Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 43 ÓDÝRT Stálhillur í fyrirtæki og heimili Stálhillur Stærð: D: 40 cm B: 100 cm H: 200 cm 5 hillur kr. 8.765,- Næsta bil kr. 6.125,- HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 en gott Við bjóðum 14 34 / TA K T ÍK n r. 4 0 A FJÓRIR nemendur frá Menntaskólanum á Ak- ureyri urðu í fimm efstu sætunum í úrslitakeppni í 21. landskeppni í eðlisfræði sem fór fram í Há- skóla Íslands um sl. helgi. 234 keppendur tóku þátt í forkeppninni sem fram fór í ellefu framhaldsskólum víðs vegar um landið. Til úrslitakeppninnar um helgina var boð- ið fjórtán nemendum úr fimm skólum að teknu tilliti til árangurs og aldurs. Á laugardeginum glímdu keppendur í þrjár klukkustundir við sex fræðileg verkefni sem spönnuðu námsefni fram- haldsskólans frá aflfræði til stjörnufræði og höfðu keppendur ekki áður glímt við svo erfið verkefni. Á sunnudeginum framkvæmdu þeir til- raunir um pendúl og bylgjuvíxl og skiluðu skýrslum úr þeim, einnig á þremur klukkustund- um. Sigurvegari keppninnar var Finnur Dellsén, nemandi við MA, með 64 stig af 100 mögulegum. Í öðru sæti var nemandi frá MR, Höskuldur Pétur Halldórsson, en í 3.–5. sæti voru Haukur Sigurð- arson, Ásgeir Alexandersson og Sigurður Ægir Jónsson, allir nemendur í MA. Þessum fimm pilt- um býðst nú að fara á Ólympíuleikana í eðlisfræði sem haldnir verða í Suður-Kóreu 15.–23. júlí nk. Ingibjörg Haraldsdóttir, deildarstjóri í eðl- isfræði við MK, er formaður landskeppni í eðl- isfræði sem fulltrúi Félags raungreinakennara og vakti hún í ræðu sinni athygli á því að fyrrver- andi keppendur í eðlisfræðikeppninni eru nú höf- undar fræðilegu verkefnanna, bæði í forkeppn- inni og úrslitakeppninni, og semja þeir síst léttari dæmi en prófessorar við raunvísindadeild gerðu áður. Ari Ólafsson, dósent við raunvísindadeild Háskólans, var aðalhöfundur verklegu verkefn- anna en nemendur hans prófuðu tilraunirnar og settu tilraunatækin upp. Hann er einnig hugs- uðurinn á bak við risapendúlinn sem vígður verð- ur á næstunni í húsi Orkuveitu Reykjavíkur. Við- ar Ágústsson, framkvæmdastjóri Hugfangs og framkvæmdastjóri landskeppninnar sem fulltrúi Eðlisfræðifélagsins, afhenti sextán efstu nemend- unum úr forkeppninni bókarverðlaun fyrir góðan árangur en sigurvegari þar var Haukur Sigurð- arson. Kristján Rúnar Kristjánsson, nemandi í doktorsnámi við HÍ og formaður dómnefndar, af- henti peningaverðlaun fimm efstu keppendunum í úrslitakeppninni. Keppendur og verkefnahöfundar. Frá vinstri, Kristján Rúnar Kristjánsson, aðalhöfundur fræðilegu verkefnanna, Haukur Sigurðarson, MA, Ásgeir Alexandersson, MA, Sigurður Ægir Jónsson, MA, Höskuldur Pétur Halldórsson, MR, og Ari Ólafsson, aðalhöfundur verklegu verkefnanna. Á myndina vantar Finn Dellsén, MA. MA sigursæll í úrslitum í lands- keppni í eðlisfræði SAMTÖK verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa sent Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við saman- burð Tryggingastofnunar ríkisins (TR) á verði lyfja í smásölu. Fullyrt er í frétt TR að verð á algengum lyfjum sé rúmlega 20% hærra hér á landi en í Danmörku. SVÞ segir þennan sam- anburð ekki réttan og benda á að ekki sé tekið tillit til afsláttar apóteka á Ís- landi til viðskiptavina. Þá sé saman- burður TR á lyfinu Sivacor við sam- heitalyfið Simvastatin Alternova ekki eðlilegur þar sem þessi lyf fáist ekki í báðum löndunum. SVÞ segjast hafa gert verðkönnun dagana 20.–23. febrúar í apótekum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða könnunarinnar hafi verið sú að mis- munurinn á verði lyfjanna hafi verið 7,6% en ekki 20% eins og TR héldi fram. Eitt lyf, Efexor Depot, hafi t.d. reynst 8,2% ódýrara en á Íslandi. Í könnun SVÞ er samanburði á verði Sivacor við samheitalyfið Simvastatin Alternova sleppt því að lyfin séu ekki samanburðarhæf. SVÞ mót- mæla lyfja- könnun TR MENNINGAR- og safnanefnd Garðabæjar stendur fyrir samsýn- ingu myndlistarmanna í samvinnu við Sparisjóðinn í Garðabæ og verð- ur sýningin opnuð í sýningarsal bankans í dag, miðvikudag, kl. 17.30. Tuttugu og tveir listamenn taka þátt í sýningunni, bæði reyndir listamenn sem hafa tekið þátt í mörgum sýningum og aðrir sem eru að sýna í fyrsta sinn. Á sýningunni gefur m.a. að líta landslagsmálverk, abstraktmálverk, fantasíumálverk, ljósmyndir, glerlistaverk og leir- listaverk. Sýningin stendur til 30. apríl. Samsýning í Garðabæ Samfélagsþjónusta RANGLEGA sagði í frétt blaðsins sl. föstudag að 738 einstaklingar hefðu hafið samfélagsþjónustu hér á landi 2002 í stað óskilorðsbundinnar refsingar eða vararefsingar fésekta. Hið rétta er að 738 hófu samfélags- þjónustu á tímabilinu frá 1995–2002. Þá mátti skilja fyrirsögn fréttarinn- ar á þá leið að 78 hefðu tekið út refs- ingu í samfélagsþjónustu á árinu 2002 en eins og fram kom í fréttinni voru þeir 78 í árslok það ár. Leiðrétt- ist þetta hér með. Tröllkrabbi en ekki töskukrabbi Í frétt í Morgunblaðinu í gær á Austurlandssíðu er birt mynd af stórum krabba og fullyrt að um sé að ræða svokallaðan töskukrabba. Sól- mundur Einarsson fiskifræðingur segir að myndin sé ekki af tösku- krabba heldur af tröllkrabba. Leið- réttist það hér með. LEIÐRÉTT MÍMIR – símenntun ehf. hefur opnað vef þar sem fjallað er um starfsemina. Slóðin á vefinn er www.mimir.is. Það var Grétar Þorsteinsson, for- seti ASÍ, sem opnaði vefinn. Mímir – símenntun ehf. starfar á sviði fullorð- insfræðslu, starfsmenntunar og tómstundanám- skeiða. Á sviði fullorðinsfræðslu er lögð áhersla á að skipuleggja markvissa fræðslu fyrir fólk á vinnu- markaði sem minnstu menntunina hefur. Í flestum tilfellum er fræðslustarfið skipulagt í samstarfi við stéttarfélög, fræðslusjóði eða fyrirtæki. Land- nemar eða nýir Íslendingar eru einnig vaxandi hópur viðskiptavina Mímis, en í einu stærsta stétt- arfélagi landsins, Eflingu, eru um 12% félags- manna af erlendu bergi brotnir. Mikil fjölbreytni hefur ávallt einkennt tóm- stundanámskeið Mímis. Veturinn 2003–2004 voru/ eru alls í boði 438 námskeið, og eru þau boðin í flokkunum tómstundanámskeið, myndlistarnám- skeið, menning, tölvunámskeið, hagnýt námskeið, matur og vín, tungumál, fatahönnun, mannrækt og barna- og unglinganámskeið. Auk lengri og styttri námskeiða er einnig unnið að ýmsum þróunarverkefnum. Dæmi um slík eru námsráðgjöf á vinnustað og verkefnið Aftur í nám sem er ætlað lesblindum. Bæði þessi verkefni hafa hlotið afar góðar viðtökur. Fyrirtækið varð eins árs síðastliðin áramót, en það tók formlega til starfa 1. janúar 2003 og er í eigu Alþýðusambands Íslands. Mímir – símenntun opnar nýtt vefsvæði Morgunblaðið/Sverrir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Hulda Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri Mímis símenntunar. Stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli verður með mán- aðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 3. mars, kl. 17. Gestur fundarins verður Guðmundur Vikar Einarsson þvagfæraskurðlæknir og ræðir hann um sjúkdóma í blöðruháls- kirtli. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni. Málstofa um verðsamkeppni við skilyrði leitar- og skiptikostn- aðar er yfirskrift málstofu sem verður í dag, miðvikudaginn 3. mars, kl. 12.15, í Odda, stofu 101. Erindi heldur Jón Þór Sturluson, sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun. Fjallað verður um einfalt leikja- fræðilíkan af fákeppni við aðstæður sem eru einkennandi fyrir smásölu með raforku og símþjónustu sem áður voru í einokun. Skoðuð eru ým- is möguleg markaðsjafnvægi að gef- inni dreifingu slíks kostnaðar o.fl. Borgarneskirkja kl. 21 Samkór Mýramanna heldur tónleika. Ein- söngvari er Ólafur Kjartan Sigurð- arson baríton. Í DAG Afríka 20:20 stendur fyrir mál- stofu á morgun, fimmtudaginn 4. mars, kl. 18–19.30 í Reykjavík- urakademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð (JL-húsinu). Jean-Francois Rischard, varaforseti Alþjóðabankans í Evrópu, mun halda erindi sem hann kallar „Dealing with world poverty: towards a more bal- anced planet“. Í erindinu verður fjallað um baráttuna gegn fátækt í Afríku. Að loknu erindinu verður tími fyrir umræður. Fundarstjóri verður Jón Þór Sturlu- son sérfræðingur hjá Hagfræðistofn- un Háskóla Íslands. Félagið AUÐUR boðar til aðal- fundar á morgun, fimmtudaginn 4. mars, kl. 20 í Háskólanum í Reykja- vík. Markmið félagsins eru að efla fé- lagsmenn til dáða og viðhalda AUÐ- AR-kraftinum. Félagið AUÐUR var stofnað 18. mars 2003 í Háskólanum í Reykjavík. Stjórn félagsins var kosin og heið- ursfélagar kynntir, en þeir eru; Guð- finna S. Bjarnadóttir, Guðrún Péturs- dóttir og Halla Tómasdóttir. Félagið er afsprengi verkefnisins AUÐUR í krafti kvenna sem Háskólinn í Reykjavík átti veg og vanda af. Fé- lagið er opið öllum þeim konum sem sóttu námskeiðið FrumkvöðlaAUÐ- UR hjá Háskólanum í Reykjavík. FrumkvöðlaAUÐUR var ætlað kon- um em vildu stofna og/eða reka fyr- irtæki. Markmiðið var að gera kon- urnar færar um að reka fyrirtæki, móta viðskiptahugmynd og semja viðskiptaáætlun, sem kynnt var í lok námskeiðsins. Haldin voru 6 nám- skeið og stóð hvert þeirra í 16 vikur. Þátttakendur voru 163 og unnu að meira en 90 viðskiptahugmyndum. Við verklok AUÐAR höfðu þátttak- endur í FrumkvöðlaAUÐI stofnað 51 fyrirtæki sem veittu 217 ný störf. Ráðstefna um framfarir og þróun í hrossarækt og hestamennsku Ráðstefna á vegum landbún- aðarráðuneytisins um framfarir og þróun í hrossarækt og hestamennsku verður á morgun, fimmtudaginn 4. mars kl. 13–17.30, í Ársal á Hótel Sögu. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra setur ráðstefnuna. Erindi halda: Sveinbjörn Eyjólfsson stjórn- arform. HmÍ, Ingimar Ingimarsson, framkvæmdastjóri HmÍ, Björn Kristjánsson, forstöðumaður Sögu- seturs ísl. hestsins á Hólum, Anna Karolína Vilhjálmsdóttir frá Íþrótta- sambandi fatlaðra, Árni Gunnarsson, framkvæmdastj., Ágúst Sigurðsson, formaður verkefnisstjórnar, Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar BÍ, Jónas Kristjánsson ritstjóri, Víkingur Gunnarsson, deild- arstjóri hrossaræktarbrautar við Hólaskóla, Jónas R. Jónsson, Skúli Skúlason skólameistari og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ráð- stefnustjóri er Níels Árni Lund. Stofnfundur VG í Garðabæ Á morg- un, fimmtudaginn 4. mars, verður stofnað svæðisfélag Vinstri grænna í Garðabæ. Fundurinn hefst kl. 20, í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ. Á MORGUN Málþing um uppbyggingu háskólastigsins á Vestfjörðum verður laugardaginn 6. mars kl. 11– 15.30, í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, á 4. hæð. Tilgangur málþingsins er að varpa ljósi á stöðu háskólastigsins á Vestfjörðum og velta upp þeim leiðum sem færar eru í náinni fram- tíð. Fundarstjórar verða Birna Lár- usdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísa- fjarðarbæjar, og Elías Jónatansson, forseti bæjarstjórnar Bolungarvík- urkaupstaðar. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, setur málþingið. Erindi halda: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra, Smári Haraldsson, forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Grétar Þór Eyþórsson, Byggðarannsóknastofnun Íslands á Akureyri, Sigurjón Kr. Sigurjónsson háskólanemi, Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísa- firði, Líneik Anna Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslunets Austurlands, Kristinn H. Gunn- arsson alþingismaður, Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands, og Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla. Að málþinginu standa Atvinnuþró- unarfélag Vestfjarða, Fjórðungs- samband Vestfirðinga, Fræðslu- miðstöð Vestfjarða og Ísafjarðarbær. Slitgigtarnámskeið er að hefjast hjá Gigtarfélagi Íslands þar sem áhersla er lögð á þætti sem tengjast því að lifa með slitgigt. Um er að ræða þrjú kvöld, einu sinni í viku og byrjar námskeiðið mánudaginn 8. mars kl. 19.30, í húsnæði félagsins í Ármúla 5, annarri hæð. Á námskeið- inu verður fjallað um sjúkdóminn, einkenni hans, meðferðarmöguleika og áhrif á daglegt líf, mikilvægi þjálfunar, slökun, aðlögun að breytt- um aðstæðum í tengslum við dagleg störf. o.fl. Leiðbeinendur verða Helgi Jónsson gigtarsérfræðingur, Erna J. Arn- þórsdóttir sjúkraþjálfari, Annetta A. Ingimundardóttir iðjuþjálfi, og Svala Björgvinsdóttir félagsráðgjafi. Upplýsingar og skráning á nám- skeiðið er á skrifstofu félagsins. Á NÆSTUNNI ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.