Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 37 ✝ Elínborg Krist-ófersdóttir fæddist á Þvottá í Álftafirði 10. nóvem- ber 1916. Hún lést á elliheimilinu Grund 22. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Krist- ófer Eiríksson, f. 1. mars 1874, d. 1. október 1957, frá Hólmi í Einholts- sókn á Mýrum, A- Skaft. og Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 1. maí 1887, d. 29. september 1971, frá Þvottá, Geit- hellnahr., S-Múl. Systkini Elín- borgar eru: 1) Sigurður, f. 1912, 17. nóvember 1963, Böðvar Örn, f. 23. október 1970, og Dóra Birna, f. 20. janúar 1969. Sambýliskona Kristins er Sigríður Herdís Leós- dóttir, f. 7. júní 1950. 2) Marta María, f. 26. ágúst 1951, d. 17. ágúst 1998, gift Tryggva Tryggvasyni, f. 21. maí 1949. Börn þeirra eru: Tryggvi Gunnar, f. 16. september 1972, Helga, f. 29. nóvember 1974, og Hildur Tryggvadóttir, f. 7. maí 1984. 3) Helgi Rafn, f. 26. október 1948, d. 7. september 1973. Elínborg bjó á Djúpavogi til tvítugs og fluttist þá til Reykjavíkur. Skömmu síðar kynnist hún eiginmanni sínum og hóf með honum búskap. Árið 1980 fluttist Elínborg að Suðurhólum 1 í Reykjavík og bjó þar fram í jan- úar 2004. Lengst af vann Elínborg hjá Mjólkursamsölunni í Reykja- vík eða í um 14 ár. Útför Elínborgar fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 15. d. 1989, 2) Kristín Guðlaug, f. 1913, d. 1999, 3) Ragnar Héð- inn, f. 1915, d. 2000, 4) Guðný, f. 1917, 5) Kristbjörg, f. 1920, d. 2003, og 6) Hulda, f. 1925. Árið 1941 giftist El- ínborg Magnúsi Snæ- björnssyni, 1918, d. 1992, þau slitu sam- vistum árið 1959. Magnús og Elínborg eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Kristinn, f. 18. jan. 1942, fyrr- verandi eiginkona hans er Guðrún Auður Böðvarsdóttir, f. 11. júlí 1946. Börn þeirra eru: Magnús, f. Jæja, amma mín, þá ertu farin. Dauðinn gerir ekki boð á undan sér og þar var engin undantekning á í þetta skipti. En þú fórst í svefni, elsku amma mín, og ég er viss um að það hefur verið vel tekið á móti þér hinum megin. Ég veit að þú ert komin á góð- an stað núna, til Guðs og sennilega komin í faðm hennar mömmu og Helga sonar þíns. Þú varst alltaf svo trúuð og talaðir svo oft um Guð og Jesú við okkur barnabörnin og ég bý að því enn þann dag í dag, elsku amma mín. Ég á margar ljúfar minningar frá samverustundum okkar, bæði frá Suðurhólunum og Garðabænum og eins frá því að við vorum stundum á þvælingi að versla og útrétta og end- uðum svo á því að fá okkur kaffi heima hjá þér. Ég á þér svo margt að þakka, þú kenndir mér svo margt og hvattir mig svo mikið til að mennta mig meira og það á ég þér einnig að þakka. Þér var ýmislegt til lista lagt, þú málaðir afskaplega fallegar myndir. Svo man ég að þú settist á skólabekk á ný á gamals aldri og fórst að læra ensku. Ég man hvað þú varst ánægð þegar þú þuldir upp enskar setningar fyrir mig upp úr skólabókunum. Ég er einnig þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman núna undir það síðasta. Leikritið sem okk- ur var boðið að koma sjá um daginn og söguna sem þú sagðir mér frá mömmu þegar hún var ung og fór til Englands að vinna og það ævintýri sem því fylgdi. Það var svo skemmti- legt að alltaf þegar þú talaðir um mömmu, að þá ljómaðir þú, amma mín. Þess vegna finnst mér gott að hugsa til þess að nú séuð þið mæðg- urnar sameinaðar á ný. Þú varst alltaf svo sæt og ljúf við mig amma mín og þannig mun ég alltaf minnast þín. Helga. ELÍNBORG KRIST- ÓFERSDÓTTIR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ✝ Þorsteinn Hjálm-arsson Diego fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1932. Hann lést á hjúkrunarheimilinu í Víðinesi 25. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Hjálmar Jónsson Diego, f. á Þingeyri 26. febrúar 1891, d. 15. septem- ber 1970, og Halldóra Friðgerður Sigurðar- dóttir, f. í Grunnavík- urhreppi 16. maí 1893, d. 27. janúar 1951. Systkini Þorsteins eru Frið- rik, f. 1913, d. 1985, Þorkell, f. 1916, d. 1968, Sigríður, f. 1920, Arnór, f. 1922, d. 1983, Sigurður, f. 1923, d. 1923, Uni, f. 1926, d. 2004, Jón, f. 1927, d. 1975, og Guðrún, f. 1931, auk uppeldissystkinanna Valgerðar Jakobsdóttur, f. 1929, og Eggerts Sigurðssonar, f. 1944. Þorsteinn kvæntist 12. febrúar 1955 Sigurrósu Margréti Sigur- jónsdóttur, f. 1. október 1934. Þau skildu. Hinn 1. desember 1973 kvæntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni Æsku Björk Birkiland, f. 21. febrúar 1941, dóttur Jóhannesar Birkilands, f. 10. ágúst 1886, d. 9. júlí 1961, og Ragnhildar Sumarlínu Magnús- dóttur, f. 22. október 1902, d. 4. júlí 1967. Sonur þeirra er Þor- steinn, f. 28. mars 1967, kvæntur Þór- dísi Björk Sigur- gestsdóttur, f. 27. janúar 1963. Sonur hennar er Sigurgestur Jóhann Rúnarsson, f. 25. júlí 1983. Þorsteinn ólst upp og bjó framan af á Steinhólum við Kleppsveg en búskapur þeirra Æsku Bjarkar var lengst af á Hjaltabakka 14 en síð- ustu árin í Hátúni 10b. Hann vann m.a. í Fiskimjölsverksmiðjunni Kletti, hjá Vélamiðstöð Reykjavík- urborgar, við akstur á greiðabíl og á Múlalundi. Útför Þorsteins fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Fimmtudagsmorgunninn hinn 26. febrúar heilsaði með yndislegu veðri og heiðríkum himni, sennilega falleg- asti dagur vetrarins. Snemma þenn- an sama morgun fengum við systk- inin hringingu um að móðurbróðir okkar hafði látist kvöldinu áður. Þessi dagur, sem byrjaði svo yndislega, breyttist á svipstundu í drunga og sorg. Þorsteinn, eða Steini, eins og hann var ávallt kallaður, var síungur í anda og hrókur alls fagnaðar. Hvernig mátti þetta vera? En eins og máltæk- ið segir: „Enginn veit sína ævi fyrr en öll er.“ Steini bjó fyrstu búskaparár sín á ættaróðalinu Steinhólum v/Klepps- veg sem afi okkar byggði. Þar var ávallt margt um manninn, margir í heimili og engum úthýst. Við eigum þaðan yndislegar minningar sem börn og Steini var fastur punktur í til- veru okkar. Þegar við eltumst og fór- um sjálf að stofna heimili leið ekki sú vika að við hittumst ekki heima hjá móður okkar á Steinhólum. Steini, þessi eilífðarunglingur, sem aldrei virtist eldast, var hress og ræðinn og skaut oft inn í samræðurnar gaman- sögum, sem bæði voru sannar og skáldaðar. Hann gat á sinn einstaka hátt fengið alla til þess að hlusta á sig, þótt þessar sögur væri nú ekki neitt ýkja merkilegar, en allir gátu þó hlegið sig máttlausa, þegar hann lauk máli sínu. Við systkinin gátum alltaf leitað til Steina, þegar okkur vanhagaði um eitthvað, þar á meðal verkfæri, en hann átti flest þau verkfæri sem til eru í stórri byggingarvöruverslun. Handlaginn var hann með afbrigðum og smíðaði marga hluti, bæði stóra og smáa. Steini gat verið tímunum sam- an við að skapa einhvern hlut, hvort sem hann var gagnlegur eða bara það sem honum datt í hug í það sinnið. Þessar stundir voru honum dýrmæt- ar þar sem hann var einn með sjálfum sér, og bæði hugurinn og sköpunar- gleðin fóru á flug. Steini gekk ekki alltaf heill til skóg- ar. Á hernámsárunum, þegar Steini var barn að aldri, keyrði herbíll yfir fætur hans. Hann náði sér aldrei af þessum meiðslum en lét það þó ekki aftra sér og fór allra sinna ferða. Síð- ustu árin í lífi Steina voru honum erf- ið en alltaf var stutt í brosið og gam- ansemina. Við systkinin sendum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minn- ingu Þorsteins Hjálmarssonar Diego. Sigrún, Eggert, Soffía og Halldór. Kæri Steini frændi. Mig langar til þess að minnast þín í fáum orðum. Þó svo ég hafi ekki hald- ið sambandi við þig á seinni árum þá hitti ég þig oft þegar ég var smá- stelpa. Þú varst tíður gestur á Stein- hólunum hjá ömmu og þú komst líka oft í heimsókn til okkar á Víghólastíg- inn. Mér fannst alltaf gaman að hitta þig, þú varst alltaf svo góður við okk- ur krakkana, gafst þér tíma til þess að gantast og spjalla. Áhugasamur, afslappaður og léttur í lund. Þá var oft glatt á hjalla. Þú lagðir fyrir okkur þrautir, settir andlitið í hnút og þú gast talað dularfullt tungumál sem enginn skildi nema sárafáir fullorðn- ir. Ég eyddi löngum stundum í það að reyna að fá botn í p-málið sem þú tal- aðir við ömmu og mömmu þegar við krakkarnir máttum ekki vita um hvað verið var að ræða. Þegar ég óx úr grasi fækkaði þeim stundum þegar við hittumst. Þú komst samt nokkr- um sinnum í heimsókn til mín út á Álftanes, alltaf jafn afslappaður og léttur í lund. Guð geymi þig. Helga Dóra. ÞORSTEINN HJÁLMARSSON DIEGO  Fleiri minningargreinar um Þorstein Hjálmarsson Diego bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS HJÁLMARSSONAR DIEGO, Hátúni 10B, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, miðviku- daginn 3. mars, kl. 13.30. Æska Björk Birkiland, Þorsteinn Þorsteinsson, Þórdís Björk Sigurgestsdóttir, Sigurgestur Jóhann Rúnarsson. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu. BIRNU EGGERTSDÓTTUR NORÐDAHL frá Hólmi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á dvalarheimilinu Barmahlíð. Guð blessi ykkur öll. Eggert N. Bjarnason, Berta G. Rafnsdóttir, Inga Vala Ólafsdóttir, Hörður Garðarsson, Þórarinn Ólafsson, Ann Andreasen, Indíana S. Ólafsdóttir, Erlingur Jónsson, Anna M. Ólafsdóttir, Guðni Sigurðsson, Vaka H. Ólafsdóttir, Björgvin Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar og mágkona, KRISTRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 28. febrúar, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 5. mars nk. kl. 14.00. Sesselja Þórðardóttir, Sigrún Þórðardóttir, Jón Ásmundsson og aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HLYNUR JÚLÍUSSON, Þórðarsveig 5, Reykjavík, andaðist á heimili sínu mánudaginn 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Helga Hlynsdóttir, Júlíus Hlynsson, Hulda Gunnarsdóttir, Sævar Arnarson, Ingibjörg Gestsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegws föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, HERMANNS GUÐJÓNSSONAR, Fornhaga 22, Reykjavík. Gústaf H. Hermannsson, Guðríður Hermannsdóttir, Þráinn Ingólfsson Baldur Freyr Gústafsson, Laufey Helga Gústafsdóttir, Gústaf Halldór Gústafsson, Hermann Þór Þráinsson, Ingólfur Þráinsson, Ingveldur Guðjónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.