Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 39
hópnum sem hefur fylgt þeim til
margra ára. Hún hafði bjart yf-
irbragð, var glæsileg kona. Barna-
börnin voru henni kær og hefði tím-
inn mátt vera lengri, en stundin var
komin og hún hélt inn á nýtt til-
verustig. Megi hið eilífa ljós lýsa
henni á nýjum leiðum.
Megi Guð gefa eftirlifandi eig-
inmanni, sonunum, tengdadætrum,
barnabörnum, svo og allri fjölskyld-
unni styrk í sorg þeirra.
Hafðu þökk. Blessun Guðs fylgi
þér.
Sigrún og Sigurður Albert.
„Það er hér kona sem ég þarf að
kynna þig fyrir,“ sagði Finnbogi Jó-
hannsson, skólastjóri Fellaskóla, við
mig á fyrstu haustdögum skólaárs-
ins 1974. Konan sem hann vildi
endilega kynna mig fyrir var nýi
skólaritarinn, Herborg Jónasdóttir.
Ástæða þess að hann vildi kynna
okkur var ekki eingöngu sú að hún
var nýr starfsmaður skólans, heldur
vegna þess að ég var nýkomin frá
því að ganga í Loðmundarfjörð og
hann vissi, að sem mikill Austfirð-
ingur hafði Herborg áhuga á öllu
sem snerti Austfirði. Þegar við tók-
um svo tal saman kom í ljós að hún
hafði gengið í Alþýðuskólann á Eið-
um og hafði þar verið bekkjarsystir
mannsins míns. Allt frá þessum
fyrstu kynnum höfum við verið vin-
konur. Vinkonur í 30 ár. Vinkonur
sem vorum svo lánsamar að búa í
nágrenni hvor við aðra. Meðan
hverfið okkar var nýbyggt og gróð-
urinn ekki orðinn mjög hávaxinn sá
Herborg úr sínu húsi yfir til mín og
sagði oft í gríni að hún gæti fylgst
með öllum mannaferðum í mitt hús.
Herborgu var margt gefið í
vöggugjöf. Hún var glæsileg í útliti,
lífleg og hress í samskiptum við
annað fólk, ákaflega gestrisin og
mikill dugnaðarforkur. Hún var líka
með afbrigðum minnug. Það var al-
veg ótrúlegt hvað hún gat munað
eftir fólki og nemendum sem hún
hafði haft samskipti við. Við sögðum
stundum að hún kynni örugglega
utanbókar kennitölur og símanúmer
allra nemenda og kennara skólans.
Herborg og Guðjón ferðuðust
mikið, bæði innanlands og utan.
Þær eru ekki fáar ferðirnar sem við
höfum farið saman bæði að sumri
sem vetri. Hvort sem sofið var í
tjöldum eða skálum var eitt sem
aldrei brást, það var nestið hennar
Heddu. Á meðan við hin drógum
upp flatbrauð og hangikjöt töfraði
hún fram hina girnilegustu rétti
sem hún hafði útbúið heima og auð-
vitað hafði hún útbúið það ríflega að
nóg var fyrir allan hópinn. En það
var ekki bara í þessum ferðum okk-
ar sem rausnarskapurinn sýndi sig.
Matarboðin á Seljabrautinni og
seinna í Ljárskógunum voru alltaf
tilhlökkunarefni. Tilhlökkunarefni,
ekki bara vegna góða matarins sem
maður vissi að beið manns heldur
líka notalegheitanna sem fylgdu því
að vera með henni.
Manninum í lífi sínu, honum Guð-
jóni, kynntist Herborg á meðan þau
voru bæði nemendur á Eiðum. Þau
hafa því fylgst að í tæp fjörutíu ár.
Saman eignuðust þau synina tvo
sem hún var svo stolt af. Seinna
komu svo yndislegar tengdadætur
og ekki síður yndisleg barnabörn.
Æskustöðvarnar voru henni
ávallt kærar. Hún talaði mikið um
ættingjana og vinina á Norðfirði og
kom þar í ljós hve henni þótti vænt
um fólkið sitt og æskuslóðirnar.
Fyrir u.þ.b. tíu árum fór að bera
á breytingum hjá Heddu. Hún
greindist með sykursýki og fleiri
kvilla sem urðu til þess að halla tók
undan fæti. Smátt og smátt hvarf
þessi yndislega og duglega mann-
eskja sem við þekktum svo vel og
þótti svo vænt um. En þannig er nú
gangur lífsins. Jafnvel þeir sem
manni virðast sterkari og duglegri
en flestir geta lent í því að ráða
ekki við lífið. Eftir stöndum við
hnípin og full vanmáttar yfir hlut-
um sem við gátum ekki breytt.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund vil ég þakka kærri vinkonu
vináttuna, tryggðina og samfylgdina
öll þessi ár. Guðjóni, Jónasi, Bóa,
tengdadætrum og barnabörnum
sendum við Siggi okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Margrét Jónsdóttir.
Það var haustið 1978
sem ég og fjölskylda
mín fluttum í næsta
hús við Svenna og
Jensu. Fljótlega tókust
góð kynni okkar á milli og var ég tíð-
ur gestur í eldhúsinu hjá Jensu.
Ósjaldan hringdi Jensa eða kallaði
og bauð í heitar pönnukökur, jóla-
köku eða „drylur“, og var margt
spjallað yfir kaffibollunum.
Þegar ég fór að fá áhuga á smíðum
og smíðavinnu var Svenni góður
haukur í horni. Ég var búin að sjá
handverk hans í gegnum tíðina og
vissi því að hann gæti leiðbeint mér.
En hann var lítillátur og var við-
kvæðið oft „ég get þetta ekkert“ eða
„ég kann þetta ekki“. En raunin var
önnur, hann var nánast snillingur í
SVEINN G.
SVEINSSON
✝ Sveinn Guð-mundsson Sveins-
son fæddist í Hafnar-
firði 4. júní 1920.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 10. febrúar
síðastliðinn og var út-
för hans gerð í kyrr-
þey frá Hvalsnes-
kirkju 21. febrúar.
höndunum og vand-
virkur með afbrigðum.
Oft fór ég yfir til
hans uppfull af hug-
myndum, lýsti þeim
fyrir honum og stuttu
síðar var hann búinn að
búa til jafnvel fleiri en
eina útgáfu af þessum
hugmyndum mínum.
Hann kenndi mér á
rennibekk og sagði mér
til þegar ég þóttist
standa í bílaviðgerðum.
Það var mikill missir
fyrir mig þegar þau
ákváðu að selja húsið
sitt og flytja í íbúð eldri borgara í
Miðhúsum árið 2001. En þau voru þá
bæði að verða svo heilsulítil að þau
gátu ekki hugsað um hús og lóð eins
og þau vildu að yrði gert.
Ég hugsa með miklu þakklæti til
Svenna, hann var alltaf tilbúinn til að
aðstoða og ætlaðist ekki til neins í
staðinn.
Elsku Jensa við vottum þér og
fjölskyldu þinni okkar innilegustu
samúðarkveðjur og minnumst allra
góðu stundanna með þökk og gleði.
Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar.
Bjarney og fjölskylda.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Yfirvélstjóri óskast
Yfirvélstjóri óskast á togara sem gerðu er út
á Flæmska hattinn.
Upplýsingar í síma 893 3023.
Hressingarskálinn
óskar eftir vaktstjóra
og þjónum/aðstoðarfólki í sal.
Kristín Björk gefur upplýsingar í síma 863 9343.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Nýjungar
í meðferð astma
Unnur Steina Björnsdóttir, sérfræð-
ingur í astma- og ofnæmissjúkdóm-
um,
heldur fyrirlestur á vegum Astma- og of-
næmisfélagsins, um nýjungar í meðferð
astma í húsi SÍBS í Síðumúla 6 miðviku-
daginn 3. mars 2004.
Fundurinn hefst kl. 20:00 og er öllum
opinn.
Kynntar verða lagabreytingar.
Astma- og ofnæmisfélagið.
Aðalfundur FÍ
Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn
í FÍ-salnum Mörkinni 6, fimmtudaginn 11. mars
kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Valsmanna hf. verður haldinn að
Hlíðarenda miðvikudaginn 17.mars nk. kl. 17.15.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins
Hvetjum alla hluthafa til að mæta á fundinn.
Stjórnin.
KENNSLA
!!"
#$ #% &&' ($))
TILKYNNINGAR
Breytt heimilisfang
Frá og með 1. mars 2004 hefur Friðjón Örn
Friðjónsson hrl. flutt lögfræðiskrifstofu sína
í Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Nýtt símanúmer er 581 1155, fax 581 1170
og netfang: fridjon@advocates.is .
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Austur-
vegi 6, Hvolsvelli, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Eyvindarmúli, Rangárþingi eystra, lóð nr. 187-167, 25% eignarhl.
gerðarþ., þingl. eig. Sigurður Trausti Þórðarson, gerðarbeiðandi
Landsbanki Íslands hf., Sandgerði, miðvikudaginn 10. mars 2004
kl. 11:00.
Geitasandur 4, Rangárþingi ytra, þingl. eig. Kristjón L. Kristjánsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 10. mars 2004
kl. 11:00.
Gularás, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Ólafur Árni Óskarsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
miðvikudaginn 10. mars 2004 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
2. mars 2004.
Uppboð
Eftirtalin ökutæki verða boðin upp á Hlíð-
arvegi 16, Hvolsvelli, miðvikudaginn
10. mars 2004 kl. 16:00:
PS-143 UX-296
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema
með samþykki uppboðshaldara.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
2. mars 2004.
ÝMISLEGT
Leitað er að einbýlishúsi
eða rúmgóðri hæð með húsgögnum
á stór-Reykjavíkursvæðinu, byggingarár ca
1960-1965, til að taka á leigu í eina viku á tíma-
bilinu 14.—25. mars fyrir kvikmyndatökur.
Afnot takmarkast við forstofu, stofu og eldhús.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga í síma
896 0312 (helgais@simnet.is).
GLITNIR 6004030319 III
Myndakvöld FÍ miðvikudaginn
10. mars kl. 20.00 í FÍ-salnum,
Mörkinni 6.
Ólafur K. Nielsen, fuglafræðing-
ur, fjallar um rjúpuna í náttúru
Íslands.
Eftir hlé sýnir Sveinbjörg
Sveins-dóttir myndir af hálendi
Íslands.
Verð kr. 500, innifalið kaffi.
Allir velkomnir
HELGAFELL 6004030319 IV/V
I.O.O.F. 9 184338½ 9.III
I.O.O.F. 7 18430371/2
I.O.O.F. 18 184338 8½ I*
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Heilunar- og hugleiðslustund
í kvöld kl. 20.00 í Ljósheimum,
Brautarholti 8. Aðgangseyrir
kr. 500. Hjartanlega velkomin.