Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ  DAGUR Sigurðsson er ennþá að glíma við meiðsli og gat þess vegna ekki leikið með lærisveinum sínum í Bregenz þegar þeir unnu Aon Fivers, 26:23, á heimavelli um liðna helgi í austurrísku 1. deildinni í handknattleik. Bregenz er í efsta sæti deildarinnar.  RÓBERT Gunnarsson, línumaður Århus GF, er þriðji markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinn- ar í handknattleik um þessar mund- ir. Róbert hefur skorað 96 mörk í 18 leikjum. Micke Næsby, leikmaður Fredericia HK, er langmarkahæst- ur með 129 mörk. Næstur er Kasper Nielsen, leikmaður GOG og ein helsta stjarna danska landsliðs- ins á EM í Slóveníu. Nielsen hefur skorað 100 mörk, fjórum fleiri en Róbert.  ÓLAFUR Sigurjónsson skoraði 9 mörk fyrir Tres de Mayo um helgina þegar lið hans og Hlyns Jó- hannessonar, markvarðar, tapaði á heimavelli, 37:38, fyrir Summa Hot- eles í spænsku 2. deildinni í hand- knattleik. Þetta var lykilleikur í fallbaráttunni og Tres de Mayo, sem var yfir nær allan leikinn, er nú illa statt á botni deildarinnar, átta stigum frá því að komast úr fallsæti þegar níu umferðum er ólokið.  DANSKA knattspyrnufélagið FC Köbenhavn hyggst draga enska fé- lagið Leicester City fyrir dómstóla vegna skuldar sem nemur um 35 milljónum íslenskra króna. Leicest- er keypti Jacob Laursen af FC Köbenhavn fyrir tveimur árum en hefur ekki staðið í skilum.  FLEMMING Östergaaard, for- maður FC Köbenhavn, segir að fé- lagið hafi enga hjálp fengið frá UEFA og FIFA, sem hafi vísað í enskar reglur um félög sem sett eru í fjárhagslega gjörgæslu. Þolin- mæðin sé nú á þrotum og því verði farið í mál. „Slíkar reglur standast ekki fyrir dönskum dómstólum, og að áliti hérlendra lögfræðinga standast þær heldur ekki á alþjóða- vísu,“ sagði framkvæmdastjóri danska knattspyrnusambandsins, Jim Stjerne Hansen, við Politiken í gær.  FLEIRI dönsk félög telja sig eiga svipaðar kröfur á hendum enskum félögum. Ipswich hefur ekki greitt AaB um 12 milljónir íslenskra króna fyrir Thomas Gaardsöe sem var seldur þangað á sínum tíma, og hefur Álaborgarfélagið fengið sömu svör og FC Köbenhavn hjá UEFA og FIFA.  HOLLENSKA knattspyrnusam- bandið hefur ákveðið að rannsaka nánar kaup enska liðsins Fulham á táningnum Collins John frá hol- lenska liðinu Twente. Umboðsmað- ur hins 18 ára gamla stráks, sem fæddur er í Lýbíu, er ekki með til- skilin réttindi og því verður málið rannsakað. FÓLK DANSKA knattspyrnufélagið AGF, þar sem Helgi Sigurðsson er leikmaður og Ólafur H. Kristjánsson aðstoðarþjálfari, á yfir höfði sér að vera útilokað frá þátttöku í Evrópukeppni á þessu ári. Samkvæmt leyfiskerfi UEFA verður eiginfjárstaða félag- anna að nema minnst fjórðungi af launagreiðslum á árs- grundvelli en samkvæmt reikningum fyrir síðustu sex mánuði sem AGF lagði fram fyrir helgina er eiginfjárstaða félagsins neikvæð um sem nemur 27 milljónum íslenskra króna. Forráðamenn AGF segja að þessar tölur verði komnar í lag í lok júní en það er ekki nóg til þess að fá keppnisrétt í Evr- ópumótunum á þessu ári. Þær verða að liggja fyrir hinn 1. apr- íl, annars er Evrópudraumurinn úr sögunni í ár. AGF er í sjöunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og þarf að taka góðan kipp á síðasta þriðjungi tímabilsins til að eiga möguleika á Evrópusæti. Sá endasprettur yrði hins vegar til einskis ef fjármál félagsins verða ekki lagfærð áður en þessi mánuður er úti. AGF í vandræðum með leyfiskerfið „ÉG tel að íslenska liðið eigi ágæta mögu- leika á að komast áfram í lokakeppnina,“ sagði Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, en einn riðill af átta í und- ankeppni Evrópumóts 19 ára kvenna- landsliða fer fram hér á landi 9.–11. apríl. Leikið verður í íþróttahúsinu á Seltjarn- arnesi en auk Íslendinga eru Danir, Slóv- akar og Úkraína í riðlinum. Tvær efstu þjóðirnar komast áfram í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Tékklandi 30. júlí til 8. ágúst sem er talið auka mjög möguleika íslenska liðsins sem verður undir stjórn Gunnars Magnússonar og Ágústs Jóhannssonar. Einar segir að HSÍ taki öðru hverju að sér að halda riðlakeppni undanmóta EM en huga verði vel að kostnaði í hvert skiptið. „Það er alltaf nokkuð umfangs- mikið verk að taka að sér mótshald af þessu tagi. Það þarf að hugsa alla hluti til enda en við teljum það nauðsynlegt að taka þetta að okkur öðru hverju,“ sagði Einar. Karlaliðið beint úr úrslitakeppni EM Í sumar fer fram Evrópumót 20 ára landsliða karla og hefur íslenska lands- liðið þegar tryggt sér sæti í henni sem fram fer í Lettlandi 6.–14. ágúst vegna sigurs sama árgangs á EM 19 ára lands- liða á síðasta ári. Ísland, Þýskaland, sem varð í öðru sæti á EM 19 ára liða í fyrra og gestgjafarnir Lettar, þurfa því ekki að taka þátt í undankeppni í apríl. Riðlakeppni EM verður á Seltjarnarnesi Bikarmót SKÍ er mótaröð þarsem keppendur safna sér bik- arstigum og þeir sem eru með flest stig þegar keppnistímabilinu lýkur eru Bikarmeistarar sambandsins. Gefin eru stig fyrir 30 efstu sætin í hverju móti og keppt er í svigi og stórsvigi. Um helgina voru í raun haldin þrjú mót, tvö stórsvigsmót og eitt svigmót. Fyrir fyrsta sætið eru gefin 100 stig, 80 fyrir annað, 60 fyrir þriðja, 50 fyrir fjórða og síðan er talið niður þannig að fyrir 30. sætið fæst eitt stig. Elín Arnarsdóttir frá Akureyri átti góða helgi á Dalvík, sigraði í báðum stórsvigsmótunum og varð í öðru sæti í sviginu og er því með 280 stig í efsta sæti stigakeppninnar í kvenna- flokki. Hrefna Dagbjartsdóttir, einnig frá Akureyri, er í öðru sæti með 204 stig, hún sigraði í sviginu, varð önnur í stórsviginu á laugardaginn en hlekktist eitthvað á í stórsviginu á sunnudaginn þar sem hún varð í 11. sæti og fékk aðeins 24 stig fyrir þann árangur. Í þriðja sæti í kvennaflokki er Sal- ome Tómasdóttir, sem einnig er frá Akureyri, en hún keppir einnig í flokki 15–16 ára og er þar með for- ystu. Í kvennaflokki er Salome hins vegar í þriðja sæti með 170 stig fyrir þriðja sætið í báðum stórsvigsmót- unum og fjórða sætið í sviginu. Hjá körlunum er Steinn Sigurðs- son úr Ármanni með forystu með 280 stig, varð annar í stórsviginu fyrri daginn og sigraði þá í sviginu og hann kom einnig á besta tímanum í mark í stórsviginu á sunnudaginn. Keppnin um annað sætið er hörð því þar er Kópavogsbúinn Andri Þór Kjartanssson nú með 200 stig eftir þriðja sætið í stórsviginu og sviginu á laugardeginum og annað sætið í stór- sviginu á sunnudaginn. Fast á hæla honum kemur Orri Pétursson úr Ár- manni með 196 stig en hann varð þriðji í svigi og stórsvigi á laugardeg- inum og annar í stórsviginu á sunnu- deginum. Snorri Páll Guðbjörnsson frá Dal- vík er ekki langt þar undan í fjórða sæti með 180 stig, en hann er fjórði í báðum stórsvigsmótunum og annar í svigmótinu. Eins og áður segir er Salome Tóm- asdóttir með forystu í flokki 15–16 ára stúlkna, en þar er hún með 280 stig, sigraði í báðum greinunum á laugardaginn en varð að játa sig sigr- aða í stórsvigi sunnudagsins. Agla G. Björnsdóttir úr Ármanni sigraði í þeirri keppni, varð önnur í stórsviginu daginn áður en fékk bara 26 stig í svigkeppninni og er því með 206 stig. Birta Helgadóttir úr Ár- manni er þriðja með 175 stig og Nína Björk Valdimarsdóttir, Reykjavík, er í fjórða sæti, fimm stigum þar á eftir. Guðjón Ólafur Guðjónsson, Ár- manni, er með 280 stig í flokki 15–16 ára drengja en hann sigraði í svig- keppninni og stórsviginu á laugar- deginum en varð annar í stórsviginu á sunnudaginn. Kári Brynjólfsson frá Dalvík kemur næstur með 240 stig eftir sigur í stórsviginu á sunnu- daginn, annað sætið í sviginu og það þriðja í síðara stórsvigsmótinu. Þor- steinn Ingason frá Akureyri er þriðji með 180 stig og Ingi Már Kjartans- son úr Kópavogi fjórði, tíu stigum þar á eftir. Elín og Steinn fögnuðu á Dalvík FYRSTA bikarmót Skíðasambandsins var haldið á Dalvík um liðna helgi. Þar var keppt í fullorðinsflokki og í flokki 15–16 ára. Ágætur árangur náðist og athygli vekur að nokkrir keppendur í yngri flokki blanda sér í baráttuna hjá þeim eldri einnig. Steinn Hrefna ALEX Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester Unit- ed, hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa Ruud van Nistelrooy á varamanna- bekknum í leik við Fulham, sem endaði 1:1. Ferguson seg- ir að kappinn hafi ekki verið hress eftir leikinn við Porto í Meistaradeildinni og því hafi hann hvílt hann. „Ég hef áður sagt að Ruud hefur dregið vagninn fyrir okkur lengi og við ættum ef til vill að skoða það aðeins og huga að því hvað er að gerast. Mér finnst ég sjá merki þess að hann sé að brenna út og ein af ástæð- unum fyrir því að ég keypti Louis Saha var að létta aðeins á Nistelrooy,“ segir Ferguson. Nistelrooy hefur verið í byrjunarliði United í 25 af 27 leikjum þess í deildinni í vetur og sex af sjö leikjum í Meist- aradeildinni. Nistelrooy útbrunninn?Talsmaður PSV, Pedro SalazarHewitt, staðfesti í gær að Robben hefði farið til London ásamt tveimur fulltrúum félagsins, Frank Arnesen og Peter Fossen. Auk þess að ganga frá sölunni á Robben væru þeir í viðræðum við forráðamenn Chelsea um náið samstarf á milli fé- laganna tveggja. Robben gekkst undir læknisskoðun hjá Chelsea á mánudaginn og í kjölfarið var geng- ið frá samningum. Arjen Robben varð tvítugur í jan- úar og þykir einn efnilegasti knatt- spyrnumaður í Evrópu. Hann hóf ferilinn með Groningen en gekk til liðs við PSV fyrir tveimur árum. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik á síðasta ári og þeir eru nú fjórir tals- ins. Robben skoraði sigurmark Hol- lendinga í vináttulandsleik gegn Bandaríkjamönnum í síðasta mán- uði. Litlu munaði að hann gengi til liðs við Manchester United fyrr í vetur en ensku meistararnir náðu ekki samkomulagi við PSV um kaup á honum. Robben hafði þá komið í heimsókn á Old Trafford en forráða- menn PSV lýstu yfir óánægju með Manchester United og sögðu að enska félagið hefði fyrst boðið 1.300 milljónir í Robben en síðan lækkað boð sitt um helming. „Manchester United var fyrst í röðinni og því létum við Chelsea bíða. En við urðum fyrir miklum vonbrigðum með síðara tilboð Unit- ed og hve mikið þeir héldu að þeir gætu lækkað verðið á leikmannin- um. Fyrst þá gáfum við Chelsea færi á að koma að málinu,“ sagði Harry van Raaij við hollenska fjöl- miðla í gær. „Robben er frábær viðbót við okkar leikmannahóp. Hann er fljót- ur og sterkur, skorar mörk og legg- ur upp mörk. Hann kann þetta allt og leikstíll hans hentar fullkomlega í úrvalsdeildina. Ég er afar ánægður með að hann skuli velja að ganga til liðs við okkur,“ sagði Claudio Rani- eri knattspyrnustjóri um nýjasta liðsmann sinn. Robben getur bæði leikið á vinstri kantinum og í framlínunni en talið er líklegast að hann eigi að slást við Damien Duff um kantstöðuna. Hann hefur skorað 7 mörk í 21 deildarleik fyrir PSV í vetur og á síðasta tíma- bili, hans fyrsta heila tímabili hjá fé- laginu, skoraði hann 12 mörk í 33 leikjum. Robben til Chelsea fyrir 1.560 milljónir ARJEN Robben, hinn bráð- efnilegi sóknarmaður PSV Eindhoven og hollenska lands- liðsins í knattspyrnu, er á leið- inni til Chelsea fyrir 12 milljónir punda, eða 1.560 milljónir ís- lenskra króna. Chelsea stað- festi þetta í gær en Robben gengur til liðs við enska félagið í sumar og lýkur þessu tímabili með PSV. Reuters Arjen Robben fagnar marki með PSV Eindhoven.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.