Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR 48 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA England 1. deild: Bradford – Watford .......................... frestað Burnley – West Ham ................................1:1 Cardiff – Coventry ....................................0:1 Gillingham – Wigan..........................Frestað Norwich – WBA ........................................0:0 Preston – Reading.....................................2:1 Rotherham – Crystal Palace............ frestað Sheffield United – Millwall.......................2:1 Stoke – Ipswich .........................................2:0 Walsall – Sunderland........................ frestað Wimbledon – Nottingham F. ...................0:1 Staða efstu liða: Norwich 34 18 11 5 50:27 65 WBA 34 17 10 7 46:30 61 Wigan 34 15 13 6 46:32 58 Sheff. Utd 34 16 7 11 50:41 55 West Ham 33 13 14 6 47:32 53 Ipswich 34 15 8 11 62:54 53 Millwall 34 14 11 9 41:33 53 Reading 34 15 7 12 42:45 52 Cr. Palace 35 14 9 12 53:48 51 Coventry 34 12 13 9 44:36 49 2. deild: Barnsley – Peterborough .........................0:1 Brighton – Brentford................................1:0 Bristol City – Wycombe ...........................1:1 Colchester – Stockport .............................2:1 Hartlepool – Chesterfield.........................2:0 Luton – Bournemouth......................Frestað Notts County – Grimsby ..........................3:1 Oldham – Wrexham..........................Frestað Plymouth – Sheffield Wed........................2:0 QPR – Port Vale ........................................3:2 Rushden & Diamonds – Blackpool ..........0:0 Staða efstu liða: Plymouth 34 20 9 5 70:31 69 Bristol City 33 18 10 5 47:24 64 QPR 33 17 11 5 59:32 62 Swindon 32 15 9 8 52:39 54 Brighton 34 15 8 11 48:36 53 Luton 33 14 11 8 53:44 53 Port Vale 33 15 6 12 55:48 51 Hartlepool 33 13 11 9 52:41 50 Bournem. 34 13 11 10 41:36 50 Wrexham 34 14 7 13 37:38 49 Barnsley 34 12 12 10 41:42 48 Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar Dregið til fyrstu umferðanna í gær: Meistaraflokkur karla: Forkeppni: Boltafélag Norðfjarðar – Leiknir F. 1. umferð: Neisti H. – GKS, Magni – Snört- ur, Neisti D. – Sindri, Höttur – KE, Reynir Á. – KS, Drangur – Hvíti riddarinn, Tinda- stóll – Hvöt, Boltafélag Húsavíkur – Leift- ur/Dalvík, Freyr – Tunglið, ÍH – Afríka, Huginn – Boltafélag Norðfjarðar eða Leiknir F., Fjarðabyggð – Einherji, Hrunamenn – Hamar. 2. umferð: KFS – Freyr eða Tunglið, KE eða Höttur – Neisti D. eða Sindri, Völsung- ur – BH eða Leiftur/Dalvík, Tindastóll eða Hvöt – Neisti eða GKS, Huginn, BN eða Leiknir F. – Fjarðabyggð eða Einherji, Grótta – Árborg, Selfoss – Númi, Breiða- blik – Bolungarvík, Afturelding – Skalla- grímur, Fjölnir – Leiknir R., Víkingur Ó. – Víðir, HK – Deiglan, ÍH eða Afríka – ÍR, Reynir Á. eða KS – Magni eða Snörtur, Hrunamenn eða Hamar – Ægir, Reynir S. – Drangur eða Hvíti riddarinn. Meistaraflokkur kvenna: 1. umferð: UMF Bessastaðahrepps – HK/ Víkingur, Keflavík – ÍA, ÍR – Fjölnir, Haukar – FH, Fylkir – Þróttur R., Tinda- stóll – Hvöt. 2. umferð: Tindastóll eða Hvöt – Þór/KA/ KS, Fylkir eða Þróttur R. – UMFB eða HK/Víkingur, Keflavík eða ÍA – Stjarnan, ÍR eða Fjölnir – Haukar eða FH. HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Magdeburg – Flensburg.......................32:26 Staða efstu liða: Flensburg 23 18 2 3 739:603 38 Magdeburg 22 18 1 3 682:579 37 Lemgo 22 17 2 3 730:612 36 Kiel 22 16 2 4 696:586 34 Hamburg 23 17 0 6 646:578 34 BORÐTENNIS Ísland sigraði Möltu, 3:2, í karlaflokki á heimsmeistaramótinu í borðtennis í Katar í gær. Guðmundur E. Stephensen vann tvo leiki og Markús H. Árnason einn. Markús tapaði einum og Matthías Stephensen tap- aði sínum leik. Konunum gekk ekki eins vel en þær töpuðu fyrir Túnis, 3:0. ÚRSLIT MAGDEBURG lagði Flensburg að velli, 32:26, í toppslag þýsku Bundesligunnar í handknattleik í Bördelandhalle- íþróttahöllinni Magdeburg í gærkvöld. Í hálfleik höfðu læri- sveinar Alfreðs Gíslasonar yfir, 17:13, en þegar danska stór- skyttan Lars Krogh Jeppesen í liði Flensburg fékk að líta rauða spjaldið í upphafi síðari hálfleiks stöppuðu gestirnir í stálinu. Þeim tókst að komast yfir, 23:22. En þá sögu liðsmenn Magdeburgar hingað og ekki lengra og lokakaflinn var í eigu þeirra. Johannes Bitter, risinn í marki Magdeburg, átti stórleik á milli stanganna. Hann varði vel á þriðja tug skota, þar af fjög- ur vítaköst, og var maðurinn á bakvið sigur sinna manna. Joel Abati var markahæstur með 10 mörk, þar af 6 úr vítum, Stef- an Kretszchmar skoraði 7 og Pólverjinn Gregorz Tkazcyk 6. Sigfús Sigurðsson stóð fyrir sínu en var greinilega þjakaður af meiðslum í hné og kálfa og var fótur hans vafinn umbúðum. Sigfús skoraði 2 mörk, fiskaði tvö vítaköst og var eins og klettur í vörn liðsins. Hjá Flensburg voru dönsku landsliðs- mennirnir Lars Christiansen og Lars Krogh Jeppesen marka- hæstir, Christiansen með 6 mörk og Jeppesen 5. Flensburg hefur 38 stig í efsta sæti, Magdeburg 37 og Lemgo 36 en Flensburg hefur leikið einum leik fleira. Magdeburg skellti toppliði Flensburg Morgunblaðið/Sverrir Sigfús Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg í gærkvöld. ÍSLENSKA landsliðið í handknatt- leik leikur tvo leiki við Frakka í lok þessa mánaðar, 29. og 31. mars, og fara báðirnir leikirnir fram ytra. „Það var mjög ánægjulegt að fá þetta boð frá Frökkum og þetta hentar okkur vel. Frakkar eru með mjög gott lið og leikirnir gegn þeim verða góður undirbúningur fyrir leikina við Ítali í maí. Ítalir spila mjög svipaða vörn og Frakkar spila, það er framliggjandi vörn, og því gott að geta æft sig gegn svona vörn,“ sagði Guðmundur við Morg- unblaðið. Guðmundur sagðist reikna með að geta teflt fram sínu sterkasta liði að því undanskildu að Ólafur Stef- ánsson er upptekinn með Ciudad Real á Spáni, en síðustu vikuna í mars spila átta efstu liðin um spænska bikarinn. Tveir leikir við Frakka Menn eru frekar rólegir í tíðinnihérna um þessar mundir en vonandi verður hægt að loka þessu máli á næstu dögum,“ sagði Gylfi í samtali við Morgunblaðið í gær en flest bendir til þess að hann taki samningi félagsins og leiki með því næstu tvö árin. Gylfi hefur verið í her- búðum þess síðustu tvö ár. Wilhelmshavener átti í tímabundn- um fjárhagserfiðleikum í byrjun þessa árs og fyrir nokkrum vikum hótuðu nokkrir leikmenn liðsins að taka ekki þátt leik sem framundan var sökum þess að þeir höfðu ekki fengið greidd laun. Úr því máli greiddist í tíma og ekkert varð úr verkfalli. Í síðustu viku gengu forráðamenn Wilhelmshavener frá stórum styrkt- arsamningi til tveggja ára við Nord- frost og þar með var skotið styrkum rótum undir reksturinn. Um leið var hægt að ganga frá samningum við leikmenn er Gylfi einn þeirra sem væntir þess að geta lokið sínum mál- um á næstu dögum. Wilhelmshavener er í 15. sæti af 18 liðum í deildinni og ljóst að framund- an er hörð barátta við að komast hjá falli. „Það var dýrt að ná aðeins jafn- tefli heima við Eisenach um síðustu helgi, við þurftum á sigri að halda til að lyfta okkur aðeins frá neðstu lið- unum, Einsenach, Göppingen og Kronau/Östringen. Við verðum að vinna Wetzlar um næstu helgi,“ sagði Gylfi Gylfason, landsliðsmaður í handknattleik hjá Wilhelmshavener. Samningur í burðarliðnum GYLFI Gylfason, handknatt- leiksmaður hjá Wilhelms- havener í þýsku 1. deildinni, hefur enn ekki gengið frá nýjum samningi við félagið, en hann hefur haft tilboð um nýjan tveggja ára samning í hönd- unum frá því að Evrópumeist- aramótinu í handknattleik lauk í Slóveníu fyrir einum mánuði. Gylfi Gylfason í landsleik gegn Pólverjum. Gylfi Gylfason áfram hjá Wilhelmshavener  DÓMSTÓLL KKÍ felldi í gær dóm í tveimur málum vegna kæra sem bárust dómstólnum vegna ólöglegra leikmanna. Annars vegar var það Þróttur Vogum sem kærði leik gegn Ármanni/Þrótti b í 2. deild karla og hins vegar Haukar sem kærðu leik sinn gegn Þór Ak. í 7. flokki karla. Í báðum tilvikum var dæmt kærendum í vil, Ár- mann/Þróttur tapar leik sínum gegn Þrótti V., 20:0, og er gert að greiða 30.000 kr. sekt. Þór Ak., tapar einnig leik sínum gegn Haukum í 7. flokki drengja, 20:0.  CATAWBA, háskólaliðið sem ís- lenski landsliðsmaðurinn Helgi Magnússon leikur með tapaði á úti- velli gegn Carson-Newman um síð- ustu helgi. Þar lék Helgi í 23 mín- útur, skoraði 4 stig og tók 5 fráköst.  ÓLAFUR Ingi Skúlason átti góð- an leik í vörn varaliðs Arsenal sem sigraði Leicester í fyrrakvöld, 3:0.  ANDREAS Möller, fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja í knatt- spyrnu, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna í hilluna í kjölfar þess að Eintracht Frankfurt ákvað í gær að segja upp samningi hans við félagið. Möller, sem er 36 ára gamall og var áður liðsmaður Dort- mund og Juventus, hefur aðeins spilað 11 leiki með liðinu á yf- irstandandi leiktíð.  KJETIL Rekdal, þjálfari og leik- maður norska liðsins Vålerenga sem leikur síðari leik sinn í UEFA- keppninni gegn enska liðinu New- castle á morgun, segir að úrvals- deildarliðið sé ofmetið og telur að norska liðið eigi eftir að vera á allra vörum í leikslok. Fyrri leikn- um lauk með 1:1 jafntefli í Ósló og segir Rekdal að norskir knatt- spyrnuáhugamenn ofmeti getu enska liðsins. Um 3.000 norskir stuðningsmenn verða í Newcastle á síðari leiknum.  MIROSLAV Klose, framherji Kaislerslautern og þýska landsliðs- ins í knattspyrnu, gengur í raðir Werder Bremen í sumar. Félögin hafa náð samkomulagi um félaga- skiptin og gerir Klose þriggja ára samning við Bremen sem er met- inn á um 370 milljónir króna.  FIBA, Alþjóðakörfuknattleiks- sambandið, birtir styrkleikalista með reglulegu millibili og þar vek- ur athygli að bandaríska karla- landsliðið er í öðru sæti á eftir Júgóslavíu, (Serbíu/Svartfjalla- landi). Litháen er í þriðja sæti, Argentína í því fjórða. Í næstu sætum þar á eftir eru Spánn, Rúss- land, Ástralía, Púertó-Ríkó, Ítalía og Brasilía. FÓLK Ronaldo samdi við Real Madrid til 2008 REAL Madrid gekk í gær frá nýjum samningi við brasilísku knatt- spyrnustjörnuna Ronaldo, sem þar með er samningsbundinn félag- inu til sumarsins 2008. Fyrri samningur Ronaldos átti að renna út tveimur árum fyrr, árið 2006. „Ég er hæstánægður með þetta því mér líður mjög vel hjá félag- inu og eins í borginni. Forráðamenn félagsins stungu upp á því að við myndum gera nýjan samning og ég samþykkti það á stundinni með mikilli ánægju,“ sagði Ronaldo á vef Real Madrid eftir undir- skriftina í gær. Ronaldo er markahæsti leikmaður spænsku 1. deildarinnar, hef- ur skorað 21 mark fyrir Real Madrid á þeim vígstöðvum í vetur. ÍSLANDSMEISTARAR KR og bikarmeistarar ÍA mætast í Meistarakeppni KSÍ í karla- flokki á föstudaginn kemur í Egilshöll kl. 19. Á sunnudag mætast síðan Íslandsmeistarar KR og bik- armeistarar Vals í Meist- arakeppni KSÍ í kvennaflokki kl. 19. Meistarakeppnin var endurvakin á síðasta ári eftir fimm ára hlé en hún hafði þá verið haldin samfleytt frá árinu 1969. Frá árinu 1980 hefur verið keppt um Sigurð- arbikarinn sem KR-ingar gáfu þá til minningar um Sigurð Halldórsson, einn forystu- manna sinna um árabil. KR og ÍA mætast í Egilshöll HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, RE/MAX-deild: Ásvellir: Haukar - ÍBV .........................19.15 1. deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV - FH..................19.15 Víkin: Víkingur - Selfoss.......................19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Njarðvík: UMFN - KR .........................19.15 KNATTSPYRNA Norðurlandsmót karla: Boginn: Leiftur/Dalvík - KA ................20.15 Í KVÖLD Í FRÉTT Nettavisen í Noregi í gær var sagt frá því að Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður KR, myndi halda til La Manga á Spáni í dag og leika með Sta- bæk á æfingamóti sem þar fer fram. Jafnframt var sagt að samningar hefðu tekist á milli þeirra aðila sem hefðu með mál Veigars að gera, en þar koma að eignarhaldsfélög á Íslandi og Noregi. Veigar Páll sagði í gærkvöldi að hann væri ekki á leið til Spánar og hann vissi í raun ekkert um málið. „Ég get lítið sagt um þetta mál og tel að staðan sé sú sama og fyrir helgi. Um- boðsmenn mínir eru með þetta mál á sinni könnu og ég bíð eftir að þeir taki næstu skref í þessu máli,“ sagði Veigar Páll í gær. Veigar Páll enn á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.