Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 49
GÚSTAF Bjarnason, fyrrverandi
landsliðsmaður í handknattleik,
hefur sagt skilið við lið Stjörnunnar
og hefur ákveðið að ljúka hand-
boltaferlinum. Gústaf hefur leikið
með Stjörnunni í vetur jafnframt
sem hann hefur verið aðstoð-
armaður Sigurðar Bjarnasonar.
„Það eru ýmsar persónulegar
ástæður sem liggja að baki þessari
ákvörðun en tímabilið hefur ekki
gengið upp eins og ég ætlaði mér.
Það sér hver heilvita maður að ég
hef hvergi nærri náð mér á strik og
það ásamt öðrum ástæðum, sem ég
vil ekkert ræða frekar um, varð til
þess að ég tók þá ákvörðun um að
hætta. Ég mat stöðuna þannig að
það væri engum greiði gerður með
því að ég kláraði tímabilið,“ sagði
Gústaf við Morgunblaðið í gær.
Gústaf, sem er 34 ára gamall,
flutti til Íslands í sumar eftir 5 ára
dvöl í Þýskalandi þar sem hann lék
fyrst með Willstätt og síðan Minden
en erfið axlarmeiðsli áttu stóran
þátt í að hann sagði skilið við at-
vinnumennskuna.
„Ég fór í aðgerð fyrir ári og mér
hefur gengið illa að fá mig góðan í
öxlinni. Nú þegar ég er hættur hjá
Stjörnunni má að ég hafi lagt skóna
á þessa margfrægu hillu. Ég er bú-
inn að eiga ágætis feril, bæði hér
heima og erlendis en hef fengið
minn skammt af meiðslum.“
Gústaf var fastamaður í íslenska
landsliðinu í mörg ár en lék sína
síðustu leiki með því á HM í Portú-
gal á síðasta ári. Gústaf á met í
landsliðinu sem seint verður slegið
en hann gerði sér lítið fyrir og
skoraði 21 mark í landsleik gegn
Kínverjum árið 1997.
BJARNI Guðjónsson var í byrj-
unarliði Coventry sem vann góðan
útisigur á Cardiff, 1:0, í ensku 1.
deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Sigurmark Coventry kom úr víta-
spyrnu 20 mín. fyrir leikslok en í að-
draganda vítaspyrnunnar fékk leik-
maður Cardiff að líta rauða
spjaldið. Bjarna var skipt út af á 86.
mín.
ÍVAR Ingimarsson lék allan tím-
ann með liði Reading sem tapaði
fyrir Preston, 2:1. David Healy,
fyrrum liðsmaður Man. Utd, skoraði
bæði mörk Preston.
BRYNJAR Björn Gunnarsson sat
á varamannabekk Nottingham For-
est allan leikinn en liðið sigraði
Wimbledon, 1:0, á útivelli og komst
þar með úr fallsæti.
LÁRUS Orri Sigurðsson var ekki
í leikmannahópi WBA sem gerði
markalaust jafntefli við Norwich í
topplag 1. deildarinnar.
STOKE vann góðan sigur á Ips-
wich, 2:0, á Britannia vellinum í
Stoke. Peter Hoekstra og Ade Ak-
inbiyi settu mörkin fyrir Stoke, sitt
í hvorum hálfleik. Hollenski mark-
vörðurinn
Ed de Goey var hetja Stok-liðsins í
leiknum en hann varði hvað eftir
annað meistaralega.
BARNSLEY, lið Guðjóns Þórð-
arsonar, féll niður í 11. sæti 2.
deildarinnar þegar liðið lá heima
fyrir Peterbrough, 1:0. Barnsley
hefur gengið afleitlega á undanförn-
um vikum og mánuðum og hefur að-
eins unnið einn af 11 deildarleikjum.
ÍRINN Cormac McAnallen lést á
heimili foreldra sinna í gær en hann
var aðeins 24 ára gamall og einn
þekktasti íþróttamaður Íra en Mc-
Anallen lék gelíska knattspyrnu
með liðinu Tyrone. Forsætisráð-
herra landsins, Bertie Ahren,
minntist McAnallen í sjónvarps-
ávarpi í gær og sagði Ahren að
McAnallen hafa verið góða fyrir-
mynd og fráfall hans væri áfall fyrir
írsku þjóðina. Ekki var greint frá
því hvað hefði valdið dauða leik-
mannsins.
BANDARÍSKI sundmaðurinn Ian
Crocker setti á sunnudaginn heims-
met í 50 metra flugsundi er hann
kom í mark á 23,30 sekúndum en
gamla metið átti Ástralinn Matthew
Welsh, 23,43, en það var frá því í
júlí á sl. ári.
Crocker er 21 árs gamall og er
þetta þriðja heimsmetið hjá honum
en áður hafði hann sett met í 100
metra flugsundi og 400 m fjórsundi.
KEN Bates ákvað í gærkvöldi að
stíga niður úr stól stjórnarformanns
Chelsea en hann hefur starfað hjá
félaginu í 22 ár.
FÓLK
Kahn segir að stuðningurinn semhann fékk hjá stuðningsmönn-
um Bayern í leiknum við Wolfsburg
um síðustu helgi hafi hjálpað sér að
höndla axarskaftið sem hann gerði
sig sekan um gegn Real en ungir
fylgismenn Bæjara mættu á völlinn
með stóran borða sem á stóð; „Ollie,
við höfum gleymt Real.“ Einn þeirra
var 11 ára drengur og sagðist Kahn
hafa séð til stráksa með borðann þeg-
ar hann gekk til búningsherberja í
hálfleik
„Mér hlýnaði um hjartarætur þeg-
ar ég sá borðann og svona stuðningur
er mér ómetanlengur. Þetta er ein af
þeim stundum í lífi íþróttamanna sem
snerta mann,“ sagði Kahn sem ákvað
eftir leikinn af gefa stráknum mark-
varðarhanskana sína.
Kahn hefur heitið því að gera allt
sem í hans valdi stendur til að sigra
Real Madrid og koma sínum mönn-
um í 8 liða úrslit Meistaradeildarinn-
ar en liðin eigast við á Bernebau-vell-
inum í Madrid í næstu viku.
Köpke stendur með Lehmann
Kahn er ekki í neinu uppáhaldi hjá
Jens Lehmann, markverði Arsenal,
og varamarkverði þýska landsliðsins.
Lehmann hefur ekki legið á þeirri
skoðun sinni að hann telji sé betri
markvörð er Kahn og verðskuldi að
standa á milli stanganna í landsliðinu.
Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þjóð-
verja, gerði sér ferð á dögunum til
Englands til að ræða við Lehmann.
Völler er ekki sáttur við hversu harð-
ur Lehmann hefur verið í gagnrýni
sinni á Kahn opinberlega.
Andreas Köpke, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Þjóðverja, sem Kahn
leysti af hólmi, hefur tekið undir
gagnrýni Lehmanns á Oliver Kahn
og segir hann í fullum rétti. „Kahn
getur ekki haldið það að hann sé ævi-
ráðinn í markvarðarstöðuna. Hann
hefur gert mistök og þau nokkuð
mörg á undanförnum misserum og
mér finnst allt í lagi að hann fái gagn-
rýni. Sjálfur gekk hann langt fram í
gagnrýni á mig þegar hann vildi kom-
ast að,“ segir Köpke.
JAKOB Sigurðarson, körfuknatt-
leiksmaður með háskólaliðinu
Birmingham Southern, var um
helgina útnefndur í fimm manna
úrvalslið Big South-deildarinnar
sem skólinn leikur í. Jakob var
með bestu vítanýtingu allra leik-
manna í deildinni, 86,6%, í
þriggja stiga skotunum varð
hann annar með 48,5% nýtingu
og í fimmta sæti í stigaskorun
með 14,7 stig að meðaltali.
Þetta er í fyrsta sinn sem að
BSC leikur í 1. deild í keppni há-
skólaliða en reglur NCAA gera
það verkum að liðið tekur ekki
þátt í úrslitakeppninni í ár þrátt
fyrir að liðið hafi unnið BIG
South deildina.
Í síðasta leik tímabilsins vann
BSC lið VMI, 67:55, en þar skor-
aði Jakob 12 stig og gaf 6 stoð-
sendingar á þeim 33 mínútum
sem hann lék. Með BSC leikur
einnig Helgi Margeirsson en
hann skoraði 3 stig á þeim 11
mínútum sem hann lék. Jakob
lék með liði KR áður en hann
hélt til náms en Helgi kemur úr
röðum Tindastóls frá Sauð-
árkróki.
Jakob í
úrvalsliði
ársins
ÚRVALSDEILDARLIÐ
Njarðvíkur í körfuknattleik
hefur fengið Bandaríkjamann-
inn Will Shavis til reynslu en
hann er 23 ára gamall leik-
stjórnandi og lék með Texas
Tech-háskólaliðinu á síðustu
leiktíð. Í herbúðum Njarðvík-
inga eru því tveir bandarískir
leikmenn en Brandon
Woufstra hefur leikið með lið-
inu frá því í haust og að auki
er Brenton Birmingham í liði
Njarðvíkur en hann er með
tvöfalt ríkisfang.
Liðstyrkur í Grindavík?
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru for-
ráðamenn úrvalsdeildarliðs
Grindavíkur í körfuknattleik
að athuga þann möguleika að
fá þriðja Bandaríkjamanninn í
raðir liðsins. Magnús Andri
Hjaltason, formaður körfu-
knattleiksdeildarinnar, varð-
ist allra frétta í gær og sagði
að vissulega væri allt opið í
þessum efnum en engin
ákvörðun hefði verið tekin.
Shavis til
reynslu hjá
Njarðvík
Gústaf Bjarnason er
hættur hjá Stjörnunni
Kahn hefur
opnað augun
OLIVER Kahn, markvörður Bayern München og þýska landsliðsins í
knattspyrnu, segir að mistökin sem hann gerði í leiknum við Real
Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku og kostuðu hans menn
sigurinn hafi breytt sér. „Mistökin gegn Real Madrid gerðu það að
verkum að ég hef opnað augun fyrir því að gefa liðinu meiri gaum.
Sem markvörður þá beinir maður einbeitinguni að sjálfum sér og
kannski hef ég verið of öfgakenndur í því sambandi og hef látið liðið
sitja á hakanum,“ sagði Kahn í samtali við þýska blaðið Bild.
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðar Helguson, framherji Íslands, lenti í snarpri orðasennu
við fyrirliða og markvörð þýska landsliðsins, Oliver Kahn, á
Laugardalsvellinum sl. sumar.