Morgunblaðið - 22.12.2003, Side 24
LISTIR
24 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BÓKMENNTAFRÆÐISTOFNUN Há-
skóla Íslands hefur gefið út sex
bækur í ritröðinni Þýðingum sem er
ætlað að kynna á íslensku erlend
fræði um bókmenntir og menningu.
Fyrstu ritin fjalla þannig um bók-
menntafræði, heimspeki, leiklist og
kvikmyndir. Ritstjóri ritraðarinnar er
Guðni Elísson, forstöðumaður Bók-
menntafræðistofnunar. Þýðingarnar
eru allar unnar af virtum þýðendum
og ritrýndar af fræðimönnum við Há-
skóla Íslands.
Einnig hefur Bókmennta-
fræðistofnun gefið út ritið Gísli
Brynjúlfsson. Ljóð og laust mál í rit-
röðinni Íslensk rit (rauðu ritin). Gísli
Brynjúlfsson er 13. ritið í röðinni og
undirbjó Sveinn Yngvi Egilsson útgáf-
una en ritstjóri raðarinnar er Guðni
Elísson. Bókin inniheldur m.a. úrval
af ljóðum hans, ritgerðir og sögur,
auk valdra kafla úr frægri dagbók
Gísla í Kaupmannahöfn 1848.
Loks hefur Bókmenntafræðistofn-
un gefið út fyrsta ritið í nýrri röð rita
með trúarbókmenntum á íslensku
(bláu ritin). Ritröðin hefst með ritinu
Heilagra meyja sögur sem Kirsten
Wolf hefur tekið saman. Ritstjórar
verksins eru þau Bergljót S. Krist-
jánsdóttir og Sverrir Tómasson. Bók-
in inniheldur sögur erlendra kven-
dýrlinga sem þýddar voru og
endursamdar hér á landi eftir lat-
neskum sögum allt fram undir
1500. Engin þessara sagna hefur
áður komið út á Íslandi og hafa þær
ekki áður komið út með nútímarit-
hætti.
Fræði
UMFJÖLLUN um barnabækur
reynir oft töluvert á hugmyndaflug
og víðsýni þeirra sem um þær fjalla.
Þær hafa nefnilega tilhneigingu til
að falla ekki að hefðbundnum gild-
um og hugmyndum. Þeir sem skrifa
bækur fyrir börn hafa það yfirleitt
að markmiði að fá börnin til að lesa
bækur og ekki þykir þeim verra ef
því fylgir nokkur skemmtun.
Kafteinn Ofurbrók og vandræðin
með Prófessor
Prumpubrók er
fjórða bókin þar
sem þeir Georg
og Haraldur eru
í aðalhlutverki.
Þeir félagar eru
óborganlegir
prakkarar sem
láta sér detta í
hug ýmislegt
sem venjuleg börn myndu aldrei
svo mikið sem leiða hugann að.
Höfundur bókanna, Dav Pilkey,
er Bandaríkjamaður sem hefur
meira hugmyndaflug heldur en
flest venjulegt fólk. Hann nýtir það
til að skrifa bækur fyrir börn. Bæk-
urnar eru bráðskemmtilegar og svo
virðist sem íslensk börn hafi tekið
við þær ástfóstri. Það kom fram í
könnun á uppáhaldsbókum barna
sem greint var frá á síðastliðnu
vori. Þá var bók um Georg og Har-
ald valin sú vinsælasta meðal
þýddra barnabóka. Og vissulega er
þessi nýja bók skemmtileg og
óvenjuleg. Hún á það til að ganga
fram af fólki, en fyrst og síðast er
henni ætlað að vera til skemmtun-
ar.
Það er mikilvægt að börn lesi
bækur. Það skiptir ekki síður miklu
máli að þær séu skemmtilegar og
örvi ímyndunarafl lesenda. Við
þurfum að sýna visst umburðar-
lyndi þegar við metum bækur fyrir
börn. Samt fara viss atriði í þessum
bókum fyrir brjóstið á þeim sem
vilja efla málkennd. Til dæmis það
að vera með mikinn fjölda stafsetn-
ingarvillna í textanum í teikni-
myndasögunum. Mörg börn hafa
sjónminni og það getur haft áhrif á
hæfni þeirra til að ná tökum á
tungumálinu sem þau tala. Þeir sem
gefa út bækur fyrir börn bera mikla
ábyrgð. Þeir þurfa að leggja
áherslu á virðingu fyrir íslenskri
tungu.
Dav Pilkey er hvorttveggja í senn
rithöfundur og myndlistarmaður.
Hann hóf feril sinn á því sviði 19 ára
gamall, en þá tók hann þátt í sam-
keppni meðal námsmanna og sigr-
aði, sem leiddi til þess að bókin var
gefin út. Síðan þá hefur hann skrif-
að margar bækur fyrir börn. Ekki
aðeins um Kaftein Ofurbrók heldur
margar aðrar. Og alltaf virðist hann
leggja áherslu á frjóar hugmyndir
og skemmtilegheitin. Og slíkir rit-
höfundar eru nauðsynlegir.
Kannski lýsir það aðferðum hans
við að skrifa bækur best, í hvaða röð
hlutirnir verða til. Fyrst er það tit-
illinn, þvínæst sagan og loks mynd-
irnar. Og sá sem lætur sér detta í
hug að skrifa bók sem heitir Kaf-
teinn Ofurbrók og vandræðin með
Prófessor Prumpubrók er ekki
maður sem fer hefðbundnar leiðir.
BÆKUR
Barnabók
Eftir Dav Pilkey. Íslensk þýðing: Bjarni
Frímann Karlsson. 156 bls, JPV útgáfa,
2003.
KAFTEINN OFURBRÓK OG VANDRÆÐIN
MEÐ PRÓFESSOR PRUMPUBRÓK
Óhefðbundnar leiðir
Sigurður Helgason
MARGIR þekkja viðtal
Matthíasar Johannessen við Valdi-
mar Kristófersson frá Skjaldartröð
en það er birt
sem bókarauki í
Sólstöfum og svi-
kaglennum.
Í viðtalinu seg-
ir Matthías um
Valdimar að
hann hafi átt
greinds manns
tungu og notað
hana vel og eft-
irminnilega.
Það voru einkum
sérstæð orð og orðatiltæki sem
heilluðu Matthías, öll ættuð undan
Jökli.
Matthías nefnir slík dæmi en
annars er viðtalið ekki mjög frá-
brugðið þeim viðtölum sem
Matthías skrifaði eftir ýmsum al-
þýðumönnum og var stundum
hársbreid frá smásögunni eins og
hann gefur sjálfur í skyn.
Í greinum Valdimars og ýmsu
því sem hann skrifaði í Neista má
kynnast því hversu skemmtilegur
höfundur hann er.
Minningabrotin Fyrsta ferðin til
Reykjavíkur með Breiðafjarðar-
Svani og Frá unglingsárum eru
góð dæmi.
Fyrra brotið lýsir vel langri sjó-
ferð og lífinu í Reykjavík þar sem
Unuhús kemur meðal annars við
sögu.
Valdimar hefur sinn hátt á að
segja frá og er kjarnorður eins og
hans var vandi. Erlendur í Unu-
húsi virðist ekki hafa höfðað til
hans. Hann skrifar: „Mér létti er
ég vissi að hér var kominn sonur
Unu, þá hlaut allt að vera í lagi
með hann. Erlendur var mér lengi
minnisstæður, enda alger and-
stæða við þátíma fyrirmynd ungra
manna einsog piltsins laglega sem
stúlkan var að reyna að kyssa
steinsofandi. Ég þóttist þess full-
viss að enginn reyndi slíkt við Er-
lend, heldur flýði af vettvangi,
hljóðandi af hræðslu.“
Það er fremur orðalag Valdimars
sem vekur athygli eins og orð kerl-
ingarinnar við karlinn:
„Ertu vitlaus, maður. Ég skal
taka djöfuls tóbakið, þú mátt
treysta því að ég kann að hantéra
það í slórnar á þér. Ég hef ekki svo
sjaldan þurft að gera það þegar þú
ert að núlla allan daginn við þessi
útiverk sem rassbrotin kerling
gæti klárað á hálftíma.“
Þetta er sannkallað Jöklaramál.
Eins og Sæbjörn, sonur Valdi-
mars, segir í Um höfundinn og
verkin hans, kom ekki til greina að
kalla hlutina hversdagslegum nöfn-
um ef önnur fundust mergjaðri.
Margt hefur Valdimar að segja
um byggðina undir Jökli og í því er
eftirsjá þegar allt er að fara í eyði í
kringum hann.
En hann gerir sitt til að eitthvað
geymist í minni og örnefnin glatist
ekki.
Um mannlífið er hann ekki bein-
línis margorður enda mun það ekki
hafa tíðkast undir Jökli að láta
móðan mása. Menn voru gagnorðir
og oft fáorðir.
Það er helst að Valdimar bregði
á leik í vísum og kviðlingum sem
hann orti sér til hugarhægðar og
líka til að skemmta öðrum.
Helstu kostir frásagnargáfu hans
birtast sjaldan í þessum kveðskap
en á köflum yrkir hann ágæt ljóð
eins og til dæmis Minningar:
Ástríðurnar elta mig,
oft til mikils baga.
Æ, hvað ég hef elskað þig
alla mína daga.
Einskisvert er allt um mig,
unnið, mælt og skrifað.
En himneskt þó að hugsa um þig
og hafa eitt sinn lifað.
Ekki skortir hnyttni og sér-
kennileik en flest er þetta venju-
legur alþýðukveðskapur.
Ljóðmælin sem eru fyrirferðar-
mikil í bókinni munu fyrst og
fremst skemmta kunnugum og
hafa gildi fyrir Jöklara og afkom-
endur þeirra. Svo er um fleiri
minningaþætti í bókinni sem hefði
ásamt öðru efni grætt á því að rit-
stjórinn hefði verið óvægnari í vali
sínu.
BÆKUR
Bundið mál og óbundið
Bundið mál og óbundið, mannlíf og sagn-
ir undir Jökli. Eftir Valdimar Kristófersson
frá Skjaldartröð. Bókarauki eftir
Matthías Johannessen o.fl. Sæbjörn
Valdimarsson ritstýrði og bjó til prent-
unar. Prentvinnsla: Prentmet.
Útgefandi Kristófer Valdimarsson 2003 –
350 síður.
SÓLSTAFIR OG SVIKAGLENNUR
Kjarnyrtur Jöklari
Jóhann Hjálmarsson
Valdimar
Kristófersson
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
TETRA
VERSLUN • VERKSTÆ‹I
Radíófljónusta Sigga Har›ar
Öll fljónusta fyrir
TETRA símkerfi›
á einum sta›
Fjarskipti
framtí›arinnar
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
RAUÐARÁRSTÍG 14-16, SÍMI 551 0400 • KRINGLUNNI, SÍMI 568 0400 • www.myndlist.isPétur Gautur
KAMMERHÓPURINN Camer-
arctica heldur nú sína árlegu
kertaljósatónleika og verða loka-
tónleikarnir nú í kvöld í Dómkirkj-
unni í Reykjavík. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.00 og eru um
klukkustundarlangir og verður
kirkjan eins og áður einungis lýst
með kertaljósum.
Camerarctica skipa þau Hall-
fríður Ólafsdóttir flautuleikari,
Ármann Helgason klarinettuleik-
ari, Hildigunnur Halldórsdóttir og
Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleik-
arar, Guðmundur Kristmundsson
víóluleikari og Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari. Verkin sem
þau leika eru Divertimento nr.3
eftir Wolfgang Amadeus Mozart,
Kvartett fyrir klarinett og strengi
í Es-dúr eftir Bernhard Crusell og
Kvartett í D-dúr fyrir flautu og
strengi eftir Wolfgang Amadeus
Mozart.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn, eldri borgarar og
nemendur fá helmingsafslátt og
ókeypis aðgangur er fyrir börn.
Leikið við kertaljós
í Dómkirkjunni
Fréttasíminn
904 1100