Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 19 Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Talíur og hlaupakettir SÍMI 530 1500 Frá39.895kr. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 www.heimsferdir.is Rimini Glæsileg ströndin á Rimini, sem teygir sig kílómetrum saman eftir fallegri strandlengjunni, á gífurlegum vinsældum a› fagna. fiar er a› finna ótrúlega stemningu yfir sumartímann enda i›ar bærinn af mannlífi, jafnt daga sem nætur. Til Rimini hópast innlendir sem erlendir fer›amenn til a› njóta hins besta sem sumardvöl á Ítalíu hefur a› bjó›a. Frá 39.895 kr. M.v. hjón me› 2 börn, 21.maí, Residence Divina, vikufer›, 24. júní. Sjá ver›skrá Frá 49.990 kr. M.v. 2 í studio, 24. júní, Residence Divina, vikuferð, 24. júní. Sjá verðskrá Topp gististaðir Heimsferðir bjóða góða gististaði í hjarta Rimini, frábærlega staðsetta í göngufæri við ströndina, veitingastaði og verslanir. Vinsælasti áfangastaður Ítalíu N O N N I O G M A N N I IY D D A • N M 1 1 1 8 1 /s ia .is Fáðu 8.000 kr. afslátt Þeir sem bóka strax, geta tryggt sér 8.000 kr. afslátt í valdar brottfarir. Beint flug alla fimmtudaga í sumar Astoria UMFANGSMIKLUM endurbótum á Samkomuhúsinu er að ljúka og af því tilefni var félögum í Leikfélagi Akureyrar boðið í heimsókn í vik- unni til að skoða þær framkvæmdar sem þar hafa verið gerðar á und- anförnum mánuðum. Fram- kvæmdum innanhúss er lokið og vinna utanhúss á síðustu metr- unum. Samkomuhúsið verður tekið formlega í notkun á ný næstkom- andi laugadag en þá verður fyrsta verkið eftir breytingar frumsýnt. Það er leikritið Draumalandið, eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, í leik- stjórn Þorsteins Bachmanns leik- hússtjóra LA. Félagsmenn skoða fram- kvæmdir Morgunblaðið/Kristján Gestir í heimsókn: Pétur Jósefsson fasteignasali, Valgarður Baldvinsson, fyrrverandi bæjarritari, og dótturdætur hans, Sigrún Mary og Bryndís Ann, skoða nýja búningsaðstöðu Sögu Jónsdóttur, leikara og formanns LA, en t.v. er Linda Björk Óladóttir, förðunarmeistari félagsins. VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ G.V. gröfur ehf. hefur sent Samkeppnis- stofnun kvörtun vegna samnings- gerðar Akureyrarbæjar og G. Hjálm- arssonar hf. um nýtingu námuréttinda í landi Glerár ofan Ak- ureyrar. Með samningnum telja for- svarsmenn G.V. grafna að bærinn hafi brotið gegn ákvæðum Sam- keppnislaga og að með þessum samn- ingi hafi G. Hjálmarsson náð umtals- verðu forskoti á önnur verktakafyrirtæki við gerð tilboða á næstunni. Forsaga málsins er sú að landar- eign úr landi Glerár var boðin til sölu en þar eru malarnámur sem fyrir- tækið Möl og sandur hefur nýtt und- anfarin ár. Fjórum verktakafyrir- tækjum á Akureyri var boðið að senda inn tilboð í landareignina. Tvö tilboð bárust og áttu G.V. gröfur hærra tilboðið, upp á 15,2 milljónir króna en hitt tilboð var frá G. Hjálm- arssyni, upp á 14 milljónir króna. Guðmundur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri G.V. grafna, sagði að Akureyrarbær hefði síðan nýtt sér forkaupsrétt að landinu. Hann sagð- ist ekki vera að amast við því að bær- inn keypti landið, heldur einungis því að gerður var námuréttarsamningur við G. Hjálmarsson og þeim afleið- ingum sem hann ótvírætt kæmi til með að valda í samkeppni verktaka í bænum. Guðmundur sagði að með þessum samningi hefði verið gengið á svig við eðlilegar reglur um jafnræði. Um mjög takmarkaða auðlind svo nærri bænum væri að ræða og ekki hefði verið fallist á að veita G.V. gröfum viðlíka kjör og aðstöðu, hvað þá öðr- um fyrirtækjum í greininni. Guð- mundur sagði að Akureyrarbær og stofnanir hans væru líklega stærsti kaupandi slíkrar verktakaþjónustu sem hér um ræddi en að jafnan væru það nokkur fyrirtæki sem byðu í slík verk. Í útreikningum sem einnig voru sendir Samkeppnisstofnun er sýnt fram á hvernig þessi samningsgerð við G. Hjálmarsson skekkir sam- keppnisstöðu fyrirtækja á verktaka- markaðnum í bænum. Eðlilegra að bjóða námuréttinn út „Í lok október á síðasta ári hafði Ármann Jóhannesson, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs, samband við mig og lagði fram þá hugmynd að fyrirtæki mitt nýtti umræddar nám- ur í þrjú ár ef bærinn keypti landið. Ég var ekki tilbúinn að gefa ákveðið svar á þeim tímapunkti og í byrjun nóvember hafði sviðsstjórinn sam- band við mig aftur og gekk hart eftir svari. Ég taldi nauðsynlegt að fá tíma til að gera athuganir á hversu mikil möl væri vinnanleg úr námunni. Ég benti sviðsstjóra bæjarins á að ég hefði efasemdir um réttmæti þess að gera svona samning af samkeppnis- ástæðum og nefndi að það væri ef til vill eðlilegra að bjóða námuréttindin út eða að bærinn legði til efni úr nám- unni í þeim verkum sem bærinn byði út eða léti vinna fyrir sig. Með báðum þessum aðferðum væri jafnræðis gætt.“ Guðmundur sagðist ekki hafa heyrt frekar af málinu fyrr en upp úr miðjum síðasta mánuði og að þá hefði verið búið að ganga frá áðurnefndum samningi við G. Hjálmarsson. Hann sagðist hafa reynt að koma sínum sjónarmiðum og frekari upplýsingum á framfæri við bæjaryfirvöld en án árangurs. Samningurinn hefði verið staðfestur í bæjarráði og bæjar- stjórn. „Í kjölfarið sendi ég inn erindi til bæjarráðs þar sem þess var farið á leit að bærinn gerði sambærilegan námuréttarsamning við G.V. gröfur en því erindi var hafnað á fundi bæj- arráðs í byrjun febrúar.“ Bærinn kostar færslu á vatnslögn Guðmundur sagði að Akureyrar- bær hefði tekið að sér að færa vatns- lögn sem liggur um umrætt svæði en undir lögninni er þónokkurt magn af nýtanlegri möl sem ekki var reiknað með að hægt yrði að nýta. Á það atriði hefði aldrei verið minnst í viðræðum sínum við bæjaryfirvöld. „Kostnaður bæjarins við færslu lagnarinnar er 6,7 milljónir króna en greiðsla G. Hjálmarssonar fyrir námuréttindin er 4 milljónir króna. Ekki verður því annað séð en að forráðamenn Akur- eyrarbæjar séu að eyða 2,7 milljónum króna af skattpeningum bæjarbúa til þess að G. Hjálmarsson geti nýtt um- rædda möl. Ég tel að þessu máli hafi verið ýtt áfram af Ármanni Jóhann- essyni og Jakobi Björnssyni, for- manni bæjarráðs, og með stuðningi meirihlutans í bæjarráði. Það er því umhugsunarefni fyrir bæjarbúa hvort hægt sé að treysta þessum mönnum, sem þannig standa að mál- um, fyrir stjórnun peningamála bæj- arins,“ sagði Guðmundur. Ármann Jóhannesson, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs, sagðist ekki hafa séð þessa kvörtun til Sam- keppnisstofnunar og hann kannast ekki við að verið væri að mismuna verktakafyrirtækjum í bænum. „Það er Samkeppnisstofnunar að skera úr um það hvort við höfum brotið sam- keppnisreglur en ekki brjótum við af okkur vísvitandi,“ sagði Ármann. Kvartað til Samkeppnisstofnunar vegna samnings um námuréttindi Gengið á svig við eðlilegar reglur um jafnræði Fjölbreytni í fjölmiðlun | Birgir Guðmundsson, aðjunkt við Háskól- ann á Akureyri, flytur fyrirlestur á fé- lagsvísindatorgi í dag, miðvikudaginn 3. mars, kl. 16.30 í Þing- vallastræti 23, stofu 25. Hann nefnist: „Fjölbreytni í fjöl- miðlun – líka á landsbyggðinni?“ Í erindi sínu mun Birgir fjalla um stöðu fjölmiðla á landsbyggðinni og tengir hana við umræðuna um fjöl- breytni í fjölmiðlum og ótta manna við samþjöppun á eignarhaldi á fjöl- miðlum. Birgir mun koma inn á breytt viðhorf í fjölmiðlun og starf- semi fjölmiðlamanna sem m.a. birt- ast í kennslu í fjölmiðlafræði á há- skólastigi við Háskólann á Akureyri. Slökkvibíll keyptur á Selfossi | Á fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar nýlega var kynntur kaupsamningur um kaup á slökkvibifreið fyrir slökkvilið Dalvíkur. Hann er á milli SUT ehf. á Selfossi annars vegar og Dalvíkurbyggðar hins vegar um kaup á slökkvibifreið fyrir slökkvilið Dalvíkur. Um er að ræða bifreið að tegundinni Iveco, framleiðsluár 1991. Áætluð afhending er 2. apríl næstkomandi. Bæjarstjóri gerði á fundinum grein fyrir þeim breytingum sem samið hefur verið um við seljanda hvað varðar liðina aukahlutir og ábyrgðarskilmálar. Bæjarráð gerði ekki athugasemd- ir við samninginn eins og hann ligg- ur fyrir með áorðnum breytingum og vísaði honum til afgreiðslu í bæj- arstjórn. Góður árangur | Liðsmenn Skák- félags Akureyrar voru á ferð og flugi í síðustu viku. Ólafur Kristjánsson náði næstbestum árangri liðsmanna ís- lenska öldungalandsliðsins sem keppti á HM öldungasveita í Þýska- landi. Sveitin hafnaði í 20. sæti og fékk Ólafur 3½ vinning af 6 mögu- legum. Halldór Brynjar Halldórsson keppti fyrir Íslands hönd á Norð- urlandamóti ungmenna í Svíþjóð. Honum gekk mjög vel, fékk 4 vinn- inga af 6 mögulegum og hafnaði í öðru sæti í flokki 18–20 ára. Þá keppti Stefán Bergsson á opnu alþjóðamóti í Moskvu og gekk ágætlega. Fékk 5 vinninga af 9 mögulegum í C-flokki.      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.