Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 22
Sjónin skipar aðalhlutverkiðen heyrn, lykt, bragð ogsnerting aukahlutverk ímenningu nútímans. Ver-
öldin verður æ myndrænni og fátt
virðist ætla að breyta þeirri þróun.
Lyktarskynið þróaðist þó fyrst í
ævisögu mannsins.
Manneskjan reiðir sig ekki á lykt-
ina eins og áður en oft vill gleymast
að lyktin hefur ómeðvituð áhrif. Hún
finnur lyktina en tekur ekki alltaf
eftir því vegna þess að önnur skyn-
færi eru áreitt meira.
Lyktin leikur hlutverk í sam-
skiptum manna, því hver manneskja
hefur eigin lykt sem sett er saman
úr angan líkamans, hreinlæti, fötum
og nánasta umhverfi. Ilmblær ein-
staklings getur verið fráhrindandi
og of harðir dómar geta því fallið við
fyrstu kynni. Lykt annarrar persónu
getur laðað að sér fólk.
Kynferðisleg lykt
Ferómón er afar þekkt lyktarefni
enda gefa mörg dýr það frá sér.
Kvendýr ýmissa skordýra framleiða
það yfir fengitímann og laða þannig
karldýrin að. Ferómón er líka
áhrifaþáttur í kynhegðun spendýra.
Konur framleiða ferómón þegar
mestar líkur eru á getnaði, þó ekki
sé það mikið.
Konur virðast vera nokkuð næm-
ar á ilm af moskusefnum sem ýmsir
karlar „gefa frá sér“. Moskusilmur
er sagður kynörvandi, og hafa ilm-
vatnsframleiðendur á undanförnum
árum sett á markað ilmvötn handa
körlum með moskusefnum. Vonin
stendur til þess að grípa athygli
kvenna með þessum ilmi.
Konur eru næmari á lykt en karl-
ar og óléttar konur eru sérlega
næmar á lykt. Það er ekki nauðsyn-
lega kostur því óþefurinn getur
truflað þær. Þær nota ilmefni meira
en karlar og eru m.a. af þessum sök-
um með þjálfaðra þefskyn.
Lyktarstöð mannsins spannar 1/
20 af heilaberkinum og er stöðin ná-
tengd elsta hluta heilans þar sem
miðstöð tilfinninganna er. Ilmur,
lykt, óþefur, stybba og hvaðaeina
annað á lyktrænu formi hefur því
fyrst og fremst hvatræn áhrif en
ekki vitræn, það er sennilega meg-
inástæðan fyrir því að áhrifin eru
einnig oftast ómeðvituð.
Vond matarlykt, ýlda og fleira
fælir fólk frá t.d. skemmdum mat.
Það getur aftur á móti verið erfitt að
standast ilmandi poppkorn, kaffi,
pönnukökur og fleira matarkyns, en
auðvelt ef það stendur ilmlaust á
borðinu frá deginum áður.
Ilmur minninganna
Lykt getur vakið minningar.
Manneskja finnur allt í einu sér-
staka lykt og verður hugsað t.d. til
híbýla afa síns og ömmu. Þannig get-
ur lyktin vakið gamlar minningar af
löngum svefni.
Markaðs- og sölufólk hefur lengi
nýtt sér þekkingu á ómeðvituðum
áhrifum lyktar á kaupendur. T.d.
með því að nota lyktarefni í loftræsi-
kerfum í búðum. Lyktin á þá ann-
aðhvort að vekja æskileg hughrif
sem hugsanlega skapa góða minn-
ingu og auka kaupgleðina. Sagan
segir að salan í stórmarkaði í Þýska-
landi hafi aukist um þriðjung eftir að
tilteknum ilmi var var bætt við blást-
urinn í loftræstingunni. Leynd-
armálið á bak við þetta fæst þó ekki
staðfest eða uppgefið.
Vörur í búðum þurfa að líta vel út
enda er iðulega spilað á sjónina; epli
verða t.d. rauðari í grænum bak-
grunni. Algengt er að láta tiltekna
tónlist hljóma í loftinu til að gleðja
eyrun. Snertiskynið er oftast látið í
friði, en bragðskynið er stundum ert
með því að bjóða fólki að smakka.
Markaðsfræðingar geta nýtt sér
þá þekkingu að lykt vekur minn-
ingar og myndir. Þannig er tilbúinn
vor- eða sumarilmur um vetur lík-
legur til að vekja jákvæðar minn-
ingar. Franskur efnafræðingur hóf
t.d. framleiðslu á ilm sem átti að
skapa tilfinningu fyrir kulda og öðr-
um ilm sem átti að minna á sum-
arhita. Lyktin var notuð í hús-
gagnaverslunum. Á vetrum var
heita ilminum úðað og á sumrum
hinum kalda. Ilmir Frakkans voru
síðar notaðir til að skapa tilfinningu
fyrir afslöppun í svefnherbergjum á
hótelum, vingjarnleika á mat-
sölustöðum o.fl.
Starfræktar eru verksmiðjur sem
framleiða vörur og efni á brúsum til
að endurskapa „loftið“ á vinnustöð-
um og í verslunum. Áhugasamir
geta skoðað þetta á slóðinni
www.odourcontrol.co.nz.
„Nýjabílslykt“ á brúsum
Í ilmfræðunum er áhersla lögð á
að lykt tilheyri menningarheimum
og löndum. Ilmur sem á að örva sölu
á tiltekinni vöru virkar ekki í öllum
menningarhópum. Ilmur er smekks-
atriði þó hann sé einnig háður þjóð-
um.
Japönum finnst flestum, svo dæmi
sé tekið, lykt kamfórutrés afar góð
en það þykir fæstum Evrópubúum.
Mjög vinsælt er í Evrópu að selja
uppþvottalög með sítrónulit og ilm,
en það er víst ekki vænlegt til sölu í
Bandaríkjunum.
Mynta er mjög vinsæll ilmur (og
bragð) á Vesturlöndum, en hann er
talinn vekja tilfinningu fyrir pen-
ingum eða ríkidæmi, vera eins konar
peningalykt. Önnur vinsæl lykt er
svokölluð „nýjabílslykt“. Flestir
þekkja lyktina inni í nýjum bílum, en
hún fæst af vúlkaníseringu; gúmmí
og brennisteinn ganga í efna-
samband til að auka þol efnisins.
Þessi lykt var raunveruleg fyrir
nokkrum áratugum. Ný efni hafa
hins vegar gert það að verkum að
hún fæst ekki lengur eðlilega fram
og fannst bílaframleiðendum það
ótækt. Málið var samt leyst: Gömlu
„nýjabílslyktinni“ er einfaldlega úð-
að úr brúsum inn í nýja bíla til að
hefðin haldist og viðskiptavinurinn
verði örugglega ánægður.
Stafræn lykt fylgir tölvum
Neytendur finna sárlega fyrir því
að eitthvað vantar þegar myndir af
ferðamannastöðum eru skoðaðar.
Það sem vantar er lyktin í loftinu og
hitinn. Tilraunir hafa verið gerðar til
að vinna bug á þessum ókosti: staf-
ræn lykt sem fyllir vit skoðandans
með því að tengja tölvur við rafræn-
an lyktarstauk. Heimasíður sýna
myndir og spila hljóð, en þær yrðu
mun áhrifaríkari ef lyktin fylgdi
með, t.d. mengunarlyktin í London
sem hefur aðdráttarafl. Heimasíða
pítsustaðar gæti vakið pítsugerð-
arilm. Ef til vill mun þetta í framtíð-
inni teljast jafnnauðsynlegt og hátal-
arar með tölvum í dag.
Kaupmenn spila á lyktarskynið
Söluaukning: Franskur efnafræðingur hóf framleiðslu á ilm sem átti að
skapa tilfinningu fyrir kulda og annan ilm sem átti að minna á sumarhita.
Lyktin var notuð í húsgagnaverslunum.
Ilmur: Flestir þekkja lyktina inni í nýjum bílum, henni er einfaldlega úðað
af brúsum inn í bílana.
Snöggur úði af réttum
ilmi getur örvað söluna í
búðum. Ilmur að vetri
sem minnir á vorið örv-
ar söluna. Gunnar
Hersveinn kynnti sér
hvernig taka megi neyt-
endur í nefið með réttri
lyktarsamsetningu og
tímasetningu.
guhe@mbl.is
NEYTENDUR|Ilmur, angan, lykt, óþefur, stybba, fýla, fnykur…
Morgunblaðið/Árni Sæberg
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
DAGLEGT LÍF
22 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ ER ofsalega stór stund að
fara með barn heim af fæðing-
ardeildinni. Kona sagði eitt sinn
við mig: „Og mundu bara að þegar
þú ferð upp á spítala, þá kveðurðu
heimilið þitt þannig að það verður
algjörlega allt breytt þegar þú
kemur heim aftur, ekkert verður
eins!“ Auðvitað mundi ég þetta svo
sem ekkert þegar ég fór á spít-
alann, en ég mundi þetta þegar ég
kom heim og þetta er alveg rétt:
Heimilið breytist einhvern veginn
alveg og allt munstrið okkar með.
Maður fær meira að segja alls kyns
hugmyndir í kollinn. Vinur minn
sagði mér t.d. frá því að þegar
fyrsta barn þeirra hjóna fæddist
fékk hann eitthvert „sótthreins-
unar-ofsóknaræði“ í marga mánuði
á eftir. Þannig fór hann helst aldr-
ei í vinnuna á morgnana nema að
vera búinn að skúra, ryksuga og
lofta út 200 fermetra heimilið
þeirra fyrst!
Ég gæti vel gert grín að þessum
manni, þetta var náttúrulega al-
gjörlega óþarft og öll „paranoia“
fyrst og fremst í hausnum á hon-
um. Hið rétta er að eflaust ganga
flestir foreldrar í gegnum eitthvað
skringilegt í þessum dúr. Ég fór
t.d. fljótlega að taka eftir því að ég
var alltaf svo hrædd um að detta
um koll, haldandi á þér í fanginu.
Ég meina, ég varð bara allt í einu
hrædd um að ég gæti verið að
ganga um heima hjá mér og bara
dottið! Samt man ég ekki til þess að
ég hafi nokkru sinni dottið uppúr
þurru heima hjá mér. Til öryggis
reyndi ég samt að rýma allan gang-
veg þannig að þessi hugsanlega
slysahætta væri sem minnst.
Allt breytt
Meira á morgun.
DAGBÓK MÓÐUR