Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ STAÐAN á stórskákmóti Hróksins og Fjölnis í Rima- skóla er gríðarlega jöfn eft- ir sex umferðir, en franski stórmeistarinn Joel Lautier stal toppsætinu af Ivan Sokolov þegar hann sigraði ofurstórmeistarann í hörkuviðureign í gær. Laut- ier leiðir nú mótið með hálf- um vinningi og eru tíu aðrir skákmenn hálfum vinningi á eftir honum. Íslenskir skákmenn gera það mjög gott á mótinu, en Bragi Þorfinnsson kom þægilega á óvart þegar hann sigraði Pavel Tregu- bov með svörtu mönnunum. Bróðir Braga, Björn, vann ekki minna afrek þegar hann sigraði Tomas Oral. Íslendingar eru nú í fimm af ellefu efstu sætunum. Á meðal yngri keppenda í mótinu náði Hjörvar Steinn Grétarsson góðum úrslitum gegn Sigurði Páli Stein- dórssyni en skák þeirra endaði með jafntefli. Hjörv- ar Steinn og Ingvar Ás- björnsson hafa náð bestum árangri ungra skákmanna á mótinu og eru með þrjá og hálfan vinning. Íslendingar sigursælir á stórmóti Hróksins og Fjölnis Morgunblaðið/Ómar Nýbakaður Norðurlandameistari í skák 10 ára og yngri, Hjörvar Steinn Grét- arsson, hefur staðið sig vel á Stórmóti Hróksins og Fjölnis. Hefur hann hlotið þrjá og hálfan vinning eftir fyrstu sex umferðirnar. Skákmótinu lýkur í dag. DAGFORELDRAR í Reykjavík eru óánægðir með þær breytingar sem félagsmálaráðuneyti hefur lagt til að gerðar verði á reglugerð um daggæslu í heimahúsum og gera ráð fyrir að börnum verði fækkað úr fimm í fjögur. Á fundi dagforeldra af öllu landinu, sem haldinn var í Gerðubergi í gær- kvöldi, voru drögin kynnt. Í drögum að nýrri reglugerð sem ráðuneytið sendi sveitarfélög- um og félögum dagforeldra til um- sagnar hinn 9. febrúar sl. kemur fram að hvert dagforeldri, eða dag- móðir eins og segir í reglugerðinni, megi ekki hafa fleiri en fjögur börn. Þetta nýja ákvæði eru dag- foreldrar ósáttir við og telja að með þessu sé verið að kippa stoðum undan rekstri daggæslu í heima- húsum. Samkvæmt reglugerðinni sem hefur verið í gildi frá árinu 1992 má dagforeldri með a.m.k. eins árs starfsreynslu hafa fimm börn í sinni umsjá. Þær dagmæður sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru afar ósáttar enda yrðu breyt- ingarnar til þess að tekjur þeirra myndu skerðast um 20%. Ráðuneytið leysir ekki tekjuvanda dagforeldra Þorgerður Benediktsdóttir, lög- fræðingur í félagsmálaráðuneyti, segir helstu ástæðu þess að í nýrri reglugerð er gert ráð fyrir fjórum börnum á hvert dagforeldri en ekki fimm eins og nú er vera þá að börn í daggæslu í heimahúsum eru yngri en áður var. Hún segir flest börn sem eru í umsjá dagforeldra vera undir tveggja ára aldri. Þegar nú- gildandi reglugerð var tekin í notk- un, árið 1992, hafi staðan hins veg- ar verið önnur og meira um að eldri börn væru í daggæslu í heimahús- um. Leikskólaplássum hafi hins vegar aukist síðan þá og því hafi eldri börnum fækkað í daggæslu. Að sögn Þorgerðar er það ekki hlutverk félagsmálaráðuneytisins að taka ákvarðanir um hækkanir á niðurgreiðslum vegna daggæslu í heimahúsum til að vega upp á móti fækkun barna sem reglugerðar- drögin fela í sér. Sveitarfélögin í samvinnu við dagmæður verði að leysa þau atriði. Hlutverk ráðu- neytisins sé að setja dagforeldrum fagleg skilyrði. Dagforeldrar frá fasta niður- greiðslu frá sveitarfélagi fyrir hvert barn sem þeir annast um, en greiðslan nemur 14 þúsund krón- um á mánuði fyrir hvert barn sem er allan daginn hjá dagforeldri í Reykjavík. Miðað við fimm börn í gæslu nemur niðurgreiðslan því 70 þúsund krónum en lækkar í 56 þús- und krónur verði dagforeldrum gert að fækka í fjögur börn. Ofan á þessar greiðslur til dagforeldra bætist svo taxti sem ákveðinn er af viðkomandi dagforeldri. Algengt gjald sem foreldrar þurfa að greiða fyrir barn sem er hjá dagforeldri allan daginn er 39– 43 þúsund krónur á mánuði. Á móti því gjaldi kemur svo niðurgreiðsla sveitarfélagsins. Þær upplýsingar fengust hjá Leikskólum Reykjavíkur að gert er ráð fyrir að hver starfsmaður á leikskóla geti haft fjögur börn yngri en tveggja ára í sinni umsjá. Fjöldi barna á hvern starfsmann hækki með aldri þeirra og við fimm ára aldur sé miðað við að hver starfsmaður ráði við að hafa tíu börn í sinni umsjá. Yfirgnæfandi meirihluti barna í daggæslu í heimahúsum er undir tveggja ára aldri. Í drögum að reglugerð fé- lagsmálaráðuneytisins um dag- gæslu í heimahúsum er ekki gerð- ur greinarmunur á aldri barna í umsjá dagforeldra að öðru leyti en því að þar kemur fram að hvert dagforeldri má hafa fjögur börn í sinni umsjá undir sex ára aldri að meðtöldum þeim börnum sem fyrir eru á heimilinu, þó aldrei fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. Ný reglugerð um daggæslu umdeild NÝTT bankaráð Íslandsbanka er sjálfkjörið á aðalfundi félagsins nk. mánudag. Orri Vigfússon og Karl Wernersson taka þá sæti í banka- ráðinu en tveir núverandi banka- ráðsmenn gefa ekki kost á sér, þau Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs, og Guðrún Helga Lárus- dóttir. Frestur til að tilkynna um áhuga á bankaráðssæti í Íslandsbanka rann út í gær og höfðu þá eftirtaldir menn gefið kost á sér: Einar Sveinsson, Guðmundur B. Ólafsson, Helgi Magnússon, Jón Snorrason, Karl Wernersson, Orri Vigfússon og Víglundur Þorsteins- son. Þeir sem gefa kost á sér sem varamenn eru: Bjarni Finnsson, Guðmundur Ásgeirsson, Halldór Björnsson, Halldóra Þórðardóttir, Hilmar Pálsson, Jón Bjarni Gunn- arsson og Vilmundur Jósefsson. Þeir Bjarni og Jón Bjarni eru nýir varamenn en Friðrik Jóhannsson gaf ekki kost á sér. Karl og Orri nýir í bankaráð Íslandsbanka LAUNAKOSTNAÐUR nokkurra heilbrigðisstofnana á landsbyggð- inni jókst um 30,2% á árunum 2000- 2002 að frátöldum launatengdum gjöldum og var hækkunin u.þ.b. tvö- falt meiri en hækkun launavísitöl- unnar á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendur- skoðunar um niðurstöður könnunar á launaþróun starfsmanna nokkurra heilbrigðisstofnana á árunum 2000– 2002. Ríkisendurskoðun telur að skýr- ingarnar á þessari hækkun launa- kostnaðar séu einkum þrjár. Í fyrsta lagi miklar umsamdar launahækk- anir til sumra starfshópa, í öðru lagi launaskrið og í þriðja lagi aukið vinnuafl. Hæstu launagreiðslur til lækn- is námu 20 milljónum 2002 Í skýrslunni er vakin athygli á því hversu mikill munur er á heildar- greiðslum til lækna á heilbrigðis- stofnunum á landsbyggðinni og hversu háar þær geta orðið þar sem þær eru hæstar. Árið 2002 námu hæstu heildargreiðslur til einstaks læknis tæpum 20 milljónum króna en tæpum 14 milljónum króna þar sem þær voru lægstar. Meðalárs- laun hjúkrunarfræðinga á lands- byggðinni voru á bilinu 4,1–5,7 millj- ónir króna. Í skýrslunni kemur einnig fram að laun og aðrar greiðslur til lækna á landsbyggðinni eru verulega hærri en tíðkast á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi. Árið 2002 námu meðal- laun lækna sem þar vinna í fullu starfi um 9,5 milljónum króna. Fram kemur í skýrslunni að kjarasamningar sjúkrahúslækna á tímabilinu fólu í sér tæplega 26% hækkun launa en við úrskurð kjara- nefndar um laun heilsugæslulækna frá nóvember 2002 hækkuðu laun þeirra um 28–55% hjá þeim stofn- unum sem könnun Ríkisendurskoð- unar nær til og réðst hækkunin m.a. af samsetningu læknahóps. Fram kemur að fjármálaráðuneytið hefði metið kostnaðaráhrif kjarasamn- inga við starfsmenn stofnananna til 18–21% launahækkunar, allt eftir samsetningu starfsmannahóps, en í raun óx launakostnaðurinn um 30,2%. Sumir hópar fengu miklar umsamdar launahækkanir Stofnunin telur að einstakir starfshópar hafi fengið miklar um- samdar launahækkanir á tímabilinu 2000–2002, t.d. hafa laun lækna hækkað um 25,5% samkvæmt mati á kostnaðaráhrifum kjarasamninga og laun sjúkraliða um 31,5%. Laun á ársverk hjúkrunarfræðinga hækk- uðu að jafnaði um 18,5% á tímabilinu en fjármálaráðuneytið taldi að kostnaður við kjarasamninga þeirra ætti að leiða til 15% hækkunar. „Laun hjúkrunarfræðinga hafa því hækkað lítillega umfram kjara- samninga. Meðallaun þeirra á þeim stofnunum sem skoðaðar voru námu frá 4,1–5,7 [millj. kr.] árið 2002. Laun hjúkrunarfræðinga hjá LSH voru um 4,2 m.kr. og því lægri en á flestum þeirra sjúkrastofnana sem hér voru til skoðunar,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun bendir einnig á að talsvert launaskrið hafi átt sér stað innan sumra starfshópa um- fram kjarasamninga. Þetta launa- skrið er mismikið eftir hópum en mest hjá starfsfólki í rekstri og um- sýslu og hjúkrunarfræðingum. Launaskrið Ástæður launaskriðsins eru m.a. staðbundnir samningar einstakra starfshópa um launahækkanir og samanburður þeirra við laun sam- bærilegra hópa á öðrum stofnunum. Í þriðja lagi hefur vinnumagn á um- ræddum heilbrigðisstofnunum auk- ist nokkuð á tímabilinu 2000–2002 eða að meðaltali um 4,9%. Þyngst vegur fjölgun ársverka lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Ósamræmi milli launakerfis og fjárlagakerfis Ríkisendurskoðun bendir á að nýtt launakerfi ríkisins og launa- kerfi sjúkrahúslækna gefi stjórn- endum nú meiri möguleika en áður á að taka ákvarðanir um laun starfs- manna. Þetta krefst styrkrar stjórn- unar og aðgangs að upplýsingum sem ekki liggja alltaf fyrir á smærri stofnunum. Bent er á að á skorti samræmi milli launakerfisins og fjárlagakerf- isins. Með stofnanasamningum hafi myndast talsverður þrýstingur til hækkunar launa án þess að fjármun- ir væru fyrir hendi. „Í framgangs- samningum hjúkrunarfræðinga eru ákvæði um launaflokkatilfærslur vegna framþróunar starfsmanns og koma þær til viðbótar umsömdum launahækkunum. Ekki eru hins veg- ar fjárveitingar til að mæta þessum hækkunum og veldur það oft vand- kvæðum við að halda stofnunum inn- an fjárheimilda. Þetta er eitt skýr- asta dæmið um skort á samræmi milli launakerfisins og fjárlagakerf- isins,“ segi í skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Launakostnaður heilbrigðisstofnana óx tvöfalt meira en launavísitala samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar Læknar úti á landi á mun hærri launum                          !" #  $     %    &'() &*(& &'() &)(+ &,(- &.(, &+()     
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.