Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur að tillögu Leiklistarráðs út- hlutað styrkjum til atvinnu- leikhópa árið 2004. Til úthlutnar í ár voru samtals 40 milljónir króna og er það fimm milljónum krónum hærri upphæð en í fyrra. Alls bár- ust umsóknir frá 79 aðilum til 105 verkefna, þar af sjö umsóknir um starfsstyrki eða til leikstarfsemi. Er þetta nokkur fjölgun á um- sóknum milli ára því í fyrra bárust umsóknir frá 47 aðilum til 70 verkefna, en þá var úthlutað 35 milljónum króna, og árið 2002 bár- ust umsóknir frá 39 aðilum til 58 verkefna, en þá var úthlutað rúm- um 36,5 milljónum króna. Úthlutun er sem hér segir: Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör 11.230.000 kr. vegna starfssamnings. Leikhópurinn Á senunni 4.000.000 kr. til leik- starfsemi. Möguleikhúsið 4.000.000 kr. til leikstarfsemi. Vesturport 4.000.000 kr. til leik- starfsemi. Himnaríki ehf. 3.300.000 kr. til uppsetningar á Er einhver heima. Loftkastalinn 3.000.000 kr. til uppsetningar á Grímsævintýri. Annað svið 3.000.000 kr. vegna uppsetningar á Úlfhamssögu. Sokkabandið 2.900.000 kr. vegna Elskulegur faðir okkar. Pars Pro Toto 2.300.000 kr. vegna uppsetningar á Von. Sögusvuntan ehf. 1.270.000 kr. vegna uppsetningar á Egla í nýjum spegli. Stoppleikhópurinn 1.000.000 kr. vegna uppsetningar á Sámur og Keli. Stjórn starfslauna listamanna hefur að tillögu Leiklistarráðs ákveðið að veita eftirtöldum leik- hópum starfslaun úr Listasjóði sem hér segir: Hafnarfjarðarleik- húsið Hermóður og Háðvör tólf mánuðir. Nútímadanshátíð í Reykjavík tólf mánuðir. Himnaríki ehf. ellefu mánuðir. Vesturport tíu mánuðir. Sokkabandið tíu mán- uðir. Loftkastalinn átta mánuðir. Annað svið sjö mánuðir. Leik- húskórinn, Leikfélag Akureyrar sex mánuðir. Hið Lifandi leikhús sex mánuðir. Möguleikhúsið sex mánuðir. Thalamus, leikfélag sex mánuðir. Stoppleikhópurinn fjórir mánuðir. Warera tveir mánuðir. Í Leiklistarráði sitja Björn G. Björnsson, formaður, Hjálmar Hjálmarsson og Þórdís Arnljóts- dóttir. Morgunblaðið/Jim Smart Fulltrúar leikhópanna sem fengu styrk frá menntamálaráðuneytinu vegna verkefna þetta árið. 40 milljónir til atvinnuleikhópa Á RÁÐSTEFNU SÍM og Listahátíðar á sunnu- dag, þar sem meðal annars voru ræddar hug- myndir um myndlistartvíæring í Reykjavík, luku Jessica Morgan og Ólafur Elíasson fram- sögu sinni með því að segja frá dæmum um vel heppnaða og illa heppnaða tvíæringa. Þar sagði Ólafur frá reynslu sinni af tvíæringnum í Jó- hannesarborg, þar sem ekkert var gert til að skapa dýnamíska samræðu milli listamannanna og þess ólgandi samfélags sem þar var þá. Ólafur sagði að tvíæringar víðs vegar væru í ríkari mæli farnir að þróast frá því að vera hefð- bundnar sýningar til þess að hafa eitthvað að segja fyrir það samfélag þar sem þeir væru haldnir. „Nú er þróunin sú að þeir leita í sam- félagið sjálft á ýmsan máta. Vegna þessa vil ég tala um landakort myndlistarinnar og nauðsyn þess að kortleggja myndlistarumhverfið. Ef við gerum það ekki getum getum við misst sjónar á heildarmyndinni og tapað okkur í samræðu um minniháttar atriðin. Ég held að hvort sem við erum sammála um mikilvægi þess að efna til tvíærings eða ekki, þá verðum við að gera okk- ur grein fyrir því að það að halda slíka hátíð kallar á ábyrgð á framhaldinu. Það þarf hóp fólks til að axla þá ábyrgð og til að skilgreina hvernig uppbygging slíks tvíærings eigi að vera. Þessi hópur getur aldrei orðið lið einráðra skipuleggjenda. Hann þarf stöðugt að spyrja spurninganna hvers vegna – hvað hann vilji með listina og hvers vegna hún sé mikilvæg fyr- ir samfélagið. […] Hugmyndin um tvíæring ætti að skapa umræðu innávið milli ólíkra fag- félaga, listamanna og stofnana myndlist- arinnar. En umræðan ætti þó aldrei að vera ein- göngu innávið. Vel skipulagður tvíæringur, vel saman settur, með góðum efnivið, ætti líka að skapa umræðu í alþjóðlega umhverfinu. Ef tvíæringur heppnast vel hér verður hann um leið tilefni enn stærri umræðu á alþjóðlegum vettvangi, hvort sem það er í Mexíkó, New York, á næsta Manifesta-tvíæringi eða annars staðar. Tvíæringur þarf að skapa þessa al- þjóðlegu umræðu utan um staðbundnu um- ræðuna, ef hann gerir það ekki verður hann að teljast mislukkaður. Viðburðir af þessu tagi næra hver annan. Þetta snýst ekki bara um að íslenskur tvíæringur verði alþjóðlegur, heldur líka að alþjóðlegi myndlistarheimurinn þurfi á Íslandi að halda.“ Útlendingur stýri KÍM Tumi Magnússon myndlistarmaður hafði Ís- land að útgangspunkti í framsögu sinni og tengsl íslenskrar myndlistar við umheiminn voru honum jafnframt hugleikin. Hann sagði nauðsyn á að íslensk myndlist næði til stærra menningarsvæðis. Tengslin í dag væru bæði til- viljanakennd og illa skipulögð og þótt það væri gott að vera myndlistarmaður á Íslandi, þá vantaði mun meiri fagmennsku og kröfur hvar- vetna. „Ef okkur tekst að brjótast frá þeim tak- mörkuðu sýningarmöguleikum sem í boði eru í dag, hér heima, og halda einhverri framvindu og framhaldi í því sem við erum að gera – hvort sem það er hér eða erlendis – mun skapast hér allt annars konar andrúmsloft. Fleiri tækifæri geta af sér meiri eftirspurn og eftirspurnin kall- ar bæði á meiri gæði og örvun. […] Því betur sem íslenskt listalíf er kynnt erlendis, því auð- veldara er fyrir fólk þar að meta íslenska list.“ Tumi sagði Íslendinga í dag ekki virka þátt- takendur í því að móta alþjóðlegt listalíf, jafnvel þótt íslensk list hefði fulla möguleika á því að gera sig gildandi í því samhengi. Hann sagði reglulegt og óreglulegt sýningahald, auk ný- legrar stofnunar KÍM, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, geta breytt miklu um þetta. „Íslenskir listamenn verða að geta búið á Íslandi, en samt látið rödd sína hljóma á alþjóð- legum vettvangi,“ sagði Tumi. Augljóst er að miklar vonir eru bundnar við starfsemi KÍM, eins og Tumi Magnússon ítrek- aði. „Þetta verður vonandi sú stofnun sem hefur yfirsýn og þekkingu til að vinna af hlutlægni að því að bæta stöðu íslenskrar myndlistar bæði hér heima og erlendis.“ Markmið KÍM ætti í grundvallaratriðum að vera það, að mati Tuma, að auðvelda samgang íslenskrar listar og er- lendrar. Hann sagði nafn miðstöðvarinnar ekki endurspegla það sem þyrfti að felast í mark- miðum hennar, að samskiptin væru gagnvirk, – að við nytum góðs af annarra list jafnt og aðrir nytu góðs af okkar list. „Við verðum því að sjá til þess að KÍM verði ekki eingöngu markaðs- setningarfyrirtæki. Hlutverk þess ætti ekki að vera að kynna eingöngu örfáa listamenn. Hlut- verk þess ætti frekar að vera að miðla íslensku myndlistarlífi og myndlistarlífi annarra staða heiman og heim á gagnvirkan hátt.“ Tumi sagði það skoðun sína að ráða bæri út- lending sem forstöðumann KÍM. Fyrir stofnun sem ætlaði sér að starfa á alþjóðlegum vett- vangi væri nauðsynlegt að í það minnsta hluti starfskrafta kæmi þaðan. Hann sagði það sér- stakt, að í þeim hugmyndum sem nú væru uppi um starf forstöðumanns væri ekki gert ráð fyrir því að hann hefði mikil listræn völd. „Þetta kemur sérkennilega fyrir sjónir. Það virðist enginn tilgangur með því að fá forstöðumann erlendis frá, ef þetta á eingöngu að vera fram- kvæmdastjórastarf.“ Nauðsyn að leita innávið Tumi þakkaði Listahátíð það frumkvæði að beina sviðsljósinu að samtímalist árið 1005 og ráða til sín sérstakan og mjög hæfan sýning- arstjóra af því tilefni. Tumi sagði að nú þyrfti að fara að ræða hvað kæmi í framhaldi af þeim við- burði; hvort það yrði listahátíð með áherslu á myndlist, eða annars konar alþjóðlegur list- viðburður, stakur eða áframhaldandi; tvíær- ingur, þríæringur, – eða bara viðburður sem kæmi með óreglulegu millibili. Elísabet Gunnarsdóttir er forstöðumaður vinnustofusetursins í Dalsåsen, sjálfseign- arstofnunar norður af Bergen á vesturströnd Noregs, og kynnti starfsemi þess í framsögu sinni. Elísabet sagði að á Íslandi væri sú tilhneig- ing sterk, að upphefja alþjóðlega hugsun. Í besta falli leitaði hún gæða hvar sem þau væri að finna, en í versta falli gæti hún orðið með- almennsku að bráð. Hún sagðist persónulega fremur kjósa það sem væri einstakt, og taldi myndlistarheiminn frekar þurfa á slíku að halda en meginstraumunum. „Listamaðurinn þarf að vinna út frá eigin hugarheimi, sem mót- aður var í bernsku, af landslagi, loftslagi, tungumáli, hefðum og menningu þess umhverf- is sem hann er sprottinn úr. Þetta er eitthvað sem hann ber með sér allt sitt líf, mótar hann sem manneskju og listamann og hefur afger- andi áhrif á verk hans.“ Elísabet sagði að þrátt fyrir að kjarni list- sköpunarinnar væri í kringum höfuðborg- arsvæðið væri mikilvægt að hlúa að metn- aðarfullu starfi um allt land, og slíkt væri hægt að efla með hvers konar vinnusetrum. Elísabet varaði við því að útlendingur yrði ráðinn til að veita KÍM forstöðu. „Það er ekki einfalt mál að skynja samfélagssál, hvað þá ein- staklingana sem hafa mótast af henni og tekið þátt í að móta hana og tjá sig á þeim grunni, eins og myndlistarmenn. [Útlendingur] skilur hana ekki einu sinni, þótt [hann] sé hluti af henni sjálfur. [Hann] nær í besta falli að skynja hana en skilur hana ekki til hlítar. Það er fínt að fá utanaðkomandi sýn á hlutina af og til, en þeg- ar á að taka ákvarðanir og framkvæma eitthvað sem skiptir verulegu máli, og byggist á innri þekkingu, verður að leita innávið. Það verður að taka áhættuna af því að sækja innávið, hvað sem það kostar.“ Af heimslist og heimalist Morgunblaðið/Þorkell Myndlistarráðstefnan í Hafnarhúsinu síðastliðinn sunnudag var fjölsótt. Hér fer úttekt á síðari hluta framsagna á ráðstefnu SÍM og Listahátíðar á sunnudag. Bergþóra Jónsdóttir sat ráðstefnuna og fylgdist með. begga@mbl.is FJÓRÐU tónleikarnir í Tónleika- röð kennara Tónlistarskóla Kópa- vogs á þessu starfsári verða í Salnum kl. 20 í kvöld. Fimm af kennurum skólans leika Píanó- kvintett op. 87 í Es-dúr eftir Hum- mel, Bagatelle fyrir kontrabassa eftir Óliver Kentish, Kvartett fyr- ir kontrabassa, fiðlu, víólu og selló eftir Hoffmeister o.fl. Flytjendur eru Arnþór Jónsson, selló, Guð- rún Þórarinsdóttir, víóla, Margrét Kristjánsdóttir, fiðla, Nína Mar- grét Grímsdóttir, píanó, og Þórir Jóhannsson, kontrabassi. Þetta er fjórða árið sem kenn- arar skólans halda tónleika í Saln- um í samvinnu við Kópavogsbæ. Tónleikar þessir hafa verið fernir til fimm ár hvert og á þessum vettvangi hefur nemendum og að- standendum þeirra gefist kostur á að hlusta á kennara skólans og kynnast þeim betur sem lista- mönnum, en tónleikarnir eru ann- ars opnir öllum. Tónlistar- kennarar flytja kammertónlist Morgunblaðið/Ásdís Þau leika í Salnum: Guðrún Þórarinsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Þórir Jóhannsson, Arnþór Jónsson og Nína Margrét Grímsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.