerði það nauðsynlegt. Umskipti
urðu eftir 1960 og rjúpnastofninn
hefur aldrei almennilega rétt úr
kútnum síðan. Síðustu 10 ár eru
ein þau lélegustu sem við þekkj-
um. Þetta ástand klagar ekki
bara upp á veiðimenn, rjúpan er
ekki þeirra séreign. Rjúpan á sér
ótal unnendur sem sakna vinar í
stað, fugl sem áður var einn af
einkennisfuglum móanna er orð-
inn sjaldgæfur. Eins er rjúpan
þýðingarmikill hlekkur í fæðu-
vefnum og ein tegund, fálkinn, er
algjörlega háð rjúpunni. Fálkum
hefur t.d. fækkað mjög mikið á
Vesturlandi og Suðurlandi á síð-
ustu 20 árum!“
– Er það ekki staðreynd að
stofninn var byrjaður að sýna
umskipti?
„Stofninn er að komast í lág-
mark eða er í lágmarki, mismun-
andi eftir landshlutum. Þetta er
einmitt tíminn sem þess er að
vænta að friðunaraðgerðir geti
skilað árangri, þ.e. þegar hann er
að byrja að vaxa.“
– Hvað segirðu um orð skot-
veiðimanna að aðrir þættir skipti
miklu meira máli en skotveiði,
t.d. fjölgun rándýra eins og refs
og sílamáfs?
„Stofnsveifla rjúpunnar er
náttúrulegt fyrirbæri og ótal
þættir hafa þar áhrif, m.a. fæðan,
rándýr, sýklar og sníkjudýr og
tíðarfar.“
– Ertu sammála því að skot-
veiðin sé eini fækkunarþátturinn
sem hægt sé að hafa stjórn á?
„Já, skotveiðar eru eini þátt-
urinn sem við getum stjórnað til
skemmri tíma litið.“
– Hefðir þú sjálfur viljað frek-
ar sjá einhverjar raunhæfar tak-
markanir á skotveiðum en algert
veiðibann?
„Jú, tillögur Náttúrufræði-
stofnunar frá 2002 gerðu ráð fyr-
ir að það yrði dregið verulega úr
sókn og þá annars vegar með
sölubanni og hins vegar styttingu
veiðitímans. Þetta gekk ekki eft-
ir, það var ekki vilji
fyrir því hjá Alþingi að
setja á sölubann. Þess
vegna voru tillögur
okkar 2003 um algjört
veiðibann frekar en að
stytta veiðitímann í
nær ekki neitt, eða viku til 10
daga, en það hefði þurft að gera
til að ná sókninni verulega niður.
Það er mín skoðun að markaðs-
veiðar á fuglum á Íslandi séu
tímaskekkja og því fyrr sem við
losnum við þennan hvata til stór-
felldra veiða því betra. Það er
engin ástæða til að ætla að þessir
villtu stofnar geti staðið undir
þörfum sístækkandi markaðar.
Framtíðin er sportveiði, ekki
markaðsveiði.“
– Hefurðu ekki áhyggjur af því
að veiðikortakerfið skemmist
vegna þessa, bæði að rjúputölur
detti út og að skotveiðimenn
mögulega taki upp á því að falsa
skýrslur?
„Vissulega hef ég slíkar
áhyggjur. Veiðikortakerfið er eitt
mesta framfaraspor sem stigið
hefur verið hér á landi til vökt-
unar á nytjum fugla. Reyndar er
þetta kerfi ein af forsendum
sjálfbærrar nýtingar fuglastofn-
anna. Við viljum ekki það ástand
sem var fyrir tíma þessa kerfis
þegar engar tölulegar upplýsing-
ar voru um veiðina. Veiðikorta-
kerfið er ekki síður mikilvægt
fyrir skotveiðimenn en stjórnvöld
og fræðimenn. Umfang nytjanna
verður að vera lýðum ljóst ann-
ars næst aldrei nein sátt um
þær.“
– Telurðu að skotveiðimenn
hafi snúið útúr einhverju af ykk-
ar boðskap eða misskilið?
„Jú, jú, að sjálfsögðu, menn
voru mjög reiðir og ýmislegt var
sagt í hita augnabliksins sem bet-
ur hefði verið látið ósagt.“
– Hvers vegna er talið að
stofninn hafi dalað eins mikið og
raun ber vitni?
„Við vitum það ekki fyrir víst,
margir þættir gætu spilað sam-
an, m.a. hafa orðið miklar breyt-
ingar í sveitum landsins og nægir
þar að nefna girðingar sem
teygja sig um öll fjöll og allar
heiðar. Menn verða þó að gera
sér grein fyrir því að skotveiðar
geta sannanlega haft
áhrif á afföll fugla þar
á meðal rjúpunnar.“
– Heldurðu að skot-
veiðibannið muni
skipta sköpum fyrir
rjúpnastofninn?
„Ég vona að við sjáum um-
skipti til ástands í einhverri lík-
ingu við það sem var fyrir 1960.
Allavega, með vísan í ástand
rjúpnastofnsins, gengur ekki til
frambúðar að styðjast við þá
veiðiráðgjöf sem ráðið hefur
rjúpnanytjum sl. 50 ár, þ.e. að
skotveiðar skipti engu máli varð-
andi heildarafföll.“
Ólafur K. Nielsen
Ólafur Karl Nielsen er fæddur
21. nóvember 1954. Hann er
stúdent frá Verslunarskóla Ís-
lands 1975, BS í líffræði frá Há-
skóla Íslands 1978, Ph.D. frá
Cornell University, Ithaca, New
York, 1986. Starfaði við Líf-
fræðistofnun háskólans 1986–
1992, var veiðistjóri 1993 og
starfaði við Náttúrufræðistofnun
Íslands frá 1984. Þriggja barna
faðir, Ólafur Hrafn, Sólveig og
María.
Framtíðin er
sportveiði,
ekki markaðs-
veiði
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122