Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 47  JÓNAS Hlynur Hallgrímsson, ungur frjálsíþróttamaður úr FH, bætti persónulegan árangur sinn og setti um leið Íslandsmet í flokki 21 til 22 ára í sjöþraut á háskólamóti í Seattle í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Jónas hlaut 5.437 stig og bætti sinn fyrri árangur um 700 stig. Hann hljóp 60 m á 7,42 sek., stökk 7,02 m í langstökki, varpaði kúlu 12,70 m, stökk 1,96 m í hástökki, hljóp 60 m grindahlaupi á 8,52 sek., stökk yfir 4,50 í stangarstökki og hljóp 1.000 m á 2.42,50. Þess má til gamans geta að Jónas Hlynur er bróðir Ásgeirs Arn- ar landsliðsmanns í handknattleik úr Haukum.  TINNA Mark Antonsdóttir, knattspyrnukona frá Siglufirði, er gengin til liðs við Stjörnuna. Tinna, sem er 19 ára og dóttir Marks Duf- fields, hins gamalkunna knatt- spyrnumanns, hefur leikið 32 leiki með Þór/KA/KS í úrvalsdeildinni síðustu árin og á að baki fjóra leiki með stúlknalandsliði Íslands.  HANNES Þ. Sigurðsson var í liði Viking sem sigraði bandaríska liðið San José Earthquakes, 5:3, í víta- spyrnukeppni á móti á La Manga í gær. Staðan eftir venjulegan leik- tíma og framlenginu var jöfn, 1:1. Viking leikur til úrslita á mótinu við bandaríska liðið New York/New Jersey MetroStars á föstudag.  PHILIP Cocu, hollenski knatt- spyrnumaðurinn, er orðinn leikja- hæsti útlendingurinn í sögu Barce- lona. Hann lék sinn 193. leik fyrir félagið á sunnudag þegar lið hans vann Deportivo La Coruna í spænsku 1. deildinni og sló metið sem landi hans, Ronald Koeman, átti. Cocu hefur leikið með Barce- lona í sex ár.  JÁKUP á Borg, færeyski lands- liðsmaðurinn í knattspyrnu, hefur verið leigður frá B36 til danska úr- valsdeildarliðsins OB til 31. maí.  LENNART Johansson, forseti UEFA, hefur biðlað til Henriks Larssons, leikmanns Celtic í Skot- landi að hann gefi kost á sér í sænska landsliði á EM í Portúgal í sumar. Fleiri merkismenn hafa gert slíkt hið sama, meðal annars sænski forsætisráðherrann og 110.000 Svíar í bænarskjali sem birtist í Afton- bladet nýverið.  LARSSON hafði tilkynnt að hann ætlaði að leggja landsliðsskóna á hilluna en Johansson segir að sænska þjóðin vilji hafa hann og að þjálfarar liðsins vilji hafa hann og að allt verði gert til að fá hann til að leika með á EM.  CHRIS Ford, þjálfari NBA-liðsins Philadelphia 76’ers, segir að þrátt fyrir að hann hafi sektað aðalstjörnu liðsins Allen Iverson tvívegis á und- anförnum vikum sé samband þeirra ágætt. Iverson lék ekki með 76’ers gegn Minnesota Timberwolves á sunnudaginn vegna magakveisu. FÓLK „VIÐ erum farnir að ræða saman en það hefur ekki leitt til neinnar niðurstöðu ennþá. Vonandi kemur eitt- hvað út úr því á næstunni,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, landsliðsmaður í hand- knattleik og leikmaður þýska liðsins Wallau Mass- enheim, spurður hvort eitt- hvað væri að gerast í mál- um hans og félagsins varðandi endurnýjun samning hans við það. Núverandi samningur Rún- ars rennur út í vor en hann gerði aðeins ein árs samning við Wallau á síðasta sumri eftir að hann losnaði undan samningi við spænska liðið Ciudad Real. Rúnar hefur áhuga á að leika ytra í eitt til tvö ár til viðbótar. Wallau Massenheim hef- ur átt í fjárhagserfið- leikum en nú virðist eitt- hvað hafa rofað til og á dögunum framlengdi fé- lagið samning sinn við tvo leikmenn þess sem voru í líkri stöðu og Rúnar er í. Einar Örn Jónsson hornamaður sem einnig leikur með Wallau Massenheim á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið sem er í 10. sæti þýsku 1. deildarinnar og leikur í kvöld á heimavelli gegn Nordhorn. Rúnar Sigtryggsson er í viðræðum við Wallau Rúnar ÁRNI Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, reiknar með að setjast niður með for- ráðamönnum enska úrvalsdeild- arliðsins Manchester City á næst- unni og ræða framtíð sína hjá félaginu en samningur hans við Manchester-liðið rennur út í lok maí. „Það er óljóst hvað tekur við hjá mér. Mér hefur ekki verið boðinn nýr samningur enn sem komið er en það getur vel verið að svo verði. Ég hef allavega fengið góð orð í eyra og forráðamenn liðsins hafa verið ánægðir með mig. Það er samt ekkert gefið að ég verði áfram hjá Manchester City þó svo að mér verði boðið að vera áfram. Ég vil eðlilega komast að sem að- almarkvörður og ég mun því skoða það vel ef einhverjir aðrir kostir bjóðast,“ sagði Árni Gautur við Morgunblaðið í gær. Árni Gautur leysti landsliðsmarkvörðinn David James tvívegis af hólmi á milli stanganna hjá City í síðasta mán- uði, bæði skiptin í bikarkeppninni. Í fyrra skiptið í eftirminnilegum leik á móti Tottenham á White Hart Lane, þar sem hann átti stjörnuleik, og síðan gegn meisturum Man- chester United á Old Trafford. Óvissa hjá Árna Gauti Það er mjög skemmtilegt aðhorfa á þá leika með Arsenal, sem leikur hraðan og skemmtilegan sóknarleik og þá er keppnisskap leikmanna liðsins mjög gott. Leik- menn Arsenal hafa greinilega mikla skemmtun af því sem þeir eru að fást við. Það hefur hjálpað Henry, Vieira og Pires mikið að leika með Arsenal – þeir hafa orðið mjög góðir leikmenn við að leika með liðinu í hinni hörðu keppni sem er í Eng- landi. Vieira og Henry eru stórkostlegir leikmenn og Pires hefur farið upp í háan gæðaflokk síðan hann byrjaði að leika með Arsenal,“ sagði Platini, sem er stjórnarmaður í Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Hann sagði að hann myndi reyna hvað hann gæti til að aðstoða Arsen- al, ef liðið leikur í bikarúrslitaleikn- um í Englandi, sem fer fram aðeins tveimur dögum eftir 100 ára afmæl- isleik FIFA í París 20. maí, þar sem Frakkland og Brasilía mætast. Ef Arsenal leikur til úrslita í bik- arkeppninni, þá gætu Vieira, Henry, Pires og Sylvain Wiltord ekki tekið þátt í undirbúningi liðsins og heldur ekki Gilberto Silva, leikmaður Bras- ilíu. „FIFA hefur verið að undirbúa afmælisleikinn í fjögur ár. Ég er viss um að Arsenal og önnur lið í Englandi, sem koma til með að leika bikarúrslitaleikinn, geta unnið með okkur til að finna lausn á vanda- málum sem geta komið upp. Það er stutt á milli Parísar og London, þannig að það ætti að vera fljótlegt að koma leikmönnum á milli staða,“ sagði Platini. „Það væri gaman að mæta Arsenal“ Brasilíumaðurinn Roberto Carlos hjá Real Madrid tók undir með Platini, er hann var spurður um Arsenal. „Þegar þú sérð leikmenn eins og Thierry Henry og Patrick Vieira í sama liði, þá getur það ekki verið nema gott – þeir eru tveir af bestu knattspyrnumönnum heims. En þeir tveir geta ekki borið uppi heilt lið – Arsenal hefur frábæra leikmenn í öllum stöðum, góða liðs- heild og Arsene Wenger, sem er snjall þjálfari. Leikmenn Arsenal kunna svo sannarlega að leika samba-knattspyrnu. Það væri gaman ef Arsenal og Real Madrid mættust. Við erum einnig með frábæra leikmenn eins og Luis Figo, Zinedine Zidane, Ron- aldo, Cambiasso, Raul og Beckham. Það væri gaman að sjá þá berjast við leikmenn eins og Bergkamp, Edu, Pires, Vieira og Henry. Báðar fylkingarnar eru þekktari fyrir að sækja en að verjast. Við erum með sókndjarfa bakverði og það er Ars- enal einnig, eins og enska landsliðs- bakvörðinn Ashley Cole,“ sagði Carlos, og bætti við að það væri greinilega mikil stemning og metn- aður hjá Arsenal, sem væri með frá- bært lið, góðan framkvæmdastjóra og væri að fara að byggja nýjan keppnisvöll í London. Reuters Thierry Henry og samherjar hans fagna marki gegn Charlton á Highbury – Lauren, Pat- rick Vieira, Fredrick Ljungberg, Dennis Bergkamp og Henry, sem skoraði. Michael Platini hrifinn af löndum sínum hjá Arsenal og leik liðsins Arsenal getur orðið Evrópumeistari í vor „ARSENAL leikur einna fallegustu knattspyrnuna í Evrópu um þessar mundir og það getur hjálpað liðinu til að fagna sigri í Meist- aradeild Evrópu – það hefur alla burði til þess,“ segir Michel Platini, fyrrverandi fyrirliði franska landsliðsins og þjálfari Frakklands. Platini, sem var útnefndur besti leikmaður Evrópu þrjú ár í röð er hann lék með Juventus á árum áður, var á meðal áhorfenda er Ars- enal lagði Charlton á Highbury. Hann var mjög hrifinn af leik landa sinna Thierry Henry, Patricks Vieira og Roberts Pires – hefur trú á að þeir verði lykilmenn með Arsenal í Evrópubaráttunni og einnig með franska landsliðinu í Evrópukeppninni í Portúgal í sumar. LAUGARDAGINN 27. mars kemur í ljós hvaða fimm þjóðum Íslendingar verða í riðli með í handknattleikskeppni Ólymp- íuleikanna en þá verður dregið í riðla fyrir leikana sem settir verða í Aþenu í Grikklandi 13. ágúst. Dregið verður í Aþenu í tengslum við mót sem þar fer fram en í því taka þátt Grikkir, Þjóð- verjar, Ungverjar og Egyptar og á mótið að vera eins konar prufa fyrir Ólympíu- leikana. Tólf þjóðir taka þátt í handknattleik- skeppni ÓL og verður þeim skipt í tvo riðla. Þjóðirnar tólf eru Íslendingar, Króatar, Þjóðverjar, Frakkar, Spánverjar, Rússar, Ungverj- ar, Slóvenar, Egyptar, Suður-Kór- eumenn, Brasilíumenn og gestgjafarnir Grikkir. Stutt í ÓL-dráttinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.