Morgunblaðið - 22.12.2003, Qupperneq 47
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 47
egar íslensku ostarnir eru bornir fram,
einir sér, á ostabakka e›a til a› kóróna
matarger›ina – á er hátí›!
Engin jól án eirra!
Dala-Yrja
Sígildur veisluostur
sem fer vel á ostabakka.
Höf›ingi
Brag›mildur hvítmygluostur
sem hefur slegi› í gegn.
Dala-Brie
Á ostabakkann og me›
kexi og ávöxtum.
Lúxus-Yrja
Brag›mild og gó› eins og
hún kemur fyrir e›a í matarger›.
Camembert
Einn og sér, á ostabakkann
og í matarger›.
Blár kastali
Me› ferskum ávöxtum
e›a einn og sér.
Stóri-Dímon
Ómissandi $egar vanda á
til veislunnar.
Gullostur
Brag›mikill hvítmygluostur,
glæsilegur á veislubor›i›.
Mascarpone
Rjómaostur me› ítölskum keim.
Dásamlegur í deserta.
Jólaostakaka
Trönuberjasultan gefur
sannkalla› jólabrag›.
Grá›aostur
Tilvalinn til matarger›ar.
Gó›ur einn og sér.
Rjómaostur
Á kexi›, brau›i›,
í sósur og íd‡fur
Piparostur
Gó›ur í heitar sósur.
HVAR sem þau komu var þeim all-
staðar úthýst þótt öllum mætti vera
það ljóst í hvaða ástandi hún var
með stóran mag-
ann standandi út
í loftið, eins og
gerist hjá van-
færum konum.
En einhverstaðar
varð fólkið að
vera yfir nóttina
og því ekki um
annað að ræða en
að taka fletin sem
tiltæk voru.
Gripahús í bak-
garði varð fyrir valinu. Þar gat kon-
an lagst fyrir og alið sitt fyrsta barn.
Þá gerðust hlutir sem eiga sér enga
hliðstæðu í veraldarsögunni og
munu heldur ekki gerast á nýjan
leik. Barnið sem kom í heiminn við
slíkar aðstæður er „Frelsari heims-
ins.“ Fram á daginn í dag ber hann
einn þennan titil. Allir sem reyna að
eigna sér þetta hnoss eru þjófar og
ræningjar, samkvæmt Orðinu.
Já, fyrsta hljóðið sem heyrðist af
vörum hans var skær barnsgrátur
þar sem hann lá vafinn reifum í jötu,
sem skepnur notuðu til að éta fæðu
sína úr. Um þessa sömu jötu fóru
fætur manna sem gegndu skepnun-
um og gáfu þeim fóður sitt kvölds og
morgna.
Þrautaganga Maríu og Jósefs hef-
ur lifað frá kynslóð til kynslóðar
vegna þess að Drottinn er og vakir
yfir sínu Orði. Sagan lifir fyrir þær
sakir að Drottinn lifir til að segja
sína sögu hverri nýrri kynslóð.
Hann veit að kynslóðirnar verða að
heyra sannleikann beint af hans eig-
in vörum og umbúðalausan fyrir
munn sinna manna sem hann hefur
tekið út úr heiminum og gert sjálf-
um sér að verkfærum. Þannig við-
helst sagan um þrautagöngu Maríu
og Jóseps sem gengu hús úr húsi og
var allstaðar meinaður aðgangur.
Eins og hin illu öfl vissu hver það
var sem var um það bil að koma í
heiminn til að umturna veldi þeirra
og eyða úr sköpun Guðs.
En samt hefur það gerst með tím-
anum og eftir því sem fráhvarf
mannanna frá Guði gerist meira að
sagan hefur fengið á sig eilítið annan
blæ en raunveruleikinn segir til um.
Á vorri tíð er sagan sveipuð hátíð-
arljóma og myndir hafa verið gerðar
í gegnum aldirnar af atburðinum
honum þá lýst á þann hátt að ljósa-
dýrð umlyki hamingjusama foreldr-
ana og sérstakt ljós er yfir sjálfu
barninu og menn og konur í kring
sem lúta höfði til að sína hinu ný-
fædda barni, konungi sínum, lotn-
ingu. Þetta er myndin sem heim-
urinn sýnir af atburðinum sem
vekur okkur þægilegar minningar
um atburðinn í Betlehem fyrir tvö
þúsund árum sem við flest viljum
halda við í hjartanu. En sannleik-
urinn er sá að fólkið gekk frá einu
gistihúsi til annars til þess að kom-
ast einhverstaðar inn og fá hlýtt
uppábúið rúm, en mættu hvarvetna
höfnun. Sem er mynd upp á það
hversu erfiðlega Drottni gengur að
festa rætur á meðal mannanna með
sitt Orð. Takið eftir því. Með sitt
Orð.
„En í sömu byggð voru hirðar úti í
haga og gættu um nóttina hjarðar
sinnar. Og engill Drottins stóð hjá
þeim, og dýrð Drottins ljómaði
kringum þá. Þeir urðu mjög hrædd-
ir, en engillinn sagði við þá: Verið
óhræddir, því sjá, ég boða yður mik-
inn fögnuð, sem veitast mun öllum
lýðnum: Yður er í dag frelsari fædd-
ur, sem er Kristur Drottinn, í borg
Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér
munuð finna ungbarn reifað og lagt í
jötu. Og í sömu svipan var með engl-
inum fjöldi himneskra hersveita,
sem lofuðu Guð og sögðu: (Lúk: 2. 8–
13.)
Sagan sem hér er sögð fjallar um
komu Orðsins í heiminn og ekkert
minna en það. Frelsara heimsins.
Raunverulega var honum hafnað áð-
ur en hann fæddist og gat dregið þar
andann, eins og nauðsynlegt er
hverri lifandi mannveru. Og má
segja að allt líf hans hafi verið merkt
slíkri framkomu fólks til dauðadags
og er enn.
Gera menn sér grein fyrir hvað
felst í þessu eina orði „frelsari?“
Gera menn sér grein fyrir því að
sjálfur skapari himins og jarðar er
með fæðingu Jesú Krists að rétta af
ákveðna skekkju sem komst inn í líf-
ið með syndafallinu í aldingarðinum
Eden? Þessi atburður sem átti sér
stað mörg þúsund árum fyrr er
beinlínis ástæðan fyrir fæðingu
Jesú. Hann er því sannarlega frels-
ari þinn og minn. Hann er aðilinn
sem leysir fólk undan þeim bind-
ingum sem lagðar voru á allt mann-
kyn á þessu augnabliki sögunnar.
KONRÁÐ RÚNAR
FRIÐFINNSSON trúboði,
box 182 802 Selfoss.
Vefsíða. www.fridarbodinn.is
Frelsari fæddur
Frá Konráði Rúnari Friðfinnssyni
Konráð Rúnar
Friðfinnsson