Morgunblaðið - 30.12.2003, Qupperneq 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 35
✝ Guðfinna Guð-jónsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 26.
september 1915.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 23. des-
ember síðastliðinn.
Hún var dóttir
hjónanna Guðjóns
Ólafs Jónssonar
trésmíðameistara, f.
19. des. 1890, d. 22.
ágúst 1978, og Guð-
rúnar Jónsdóttur
húsmóður, f. 14.
mars 1893, d. 21.
júní 1986. Systkini Guðfinnu eru
Róbert, f. 7. sept. d. 5. okt. 1920,
Guðmundur, f. 3. mars 1922,
Markús Hörður, f. 29. ágúst
sambúð með Gylfa Steini Gunn-
arssyni, f. 20. nóv. 1974; Svan-
hildur Björk, f. 12. okt. 1980, í
sambúð með Matthíasi Guð-
mundssyni, f. 1. ágúst 1980, dótt-
ir þeirra Maríanna Hlíf, f. 10.
okt. 1998. 2) Gunnlaugur, f. 5.
júlí 1946, kvæntur Svövu Eng-
ilbertsdóttur, f. 12. júlí 1952.
Börn þeirra eru: Karl, f. 17.
ágúst 1966, kvæntur Helgu Þor-
leifsdóttur, f. 2. des. 1966, börn
þeirra eru Gunnlaugur, f. 13.
ágúst 1989, og Stefanía Rós, f.
18. ágúst 1995; og Áslaug, f. 22.
des. 1975, í sambúð með Birni
Inga Guðbjartssyni, f. 30. júlí
1979.
Guðfinna var kölluð Dídí af
vinafólki sínu. Hún var hár-
greiðslumeistari og átti og rak
hárgreiðslustofuna Siggu og
Dídí sem hún átti með svilkonu
sinni, Sigríði Þorvarðardóttur.
Útför Guðfinnu verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
1923, d. 18. mars
1980, Kristbergur, f.
6. jan. 1925, d. 9. feb.
1996, og Ásta Hulda,
f. 1. mars 1929, d. 9.
júní 1988.
Guðfinna giftist
Karli Jónssyni, f. 4.
apríl 1936, d. 28.
nóv. 1996. Synir
þeirra eru: 1) Jón
Róbert, f. 2. jan.
1941, kvæntur Hlíf
Hjálmarsdóttur, f. 7.
apríl 1946. Börn
þeirra eru: Arnar
Þór, f. 1. jan. 1974, í
sambúð með Tinnu Ösp Arnar-
dóttur, f. 15. júlí 1978, dóttir
þeirra Embla Eik, f. 9. okt. 2003;
Guðfinna Ýr, f. 7. apríl 1975, í
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH.)
Látin er tengdamóðir okkar
Guðfinna Guðjónsdóttir, sem við
viljum minnast með nokkrum orð-
um. Guðfinna var einstök kona sem
helgaði líf sitt húsmóðurstörfum og
uppeldi sona sinna eftir að hún
gifti sig. Áður rak hún hárgreiðslu-
stofu ásamt svilkonu sinni. Margar
skemmtilegar og broslegar sögur
sagði hún okkur frá þeim tíma.
Guðfinna mat húsmóðurhlutverk
sitt mikils og sinnti því af stakri al-
úð og vandvirkni enda bar heimili
hennar þess vitni. Hún hafði sér-
stakt lag og næmt auga fyrir því að
gera allt fallegt og smekklegt sem
hún kom nærri, hvort sem það var
húsbúnaður, matargerð, móttaka
gesta eða annað. Hún var alltaf vel
til höfð og smekklega klædd, var
sönn dama. Hún bjó til bestu og
fallegustu jólasmákökur sem um
getur og ekki á margra færi að
leika það eftir.
Guðfinna var glaðlynd og jákvæð
að eðlisfari og hafði yndi af klass-
ískri músík.
Skömmu áður en hún lést átti
fjölskyldan saman indælan dag þar
sem yngsta langömmubarnið var
skírt. Þar naut Guðfinna sín vel,
ljúft er að minnast þessarar síð-
ustu samverustundar með henni.
Við færum henni þakkir fyrir
einstaka gæsku og gjafmildi til
handa okkur og barnabörnum
hennar og minnumst hennar með
virðingu og þökkum samfylgdina.
Hlíf og Svava.
Elsku, elsku amma mín, þetta er
með því erfiðasta sem ég hef upp-
lifað að kveðja þig. Ég sit hérna og
tárin renna niður. Ég horfi á þig í
huganum og augun þín stóru og
fallegu stara á mig eins og ég sé
demantur. Það eru ekki til orð til
að lýsa því hvernig mér leið þegar
ég kom í heimsókn til þín.
Amma geislaði í hvert skipti og
það var eins og hún hefði ekki get-
að ímyndað sér neitt betra en að fá
mig í heimsókn. Hún greip utan
um mig og faðmaði mig í þó nokk-
urn tíma, ég var alltaf fallegri í
hvert skipti sem ég kom. Amma
talaði alltaf um hvað hún væri
heppin að eiga svona góða fjöl-
skyldu og að þetta væri besta fjöl-
skyldan sem hún gæti hugsað sér.
Þannig var það hjá ömmu – við
vorum besta fjölskyldan, hún hefði
ekki getað hugsað sér betri
tengdadætur sem voru líka falleg-
astar.
Amma lét öllum líða eins og þeir
væru sérstakir – og allir voru það í
hennar augum. Það var allt svo
sérstakt og fallegt. Ef ég kom með
blóm handa ömmu geislaði hún
eins og hún hefði aldrei séð neitt
fallegra. Ég þarf að stoppa því tár-
in renna niður. Þegar ég kynnti
Gylfa kærasta minn fyrir ömmu
talaði hún ekki um annað en hvað
hann væri myndarlegur og hvað
nafnið hans væri fallegt. Amma tal-
aði svo ótrúlega vel um alla og vildi
öllum svo vel.
Ég var búin að læra af reynsl-
unni að passa mig á að segja ömmu
aldrei frá því ef mér þótti eitthvað
fallegt sem hún átti. Annars komst
maður ekki upp með annað en að
taka það með heim. Pabbi minn er
einstaklega gjafmildur maður og
veit ég hvaðan það kemur.
Amma bjó í Seljahlíð og var hún
einn stærsti viðskiptavinurinn í
búðinni niðri. Amma fór daglega
niður til að kaupa eitthvað til að
gefa okkur (hún var víst búin að
gefa okkur allt annað sem hún
átti). Í hvert skipti sem ég lít upp
af blaðinu til að sjá ömmu stendur
hún með faðminn opinn, brosandi,
augun geislandi og hún vill faðma
mig.
Ef ég ætti eina ósk þá væri hún
að fá að faðma þig einu sinni enn.
Ég á þitt nafn og mun varðveita
það alla mína tíð elsku amma mín.
Ég get ekki lýst því með orðum
hvað það er sárt að missa þig. Ef
mér leið illa var nóg að koma við
hjá þér, því þá sá maður hlutina í
öðru ljósi. Ég veit að þú munt allt-
af vera hjá mér, en mig langar
bara til að faðma þig.
Guðfinna Ýr Róbertsdóttir.
Elsku amma.
Ég var nýlega komin heim af
kaffihúsi, eftir að hafa fagnað af-
mæli mínu með nokkrum vinkon-
um, þegar Ýr frænka hringdi í mig
um nóttina og tilkynnti mér að þú
værir dáin. Þetta var sorglegur
endir á afmælisdeginum mínum.
Nú ert þú farin frá okkur til að
hitta afa á ný, þrátt fyrir að allir
héldu að þinn tími myndi ekki
koma næstum því strax. Þú varst
alltaf svo hress og kát þegar ég
kom í heimsókn, þótt þér hafi tek-
ist að ná 88 ára aldri. En ég er
glöð yfir því að þú fékkst að fara
snögglega og þurftir ekki að kvelj-
ast og minningin verður alltaf litla
káta Dídí amma. Þú og afi voruð
alltaf vel tilhöfð og snyrtileg, afi
pínulítill með þverslaufu og þú
pínulítil með hárið uppsett og alltaf
í pilsi. Ég held ég gæti talið á ann-
arri hendi hversu oft ég man eftir
þér í buxum. Þið voruð krúttleg og
handlagin hjón og minningin verð-
ur alltaf þannig.
Það er ekki langt síðan ég kom
að heimsækja þig síðast, u.þ.b.
tvær vikur. Þú varst mjög kát í
þeirri heimsókn, ekki síst fyrir það
að ég bakaði handa þér Sillur
(smákökur með glassúr og sultu),
sem þér einni hefur tekist að gera
fullkomlega, en þú varst þó mjög
sátt við mína frammistöðu, gafst
mér nokkur góð ráð og sagðir svo
við mig að ég ætti eftir að verða
stórkostlegur bakari.
Í gegnum tíðina varstu alltaf að
gefa okkur krökkunum smáhluti til
að punta með, þetta eru hlutir sem
ég mun horfa á og minnast þín og
afa.
Þú hefur verið sátt við að fara á
þessum tímapunkti, enda allir ráð-
settir í fjölskyldunni og þú orðin
langamma fjögurra barna. Þér
tókst að vera við skírn yngsta lang-
ömmubarnsins og vissir að það
væri von á einu hjá mér og Birni
Inga.
Þú verður með okkur í anda og
ég mun alltaf minnast þín sem litlu
Dídí ömmu eða ömmu í Skaftó eins
og ég sagði alltaf.
Þú lifir í anda. Þín
Áslaug Tóka.
GUÐFINNA
GUÐJÓNSDÓTTIR
til ömmu og langömmu.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Karl, Helga, Gunnlaugur
og Stefanía Rós.
HINSTA KVEÐJA
Fleiri minningargreinar um Jón
Jónsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.Guð-
finnu Guðjónsdóttur
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR,
Núpum í Fljótshverfi,
verður jarðsungin frá Kálfafellskirkju föstudaginn 2. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Margrét Helgadóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN ÓLAFUR ÓLAFSSON
fyrrv. skólastjóri í Garði,
Hólabraut 12,
Keflavík,
andaðist á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi
mánudaginn 22. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 31. desember
kl. 11.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Guðrún Jónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir,
Jón Guðmann Pétursson,
Lúðvík Börkur Jónsson,
tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
PÉTUR FRIÐRIK JÓRAMSSON,
Faxabraut 13,
Keflavík,
áður til heimilis
á Ásabraut 14,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 25. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hilmar Pétursson, Guðrún Kristinsdóttir,
Kristján Pétursson, María Bergmann,
Dagmar Pétursdóttir Tuttun, Ronald Tuttun,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar, mágur, stjúpfaðir og frændi,
LOFTUR GRÉTAR BERGMANN,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést annan dag jóla. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðlaugur Bergmann og fjölskylda,
Ásgeir Theodór Bergmann og fjölskylda,
Aðalheiður Óladóttir Helleday og fjölskylda.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
fyrrum bóndi í Fagradal,
Sundabúð,
Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð sunnu-
daginn 28. desember.
Kristján G. Magnússon, Guðfinna Kristjánsdóttir,
Oddný E. Magnúsdóttir, Halldór Valdimarsson,
Árni H. Magnússon, Ásgerður Sigurðardóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELLÝ BJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 24. desem-
ber.
Jónas Þór Hreinsson, Marta Hallgrímsdóttir,
Júlía Guðný Hreinsdóttir,
Arnþór Hreinsson,
Daði Hreinsson, Lene Bernhöj,
Margrét Hreinsdóttir, Stefán Steingrímsson
og barnabörn.