Morgunblaðið - 21.12.2003, Page 79
BUBBI Morthens heldur sína árlegu
Þorláksmessutónleika að þessu
sinni á NASA við Austurvöll. Tón-
leikarnir eru merkilegir fyrir þær
sakir að þetta verður í 20. sinn sem
Bubbi stendur fyrir jólatónleikum,
sem oftast hafa verið haldnir á
Borginni. Margir eiga góðar minn-
ingar frá þessum tónleikum og ekki
síst Bubbi sjálfur, sem kynntist kon-
unni sinni á meðan á undirbúningi
fyrstu Þorláksmessutónleikanna
stóð.
Forsölu á tónleikana er lokið og
seldust um 320 miðar. Á tónleika-
daginn verða síðan seldir 80 til 100
miðar á staðnum, segir Bubbi. Má
því búast við fullu húsi. „Það hefur
verið það. Þetta hafa verið vinsælir
tónleikar,“ segir Bubbi.
„Yfirhöfuð er ofsaleg gleði
ríkjandi og þarna mætir stór hópur
aðdáenda sem þekkir öll lögin mín.
Þegar maður spilar eitthvað sem
varð til áður en þau fæddust verða
ofsa fagnaðarlæti,“ segir Bubbi,
sem spilar mikið gömul lög á Þor-
láksmessutónleikunum auk þess
sem fólk getur búist við að heyra lög
af nýjustu plötu hans, Þúsund kossa
nótt. „Gömlu lögin verða líka að
vera með.“
Aðspurður hvort hann sé kominn
í jólaskap segir Bubbi að hann sé að
reyna að gíra sig í það. „Ég er búinn
að vera að glíma við brjósklos, sem
er búið að vera að angra mig mikið.
Ég er að reyna að tækla þetta.“
Hann er samt viss um að hann
verði kominn í sannkallað jólaskap
þegar hann komi heim af Þorláks-
messutónleikunum. „Ég verð kom-
inn í jólaskap þegar ég kem heim.
Þá eru krakkarnir og konan búin að
skreyta tréð. Þá er jólastemningin
komin í mann.“
Tónleikunum er útvarpað beint á
Bylgjunni og líka á Bylgjan.is, sem
er heppilegt til dæmis fyrir þá sem
búa erlendis. „Ég veit að það er hefð
fyrir því í Nýja-Sjálandi og Ástralíu
að fólk safnist saman úti í garði að
hlusta á tónleikana í gegnum Netið.
Sumir eru búnir að gera þetta árum
saman. Íslendingarnir hittast í blíð-
unni að morgni dags til að hlusta,“
segir Bubbi, sem hefur líka fengið
bréf frá Indónesíu og Afríku frá
fólki sem hlustar á Þorláksmessu-
tónleikana fjarri Fróni. „Svo heyrði
ég líka frá íslenskum skipstjóra sem
var á veiðum einhvers staðar þarna
við Nýfundnaland. Hann hlustaði á
tónleikana í tölvunni uppi í brú,“
segir Bubbi, þannig að boðskap-
urinn og jólastemningin fer víða.
Þorláksmessutónleikar Bubba í 20. sinn
Gleðin
ríkjandi
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Frá tónleikum Bubba á Borginni á Þorláksmessu í fyrra en í ár verður
Bubbi á NASA.
Bubbi á NASA á Þorláksmessu.
Tónleikarnir verða líka í beinni á
Bylgjunni og á www.bylgjan.is.
ingarun@mbl.is
JAKOB Smári Magnússon hefur verið í tónlist-
inni allt síðan pönkbylgjan reið yfir Ísland (var í
Tappa tíkarrassi t.d.) og hefur spilað með
hljómsveitum eins og Das Kapital, Síðan skein
sól og Stríði og friði svo fáeinar séu nefndar. En
það er ekki fyrr en nú sem hann ríður á vaðið
með eigin tónlist. Og það í formi jólaplötu, nokk
óvenjulegrar. Heitir hún Bassajól og inniheldur
sígild jólalög, eingöngu leikin á bassa.
„Þessi hugmynd kom fyrst upp fyrir mörgum
árum,“ segir Jakob. „Þá spilaði ég eitt sumar
með Sniglabandinu. Pálmi (Sigurhjartarson)
stakk upp á þessu í gríni, hvort það væri ekki
sniðugt að gera jólaplötu sem væri bara leikin á
bassa. Hugmyndin datt ekki alveg dauð niður
strax og barst einhvern veginn á milli manna. Á
tímabili voru komnir fleiri bassaleikarar inn í
þetta en það datt svo upp fyrir. Í sumar
ákváðum ég og Hrafn Thoroddsen, en við erum
að spila saman í Síðan skein sól, að láta verða af
þessu og hófum upptökur í október.“
Jakob segir að flippið hafi verið sett til hliðar,
loksins þegar af varð.
„Við settumst niður og vönduðum okkur við
þetta og létum allan fíflagang eiga sig. Ég valdi
lög sem mér finnst flott. Þarna eru sálmar og
líka sígild jólalög sem maður hefur alist upp
með. Það eina sem heyrist í utan bassa er
trommuheili. Við lágum ekkert yfir þessu, þetta
streymdi bara fram.“
Þrír bassar eru notaðir. Kontrabassi, banda-
laus rafbassi og hefðbundin rafbassi.
„Ég byrjaði á því að spila melódíuna og setti
svo annaðhvort eitthvað undir eða yfir. Þetta
eru bara fjögurra strengja bassar, alveg bannað
að nota sex strengja!“
Útsetningar áttu til að vera vandasamar,
Jakob segir að það sé sannarlega hætt við að
allt fari í graut ef bassinn er kominn á t.a.m. tíu
rásir. Og eins og áður segir, þá er platan engin
venjuleg jólaplata.
„Það er nóg til af stuði í jólatónlist þannig að
ég lét það eiga sig. Það eru engar bjöllur eða
slíkt hérna, meira svona lágstemmdur höfgi.
Þetta kann að koma spánskt fyrir sjónir, sumir
halda kannski að þetta sé tómt rugl. Það komu
líka stundir þar sem ég efaðist. En maður bara
kláraði dæmið.“
Hljómurinn er „nálægt“ hlustandanum, það
brakar í bassanum, andardráttur heyrist og
stemning er öll hin stofulegasta. Sannkölluð
bassajól!
Ljósmynd/Hrafn Thoroddsen
Bassajól er fyrsta sólóplata Jakobs Smára.
Fyrsta sólóplata Jakobs Smára Magnússonar er jólaplata
Bassajól
Platan Bassajól er komin út. Hún var tekin
upp heima hjá Jakobi en líka í Stúdíó Ást-
arsorg sem er í eigu Ensími, sveitar Hrafns.
Hljóðblöndun var gerð í Sýrlandi.
arnart@mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2003 79
ÞEGAR tveir trommarar rugla
saman settum sínum og gefa út plötu
þá veit maður ekki alveg við hverju á
að búast. Hvernig tónlist búa tveir
trommarar til saman?
Dialog er e.t.v. ekki besta svarið við
því vegna þess að Steingrímur Guð-
mundsson og Sig-
tryggur Baldursson
eru og hafa allar
götur verið allt ann-
að en dæmigerðir
trommarar. Þeir eru
nefnilega ekki ein-
asta tveir af bestu trommurum og
ásláttarleikurum sem þjóðin hefur átt
heldur hefur þeim aldrei nægt að vera
fastir bak við settið. Steingrímur hefur
þannig lagt lag sitt við að ná fullkomnu
valdi á öðrum og framandlegri áslátt-
arhljóðfærum eins og austurlenska ta-
blanu sem um margt er leiðandi hljóð-
færi á umræddri plötu. Og þótt
Sigtryggur hafi garfað meira í rokkinu,
með Þeysurum, Kuklinu og Sykurmol-
um þá hefur hann aldeilis farið um víð-
an völl, raulað með Steingrími í Mill-
unum, skapað óhljóð með Einari og
Hilmari Erni í Frostbite, rafhljóð með
Jóhanni Jóhannssyni í Dip og leikið
undir með hinum og þessum vönduð-
um tónlistarmanninum erlendum,
gjarnan þeim sem daðrað hafa við
heimstónlistina.
Og það er einmitt eina orðið sem
kemur í hugann ef lýsa á þessum
dásamlega gjörningi sem þeir hafa
kuklað saman undir nafninu Stein-
tryggur. Heimstónlist. Heimstónlist í
ætt við snilldarverk á borð við My Life
in the Bush of Ghosts Byrnes og Enos
eða Mali Music Albarns og félaga, sem
þó eru plötur sem koma ekki nándar
nærri eins víða við og Dialog Stein-
tryggs. Hún virkar nefnilega á mann
eins og hin ævintýralegasta 45 mín-
útna heimsreisa með taktfastri hrað-
lest knúin áfram af áslætti Stein-
tryggs, trommum og tabla. Of langt
mál væri þannig að ætla að greina frá
öllum áningarstöðum, fara út í öll þau
heimsins tónlistaráhrif sem greina má
á þessari guðdómlega fjölbreytilegu og
framandi plötu. Hér ægir öllu saman;
hipp-hoppi, raftónlist, poppi, rokki,
pönki, öllum mögulegum og ómögu-
legum tegundum af djassi og heims-
tónlist frá Austur-Evrópu, Afríku,
Grænlandi og austurlöndum nær og
fjær. Allt kemur síðan heim og saman í
þessum hrynheita takti lestarstjór-
anna Steingríms og Sigtryggs sem
beina óþrjótandi hugmyndum sínum á
ófyrirsjáanlegar en ávallt réttar braut-
ir og sjá til þess að aldrei sé farið út af
sporinu.
Þótt þeir sjálfir lestarstjórar eigi vit-
anlega stjörnuleik, jafnt sem höfundar
og flytjendur, þá er það ekki hvað síst
vegna vel valinna og fjölskrúðugra far-
þega sem lestarferðin er svona listilega
vel lánuð. Þannig á Eiríkur Orri Steph-
ensen frábæra spretti á trompetið í
þremur lögum, impróvisérar sem villt-
ur maður – eða bara Einar Örn – í
tablapönkinu „I don’t get it“ og blæs
svo undurþýtt og sveiflandi í „Swing“ –
einu allra best heppnaða lagi plötunn-
ar. Þar hefur ekki lítið að segja sterk
innkoma saxistans snjalla Óskars Guð-
jónssonar. Þá slæst Davíð Þór Jónsson
í för með þeim Óskari og lestarstjórum
í kolmyrku og mögnuðu lokalagi,
„Transsylvanian Limousine“. Eitt
besta dæmið um smekklega samsuðu
ólíkra heima er marímbu-hipp-hoppið í
„Seven Days“ sem rennur svo innilega
eðlilega saman við tilfinningaþrungið
söngrapp hinnar pólsku Natöshu
Kurek-Gudmundsson. Flottastur er þó
oud-leikur (íranskt 12-strengja hljóð-
færi) Sörens Venemans í hinu gullfall-
ega „Psalm“ sem byggt er á sálmi eftir
Þorkel Sigurbjörnsson en sami Vene-
man fer og á kostum á mandólíninu þar
sem það kallast á við sekkjapípuna í
„Reel Faktor“. Þá fanga þeir mann á
lymskulegan hátt indversku straum-
arnir í taktþungu „3rd Avenue“.
Maður veit satt best að segja ekki
hvar skal láta staðar numið þegar byrj-
að er að tína til allar þær gersemar
sem verða á vegi manns þegar stokkið
er upp í tablahraðlest Steintryggs.
Hún er einfaldlega allra æsilegasta
heimsreisa sem hægt er leggja upp í
vegabréfslaus.
Umbúðir eru og smekklegar og
flottar en leiðinlegt er að sjá hversu
upplýsingar um flytjendur á umslagi
eru rangar á annars svo tilkomumiklu
listaverki.
Tónlist
Heimsreisa
með tabla-
hraðlestinni
Steintryggur
Dialog
Smekkleysa sf.
Steintryggur eru Steingrímur Guðmunds-
son og Sigtryggur Baldursson. Öll lög e.
Steingrím og Sigtrygg nema „Green
Landing“ e. Steingrím, Sigtrygg og Nat-
asha Kuren-Gudmundsson, „3rd Ave“ e.
Steingrím, Sigtrygg og Sören Venema,
„Seven Days“ e. Steingrím, Sigtrygg og
Orly Kibalika, „On Our Time“ e. Stein-
grím, Sigtrygg og Þorkel Sigurbjörnsson.
Sigtryggur leikur á trommur, áslátt, gít-
ara, hljómborð og forritun. Steingrímur
leikur á tabla, áslátt og syngur. Aðrir
hljóðfæraleikarar eru Benedikt H. Her-
mannsson gítar, Björn Kristjánsson
hljómborð, Davíð Þór Jónsson harm-
onika, Dionisio bongótrommur, Eiríkur
Orri Ólafsson trompet, Eyþór Gunnarsson
forritun, Natasha Kurek-Gudmundsson
söngur, Orly Kibalika söngur og klapp,
Óskar Guðjónsson saxófónn, Róbert Þór-
hallsson bassi, Sara Guðmundsdóttir
söngur, Stefan van den Berg sekkjapípur,
Sören Veneman oud, waldzither og mand-
ólín, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson ak-
ústík bassi. Upptökustjóri Sigtryggur
Baldursson. Tekin upp í hljóðveri FÍH og
Hole in the Sky í Hollandi apríl 2002–maí
2003. Útgefandi Smekkleysa SM ehf.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn
Dialog er „æsilegasta heimsreisa
sem hægt er leggja upp í vegabréfs-
laus“. Sigtryggur Baldursson og
Steingrímur Guðmundsson eru
Steintryggur.
Í KVÖLD verður sýnd heim-
ildamyndin Atlantic Jihad
sem á íslensku nefnist Heilagt
stríð í Norðurhöfum. Þar er
því haldið fram að Tyrkjarán-
ið á Íslandi árið 1627 hafi ver-
ið heilagt stríð en jafnframt er
sýnt hve þræðir þess lágu víða
og hve margslungið það var.
Atlantic Jihad er alþjóðleg
útgáfa af myndinni Tyrkja-
ránið sem sýnd var í þremur
þáttum í Sjónvarpinu í maí í
fyrra en þessi útgáfa inniheld-
ur mikið af nýju myndefni
sem ekki var í íslensku útgáf-
unni. Meðal annars er farið til
Færeyja og Írlands þar sem
foringi Tyrkjaránsins gerði
samskonar strandhögg stuttu eftir
árásina á Ísland árið 1627.
Þorsteinn Helgason sagnfræðing-
ur og höfundur myndarinnar segir að
færa megi rök fyrir því að Tyrkjarán-
ið hafi verið hluti af því sem í Kór-
aninum er kallað heilagt stríð. „Einn
þátturinn í ráninu var hin aldagamla
togstreita á milli múslima og krist-
inna manna sem við sjáum enn í dag.
Til dæmis fóru menn ekki til að drepa
fólk heldur til að taka það til fanga og
svo var því boðið að taka íslamska trú
en það var hin æðsta gjöf, og tilgang-
urinn með heilögu stríði. “ Hann
bendir á að einnig sé hægt að finna
rök gegn þessari kenningu en að
gaman sé að skoða Tyrkjaránið í
þessu ljósi. Þorsteinn hefur verið að
vinna að rannsóknum á atburðinum í
um tíu ár og er að skrifa
doktorsritgerð um efnið.
Myndin var tekin á sögu-
slóðum á Íslandi, Færeyjum,
Írlandi, Danmörku, Hol-
landi, Frakklandi, Ítalíu,
Spáni og Norður-Afríku.
Hún hefur þegar verið sýnd í
sjónvarpi í Hollandi og Ír-
landi en bandaríska dreif-
ingarfyrirtæki TPI hefur
tekið myndina til alþjóða-
dreifingar. Hún er framleidd
af kvikmyndafélaginu Seyl-
an með stuðningi frá
Media+ áætlun Evrópu-
sambandsins. Framleiðandi
er Hjálmtýr Heiðdal, Guð-
mundur Bjartmarsson sá
um kvikmyndatöku og klippingu
ásamt Jóni Yngva Gylfasyni. Sverrir
Guðjónsson hafði veg og vanda af tón-
listinni.
Heimildamynd um Tyrkjaránið
Var Tyrkjaránið heilagt stríð?
Myndin var tekin upp á Íslandi, í Færeyjum, Hol-
landi, Frakklandi, á Ítalíu, Spáni og í Norður-Afríku.
Heilagt stríð í Norðurhöfum er á
dagskrá Sjónvarpsins í kvöld,
sunnudagskvöld kl. 20.