Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ DEILA hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem starfa hjá Miðstöð heimahjúkrunar í Reykjavík við stjórnendur Heilsugæslunnar í Reykjavík snýst, eins og margoft hefur komið fram, um greiðslur til starfsmanna fyrir akstur. Frá árinu 1990 hafa starfsmenn fengið greidd- ar 450 krónur fyrir hverja vitjun sem þeir fara í, en samningi um þær greiðslur var sagt upp af forsvars- mönnum heilsugæslunnar í nóvem- ber síðastliðnum. Forsvarsmenn heilsugæslunnar líta ekki á málið sem kjaradeilu og telja að með uppsagnarbréfum, sem 40 starfsmenn lögðu fram í kjölfar uppsagnar heilsugæslunnar á akst- urssamningum, hafi starfsmennirnir löglega sagt störfum sínum lausum. Uppsagnirnar tóku gildi hinn 1. mars síðastliðinn, en þrír drógu upp- sagnir til baka fyrir þann tíma og hefur því fækkað um 37 í starfsliði heimahjúkrunar. Enginn sótt um störf þeirra sem hættu Ekki hefur verið ráðið í stöður þeirra sem hættu og engar umsóknir um störfin hafa borist. Ágreiningur milli Heilsugæslunn- ar annars vegar og hjúkrunarfræð- inga og sjúkraliða sem starfa, eða störfuðu, við heimahjúkrun í Reykjavík snýst m.a. um hvers kyns aksturssamningarnir eru. Þ.e. hvort líta beri á samningana sem hluta af tekjum starfsmanns, og þar með hluta af kjarasamningi, eða hvort aksturssamningarnir eru sérsamn- ingar sem hægt sé að segja upp án þess að það hafi áhrif á kjarasamn- inga. Þær greiðslur sem starfsmenn fá fyrir akstur í vinnu eru skattfrjáls hlunnindi, og þau rök telja forsvars- menn heilsugæslunnar sýna fram á að ekki sé verið að segja upp kjara- samningi með því að gera breytingar á akstursfyrirkomulagi. Talsmenn fyrrverandi starfs- manna segjast hins vegar líta svo á að þeim hafi verið sagt upp, þrátt fyrir að allir 37 hafi lagt fram upp- sagnarbréf til Heilsugæslunnar. Sextán starfsmenn með yfir milljón á ári fyrir akstur Akstursgreiðslur til einstakra starfsmanna eru afar mismunandi. Þeir starfsmenn sem mest frá greitt fyrir akstur fá yfir eina milljón króna á ári og allt upp í eina og hálfa millj- ón. Mánaðarlegar greiðslur til þeirra sem keyra mest nema þannig á bilinu 80–125 þúsund krónum á mán- uði, miðað við tölur frá árinu 2003 sem fengnar eru frá Heilsugæslunni í Reykjavík. Alls höfðu sextán starfs- menn yfir eina milljón króna í akst- ursgreiðslur allt árið í fyrra, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Ekki er tekið tillit til starfshlut- falls í tölunum en starfsmenn eru að meðaltali í 70–80% starfshlutfalli. Þá er það ekki algilt að starfsmenn sem séu í hærra starfshlutfalli séu með hærri akstursgreiðslur. Þeir starfs- menn sem t.d. vinna mikið á kvöld- vöktum, sem eru styttri en dagvakt- ir, fara í margar vitjanir á stuttum tíma þar sem kvöldvitjanir krefjast ekki eins langrar viðveru og þær sem er farið í á morgnana. Vilja óbreytt kjör Nýtt fyrirkomulag aksturs- greiðslna var tekið í notkun hinn 1. maí 2003 og hafa 8–10 starfsmenn verið ráðnir í heimahjúkrun frá þeim tíma samkvæmt því. Fyrirkomulagið felur í sér að starfsmaður hefur um tvennt að velja: annar kosturinn er að vinna sína vinnu á rekstrarleigu- bíl sem heilsugæslan leggur til og hinn kosturinn er að nýta eigin bíl, fá greiddan kílómetrafjölda skv. akst- ursdagbók, þ.e. miðað við raunakst- ur en ekki ákveðinn fjölda kílómetra, og 1.200 kílómetra árlega að auki. Forsvarsmenn heilsugæslunnar telja núverandi fyrirkomulag akst- ursgreiðslna vera úrelt og segja það barn síns tíma. Starfsmenn skuli fá greitt fyrir akstur í samræmi við þann kostnað sem aksturinn út- heimtir, líkt og aðrir starfsmenn rík- isins fái. Þegar aksturssamningum var sagt upp í nóvember voru starfs- mönnum boðnir þessir skilmálar einnig en að þeim hafa starfsmenn ekki viljað ganga. Talsmenn fyrrverandi starfs- manna hafa sagt að þeir vilji einung- is halda þeim kjörum sem verið hafa í boði síðastliðin fjórtán ár. Þær séu ekki að fara fram á bætt kjör heldur það að kjörin verði ekki skert. Upphafið að þeim aksturssamn- ingum sem nú gilda og miða við 450 krónur, eða 8 kílómetra, má rekja til þess að heimahjúkrun var færð yfir til ríkisins frá Reykjavíkurborg. Þá, árið 1990, kom upp óánægja meðal starfsmanna þar sem launataxti rík- isins var lægri en sá sem hafði gilt hjá borginni. Þá var ákveðið að hækka greiðslur fyrir akstur um sem nemur einum kílómetra fyrir hverja vitjun, úr sjö í átta, í stað þess að gera breytingar á launataxta. Samningurinn var þannig gerður til að koma í veg fyrir að starfsfólk í heimhjúkrun væri látið gjalda flutn- ingsins frá sveitarfélögunum. Breytingu frestað rétt fyrir kosningar Síðastliðið vor stóð til að samning- um þáverandi starfsfólks um akst- ursgreiðslur yrði breytt. Það gekk hins vegar ekki eftir og nýtt fyrir- komulag einungis látið ná til nýrra starfsmanna. Fulltrúar stéttarfélaga starfs- manna og talsmenn starfsmanna segjast ekki hafa vitað að til stæði að keyra breytingarnar í gegn, þar sem hætt hefði verið við þær í fyrravor, stuttu fyrir kosningar. Hefðu starfs- menn því talið að í framhaldi af því væru breytingarnar fallnar út af borðinu. Forsvarsmenn heilsugæsl- unnar segja hins vegar að starfs- mönnum hefði átt að vera ljóst að breytingar stæðu fyrir dyrum, þeim hefði aðeins verið frestað. Til að bæta starfsmönnum þá tekjuskerðingu sem þeir verða fyrir vegna breytinga á aksturssamning- um hefur heilsugæslan boðið starfs- mönnum tveggja launaflokka hækk- un. Þessu hafa starfsmenn ekki viljað ganga að og vilja óbreytta aksturssamninga. Stéttarfélög starfsmanna, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands, hafa reynt að ná sáttum og lagt fram tillögur um svokallað sólarlagsákvæði. Í því felst að þeir starfsmenn sem nú búa við aksturssamningana sem gerðir voru 1990 fái að halda þeim í nokkur ár til viðbótar en að þeirra samning- ar verði smám saman felldir að nýju fyrirkomulagi. Enginn fundur hefur verið boðað- ur milli talsmanna fyrrverandi starfsmanna og stéttarfélaga þeirra og heilsugæslunnar. Ekkert nýtt hefur komið fram undanfarna daga sem líklegt er til að leysa málið. Tals- verð röskun hefur orðið á þjónustu við skjólstæðinga heimahjúkrunar, mest hjá þeim sem njóta þjónust- unnar vikulega eða sjaldnar. Starfsmenn við heimahjúkrun í Reykjavík eru nú 47 talsins en voru 83 í 68 stöðugildum áður en uppsagn- ir tóku gildi. Engin lausn er í sjónmáli í deilunni um akstursgreiðslur vegna heimahjúkrunar í Reykjavík Heimahjúkr- un í járnum Morgunblaðið/Ásdís Markmiðið með heimahjúkrun er að gefa öldruðum og fötluðum færi á að dveljast á eigin heimili. /     0  1 2 1!   ,           /03/ 45    6  /      * (.  *,(-    .)  )& 7$$1    8  9            6 0      1       -- :!  Starfsmenn heimahjúkrunar í Reykjavík vilja óbreytt fyrirkomulag aksturs- greiðslna. Heilsugæslan knýr á um breyt- ingar á fjórtán ára gömlu kerfi. Ekki hefur verið ráðið í stöður þeirra sem hættu og engar umsóknir um störfin hafa borist. Í KJÖLFAR fundar fyrrverandi starfsmanna heimahjúkrunar 29. febrúar sl. var fyrirtækinu Alhjúkr- un ehf., sem hugðist útvega starfs- fólk til heimahjúkrunar í stað þeirra sem hættu, sent bréf hinn 1. mars þar sem fram kemur áskorun til fyr- irtækisins um að ganga ekki í þau störf sem eru laus. Undir bréfið rita 14 starfsmenn af þeim 37 sem hætt hafa störfum við heimahjúkrun í Reykjavík. Í niðurlagi bréfsins segir: „Sé það hins vegar rétt að fyrirtæki yðar hafi eða hyggist ganga til samninga við Heilsugæsluna um að ganga inn í störf starfsmanna heimahjúkrunar, sem eiga í kjaradeilu við vinnuveit- anda sinn, var á fundinum ákveðið að beina þeim eindregnu tilmælum til yðar að hverfa hið fyrsta frá slíkri fyrirætlan. Reynist það svo að starfsmenn á vegum fyrirtækis yðar gangi í störf starfsmanna heima- hjúkrunar munu starfsmenn grípa til allra löglegra ráða til að hindra síkt, m.a. með því að kæra slíkt at- hæfi til siðanefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.“ Forstjóri heilsugæslunnar segir „hótanir“ að engu hafandi Í bréfi sem undirritað er af Guð- mundi Einarssyni, forstjóra Heilsu- gæslunnar í Reykjavík, koma fram athugasemndir við bréf fyrrverandi starfsmanna til Alhjúkrunar. Bréfið, sem ritað er í gær, 2. mars, var sent þeim fyrrverandi starfsmönnum sem undirrituðu fyrrnefnt bréf til Al- hjúkrunar, núverandi starfsmönnum við heimahjúkrun, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra svo og land- lækni. Fyrst er það tekið fram að ekki standi yfir deila milli fyrrverandi starfsmanna og heilsugæslu þar sem ráðningarsamningar hlutaðeigandi starfsmanna við heilsugæsluna séu fallnir úr gildi og þar með einnig gagnkvæmar skyldur sömu aðila. Ennfremur segir að enginn ágreiningur sé um það á milli Heilsu- gæslunnar í Reykjavík annars vegar og Sjúkraliðafélags Íslands og Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga hins vegar að ekki sé um kjaradeilu að ræða í skilningi laga og kjara- samninga. „Samkvæmt því er starfs- mönnum, bæði núverandi starfs- mönnum og fyrrverandi starfs- mönnum, með öllu óheimilt að hafa afskipti af starfsemi heimahjúkrun- ar á þann hátt sem um ræðir í áð- urnefndu bréfi til Alhjúkrunar ehf.,“ segir í bréfi forstjórans. Þá kemur fram að Heilsugæslan telji umfjöllun í bréfinu til Alhjúkr- unar vera villandi og alvarlega, fyrr- verandi starfsmenn heimahjúkrunar hafi í reynd ekki yfir neinum lögleg- um úrræðum að ráða til að hindra að aðrir starfsmenn hefji störf hjá heilsugæslunni við heimahjúkrun. Í niðurlagi bréfsins segir: „Að lok- um skal áréttað að hótanir, sem fram koma í bréfi fyrrverandi starfs- manna heimahjúkrunar, þess efnis, að starfsmenn sem gangi í störf þeirra verði kærðir til siðanefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, eru alvarlegar, marklausar, löglausar og að engu hafandi. Allur málatilbúnaður ber þess glöggt merki að hlutaðeigandi fyrrverandi starfsmenn heimahjúkrunar hafi ekki í hyggju að virða gildandi lög í þessu landi.“ Sögðust myndu kæra athæfið til siðanefndar Morgunblaðið/Golli Heimahjúkruninni er stýrt frá Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Fyrrverandi starfsmenn í heimahjúkrun skora á Alhjúkrun að ganga ekki í störfin hjá heilsugæslunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.