Morgunblaðið - 03.03.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
182 FÓRUST Í ÍRAK
Íraskir embættismenn segja að
a.m.k. 182 hafi beðið bana í árásum
eldsnemma í gær er beindust gegn
sjía-múslímum í landinu. 112 féllu í
Karbala, helgustu borg sjía-múslíma,
og 70 í Bagdad, höfuðborg Íraks.
Lýst hefur verið yfir þriggja daga
þjóðarsorg í Írak eftir ódæðisverkin í
gær en dagurinn er sá blóðugasti frá
því að meiriháttar hernaðarátökum
lauk í Írak í fyrra. Bandaríkjamenn
kenna Abu Mussab al-Zarqawi, sem
sagður er hafa tengsl við al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökin, um ódæðin.
Líf á Mars?
Bandaríska geimferðastofnunin
(NASA) segir engan vafa leika á því
að vatn var einu sinni að finna á yf-
irborði Mars og að aðstæður hafi
verið með þeim hætti að hugsanlegt
sé að líf hefði getað þrifist þar.
Kerry líklegur
Kosið var í gær í tíu ríkjum í for-
kosningum demókrata vegna for-
setakosninga sem fram fara í Banda-
ríkjunum í haust. Þótti afar líklegt að
John Kerry, öldungadeildarþing-
maður frá Massachusetts, myndi
endanlega tryggja sér útnefninguna
sem frambjóðandi Demókrataflokks-
ins.
Hnífur fundinn
Kafarar Landhelgisgæslunnar
fundu hníf í sjónum nálægt neta-
bryggjunni í Neskaupstað í gær eftir
nær tveggja daga leit að hugs-
anlegum sönnungargögnum vegna
líkfundarins í febrúar.
Raforka niðurgreidd
Dreifingarkostnaður raforku í
dreifbýli verður niðurgreiddur um
230 milljónir á ári og verður sá
kostnaður tekinn af fjárlögum í stað
sérstaks jöfnunargjalds á raforku-
dreifingu. Þetta er inntak frumvarps
sem iðnaðarráðherra lagði fram á Al-
þingi í gær.
Órói á gjaldeyrismarkaði
Gengi krónunnar veiktist um
0,57% í 11 milljarða króna við-
skiptum þegar mikill órói skapaðist á
gjaldeyrismarkaði í gær. Vísitalan
endaði í 120,6 stigum. Þá lækkaði Úr-
valsvísitalan um 2,38%, sem er mesta
lækkun á einum degi í tvö ár.
Smærri hluthafar verndaðir
Sex þingmenn úr öllum flokkum
lögðu í gær fram tvö frumvörp um
breytingar á lögum um verðbréfa-
viðskipti og hlutafélög með það að
markmiði að treysta hagsmuni
smærri fjárfesta í fyrirtækjum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/13 Minningar 32/37
Erlent 14/16 Kirkjustarf 41
Höfuðborgin 18 Bréf 42
Akureyri 19 Dagbók 44/45
Suðurnes 20 Íþróttir 46/49
Landið 21 Leikhús 50
Daglegt líf 22 Fólk 50/53
Listir 23/24 Bíó 50/53
Umræðan 25/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
Glasgow 14.490 kr.
London 16.900 kr.
Kaupmhöfn 16.900 kr.
Hamborg 16.900 kr.
Berlín 16.900 kr.
Nýr netsmellur
UMTALSVERÐ gjá er á milli launa-
krafna Starfsgreinasambandsins og
Flóabandalagsfélaganna annars
vegar og þeirra hækkana sem Sam-
tök atvinnulífsins bjóða í yfirstand-
andi kjaradeilu, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins.
SA leggur áherslu á að launa-
kostnaður hækki ekki meira hér á
landi en í samkeppnislöndunum. Eru
samtökin ekki reiðubúin að semja
um meiri hækkanir í upphafi samn-
inga en samið var um í seinustu
samningum og að prósentuhækkanir
lækki þegar líður á samningstímann,
sem gert er ráð fyrir að verði fjögur
ár. Í síðustu samningum nam pró-
sentuhækkun launa 3% í janúar 2002
og 2,75% 1. janúar 2003 hjá SGS. Því
til viðbótar kom svo 0,4 prósentu-
stiga hækkun 2002 skv. desem-
bersamkomulagi ASÍ og SA um rauð
strik í samningum vegna verðbólgu.
Í upphaflegri kröfugerð SGS og
Flóabandalags er farið fram á 5% ár-
lega launahækkun á fyrstu tveimur
árum samningsins og 4% á síðari
tveimur árunum. Náðst hefur sam-
komulag um að taka upp nýja launa-
töflu í tveimur áföngum 2004 og 2006
sem feli í sér launahækkun, sem
metin er til um 1% í hvort skipti.
Skv. heimildum úr verkalýðs-
hreyfingunni er mikil óánægja í röð-
um hennar, bæði vegna þess að ekki
hafa fengist svör frá ríkisstjórninni
um væntanlegt innlegg hennar til að
greiða fyrir samningum og ekki síð-
ur vegna þeirra hækkana sem SA
buðu á viðræðufundinum sl. mánu-
dag en launþegafélögin meta þær að
samanlögðu til 2–3% á ári.
Ólíkar
kröfur um
prósentu-
hækkanir
ELDINGU laust niður í Fokker-
flugvél Flugfélags Íslands (FÍ) á
leið til Akureyrar upp úr kl. tvö í
gær eða um tíu mínútum eftir að
vélin hóf sig á loft af Reykjavík-
urflugvelli. Vélinni var þá snúið við
til Reykjavíkur en samkvæmt upp-
lýsingum frá FÍ er venja að gera
það í tilvikum sem þessu. Óveruleg-
ar skemmdir urðu á vélinni en nauð-
synlegt var talið að fara yfir ýmsan
búnað í henni.
Þriðja árið í röð sem vélar
FÍ verða fyrir eldingu
Á heimasíðu FÍ segir að farþegar
hafi verið boðaðir í sérstakan sal í
flugstöðvarbyggingunni þar sem
flugstjóri og flugrekstrarstjóri fóru
yfir hvað gerist þegar flugvél lendir
í eldingu og hver viðbrögðin eru. Þá
var farþegum einnig boðin áfalla-
hjálp. Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
segir eldingunni hafa lostið niður í
nef flugvélarinnar og svo hafi virst
sem hún hefði farið þar út aftur.
Flugvélar væru þannig útbúnar að
eldingin ætti að fara út í nefi, væng-
endum og stéli. Að sögn Jóns Karls
urðu farþegar og áhöfn vör við mik-
ið högg þegar eldingunni laust niður
en að öðru leyti verði farþegar ekki
varir við neitt nema í myrkri en þá
komi mikill ljósblossi. Jón Karl seg-
ir að þetta sé þriðja árið í röð sem
flugvél Flugfélagsins verður fyrir
eldingu en hér áður fyrr hafi það
ekki gerst nema á margra ára fresti.
Hann segir að skýringanna sé að
leita í breyttu og hlýnandi veðurfari
hérlendis.
Eldingu laust
niður í Fokker FÍ
MISTÖK virðast hafa átt sér stað við
veigamiklar kerfisbreytingar hjá
Reiknistofu bankanna helgina 21. og
22. febrúar sem m.a. urðu til þess að
mjög háar innstæður urðu til á
reikningum hjá nokkur hundruð við-
skiptavinum Landsbankans. Kerfi
sem heldur utan um greiðsludreif-
ingu hjá bankanum greiddi þá
ógreidda reikninga af þessum reikn-
ingum og hefur Landsbankinn verið
að vinna að því að leiðrétta þær
færslur og að sögn forstöðumanns
upplýsingasviðs Landsbankans er
þeirri vinnu nú rétt að ljúka.
Hjá Reiknistofu bankanna könn-
uðust menn ekki við að bankar hefðu
þurft að eyða miklum tíma í að leið-
rétta færslur vegna kerfisbreytinga
umrædda helgi. Reiknistofan ynni
reyndar að breytingum nær allar
helgar og í miðri viku einnig; allar
breytingar sem gerðar væru á hug-
búnaði væru viðkvæmar. Í þessu til-
viki hefðu menn verið að vinna að
talsvert viðamiklum breytingum á
kerfinu sem ekki væri hægt að
greina frá í smáatriðum.
Urðu skyndilega til háar
innstæður á reikningum
Guðmundur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri upplýsingasviðs
Landsbankans, segir bankann vera
með sérstakt tölvukerfi sem haldi ut-
an um innheimtur og greiðslur fyrir
viðskiptavini Landsbankans, t.d. fyr-
ir þá viðskiptavini sem eru í greiðslu-
þjónustu hjá bankanum.
„Það sem gerðist hjá okkur var að
skyndilega urðu til mjög háar inn-
stæður á reikningum þessara við-
skiptavina okkar, þ.e. mistökin lágu í
því að þessir peningar urðu þarna til
úr engu. Kerfið hjá okkur fann allt í
einu nægt fé inni á þessum reikn-
ingum og greiddi upp allar útistand-
andi kröfur. Við höfum því lent í því
að þurfa að bakfæra og leiðrétta
þessar hreyfingar og það er kannski
ekki það skemmtilegasta sem við
gerum. Menn hafa þó lagst á eitt
jafnt innan bankans sem utan að
koma þessu í samt lag, þ.á m. þeir
sem áttu kröfurnar. Við höfum auð-
vitað þurft að leita heimildar hjá
þeim til þess að fá að bakfæra þessar
greiðslur og þeir hafa má segja allir
sem einn brugðist mjög vel við því og
haft skilning á vandamálinu,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur segir það hafa kostað
margra daga og mikla vinnu að leið-
rétta þessi mistök.
„Það voru vissulega mikil von-
brigði fyrir okkur að lenda í þessu.
Óþægindi voru líklega ekki mikil fyr-
ir þá viðskiptavini okkar sem fengu
óvænt peninga heldur miklu frekar
fyrir kröfuhafa sem fengu reikninga
greidda og voru kannski búnir að
ráðstafa því fé í annað þegar við
höfðum samband þar sem þeir höfðu
einfaldlega ekki áttað sig á því sem
hafði gerst.“
Óvæntir peningar inn
á reikninga viðskipta-
vina Landsbankans
ÞESSUM þremur mönnum hefur vafalaust þótt
notalegt að sitja yfir rjúkandi kaffibolla á Granda-
kaffi og heyra vindinn gnauða fyrir utan og rign-
inguna lemja glerið á meðan þeir sátu saman að
spjalli. Ekki liggur fyrir hvert umræðuefnið var en
miðað við hversu djúpt þeir virðast sokknir í sam-
ræðurnar hefur það líklega verið af alvarlegri tog-
anum.
Samdrykkja í rigningunni
Morgunblaðið/Ásdís
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og kona hans, Ástríður Thorarensen,
halda utan síðla í dag til Danmerkur
þar sem þau verða í opinberri heim-
sókn fram á föstudag.
Á morgun þiggja Davíð og Ástríð-
ur kvöldverð í boði danska forsætis-
ráðherrans, Anders Fogh Rasmus-
sen, og konu hans Anne-Mette
Rasmussen. Á föstudaginn þiggja
þau m.a. hádegisverð í boði danska
krónprinsins í Amalíuborg og síðar
þann dag munu Davíð og danski for-
sætisráðherrann ræða saman í
Kristjánsborgarhöll.
Davíð í
heimsókn
í Danmörku
♦♦♦