Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 1
Bílar í dag STOFNAÐ 1913 62. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Formúla 1 hefst á ný  Ferr- ari að dala?  Metnaður hjá Toyota  Renault á uppleið? Ástin er í loftinu Mynd Ragnars Bragasonar um Rómeó og Júlíu í London Fólk í fréttum Spilað á þeffærin og lyktarskynið Réttur ilmur örvar sölu og lykt í nýjum bílum er úr brúsa | Daglegt líf ÞINGMENN úr öllum flokkum lögðu í gær fram tvö frumvörp á Alþingi um breytingar á lögum um verðbréfaviðskipti og hlutafélög. Er markmiðið að treysta hagsmuni smærri fjárfesta í fyrirtækjum. Lögð er m.a. til sú lagabreyting að hlutafélögum verði óheimilt að kaupa eignir af hluthöfum, stjórn- armönnum eða framkvæmdastjór- um félagsins eða móðurfélags þess eða aðilum sem eru þeim tengdir, nema fram hafi farið mat óháðra aðila á verðmæti eignanna. „Borið hefur á gagnrýni á að stærri hluthafar geti þvingað félög til þess að kaupa eignir af þeim á yfirverði, án þess að smærri hlut- hafar fái nokkuð við því gert. Er breytingunni stefnt gegn þessu ójafnvægi,“ segir í greinargerð. Leggja þingmennirnir einnig til að skylt verði skv. lögum að taka tillit til tengsla aðila við ákvörðun um það hvort myndast hefur skylda til að gera yfirtökutilboð. Hugtökin „skyldir aðilar“ eru skil- greind þannig að maki og börn verða talin skyld viðkomandi ein- staklingi og lagt er til að tveir lög- aðilar verði taldir skyldir í þessu sambandi ef eigendur 30% hluta- fjár hið minnsta eru hinir sömu eða ef annar á að minnsta kosti 30% hlutafjár í hinum. „Hægt hefur verið að nýta sér orðalag núgildandi reglna og koma sér hjá yfirtökutilboðsskyldu með því að skipta eignarhaldi niður á fleiri aðila,“ segir m.a. í greinar- gerð. Tryggja á betur skv. tillögunum að verð sem boðið er í yfirtökutil- boði sé sem næst raunvirði félags sem um ræðir. Þegar veltuhraði bréfa í félagi er takmarkaður verði það falið dómkvöddum matsmönn- um að ákvarða hvaða verð skuli boðið í yfirtökutilboði. Þá er kveðið á um að samþykki eins tíunda hluta hluthafa í stað fjórðungs hluthafa nægi til þess að fram fari sérstök rannsókn, t.d. „ef grunur vaknar um að stærri hlut- hafar hafi nýtt sér stöðu sína í fé- lagi til þess að áskilja sér fjárhags- lega hagsmuni á kostnað smærri hluthafa.“ Flutningsmenn eru Einar K. Guðfinnsson og Halldór Blöndal, Sjálfstæðisflokki, Jóhanna Sigurð- ardóttir, Samfylkingu, Hjálmar Árnason, Framsóknarflokki, Steingrímur J. Sigfússon, VG, og Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls- lynda flokknum. Þingmenn úr öllum flokkum sameinast um tvö lagafrumvörp á Alþingi Markmiðið að styrkja stöðu smærri hluthafa Íraskir embættismenn sögðu í gær- kvöldi að a.m.k. 112 hefðu farist í Karbala og 70 í Bagdad. Hundruð til viðbótar særðust. Talið er að árásirnar hafi verið þaulskipulagð- ar, þær áttu sér allar stað á sama tíma og beindust gegn sjítum á loka- degi helgustu trúarhátíðar þeirra. Bandaríkjamönnum kennt um Bandaríkjamenn greindu frá því í síðasta mánuði að þeir hefðu komist yfir bréf sem þeir sögðu Zarqawi hafa skrifað en þar var hvatt til árása gegn sjítum í Írak, með það í huga að valda borgarastríði í land- inu milli sjíta og súnníta. Til að reyna að koma í veg fyrir að tilræðin í gær yrðu til þess að öfga- mennirnir næðu þessu markmiði sínu komu forystumenn íraska framkvæmdaráðsins, sem skipað er bæði sjítum og súnnítum, auk Kúrda, fram opinberlega og hvöttu Íraka til að „sýna samstöðu“ og „hafa af óvinum okkar tækifærið til að leiða hörmungar yfir þjóðina“. Í yfirlýsingu sinni hvatti Sistani erki- klerkur fólk einnig til að sameinast gegn hinum illu öflum, sem valda vildu upplausn í Írak. Mikil reiði ríkti þó í röðum sjíta í garð Bandaríkjamanna og m.a. var grjóti kastað í bandaríska hermenn og sjúkraliða er þeir reyndu að veita særðum aðhlynningu og aðstoð eftir tilræðin í Bagdad í gær. Sistani sagði Bandaríkjamenn ekki hafa hirt nægilega vel um að verja landa- mæri Íraks fyrir því að inn í landið streymdu erlendir öfgamenn og hann gagnrýndi þá einnig fyrir að hafa ekki styrkt innlend varnarlið og löggæslusveitir nægilega mikið. Ódæðin í gær voru fordæmd af öllum helstu leiðtogum heims og varaði George W. Bush Bandaríkja- forseti landa sína við því að tilræðin sýndu að alþjóðlegir hryðjuverka- menn vildu enn skaða Bandaríkin. Þeir myndu þó ljúka því verki, sem þeir hefðu hafið í Írak. Þriggja daga þjóðar- sorg lýst yfir í Írak Næstum 200 biðu bana í árásum  Líklegt að Abu Mussab al-Zarqawi hafi skipulagt ódæðin  Íraska framkvæmdaráðið hvetur til samstöðu Bagdad. AP, AFP.  Mesta mannfall/28 Reuters Írakar bera á brott menn sem særðust í árásunum í Karbala, helgustu borg sjíta. Að minnsta kosti 182 biðu bana í ódæðisverkunum í gær. LÝST hefur verið yfir þriggja daga þjóðarsorg í Írak eftir ódæðisverk í borgunum Bagdad og Karbala í gær sem kostuðu a.m.k. 182 sjía-múslíma lífið. Dagurinn í gær er sá blóðugasti frá því að meiriháttar hernaðarátök- um lauk í Írak í fyrra. Bandaríkjamenn kenna Abu Mussab al-Zarqawi, sem sagður er hafa tengsl við al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin, um ódæðin en Ayatollah Ali al-Sistani, helsti trúarleiðtogi sjíta í Írak, gagnrýndi hins vegar bandarísk stjórnvöld og sagði þau ekki hafa hugað nægilega vel að því að vernda líf og limi Íraka gegn öfgamönnum. YFIRMENN bandarísku geimferðastofn- unarinnar (NASA) sögðu í gær að enginn vafi léki á því að vatn hafi einu sinni verið að finna á yfirborði Mars og að aðstæður hafi verið með þeim hætti að hugsanlegt sé að líf hefði getað þrifist þar. Ed Weiler, fulltrúi NASA, sagði á frétta- mannafundi að könnunarfarið Opportunity, sem lenti á Mars 24. janúar sl., hefði komið niður „á stað á Mars þar sem eitt sinn var svo mikið af fljótandi vatni að yfirborð plán- etunnar var rennandi blautt“. Bætti hann því við að „um drjúgan tíma“ hefði líf vel getað dafnað á þessum stað. Enn engin merki um líf Weiler sagði að rannsóknir Opportunity og annars könnunarfars, Spirit, sem lenti á Mars 3. janúar, mörkuðu „risastórt skref“ í þá átt að svara spurningunni um það hvort líf hefði einhvern tíma þrifist á Rauðu plán- etunni, sem svo er kölluð. Steve Squyres, yfirmaður vísindasviðs NASA, lagði hins vegar áherslu á að enn hefðu engin merki fundist um að líf hefði verið á Mars. Mikið er um grjót á þeim stað þar sem Opportunity lenti. Þykir ljóst að vatn lék eitt sinn um þetta grjót. „Þetta grjót mót- aðist í fljótandi vatni,“ sagði Squyres. Reuters NASA segir að á þessari mynd megi sjá merki um að vatn hafi þakið hluta Mars. Augljós merki um vatn á Mars NASA segir að líf hafi getað þrifist á Mars Washington. AFP. Uppreisnar- menn vilja ekki afvopnast Port-au-Prince, Washington. AFP. GUY Philippe, leiðtogi uppreisnarmanna á Haítí, vísaði í gær á bug kröfum Banda- ríkjamanna um að sveit- ir hans afvopnuðust. „Ég mun ekki leggja niður vopn, hvað sem líður þrýstingi erlendra ríkja,“ sagði hann. Áður hafði Paul Arc- elin, ráðgjafi Philippes sagt hópi fólks, sem saman var komið í Port- au-Prince til að fagna brotthvarfi Jean-Bertr- ands Aristides forseta, sem sagði af sér um helgina, að Yvon Neptune forsætisráðherra yrði handtekinn og sóttur til saka. Yfir- menn bandarísku landgönguliðanna, sem komnir eru til Haítí, taka þessi orð alvar- lega og sendu lið á skrifstofur Neptunes til að tryggja öryggi hans.  Aristide/15 Guy Philippe ♦♦♦ „FYRIR okkur vakir að styrkja stöðu minni hlut- hafa. Við sjáum að það eru mikil umsvif á hluta- bréfamark- aðinum og sam- einingar og til- færslur á hlutabréfum sem gera að verkum að við teljum ástæðu til þess að skýra betur stöðu hinna minni hluthafa í þessum miklu umbreyt- ingum,“ segir Einar K. Guðfinnsson, fyrsti flutningsmaður frumvarp- anna tveggja. „Það er sérstaklega ánægjulegt að svo breið pólitísk samstaða er um þetta mál eins og flutningsmenn- irnir eru vitni um,“ segir Einar. Breið samstaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.