Morgunblaðið - 30.12.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur til samkenndar með
vinum þínum í dag og munt
því sennilega leggja lykkju á
leið þína til að hjálpa þeim.
Líttu á þetta sem tækifæri til
að aðstoða aðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Metnaður þinn er mikill þessa
dagana. Þú telur þig geta náð
árangri í hverju sem þú tekur
þér fyrir hendur og á sama
tíma gert öðrum gagn. Hlut-
irnir geta varla orðið betri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú lætur þig dreyma um
ferðalög til fjarlægra landa,
framhaldsmenntun eða ein-
hvers konar útgáfustarfsemi.
Mundu að það getur allt gerst.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt sennilega njóta góðs
af örlæti einhvers í dag. Þú
ættir að þiggja það sem þér er
boðið. Þannig veitirðu öðrum
tækifæri til að sýna örlæti sitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt eiga sérstaklega
innilegar samræður við vini
þína í dag. Þú finnur til sam-
kenndar og átt auðvelt með að
setja þig í spor annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur til þakklætis í garð
vinnufélaga þíns í dag. Fólk er
tilbúið til að rétta þér hjálp-
arhönd, jafnvel án þess að þú
biðjir um það. Njóttu þess að
finna fyrir velvild annarra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sköpunargáfa þín er ein-
staklega mikil í dag. Nýttu
hana til listsköpunar, í starfi
með börnum eða bara til að
skemmta þér og öðrum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ættingjar þínir gætu þurft á
hjálp þinni að halda í dag.
Sýndu þeim hjálpsemi og
greiðvikni og þú munt hljóta
þakklæti þeirra og viðurkenn-
ingu að launum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hafðu ekki áhyggjur þótt
dagdraumar sæki á huga þinn
í dag. Einstein sagði að dag-
draumar væru forsmekkurinn
af því sem í vændum væri.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt njóta þess að kaupa
eitthvað fallegt í dag. Láttu
það eftir þér að kaupa eitt-
hvað sérstakt handa þér eða
öðrum, svo framarlega sem þú
hefur efni á því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú finnur til ósvikins náunga-
kærleika í dag. Þú ert tilbú-
in/n til að gera hvað sem er
fyrir einhvern náinn þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver náinn þér gæti valdið
þér vonbrigðum í dag. Spurðu
sjálfa/n þig að því hvort vænt-
ingar þínar séu raunsæjar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert áreiðanleg og skipu-
lögð raunsæismanneskja
sem kannt að meta hluti sem
hafa sannað gildi sitt.
Á komandi ári þarftu að taka
nokkrar mikilvægar
ákvarðanir. Veldu vel.
ÁRNAÐ HEILLA
TÍMINN
Tíminn mínar treinir ævistundir.
Líkt og kemba’ er teygð við tein
treinir hann mér sérhvert mein.
Skyldi’ hann eftir eiga’ að hespa’ og spóla
og rekja mína lífsins leið,
láta’ í höföld, draga’ í skeið?
Skyldi’ hann eftir eiga’ að slíta, hnýta,
skammel troða, skeið að slá,
skjóta þráðum til og frá?
- -
Prentvilla var í fyrstu línu kvæðisins Tíminn eftir Pál Ólafsson í
blaðinu sl. sunnudag. Birtist ljóðið því hér aftur leiðrétt.
Páll Ólafsson.
LJÓÐABROT
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. Rf3 c5 5. Bg5 O-O 6.
e3 Da5 7. Bxf6 Bxc3+ 8.
bxc3 Dxc3+ 9. Rd2 gxf6 10.
Hb1 cxd4 11. Hb3 Da5 12.
Hb5 Dd8 13. Dg4+ Kh8 14.
Hh5 Hg8 15. Dh4 Kg7 16.
Hxh7+ Kf8 17. Re4 Da5+
18. Ke2 Df5
KB banki stóð fyrir
skömmu sterku jóla-
hraðskákmóti sem fram fór í
aðalútibúi bank-
ans í Austur-
stræti. Umsjón-
armaður
skákhornsins var
á meðal áhorf-
enda þegar hæst-
setti skákmaður
bankans, Karl
Þorsteins (2489),
hvítt, bar sig-
urorð af Hannesi
Hlífari Stef-
ánssyni (2567) .
19. Hxf7+! og
svartur gafst upp
enda fokið í flest
skjól eftir 19...
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
Kxf7 20. Rd6+. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Helgi
Ólafsson 11 vinninga af 13
mögulegum 2. Jóhann
Hjartarson 9½ v. 3.-4. Jón
Viktor Gunnarsson og
Þröstur Þórhallsson 8½ v.
5.-7. Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Margeir Pétursson
og Karl Þorsteins 7½ v. 8.
Bragi Þorfinnsson 6½ v. 9.-
10. Stefán Kristjánsson og
Helgi Áss Grétarsson 6 v.
11. Björn Þorfinnsson 4½ v.
12. Friðrik Ólafsson 4 v. 13.-
14. Guðmundur Halldórsson
og Jón Kristinsson 2 v.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30.
desember, er 50 ára Ellý
Helga Gunnarsdóttir, Há-
holti 3, Hafnarfirði.
85 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30.
desember, er 85 ára Ingi-
björg Sæmundsdóttir,
Hjallabraut 21, Hafn-
arfirði. Hún tekur á móti
ættingjum og vinum í
Sunnusal Hótel Sögu kl. 20
á afmælisdaginn.
Skugginn/ Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. október sl. í Há-
teigskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni þau Guðrún Katr-
ín Gunnarsdóttir og Ing-
ólfur Arnar Magnússon.
Skugginn/ Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 6. september sl. í Há-
teigskirkju af sr. Sigurði
Arnarsyni þau Sólveig
Níelsdóttir og Hjörtur Har-
aldsson.
HIÐ árlega minning-
armót Bridsfélags Reykja-
víkur um Hörð Þórðarson,
fyrsta formann félagsins,
fór fram á laugardaginn
með þátttöku 53 para.
Daníel Már Sigurðsson og
Guðmundur Þ. Gunnarsson
unnu öruggan sigur, en
þeir hlutu 61% skor.
Sveinn Rúnar Eiríksson og
Erlendur Jónsson urðu í
öðru sæti (58,4%), en Run-
ólfur Jónsson og Hermann
Friðriksson urðu þriðju
(58%). Í síðustu umferð-
inni sögðu Daníel Már og
Guðmundur harða slemmu,
sem lá til vinnings:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁG103
♥ ÁD10654
♦ 3
♣94
Vestur Austur
♠ K42 ♠ 9865
♥ 9872 ♥ 3
♦ 965 ♦ Á10872
♣KG5 ♣1062
Suður
♠ D7
♥ KG
♦ KDG4
♣ÁD873
Daníel Már var í norður,
en Guðmundur í suður:
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 hjarta Pass 2 lauf
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass 3 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Kerfið er eðilegt og
svarið á tveimur laufum
krafa í geim. Eftir þrjá
hringi hafði Daníel Már
sýnt sexlit í hjarta og fjór-
lit í spaða. Guðmundur
ákvað þá að taka af skarið
og spyrja um ása með fjór-
um gröndum. Svarið á
fimm spöðum sýnir tvo ása
(lykilspil) og drottninguna
í hjarta (sem er sam-
þykktur litur). Auðvitað
var hugsanlegt frá bæj-
ardyrum Guðmundar að
makker ætti rauðu ásana
og ekkert í spaða, en úr
þessu varð ekki aftur snúið
og hann stökk í sex grönd.
Vestur kom hlutlaust út
með hjarta, sem Guð-
mundur tók heima og spil-
aði strax spaðadrottningu.
Þegar kóngurinn kom í
þann slag var slemman í
húsi með því einu að
sprengja út tígulásinn.
Það gaf sigurvegurunum
40 stig af 52 mögulegum
að segja og vinna sex
grönd.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarsson
Emma, eigum við bolla af
auðguðu úrani?
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
12. flokkur, 29. desember 2003
Einfaldur kr. 3.660.000.- Tromp kr. 18.300.000.-
844 B kr. 18.300.000,-
844 F kr. 3.660.000,-
5811 E kr. 3.660.000,-
5811 H kr. 3.660.000,-
57112 G kr. 3.660.000,-
YOGA •YOGA • YOGA
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Sértímar fyrir barnshafandi konur og fyrir byrjendur.
NÝTT! Astanga jóga
EIGENDASKIPTI
Eigendaskipti verða á
Prentsmiðjunni Viðey ehf.
frá og með 1. janúar 2004.
Fráfarandi eigandi Sigurður Bjarnason
hefur selt prentsmiðjuna og nýjir eigendur
eru Theodór Már Sigurjónsson
og Lárus Kristinn Jónsson.
Ég þakka ánægjuleg samskipti á liðnum árum með
óskum um gleðileg jól og hamingjuríkt ár.
Nýjum eigendum óska ég alls hins besta í framtíðinni.
Sigurður Bjarnason
Kæru viðskiptavinir,
Lögmannsstofan verður lokuð 2. og 5. janúar nk.
vegna flutninga.
Við opnum aftur 6. janúar í nýjum húsakynnum
á Laugavegi 182 undir nýju nafni: Nestor Lögmenn.
Lögmenn Skólavörðustíg 6b.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. Karl Axelsson hrl.
Reimar Pétursson hdl. Heimir Örn Herbertsson hdl.
Eiríkur Elís Þorláksson hdl.