Morgunblaðið - 21.12.2003, Page 67

Morgunblaðið - 21.12.2003, Page 67
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2003 67 SEXTÁN verkefni fengu samtals 5.350.000 krónur í styrk úr Minning- arsjóði Helgu Jónsdóttur og Sig- urliða Kristjánssonar í ár, en árlega styrkveitingar voru kynntar í hófi á Radisson SAS Hótel Sögu. Sjóðnum er ætlað að styrkja rann- sóknir og framfarir á sviði augn- lækninga, hjartalækninga, tauga- og öldrunarlækninga og skiptust styrk- irnir þannig á áherslusvið sjóðsins, að fimm styrkir runnu til rannsókna á augnsjúkdómum, fimm til rann- sókna á öldrunarsjúkdómum, fjórir til taugarannsókna og tveir til rann- sókna á hjarta- og æðasjúkdómum. Eftirfarandi hlutu styrk að þessu sinni: Ástríður Pálsdóttir og Elías Ólafs- son fyrir verkefnið Könnun á mein- ferli stökkbreytts cystatin C í arf- gengri heilablæðingu. Berglind Magnúsdóttir fyrir verkefnið Stöðl- un á MATTIS heilabilunarkvarða (MDRES-2). Björn Guðbjörnsson vegna rannsókna á líffærasértækum ónæmissjúkdómum með heilkenni Sjögrens sem módelsjúkdóm. Brynhildur Thors vegna verkefn- isins Stjórnun á boðferlum tengdum Akt í æðaþeli. Einar Stefánsson til að rannsaka súrefnisbúskap sjón- taugar í mönnum. Eiríkur Stein- grímsson vegna verkefnisins Starf- semi og hlutverk Mitf gensins í augnþroskun ávaxtaflugunnar (Dro- sophilia melanogaster). Friðbert Jón- asson fyrir Augnrannsókn Reykja- víkur 2004. Halldóra Björnsdóttir, sem spyr hvort fræðsla um beinþynn- ingu skili árangri í forvarnarstarfi. Jón Hersir Elíasson vegna rann- sóknar á faraldsfræði heilablóðfalls á Íslandi. Kolbrún Albertsdótir fyrir verkefnið Beinþynning. Klínísk teikn – lífsgæði – öryggi. Kristín Hann- esdóttir vegna verkefnisins Skert innsæi (anosognosia) í Alzheimer sjúkdómi. María Ragnarsdóttir vegna rannsókna á skammtíma og langtíma áhrifum hjartaskurð- aðgerðar á öndun með nýrri aðferð við bringubeinsskurð. Ólafur E. Sig- urjónsson fyrir verkefnið Creating an in vivo assay for testing the diffe- rentiation potential of human stem cells. Ólafur Þór Ævarsson fyrir verkefnið Þunglyndi og streita meðal karla, með sérstakri áherslu á nýja tækni í mælingum á streitu og for- vörnum gegn sjálfsvígum. Vil- hjálmur Rafnsson vegna rannsókna á skýmyndun á augasteini hjá flug- mönnum og Þórir Svavar Sigmunds- son fyrir verkefnið Mótefni gegn ß- amyloid í Alzheimer-sjúkdómi. Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar Rúmlega 5 milljónir í 16 verkefni Morgunblaðið/Árni Sæberg Styrkþegar eða fulltrúar þeirra ásamt stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar. Laugavegi, sími 511 4533. Smáralind, sími 554 3960. Kringlunni, sími 533 4533. Sími 551 2040 Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) 20% afsláttur af allri jólavöru til jóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.