Morgunblaðið - 22.12.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 347. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Fara ekki í
jólaköttinn
Kettirnir Fróði og Kolbeinn fá
fjölda jólapakka | Daglegt líf
íþróttir| Mál Ferdinands fyrir almenna dómstóla
Haukar unnu en féllu úr keppni Fasteignir | Árið 2003
metár í fasteignaviðskiptum Geislahitun og gólfhitun
Börnum gefin megrunarpilla?
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Hoff-
mann-La Roche vill að leyft
verði að gefa börnum niður í 12
ára aldur megrunarpillu er
nefnist Xenical, að sögn Aften-
posten í Noregi. Fyrirtækið
hyggst á næsta ári sækja um
slíkt leyfi hjá evrópska lyfjaeft-
irlitinu, EMEA.
Jan Rosenvinge, sem er pró-
fessor í barnasálarfræði við
Tromsø-háskóla, hefur efasemd-
ir um að rétt sé að láta börn
nota megrunarlyf og segir að
það ætti eingöngu að gera þeg-
ar um óvenju mikinn offitu-
vanda sé að ræða. Hann bendir
á að almenn notkun verði ekki
til þess að draga úr þrýst-
ingnum á börn og unglinga um
að vera tággrönn eins og fyrir-
sætur.
Niðurstöður rannsóknar sem
Rosenvinge stóð fyrir benda til
þess að fjórði hver tíu ára
Norðmaður hafi annaðhvort
farið í megrun eða einhvern
tíma velt því fyrir sér að gera
það.
Annar sérfræðingur, Runi
Børresen, segir að lyf leysi ekki
vandann til langframa. „Þegar
börn eru of feit er það ekki að-
eins barnið sem þarf að breyta
lífsvenjum og mataræði heldur
öll fjölskyldan,“ segir hún.
VETRARSÓLSTÖÐUR eru í dag en þá er sólar-
gangur stystur á árinu. Sólstöður vísa til þess að
sólin hættir að hækka eða lækka á lofti. Hún
kemst þá lengst frá miðbaug himins til norðurs
eða suðurs og eru sólstöður tvisvar á ári, vetrar-
sólstöður á tímabilinu 20. til 23. desember og sum-
arsólstöður á tímabilinu 20. til 22. júní, þegar sól-
argangurinn er lengstur. Sólin hækkar nú á lofti
með hverjum deginum næstu sex mánuðina.
Morgunblaðið/Kristinn
Stysti sólargangur ársins
KAUPÞING Búnaðarbanki á í viðræðum við stjórn
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis um kaup á
SPRON. Viðræðurnar eru á lokastigi og er búist við
tilkynningu um niðurstöðu þeirra í dag. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins má búast við, að Kaup-
þing Búnaðarbanki kaupi SPRON á nálægt 9 millj-
arða króna. SPRON verður rekinn áfram sem sjálf-
stæð eining, þar sem lögð verður áherzla hér eftir
sem hingað til á einstaklingsviðskipti en markaðs-
hlutdeild sparisjóðsins á því sviði bankaviðskipta er
umtalsverð á höfuðborgarsvæðinu.
Með þessum viðskiptum verður til stór sjóður,
sem sennilega mun eiga 6 milljarða króna, í eigu
sjálfseignarstofnunar, sem árlega leggur til menn-
ingar- og líknarmála nokkur hundruð milljónir
króna. Í hlut um 1.100 stofnfjáreigenda munu koma
um 3 milljarðar króna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er að-
dragandi þessara viðskipta skammur. Stjórn
SPRON mun hafa leitað eftir tilboðum frá Kaup-
þingi Búnaðarbanka, Landsbanka Íslands og Ís-
landsbanka fyrir nokkrum dögum, um fyrirkomu-
lag viðskiptanna og verð, og var tilboðum skilað
síðdegis sl. föstudag. Tilboð Kaupþings Búnaðar-
banka var umtalsvert hærra en hinna bankanna.
Í kjölfar þessara viðskipta má gera ráð fyrir, að
kapphlaup hefjist milli bankanna um kaup á öðrum
sparisjóðum á sama grundvelli.
Stjórnin hefur kannað ýmsa möguleika
Jón G. Tómasson, formaður stjórnar SPRON,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að á vegum
stjórnarinnar hefðu verið kannaðir ýmsir mögu-
leikar á því að gefa stofnfjáreigendum kost á því að
selja stofnfjárbréf sín hærra verði en unnt hafi ver-
ið, svo sem Fjármálaeftirlitið hafi talið heimilt að
gera. „Einn af þeim kostum hefur verið einskonar
samstarf eða samvinna í bankakerfinu. Endanleg
niðurstaða liggur ekki fyrir,“ sagði Jón. Hann
kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um málið.
Á síðasta ári var unnið að því að breyta SPRON í
hlutafélag. Þá gerðu fimm stofnfjáreigendur tilboð í
hlut annarra stofnfjáreigenda við mun hærra verði.
Tilgangurinn var að Búnaðarbankinn eignaðist
sparisjóðinn. Stjórn SPRON lagðist gegn þessum
áformum, taldi sér ekki heimilt að samþykkja þau,
og vísaði meðal annars til álits Fjármálaeftirlitsins.
Í áliti þess kom einnig fram að þágildandi löggjöf
fæli ekki í sér bann við að stofnfjáreigandi í spari-
sjóði gæti selt eða framselt þriðja aðila stofnfjárhlut
sinn á hærra verði en endurmetnu nafnverði fengi
hann til þess lögmælt samþykki stjórnar. Í lögum
um fjármálafyrirtæki sem samþykkt voru fyrir ári
voru síðan ákvæði sem ætluð voru til að styrkja yf-
irtökuvarnir sparisjóðanna.
Til að salan geti átt sér stað þarf að breyta
SPRON í hlutafélag. Í lögum er gert ráð fyrir að það
þurfi að gerast að tillögu stjórnarinnar. Stofnfjár-
eigendur fá sem gagngjald hlutafé í félaginu og skal
það nema sama hlutfalli og stofnfé af áætluðu mark-
aðsverði sparisjóðsins, samkvæmt mati óháðs aðila.
Sá hluti hlutafjárins sem stofnfjáraðilar fá ekki í
sinn hlut rennur til sjálfseignarstofnunarinnar.
Kaupverð um 9 milljarðar króna Til verður 6 milljarða sjóður, sem leggur fé til
menningar- og líknarmála 1.100 stofnfjáreigendur fá 3 milljarða í sinn hlut
Kaupþing Búnaðar-
banki kaupir SPRON
FORSETI Egyptalands, Hosni
Mubarak, hvatti í gær Ísraela til að
eyða gereyðingarvopnum sínum í
kjölfar þess að Líbýumenn hafa nú
tekið slíka ákvörðun eftir margra
mánaða leynilegar samningaviðræð-
ur við fulltrúa Bandaríkjamanna og
Breta. „Þetta var jákvætt skref sem
hefur afleiðingar um allan heim og
verður einnig að gera það í Ísrael,“
sagði Mubarak. Sérfræðingar í varn-
armálum álíta að Ísraelar ráði nú yf-
ir um 200 kjarnorkusprengjum.
Fulltrúar stjórnvalda í Íran og
fleiri múslímalöndum tóku í sama
streng og Mubarak.
Að sögn breskra fjölmiðla hafa
Líbýumenn látið stjórnvöldum í
Washington og London í té um-
fangsmiklar og „nákvæmar upplýs-
ingar“ um mörg hundruð liðsmenn
al-Qaeda og annarra hermdarverka-
samtaka. Ráðuneyti heimavarna í
Bandaríkjunum hækkaði í gær við-
búnaðarstig hryðjuverkahættu
vegna aukinnar hættu á árás af hálfu
liðsmanna al-Qaeda úr „gulum“ í
„appelsínugulan“. Tom Ridge, ráð-
herra heimavarna, sagði að hættan
hefði sennilega ekki verið meiri frá
því árásirnar miklu voru gerðar í
september árið 2001.
Ákvörðun Líbýu sögð
sigur fyrir Bush
Ýmis bandarísk blöð sem hafa ver-
ið gagnrýnin á stefnu George W.
Bush forseta, þ. á m. The New York
Times og The Washington Post,
sögðu um helgina í leiðurum að
ákvörðun Gaddafis væri sigur fyrir
stefnu Bush. Innrásin í Írak og
valdamissir Saddams hefði ýtt undir
ótta Líbýuleiðtogans um að verða
hrakinn frá völdum með hervaldi.
Ísraelar
eyði sínum
vopnum
Leiðtogar múslímaríkja
Kaíró, Tripoli, Washington. AP, AFP.
Reuters
Bandaríski ráðherrann Tom Ridge
varaði í gær við aukinni hættu á
miklu hryðjuverki yfir hátíðarnar.
Íþróttir og Fasteignir í dag