Morgunblaðið - 03.03.2004, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 21
Snjóflóðavarnargarðarnir Stóriboli
og Litliboli sunnan við Siglufjörð
hafa enn sannað gildi sitt en nú
liggur fyrir að snjóflóð sem féllu í
þekktum snjóflóðafarvegum á
Siglufirði um miðjan janúarmánuð
voru stærri og féllu lengra en
menn höfðu talið en mikill snjór
var þarna á þessum tíma allt fram í
byrjun febrúar.
Örlygur Kristfinnsson hjá Veð-
urstofunni á Siglufirði segir að í
snjóflóðahrinu vestanlands og
norðan sem fylgdi óveðri sem gekk
yfir landið dagana 13. til 18. janúar
hafi tvö stór snjóflóð fallið í Ytra-
Strengsgili og Jörundarskál og
meðfram leiðigörðunum Stórabola
og Litlabola sunnan Siglufjarðar.
Örlygur segir að varnargarðarnir
sunnan bæjarins hafi þarna sannað
varnarmátt sinn með því að bægja
flóðunum frá byggðinni. Flóðin
hafi uppgötvast 18. janúar þegar
óveðrinu létti og menn telji nú
nokkuð víst að þau hafi fallið 14.
janúar en þann dag hafi reyndar
nokkur hús verið rýmd á Siglufirði.
Féllu 100 metra niður fyrir
endann á Stórabola
„Núna síðustu daga eftir þíðuna
sem hefur staðið frá 10. febrúar
hefur komið í ljós að þessi snjóflóð
hafa verið stærri og fallið lengra en
greina mátti í fyrstu. Þannig hefur
flóðið úr Strengsgilinu fallið um
100 metra niður fyrir endann á
varnargarðinum Stórabola og brot-
ið á leið sinni grindverk við frá-
rennslisræsi lítillar tjarnar þar í
farveginum. Þá er talið líklegt að
snjóflóðin tvö hafi náð saman og
skarast þar sem gamli fjarðarveg-
urinn liggi á þessum stað,“ segir
Örlygur.
Hann segir garðana hafa verið
reista til þess að verja stóran hluta
af suðurhluta Siglufjarðar þar sem
oft hafi þurft að rýma hús áður.
Þær rýmingar séu hins vegar eig-
inlega alveg úr sögunni með til-
komu varnargarðanna.
„Þess má geta að Stóriboli hefur
áður sannað gildi sitt eða árið 1999
þegar hann leiddi stórt snjóflóð frá
byggðinni. Þannig að það er tví-
mælalaust mikið gagn af þessum
varnargörðum,“ segir Örlygur að
lokum.
Ljóst er að stór snjóflóð féllu á Siglufirði í janúarmánuði
Stóri- og Litliboli
standa undir nafni
Akranes | Malarvöllurinn á Akra-
nesi var blautur og þungur þegar
stúlkurnar úr ÍA voru á æfingu
þar í þokkalegum hita í vikunni.
Vindurinn lét ekki á sér kræla að
þessu sinni og þykir sumum slíkt
veðurfar ekki einkenna Skipa-
skaga. Þrátt fyrir að aðstæður
væru ekki upp á það besta drógu
stúlkurnar hvergi af sér á æfing-
unni. Það er óhætt að segja að
þær hafi verið skítugar og blautar
eftir atganginn á mölinni sem er
eins og forarpyttur við þessar að-
stæður. Það hafa verið uppi hug-
myndir um að reisa fjölnota
íþróttamannvirki á þeim stað þar
sem malarvöllurinn er og eflaust
hafa ungu meyjarnar látið sig
dreyma um Egil, Smára og Boga
sem allir eru kenndir við knatt-
spyrnuhallir sem risið hafa á und-
anförnum misserum í Reykjavík,
Akureyri og Kópavogi. En þangað
til verða knattspyrnumenn á
Akranesi að glíma við íslenska
veðráttu á æfingum utandyra,
enda ýmsu vanir.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Æfa á mölinni við
misjafnar aðstæður
Stykkishólmur |
Hátíðarmessa var í
Stykkishólmskirkju
sl. sunnudag í til-
efni af því að búið
er að setja upp opn-
anlegan millivegg
milli kirkjuskips og
safnaðarheimilis.
Séra Sigurður Sig-
urðarson vígslu-
biskup, heimsótti
söfnuðinn og pre-
dikaði í messunni.
Sóknarnefnd
bauð kirkjugestum
í kaffi á eftir og þar
gafst tækifæri að
skoða framkvæmd-
irnar. Millihurðin
er mikil smíði. Hún
er um 40 fermetar
á stærð og vegur
2,5 tonn. Hún er
með góðri hljóðein-
angrun sem mun
ekki hafa áhrif á
hljómburð kirkj-
unnar. Hurðin kem-
ur frá Hollandi og
fyrirtækið Sökkull í
Reykjavík flutti
hana inn og setti
upp.
Með tilkomu
hurðarinnar mun
safnarheimilið nýtast miklu betur,
því nú er það lokað frá kirkjunni.
Þá er búið að setja krossana, sem
voru í kór kirkjunnar, upp á vegg í
safnaðarheimilinu. Krossarnir voru
í kór kirkjunnar áður en ný alt-
aristafla var sett upp, en hafa aftur
fengið hlutverk.
Þessar framkvæmdir eru fjár-
magnaðar með sölu korta, bæði
minningarkorta og annarra korta,
og svo öðru gjafafé.
Breytingar: Gunnar Eiríkur Hauksson sóknar-
prestur og Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í
safnaðarheimilinu. Á bak við þá eru komnir á vegg
krossarnir þrír sem voru áður í kór kirkjunnar.
Betri nýting á
safnaðarheimili
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Búðardalur | Þrír tónlistarmenn, þeir Karl Olgeirsson
úr Milljónamæringunum, Jóhann Hjörleifsson úr Sál-
inni og Jón Rafnsson úr Guitar Islancio, komu og heim-
sóttu Grunnskólann í Búðardal. Þetta er hluti af skóla-
tónleikadagskrá sem kallast „Tónlist fyrir alla“.
Þetta er orðinn fastur liður í skólastarfinu hér í Búð-
ardal að taka á móti tónlistarmönnum og eru heim-
sóknirnar orðnar nokkrar. Dagskráin var óvenjuleg í
þetta skiptið þar sem kastljósinu var beint að þátttöku
nemenda sjálfra í söngnum. Mikið fjör var og fjölmennt
í salnum, þar sem börn úr Grunnskólanum í Tjarn-
arlundi og Reykhólaskóla ásamt börnum úr leikskól-
anum Vinabæ í Búðardal komu í heimsókn og nutu tón-
listarinnar.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
„Syngjandi skóli“
Hvammstangi | Nú í febrúar var
undirritaður samningur milli Húna-
þings vestra og Blands í poka ehf. um
fimm ára leigu tjaldsvæðisins í
Kirkjuhvammi ofan Hvammstanga.
Þá var einnig samið um leyfi til
smíði á 72 fm timburhúsi, byggðu á
stöplum. Þar verður matsalur, eld-
urnaraðstaða, snyrtingar og sturtur,
þvottavél og þurrkari fyrir gesti
svæðisins, auk aðstöðu fyrir starfs-
mann. Húsið verður rafhitað og er
möguleiki á verslunarrými í húsinu.
Bland í poka ehf. hefur samið við
Tvo smiði ehf. á Hvammstanga um
bygginguna fyrir kr. 5,8 milljónir,
fullbúið hús með búnaði. Húsið á að
vera tilbúið 1. maí nk.
Í samningi við Húnaþing vestra
kveður á um kaupskyldu sveitarfé-
lagsins á húsinu, þegar samningur-
inn rennur út. Skúli Þórðarson sveit-
arstjóri segir þennan samning
einkum til kominn til að hraða upp-
byggingu á tjaldsvæðinu og bættri og
fjölbreyttari þjónustu við ferðamenn.
Uppbygg-
ing í Kirkju-
hvammi
Morgunblaðið/Karl Ásgeir
Á tjaldsvæðinu: Gudrun Kloes ferðamálafulltrúi tekur skóflustungu að
þjónustumiðstöðinni í Kirkjuhvammi ofan við Hvammstanga.