Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. UNGUR bresk-íslenskur ökuþór, Viktor Þór William Jensen, fetar nú svipaða leið og margir af núverandi ökuþórum Form- úlu-1. Eftir árangursríkan keppnisferil á körtum undanfarin ár var hann valinn í hóp efnilegra breskra ökuþóra sem boðið var í sérstaka skólun á Spáni í vetur með þeim árangri að hann hefur verið ráðinn til að keppa í Formúlu-BMW í ár. Viktor Þór er nýorðinn 16 ára, fæddur í lok ársins 1987, sonur Guðrúnar Ágústu Þórarinsdóttur og breska útvarpsmanns- ins Kids Jensens. Hann hóf keppni á kört- um árið 2000 og öðlaðist skjótan frama. Gekk hratt upp í gegnum keppnisflokka og vann m.a. tvisvar sigur í landskeppni þar sem hann ók fyrir England. Keppnisbílarnir í Formúlu-BMW eru smækkuð útgáfa af Formúlu-1-bíl. Knúnir áfram af 140 hestafla mótor og geta þeir náð allt að 240 km hraða. Keppt verður tíu helgar frá aprílbyrjun til septemberloka, tveir kappakstrar um hverja, svo alls verð- ur um tuttugu mót að ræða. „Viktor ekur ætíð með íslenska fánann á hjálmi sínum og keppnisgalla,“ segir faðir hans við Morgunblaðið. Leitar hann nú að- ila til að styrkja útgerð Viktors Þórs fjár- hagslega en þátttaka í formúlum yngri ökuþóra, og jafnvel í Formúlu-1, stendur og fellur með slíkum styrkjum. Viktor hefur vakið athygli með frammi- stöðu sinni undanfarin ár því auk SWR Omegaland sýndu sex önnur lið honum áhuga. Viktor Þór William Jensen hefur náð mjög góðum árangri í kappakstrinum. Bresk-íslenskur ökuþór þykir efnilegur  Með íslenska/B2 Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur þingflokkur Framsóknar- flokksins samþykkt frumvörpin. Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagðist í samtali við blaðið reikna með að frumvarpið yrði afgreitt frá sjálfstæðismönnum á þing- flokksfundi í dag. Það hefði verið kynnt í síðustu viku og efnisleg umræða farið fram á mánudag. Einar sagði að persónulega litist sér vel á frumvarpið. Ljóst væri að meint verðlagsáhrif á raforku hefðu verið stórlega ofmetin. Sátt um jöfnun raforkukostnaðar væri orðin nokkuð mikil. Þannig hefðu fjórir af fimm fulltrúum í 19 manna nefndinni svonefndu skrifað undir álit meirihlutans. Nefndin hefði unnið gott og þarft verk. Landsnet hf. stofnað Iðnaðarráðherra hefur einnig kynnt í ríkisstjórnarflokkunum frumvarp um stofnun Landsnets hf., fyrirtækis í eigu ríkisins sem mun annast flutning á raforku um landið og kerfisstjórnun, samkvæmt ákvæðum raforku- laga. Mun ráðherra skipa þrjá menn í stjórn hlutafélagsins til bráðabirgða, sem munu sitja þar til endanleg niðurstaða fæst um verðmæti flutningsvirkja og þar með um eignarhlutföll orkufyr- irtækja í félaginu síðar meir. Að fenginni endanlegri niðurstöðu um verðmæti flutningsvirkja, þ.e. raflínanna, verður Landsnet selt þeim aðilum sem kjósa að leggja flutningsvirki sín inn í félagið sem hlutafé. Reiknað er með að félagið taki til starfa um næstu áramót, nái lögin fram að ganga á vorþinginu. Frumvörp um breytt raforkulög kynnt í stjórnarflokkunum Niðurgreiðsla raforku tekin af fjárlögum TVÖ frumvörp iðnaðarráðherra til breytinga á raforkulögum hafa verið kynnt í ríkisstjórnarflokkunum og verða væntanlega afgreidd í dag. Í tengslum við þau frumvörp þarf að leggja fram eitt til viðbótar, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, og á það eftir að fara fyrir ríkisstjórn. Snýst það um niðurgreiðslu dreif- ingarkostnaðar raforku í dreifbýli upp á 230 milljónir króna á ári og er ætlunin að taka þær greiðslur af fjárlögum í stað þess að leggja á sérstakt jöfnunargjald á raforkudreifingu. Óróleiki á mörkuðum MIKILL órói skapaðist á gjald- eyrismarkaði í gær og veiktist gengi krónunnar um 0,57% í 11 milljarða króna viðskiptum dags- ins. Mest varð veikingin 1% innan dagsins en vísitalan endaði í 120,6 stigum. Ennfremur lækkaði úr- valsvísitala Aðallista Kauphallar Íslands um 2,38% og hefur hún ekki lækkað svo mikið innan dags í tvö og hálft ár eða síðan 24. ágúst 2001, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá greiningardeild Ís- landsbanka. Vísitalan stendur nú í 2.512,9 stigum og hefur lækkað um 4,4% á tveimur dögum. Í Vegvísi Landsbanka Íslands í gær eru hræringarnar á gjaldeyr- ismarkaði raktar til umfjöllunar KB banka sem sagt var frá í Morg- unblaðinu í gær. Þar kom fram að staðan á hlutabréfamarkaði gefi tilefni til að lækkanir á hlutabréfa- verði og fall krónunnar sé fram- undan. Greiningardeild Lands- bankans er ósammála þessu og telur að krónan haldist sterk í bráð. Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir að ekkert sé hægt að sjá í spilunum sem bendi til einhverslags hruns eins og KB banki gefur í skyn að geti gerst, hvorki í hlutabréfaverði né gengi. Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra tekur í sama streng en tekur undir það með KB banka að ef verð á hlutabréfum falli muni það að óbreyttu leiða til lækkunar á gengi krónunnar. Í Vegvísi Landsbankans segir jafnframt að svo virðist sem óró- leiki á markaðnum hafi orðið til þess að fjárfestar innleystu hagnað á hlutabréfamarkaðnum. „Íslensk hlutabréf hafa hækkað mikið það sem af er ári og ekki er óeðlilegt að fjárfestar innleysi hagnað á þess- um tímapunkti.“  Ekki sammála/13 FLUTNINGASKIPIÐ Skaftafell til- kynnti um ellefuleytið í gærkvöldi að það hefði misst bát af dekki, en um var að ræða Aron-björgunarskip sem fyrirhugað var að staðsetja á Austurlandi. Bátinn tók út af þilfarinu um þrettán sjómílur frá Hópsnesi. Er sjófarendum bent á að sýna fyllstu varúð þegar farið er um þetta svæði. Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir skipið smíðað til að fara út í verstu veður en hins vegar sé ekki vitað hvort um mikl- ar skemmdir hafi verið að ræða þegar það fór fyrir borð. Gámaflet hafi farið með því og sliskjur sem festu það. „Það myndi þola svona veður sjósett undir öllum eðlilegum kringumstæðum, en þegar það skolast af dekkinu í brotsjó með alls kyns öðrum hlutum er óljóst hvað verður um það og því mikilvægt að sýna varúð á þessu haf- svæði.“ Valgeir segir það mikinn skaða ef björg- unarskipið er glatað enda sé brýn þörf á öflugum flota björgunarskipa hringinn í kringum landið. Björgunar- skip skolaðist fyrir borð VEÐUROFSINN náði hámarki í gærkvöldi á suðvesturhorni landsins og á Snæfellsnesi og fór vindstyrkurinn allt upp í 30 metra á sekúndu í hviðum á vindmæli Veðurstofunnar við Bústaðaveg. Á Skálafellstindi mældist vind- urinn 48 metrar á sekúndu um kl. 10 í gærkvöldi en reiknað var með að vind lægði með nóttinni. Ekki er vitað um meiriháttar tjón eða óhöpp vegna stormsins. Björgunarsveitir á höfuðborg- arsvæðinu voru kallaðar út um sjöleytið eftir að tilkynningar fóru að berast um að þakplötur væru farnar að losna og eins um að kerrur og aðrir lausir hlutir fykju til og yllu tjóni. Fjórir björgunarsveitarbílar voru að störfum og sinntu tæpum tug að- stoðarbeiðna. Þá neyddist Boeing-flutninga- flugvél Icelandair, sem var að koma frá Svíþjóð, til að lenda á Reykjavíkurflugvelli um hálfsjö- leytið vegna of mikils hliðarvinds á Keflavíkurflugvelli. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Stormur á Vesturlandi Hópur björgunarsveitarmanna frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg berst við að festa klæðningu utan á hús við Fellsmúla 5 í gærkvöldi. KAFARAR Landhelgisgæslunnar fundu hníf í sjónum nálægt neta- bryggjunni í Neskaupstað í gær eftir nær tveggja daga leit að hugs- anlegum sönnunargögnum í tengslum við rannsókn lögreglunn- ar á líkfundinum í höfninni hinn 11. febrúar sl. Þá tók efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra formlega við rannsókninni í gær. Arnar Jensson aðstoðaryfirlög- regluþjónn segir að hnífurinn sem fannst í gær gæti verið það áhald sem að var leitað. „Hann var um það bil þrjátíu metra frá landi út frá netabryggjunni. Það er óljóst hve lengi hann hefur legið í sjón- um, það er nokkuð ljóst að hann er ekki búinn að liggja í mjög langan tíma. Við fyrstu sýn lítur þetta út eins og það áhald, sem við vorum að leita að, en það er óstaðfest og þarf að kanna betur,“ sagði Arnar. Þau umskipti urðu við rannsókn málsins í gær að efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra tók við málinu af sýslumanninum á Eski- firði. Arnar sagði sýslumann hafa óskað þessa og hefði ríkislögreglu- stjóri tekið við málinu í samráði við ríkissaksóknara. Inn í rannsóknar- hópinn bætast síðan við starfs- menn fíkniefnadeildar lögreglunn- ar í Reykjavík sem annast fíkniefnaþátt málsins. Arnar segir eðlilegt að ríkislögreglustjóri taki við rannsókninni samkvæmt lög- reglulögum, m.a. í ljósi þess að meginþungi rannsóknarinnar hafi nánast allur færst yfir til ríkislög- reglustjóra. Auk þess þurfi að tengja saman mörg lögregluemb- ætti vegna rannsóknarinnar. Ríkislögreglustjóri tekur við rannsókn líkfundarins Hnífur sem fannst á hafs- botni gæti tengst málinu Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Rannsókn á hnífnum sem fannst í Norðfjarðarhöfn í gær mun vænt- anlega leiða í ljós hvort hann verður flokkaður sem sönnunargagn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.