Morgunblaðið - 03.03.2004, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.03.2004, Qupperneq 20
SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Áttu vini í Færeyjum? ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N EH F. /S IA .I S -F LU 19 66 3 04 /2 00 4 Innifalið: Flug til Færeyja, flugvallarskattur og tryggingargjald. Takmarkað sætaframboð Sími: 570 3030 Tengiflug, 50% afsláttur með FÍ frá Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum vegna Færeyjaferðar (hafið samband við sölufulltrúa þegar flug til Færeyja hefur verið bókað á netinu). Einstakt tilboð á flugi, aðeins 7.500 kr. leiknitíma og hvatti nemendur sína til að taka þátt í kortagerðinni. „Ég notaði einn tíma til þess að segja þeim frá því sem gerð- ist og ræða við þau um aðstæður þessara barna, en þau höfðu flest lesið um málið í blöðunum. Við ræddum jafnframt um að þeir peningar sem safnast færu í menntunarsjóð systkinanna og það myndaðist strax góð stemning fyrir þessu í bekknum. Mér finnst Njarðvík | „Er þetta nóg mamma?“ kallaði Teitur Ari Theodórsson, nemandi í 1. HM í Njarðvíkurskóla, og sýndi mömmu sinni af- rakstur dagsins, þegar bekkurinn var að föndra tækifæriskort til stuðnings systk- inunum fjórum á Tálknafirði sem misstu móður sína fyrir skömmu og föður fyrir fimm árum. Nemendur í 10. GJ, sem er vina- bekkur 1. HM, aðstoðaði við kortagerðina og var tilefnið gert að viðfangsefni í lífleikn- itíma. Blaðamaður Morgunblaðsins var í Njarðvíkurskóla á sunnudaginn var og fylgd- ist með kortagerðinni. Matsalur Njarðvíkurskóla breyttist á svip- stundu í vinnustofu þegar börnin og ungling- arnir hófust handa. Börnin höfðu tekið með sér pappír í öllum regnbogans litum, fönd- urliti af öllum gerðum, efni og skapalón sem nýst gæti við kortagerðina. Nemendur 1. HM tóku verkefnið alvarlega strax eftir að hugmyndin var rædd og málin útskýrð fyrir þeim. Ingibjörg Jóna Guðlaugs- dóttir bekkjarfulltrúi sagði í samtali við blaðamann að dóttir sín hefði verið mjög áhyggjufull og málefnið hefði haldið fyrir henni vöku nóttina fyrir föndurdaginn. „Við vorum búin að útskýra fyrir henni að pening- urinn sem þau fengju fyrir kortin ætti að renna til menntunar systkinana, svo hún spurði á móti hver gæfi þeim að borða.“ Teitur Ari Theodórsson, nemandi í 1. HM, átti metið í kortagerðinni, gerði alls 16 kort og hann sagði í samtali við blaðamann að sér þætti skemmtilegast að gera kort með alls kyns munstri. Þegar blaðamaður hitti hann á síðdegisgöngu þennan sama sunnudag var hann að hjóla heim eftir erfiði dagsins. Hann var búinn að selja næstum öll kortin, með að- stoð stóru systur. Viðfangsefni í lífsleiknitíma Nemendur í 1. HM í Njarðvíkurskóla eru mjög samrýndir, enda koma þeir allir úr Innri-Njarðvíkurhverfinu. Í janúar sl. kom bekkurinn saman, ásamt foreldrum, í kennslustofu bekkjarins og átti góða stund saman við leik og skraf. Bekkjafulltrúarnir tveir, þær Guðný Ester Aðalsteinsdóttir og Ingibjörg Jóna, reifuðu þá hugmynd við for- eldra að hafa uppákomur í hverjum mánuði til að styrkja tengslin enn frekar. Þegar fyrri hugmynd að uppákomu febrúarmánaðar rann út í sandinn nefndi einn af foreldrunum þá hugmynd við bekkjafulltrúana að föndra tækifæriskort til stuðnings systkinunum fjór- um á Tálknafirði, sem hafa misst báða for- eldra sína. Strax var tekið vel í hugmyndina og vakti hún einnig áhuga Guðrúnar Jóns- dóttur, umsjónarkennara vinabekkjarins. Guðrún gerði tilefnið að viðfangsefni í líf- þau fá mikið út úr því að vera með vina- bekknum, aðstoða þau og taka þátt í þeirra athöfnum,“ sagði Guðrún í samtali við Morg- unblaðið. Börnin munu nú verja næstu dögum í sölu á kortunum og eftir því sem blaðamaður hef- ur haft tök á að fylgjast með hefur árang- urinn verið góður og börnin bæði áhugasöm og stolt af framtaki sínu. Nemendur 1. HM í Njarðvíkurskóla styrkja tengslin Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Í þágu góðs málstaðar: Nemendur 1. HM voru einbeittir á svip þegar þeir föndruðu tækifær- iskort. Fremstur er Teitur Ari Theodórsson, þá Anna Lillian Þrastardóttur og aftast situr Ísa- bella Ögn Þorsteinsdóttir, sem nýtur aðstoðar móður sinnar, Ingibjargar Jónu Guðlaugsdótt- ur. Til hliðar sést Ellen Hilda Sigurðardóttir sýna Gylfa Guðmundssyni skólastjóra kortin sín. Föndruðu kort til góðgerðarmála Innri-Njarðvík | Nesprýði ehf. átti lægsta til- boð í jarðvinnu vegna byggingar nýs grunn- skóla í Innri-Njarðvík. Tilboð í uppsteypu skólans og fullnaðarfrágang verða opnuð í byrjun næsta mánaðar. Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. byggir skólann, sem verður miðjan í nýju Tjarna- hverfi í Innri-Njarðvík. Fyrsti áfangi skólans verður um 3.500 fermetrar að stærð og á hann að vera fullbyggður í lok júlí á næsta ári. Skólahald á vegum Reykjanesbæjar hefst því þar haustið 2005. Sex verktakar lögðu fram tilboð í jarðvinn- una. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9,5 millj- ónir. Nesprýði bauð rúmar 6,7 milljónir sem er liðlega 71% af kostnaðaráætlun. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Fasteign ehf. að samið verði við Nesprýði ehf. um verkið. Samið við Nesprýði um jarðvinnu Reykjanesbær | Þriggja ára áætlun Reykjanesbæjar, fyrir árin 2005 til 2007, gerir ráð fyrir því að lagður verði grunnur að auknum vexti bæj- arfélagsins, áframhaldandi upp- byggingu og aukinni þjónustu við íbúa, segir í samantekt Árna Sigfús- sonar bæjarstjóra sem lagði áætl- unina fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Einnig kemur fram að þrátt fyrir þetta sé gert ráð fyrir skuldalækkun bæjarsjóðs og afborgunum langtímalána um rúm- ar 400 milljónir kr. Á sama tíma styrkir Reykjanes- höfn stoðir atvinnulífs með upp- byggingu hafnar og iðngarða í Helguvík. Þar er um að ræða áætl- aða lántöku til framkvæmda fyrir alls 100 milljónir króna á þessum þremur árum. Byggt upp í Innri-Njarðvík Í forsendum áætlunarinnar er gert ráð fyrir hóflegri en stigvax- andi íbúafjölgun samfara uppbygg- ingu nýrra hverfa. Gert er ráð fyrir að útsvarstekjur hækki um 11% á tímabilinu en tekjur af fasteigna- gjöldum hækka um tæp 17% til árs- ins 2007 vegna fjölgunar íbúða og hækkunar fasteignamats. Áfram verður unnið að því að uppfylla þau markmið sem sett voru í Framtíðarsýn Reykjanesbæjar 2002 til 2006 og samþykkt í bæj- arstjórn við upphaf kjörtímabilsins. Af einstökum framkvæmdum má nefna áframhaldandi uppbyggingu nýs íbúðahverfis, Tjarnahverfis í Innri-Njarðvík, nýjan skóla sem tekur þar til starfa haustið 2005 og undirbuning nýs leikskóla sem taka á í notkun á árinu 2006. Þá verður á tímabilinu unnið að undirbúningi og uppbyggingu tón- listar- og ráðstefnumiðstöðvar. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi þjón- ustukjarna (þjónustumiðstöðvar) aldraðra verði tekinn í notkun haustið 2005 og ný innisundlaug verði tekin í notkun vorið 2006. Áfram verður unnið að eflingu há- skólastarfsemi á svæðinu. Vilja flýta mislægum gatnamótum Fyrirhugað er að sækja til Vega- gerðarinnar um flýtiframkvæmdir vegna umhverfis mislægra gatna- móta á Reykjanesbraut í Innri- Njarðvík og við nýjan Flugvallarveg sem liggur frá Reykjanesbraut að Njarðarbraut. Fram kemur í samantekt Árna að verði Vegagerðin við þeim óskum verði framkvæmdir fjármagnaðar með tímabundnum lántökum. Þriggja ára fjárhagsáætlun lögð fram Búið í haginn fyrir aukinn vöxt Kassabíl stolið | Viðfangsefni lögreglunnar eru fjölbreytileg. Eitt óvenjulegt mál kom til kasta lögreglunnar í Keflavík síðdegis sl. mánudag. Ellefu ára drengur kom á lögreglustöðina og tilkynnti að kassabílnum hans hefði verið stol- ið utan við heimili hans á Íshússtíg í Keflavík á milli kl. 14.15 og 14.45 um daginn. Kassabíll þessi er samansettur úr öxli af tjaldvagni og framhjóli af Freestyle-reiðhjóli. Kassabílsins er sárt saknað.    Kviknaði í þvottavél | Eldur kom upp í íbúð við Vatnsholt í Keflavík í fyrrakvöld. Þegar lögreglumenn komu á staðinn voru íbúarnir komnir út en eldur var í þvottavél í þvottahúsi og gaus af honum reykur. Tókst lögreglu- mönnum að slökkva eldinn með hand- slökkvitæki og slökkvilið Brunavarna Suð- urnesja reykræsti síðan íbúðina. Þvottavélin var tekin til rannsóknar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.