Morgunblaðið - 21.12.2003, Qupperneq 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2003 67
SEXTÁN verkefni fengu samtals
5.350.000 krónur í styrk úr Minning-
arsjóði Helgu Jónsdóttur og Sig-
urliða Kristjánssonar í ár, en árlega
styrkveitingar voru kynntar í hófi á
Radisson SAS Hótel Sögu.
Sjóðnum er ætlað að styrkja rann-
sóknir og framfarir á sviði augn-
lækninga, hjartalækninga, tauga- og
öldrunarlækninga og skiptust styrk-
irnir þannig á áherslusvið sjóðsins,
að fimm styrkir runnu til rannsókna
á augnsjúkdómum, fimm til rann-
sókna á öldrunarsjúkdómum, fjórir
til taugarannsókna og tveir til rann-
sókna á hjarta- og æðasjúkdómum.
Eftirfarandi hlutu styrk að þessu
sinni:
Ástríður Pálsdóttir og Elías Ólafs-
son fyrir verkefnið Könnun á mein-
ferli stökkbreytts cystatin C í arf-
gengri heilablæðingu. Berglind
Magnúsdóttir fyrir verkefnið Stöðl-
un á MATTIS heilabilunarkvarða
(MDRES-2). Björn Guðbjörnsson
vegna rannsókna á líffærasértækum
ónæmissjúkdómum með heilkenni
Sjögrens sem módelsjúkdóm.
Brynhildur Thors vegna verkefn-
isins Stjórnun á boðferlum tengdum
Akt í æðaþeli. Einar Stefánsson til
að rannsaka súrefnisbúskap sjón-
taugar í mönnum. Eiríkur Stein-
grímsson vegna verkefnisins Starf-
semi og hlutverk Mitf gensins í
augnþroskun ávaxtaflugunnar (Dro-
sophilia melanogaster). Friðbert Jón-
asson fyrir Augnrannsókn Reykja-
víkur 2004. Halldóra Björnsdóttir,
sem spyr hvort fræðsla um beinþynn-
ingu skili árangri í forvarnarstarfi.
Jón Hersir Elíasson vegna rann-
sóknar á faraldsfræði heilablóðfalls á
Íslandi. Kolbrún Albertsdótir fyrir
verkefnið Beinþynning. Klínísk teikn
– lífsgæði – öryggi. Kristín Hann-
esdóttir vegna verkefnisins Skert
innsæi (anosognosia) í Alzheimer
sjúkdómi. María Ragnarsdóttir
vegna rannsókna á skammtíma og
langtíma áhrifum hjartaskurð-
aðgerðar á öndun með nýrri aðferð
við bringubeinsskurð. Ólafur E. Sig-
urjónsson fyrir verkefnið Creating
an in vivo assay for testing the diffe-
rentiation potential of human stem
cells. Ólafur Þór Ævarsson fyrir
verkefnið Þunglyndi og streita meðal
karla, með sérstakri áherslu á nýja
tækni í mælingum á streitu og for-
vörnum gegn sjálfsvígum. Vil-
hjálmur Rafnsson vegna rannsókna á
skýmyndun á augasteini hjá flug-
mönnum og Þórir Svavar Sigmunds-
son fyrir verkefnið Mótefni gegn ß-
amyloid í Alzheimer-sjúkdómi.
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Rúmlega 5 milljónir í 16 verkefni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Styrkþegar eða fulltrúar þeirra ásamt stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar.
Laugavegi, sími 511 4533.
Smáralind, sími 554 3960.
Kringlunni, sími 533 4533.
Sími 551 2040
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
20%
afsláttur
af allri
jólavöru
til jóla