Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
kl. 4 og 6. Ísl tal.
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
KRINGLAN
kl. 8. Enskt tal.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5 og 8. b.i. 14 .
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 9.10. B.i. 16.
Heimur farfuglanna
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6 og 9.
ÓHT Rás2
VG DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Sýnd kl. 8.05.
SV MBL
DV
SV MBL
HJ. MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
„Yndislegt kraftaverk;
sönn, djúp og fyndin
kvikmynd!“
-Roger Ebert
„Bráðfyndin“
HJ. MBL
„Ótrúlega áhrifarík.
Frumleg, fyndin og
elskuleg.“
-BÖS, Fréttablaðið
Sean Penn
besti leikari
í aðalhlutverki
Tim Robbins
besti leikari
í aukahlutverki
Renée Zellweger
besta leikkona
í aukahlutverki
Skonrokk
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Kvikmyndir.com
SÍÐASTA haust fór leikhópur frá
Íslandi, kenndur við Vesturport, til
Lundúna og sýndi þar frumlega út-
færslu sína á sígildu leikriti William
Shakespeare, Rómeó og Júlía. Sýn-
ingin féll einkar vel í kramið í
heimalandi skáldsins og fékk lof-
samlega dóma.
Með í för var leikstjórinn Ragnar
Bragason og fylgdi hann hópnum
dag og nótt með myndavélar. Af-
raksturinn verður svo forsýndur á
morgun sem heimildarmyndin
Love is in the Air. Þetta er fyrsta
heimildarmynd Ragnars í fullri
lengd en hann á að baki kvikmynd-
ina Fíaskó, átti innslag í Villiljós og
hefur gert mikið af efni fyrir sjón-
varp svo og tónlistarmyndbönd.
Mikið grenjað
Hvert var nú upphaf þessa verk-
efnis?
„Síðasta sumar fékk hópurinn
boð um að fá að fara út og setja upp
leikritið. Á þessum tíma var ég að
vinna með þeim í öðru verkefni sem
datt upp fyrir út af þessu boði. Ég
stakk upp á því í gríni hvort ég ætti
ekki bara að skella mér með og
gera heimildarmynd, svona svo ég
hefði eitthvað að gera í millitíðinni.
Tökur hófust svo í lok ágúst og
stóðu fram í nóvember með ein-
hverjum hléum. Þannig að ég
fylgdi hópnum eftir frá fyrstu sek-
úndu til þeirrar síðustu.“
Hvernig gekk eftirvinnslan svo?
„Þetta eru búnir að vera átján
tímar á dag síðan í október. Þetta
voru um áttatíu klukkutímar af efni
sem við þurftum að fara í gegnum
og það var heilmikill höfuðverkur.“
Hvað miðaðir þú við þegar þú
valdir úr efninu?
„Það var eðlilega óljóst í byrjun
hvernig niðurstaðan af þessu æv-
intýri yrði. Hvort þetta yrði kómed-
ía eða tragedía (hlær). Ég mótaðist
eiginlega af grískum hetjusögum,
um lítilmagnann sem er að fara að
berjast við óvættinn og sigra
hann.“
Og síðan varð þetta mjög farsæl
ferð ...
„Já, sem betur fer þá varð þetta
að gleðimynd frekar en harmleik.
En leiðin að þessum sigrum þeirra
var þyrnum stráð og myndin fjallar
að mestu leyti um þá ferð. Sigurinn
kom svo í endann og er ekki þannig
séð neitt stór hluti af myndinni. Ég
reyndi að einblína á fólkið sjálft og
hvernig þau voru að höndla þetta
allt saman. Þannig að myndin er
ekki eintómur hlátur, það er mikið
grenjað í þessari mynd.“
Barstu vinnu þína undir leikhóp-
inn?
„Í rauninni ekki. Það var strax
gert að skilyrði að ég hefði fullt
vald yfir því efni sem tekið yrði – að
þetta yrði engin glansmynd af fólk-
inu. Ég var mjög spenntur þegar ég
sýndi þeim myndina og bjóst við
einhverjum mótbárum en þau voru
bara glöð með þetta.“
Ný tækni
Sem leikmanni finnst manni
heimildarmyndir vera mikið í tísku
um þessar mundir. Hvað segir þú
um það?
„Það er alveg rétt. Það hefur
verið mikil bylgja af svona myndum
síðustu fjögur, fimm árin. Ein skýr-
ingin er sú að tæknin er orðin ódýr-
ari, menn hafa tök á því að standa í
heimildarmyndagerð án þess að
það kosti hönd eða fótlegg.“
Hvað er svo
framundan hjá
þér?
„Ég er með
tvö verkefni í
gangi. Annars
vegar mynd
sem ber vinnu-
heitið Hvísl-
arinn og er
nokkuð stór
mynd; ég er
búinn að vera með hana í vinnslu í
um fjögur ár. Svo er ég búinn að
vera með gæluverkefni í gangi
ásamt þessum sama hóp og er í
Love is in the Air. Það er lítil
dramatísk kvikmynd á stafrænni
tækni. Vinnutitillinn er Kvikindi.“
Hópurinn sem kemur fyrir í Love
is in the Air eru þau Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Filippusdóttir,
Björn Hlynur Björnsson, Ingvar E.
Sigurðsson, Ólafur Egill Egilsson,
Árni Pétur Guðjónsson, Ólafur
Darri Ólafsson, Margrét Vilhjálms-
dóttir, Víkingur Kristjánsson og
Erlendur Eiríksson. Tökumaður
var Börkur Sigþórsson og hljóð-
maður var Harpa Þórsdóttir.
Klipping var í höndum Sverris
Kristjánssonar og Sigvalda Jóns
Kárasonar.
Framleiðendur eru Kristín Ólafs-
dóttir og Árni Svanur Daníelsson
fyrir Klikk Productions.
Love is in the air forsýnd á morgun
Þyrnum stráð sigurganga
Ný heimildarmynd eftir Ragnar Bragason verður forsýnd á
morgun í Háskólabíói. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi
við leikstjórann um tildrög myndarinnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ragnar og félagar fylgdust með hópnum dag og nótt í um þrjá mánuði.
Ragnar Bragason
Love is in the air verður forsýnd í Háskólabíói á morgun klukkan 20.30 en
verður svo tekin til almennra sýninga á föstudaginn. Verður hún þá sýnd í
Háskólabíói og í Sambíóunum í Keflavík og á Akureyri.
arnart@mbl.is
PLATA Mínuss, Halldór Laxness,
fær mjög góða dóma í nýjasta hefti Q
(aprílheftið) eða fjórar stjörnur af
fimm.
Rýnirinn, Henry Day, fer mikinn í
lýsingarorðunum. Segir hann tónlist
Mínuss vera ferska vindhviðu, gítar-
arnir séu sem glundroði og söngur-
inn í senn valds-
mannslegur og
kvalafullur. Day
bendir svo á að
kvintettinn hafi
greinilega metn-
að umfram venju-
legt hart rokk.
Lög eins og „Romantic Exorcism“
og „Flophouse Nightmares“ búi yfir
gotneskum áhrifum, „Last Leaf
Upon The Tree“ minni á Portishead
og í „The Long Face“ sé afskræmd-
ur saxófónleikur. Í lokin segir að
platan sé beitt sem grýlukerti og
sveimi um einskismannslandið á
milli Muse og Interpol (!?).
„Beitt sem grýlukerti“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Mínus. Myndin er tekin eftir tónleika í Íþróttahúsinu á Torfnesi, Ísafirði,
sem fram fóru á miðvikudaginn í síðustu viku.
Halldór Laxness: Fjórar stjörnur í Q
LÁRUS Gunnar Jónasson, mat-
reiðslumaður á Sjávarkjallaranum,
kom sá og sigraði í mjög jafnri og
erfiðri keppni á milli 12 mat-
reiðslumanna. Í öðru sæti var
Gunnar Karl Gíslason, mat-
reiðslumaður á Vox, Nordica Hótel
og í því þriðja var Sigurður Gísla-
son einnig frá Vox, Nordica Hótel.
Undankeppnin fór fram föstu-
daginn 27. febrúar þar sem þessir
þrír komust áfram ásamt Alfreð
Ómari Alfreðsyni, og Róberti
Ólafssyni. Úrslitakeppnin var svo
haldin sunnudaginn 29. febrúar og
var keppnin jöfn og spennandi.
Lárus Gunnar Jónasson hefur
tekið þátt í keppninni um mat-
reiðslumann ársins áður en árið
2002 lenti hann í þriðja sæti.
Gunnar Karl Gíslason hefur
einnig tekið þátt áður í keppninni
en hann hafnaði í öðru sæti árið
2002. Lárus G. Jónasson með sigurlaunin.
Matreiðslumaður
ársins valinn