Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 18
Hafnarfjörður | Reglum um greiðslu gatna- gerðargjalda verður hugsanlega breytt til samræmingar við reglur í nágrannasveit- arfélaginu á næsta fundi bæjarstjórnar Hafn- arfjarðar. Skipulags- og byggingarráð leggur til að framvegis verði gjaldið greitt um tveimur mánuðum eftir að lóð er úthlutað. Í dag er reikningurinn ekki gefinn út fyrr en eftir að byggingarleyfi hefur verið gefið út, sem gerist oft ekki fyrr en mörgum mánuðum eftir að lóð- inni var úthlutað, segir Gunnar Svavarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs.    Reglum breytt HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Bókabíll | Vegna nýs bókasafns í Árbæ verða gerðar breytingar á akstursáætlun bókabíls safnsins, Höfðingja. Bíllinn hættir að hafa viðkomu í Árseli en þess í stað bæt- ast við tveir nýjir staðir, að Bakkastöðum 77 og Maríuborg í Grafarholti. Einnig munu tímasetningar sumra viðkomustaða breyt- ast. Nýju áætlunina má nálgast á í söfnum Borgarbókasafns, og á www.borgarboka- safn.is. Höfðingi hefur viðkomu á um 40 stöðum víðs vegar um borgina, allt frá vest- urbænum upp á Kjalarnes.    Nýtt hringtorg | Skipulagsyfirvöld í Hafn- arfirði ætla að leggja hringtorg á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Arnarhrauns í sumar. Gatnamótin eru álitin hættuleg eins og þau eru í dag, sér í lagi fyrir þá sem taka vinstribeygju, segir Gunnar Svavarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar. Til að koma hringtorginu fyrir verður hluti af lóð sem ligg- ur að Reykjavíkurvegi keyptur, en ekki hefur verið gengið frá samningum við eigendur. Bessastaðahreppur | Staða jafnréttismála hjá starfsfólki Bessastaðahrepps er almennt góð og kynjahlutfall í stjórnunarstöðum nokkuð jafnt, ef undan er skilin þátttaka í nefndum á vegum hreppsins. Félagsmálanefnd hreppsins gerði nýlega könnun meðal forstöðumanna í hreppnum þar sem m.a. var spurt um kynjahlutfall starfs- manna í stofnunum sveitarfélagsins, hlutföll karla og kvenna í stjórnunarstöðum og í nefndum á vegum sveitarfélagsins o.fl. segir Ásta K. Benediktsdóttir, félagsmálastjóri Bessastaðahrepps. Ásta segir jafnréttismál í hreppnum í góðum farvegi. Hún segir að sem dæmi sé alltaf aug- lýst eftir bæði körlum og konum í skólum og leikskólum. Stjórnendur séu nokkuð jafnt kon- ur og karlar og menn séu almennt meðvitaðir um jafnrétti. „Ég held að það sé samt þannig þegar valið er í störf að það sé alltaf hæfasti einstaklingurinn sem er ráðinn, burtséð frá því hvort það er kona eða karl,“ segir Ásta. 75% starfsmanna konur Í ljós kom að mikill meirihluti starfsfólks sveitarfélagins, um 75%, er konur, en starfs- menn eru alls um 126. Í leikskólanum Krakka- koti eru eingöngu starfandi konur og í Álfta- nesskóla eru þær í meirihluta. Jafnt hlutfall karla og kvenna er starfandi í tónlistarskól- anum og í íþróttahúsinu, og einnig er hlutfallið nokkuð jafnt á skrifstofu hreppsins. Hjá fé- lagsþjónustunni og á bókasafninu eru ein- göngu starfandi konur og í áhaldahúsinu starfa einungis karlar. Hlutfall kynjanna í stjórnunarstöðum er nokkuð jafnt, fjórar konur og fjórir karlar eru forstöðumenn stofnana. Þrír millistjórnendur, allt konur, eru í störfum hjá sveitarfélaginu. Ásta segir að í nefndum á vegum Bessa- staðahrepps sé alls 61 sæti. Þar eru karlar í meirihluta og eru þeir 64% nefndarmanna, en konur 36%. Í formennsku nefnda eru fjórar konur sitjandi og fimm karlar. „Maður getur að sjálfsögðu aldrei þvingað konur til að taka þátt í stjórnmálum, en af þessu sést að þó að konur séu þetta miklu færri en karlar í nefndunum eru þær samt settar í formennsku í fjórum af níu nefndum. Ég held að við hljótum að vera ánægð með það,“ segir Ásta. Aðspurð hvað mætti helst bæta þegar kem- ur að jafnréttismálum í hreppnum segir Ásta það helst vera mál tengd aðgengi fyrir fatlaða. „Það mætti bæta til muna aðgengi fatlaðra að opinberum stofnunum.“ Sem dæmi nefnir Ásta að planið fyrir framan bæjarskrifstofurnar, þar sem félagsþjónustan er til húsa, sé ekki malbikað og hurðir séu víða erfiðar fyrir fólk í hjólastól, sem mætti bæta með sjálfvirkum hurðaopnurum. Hún segir þó að víða sé að- gengið gott, bókasafnið sé til fyrirmyndar og í skólanum, sem og inni í leikskólanum og inni í íþróttamiðstöðinni. Kynjahlutfall í stjórnunarstöðum jafnt Breiðholt | Staða skólastjóra við Hólabrekkuskóla var auglýst laus til umsóknar á sunnudag en Sig- urjón Fjeldsted hefur gegnt starf- inu frá því skólinn var stofnaður. Sigurjón lætur af störfum í haust, en þá verða rúmir fjórir áratugir liðnir frá því hann byrjaði að kenna. Sigurjón er 62 ára að aldri og segist vera kominn á aldur. Í haust verða liðin þrjátíu ár frá því Sigurjón var ráðinn skólastjóri við Hólabrekkuskóla. „Ég byrjaði að kenna tvítugur og ég held að það sé komið nóg af þessu. Ég er kominn að starfs- lokum, búinn með minn skammt,“ segir Sigurjón í samtali við Morg- unblaðið. Sigurjón steig sín fyrstu skref í kennslu árið 1962 við Hlíðaskóla. Eftir nokkurra ára starf hélt hann utan til frekara náms en á árunum 1967–72 var hann skóla- stjóri grunnskólans á Egils- stöðum. Sigurjón hefur verið skólastjóri við Hólabrekkuskóla frá árinu 1974 sem jafnframt er stofnár skólans. Spurður að því hvað taki við eftir starfslok í haust segist Sig- urjón ekki vera farinn að skipu- leggja það nákvæmlega. Kveðst láta hverjum degi næga sitt. Hefur áhuga á að taka saman sögu Hólabrekkuskóla Sigurjón hefur nóg fyrir stafni fram á haust en hann gerir ráð fyrir að láta af störfum 1. ágúst þegar nýr skólastjóri tekur við. Sigurjón hefur ýmislegt í poka- horninu og hefur til að mynda áhuga á að kanna hvort hægt sé að púsla saman sögu Hólabrekku- skóla. „Þetta hef ég nú bara svona bak við eyrað. Það væri gaman að athuga með gamla muni og punkta niður eitthvað úr sögu skólans, hvort sem það verð ég eða einhver annar sem skrifar hana.“ Að fara á eftirlaun aðeins 62 ár að aldri telst tiltölulega snemmt, en Sigurjón segir það ekkert aðal- atriði í sínum huga að vera í skipulagðri launavinnu langt fram eftir aldri til að geta haft nóg fyrir stafni. „Við hjónin eig- um smá landspildu sem við höfum aldrei haft nægilega góðan tíma til að sinna. Ég hlakka til þess að fá tíma í að gróðursetja, laga til og þvíumlíkt. Svo verður annað bara að koma í ljós.“ Sigurjón kveður Hólabrekkuskóla sáttur en segist helst munu koma til með að sakna góðra vinnufélaga. Búinn með sinn skammt Sigurjón Fjeldsted skólastjóri Hóla- brekkuskóla til þriggja áratuga læt- ur af störfum í haust. Morgunblaðið/Þorkell Nóg komið: Sigurjón Fjeldsted er búinn að vera skólastjóri í bráðum 30 ár, frá stofnun skólans, og hefur sinnt kennslu í rúmlega fjóra áratugi. Seltjarnarnes | Stefnt er að því að öll hús á Seltjarnarnesi verði tengd ljós- leiðarakerfi á næstu árum, og munu framkvæmdir við lagningu ljósleiðara hefjast á næsta ári. Ef sett markmið nást verður Seltjarnarnes fyrsta bæj- arfélagið þar sem allir íbúar eru tengdir kerfinu. „Verkefni bæjarstjórnar er eink- um að skapa umgjörð um aukin lífs- gæði íbúanna og við viljum vera í far- arbroddi á þessu spennandi sviði. Með því að kanna kosti ljósleiðara- væðingar viljum við opna á nýja möguleika fyrir Seltirninga bæði í leik og starfi. Jafnframt reynum við treysta og auka við verðgildi fast- eigna bæjarbúa. Í því augnamiði sýn- ist okkur að ljósleiðaratenging heim- ila á Seltjarnarnesi sé afskaplega skemmtilegur kostur sem býður upp á marga möguleika,“ segir Jónmund- ur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarn- arnesbæjar. Fasteignaverð hækkar um 2–5% Jónmundur segir reynsluna af ljós- leiðaravæðingu bæjarfélaga frá ná- grannalöndunum góða, en um helm- ingur sænskra bæjarfélaga eru ljósleiðaravædd. „Ljósleiðaravæðing- in hefur auðvitað bæði áhrif á lífsgæði íbúa og skapar nýja möguleika á sviði menntunar, stjórnsýslu, fjarvinnu og afþreyingar svo dæmi séu tekin. Að auki virðist reynsla annarra þjóða sýna að fasteignaverð hækki um 2 til 5% eftir atvikum í kjölfar tengingar og seljanleiki fasteigna vaxi til muna vegna aukinnar eftirspurnar.“ Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvern- ig verður staðið að framkvæmdinni, en ljóst er að kostnaður við lagningu ljósleiðara fyrir bæjarfélagið gæti verið um 200 milljónir króna. Jón- mundur segir það þó gera ráð fyrir því að allt þurfi að grafa sérstaklega til að leggja leiðarann, en líklegt sé að hægt sé að samræma skurðgröft öðr- um verkefnum. Stefnt er á að hefja lagningu leið- aranna á næsta ári. „Við stefnum á það að nota næstu mánuði til þess að undirbúa verkefnið og sjá hvaða leiðir eru vænlegastar, með það fyrir aug- um að hefja verkefnið eigi síðar en á árinu 2005, og ná því á næstu 12 til 18 mánuðum þar á eftir ef allt gengur upp,“ segir Jónmundur. Öll hús tengd ljós- leiðara á næstu árum Morgunblaðið/Golli Skurðir: Um 90% af kostnaði við lagningu ljósleiðara eru fólgin í því að opna gangstéttir og götur. Bessastaðahreppur | Idol-stjarnan Jón Sigurðsson kom og tók lagið fyrir nemendur í Álftanesskóla í Íþróttamiðstöð Bessastaðahrepps á öskudag. Nemendur voru að vonum ánægðir með tiltækið, sungu hástöfum með og skemmtu sér konunglega. Þau hópuðust svo að Jóni eftir sýn- inguna og fengu eiginhandaráritanir. Idol-stjarna vinsæl hjá krökkunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.