Morgunblaðið - 10.03.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í Húsi verslunarinnar
TIL SÖLU EÐA LEIGU
skrifstofu- og þjónustuhúsnæði
797 fm skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á tveimur hæðum auk
347 fm kjallara í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, sem er vönd-
uð 16 hæða verslunar- og skrifstofubygging. Húsnæðið er á
tveimur neðstu hæðunum með góðu aðgengi og innréttað á af-
ar vandaðan og smekklegan hátt. Möguleiki að skipta því eitt-
hvað niður. Bílageymsla undir húsinu og fjöldi malbikaðra bíla-
stæða á lóð við húsið. Eignin er til afhendingar nú þegar.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
ÞJÁLFUN skipverjanna á Bald-
vini Þorsteinssyni EA-10 í Björg-
unarskóla sjómanna skipti sköpum
við björgun þeirra að sögn Haf-
steins Heiðarssonar, flugstjóra
TF-LÍF. Greinilegt er að þjálfun
sjómanna í björgunarskólanum
skilar góðum árangri að sögn sig-
manns þyrlunnar.
„Við erum auðvitað mjög ánægð-
ir með að skipverjarnir komust
óslasaðir frá þessu,“ sagði Haf-
steinn í samtalið við blaðamenn við
áhafnarskipti á þyrlunni um miðj-
an dag í gær. Þar tók Hafsteinn
Hafsteinsson, forstjóri Landhelg-
isgæslunnar, á móti áhöfn þyrl-
unnar og þakkaði henni fyrir vel
unnin störf. Um fjörutíu mínútur
tók að bjarga allri sextán manna
áhöfninni um borð í þyrluna.
Tveir hífðir um borð
í þyrluna í einu
Þar sem allir skipverjarnir
höfðu fengið þjálfun í björgunar-
skólanum var ákveðið að sigmaður
þyrlunnar færi ekki niður að skip-
inu. Þess í stað var línu komið nið-
ur og tveir og tveir skipverjanna
festu sig við hana í einu og voru
hífðir um borð. Þetta sparaði tölu-
verðan tíma og greinilegt, að sögn
Hafsteins flugstjóra, að þarna
skipti þjálfun sjómannanna sköp-
um. „Þeir voru mjög vanir strák-
arnir, svo það var ekkert fum eða
fát á þeim. Þeir stóðu sig frábær-
lega, svo þetta gekk allt mjög vel.“
Veður tafði ferð þyrlunnar aust-
ur, mótvindur var mikill, en eftir
að hún var komin á strandstað
lygndi. „Það minnkaði reyndar
skyggnið að sama skapi en þetta
gekk allt saman upp. Við getum
þakkað sjónaukunum enn og aftur
en við notuðum þá allan tímann.“
Hafsteinn segir þá hafa enn og aft-
ur reynst vel, niðamyrkur var úti
er þyrlan lagði af stað, þó að
tunglsljósið hafi hjálpað til.
Hafsteinn segir nokkurt brim
hafa verið á slysstað. Hann sagði
þó að miðað við að þarna hefði átt
sér stað strand hefðu aðstæður
verið þokkalegar. „Það hefði t.d.
getað skapast miklu verri staða ef
skipið hefði farið á hliðina eða eitt-
hvað annað slíkt. En það hallaðist
ekki mjög mikið meðan við vorum
að þessu. Klettaströnd eða annað,
það hefði getað verið mun verra.“
Ekki mögulegt
á litlu þyrlunni
Auðunn Kristinsson, sigmaður
þyrlunnar, segir að þar sem að-
stæður voru sæmilegar á strand-
stað og vitað var að sjómennirnir
þekktu til verka, hafi verið ákveðið
að reyna að láta sjómennina sjálfa
um að festa sig við björgunarlín-
una úr þyrlunni og því hafi enginn
sigmaður farið niður að skipinu.
„Það gekk mjög vel. Þjálfun sjó-
mannanna skilar sér greinilega
mjög vel.“ Auðunn segir að skip-
brotsmennirnir hafi verið hífðir
tveir í einu um borð í þyrluna, eft-
ir leiðbeiningum sigmanns í gegn-
um talstöð, en þennan háttinn
hefði ekki verið hægt að hafa á á
minni þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Þetta gekk fljótt og örugglega
fyrir sig.“
Í áhöfn þyrlunnar sem bjargaði
áhöfn Baldvins Þorsteinssonar EA
voru Hafsteinn Heiðarsson flug-
stjóri, Sigurður Heiðar Wiium
flugmaður, Þengill Oddsson lækn-
ir, Auðunn Kristinsson stýrimað-
ur/sigmaður og Jón Erlendsson
flugvirki/spilmaður.
Aðeins fjörutíu mínútur tók að bjarga allri áhöfn Baldvins Þorsteinssonar EA
Þjálfun sjómann-
anna skipti sköpum
Ljósmynd/Þengill Oddsson
TF-LÍF flaug yfir strandstað um tvöleytið í gærdag til að kanna aðstæður við loðnuskipið Baldvin Þorsteinsson EA.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhöfnin sem kom skipverjum Baldvins Þorsteinssonar til bjargar í gær-
morgun: Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri, Jón Erlendsson, flugvirki/
spilmaður, Auðunn Kristinsson, stýrimaður/sigmaður, Sigurður Heiðar
Wiium flugmaður og Þengill Oddsson læknir.
„ÞAÐ var leiðindaveður, haugasjór
og eftir að línan slitnaði í seinna
skiptið urðum við frá að hverfa. Við
vorum komnir á svo grunnt, vorum
farnir að taka niður svo það var
ekki um neitt annað að ræða en að
koma sér burt. Það er alltaf hálf-
ömurlegt að sjá svona.“ Þannig lýs-
ir Gísli Runólfsson, skipstjóri á
loðnuskipinu Bjarna Ólafssyni
AK-70, sem kom fyrst til hjálpar
Baldvini Þorsteinssyni EA-10 eftir
að skipið varð vélarvana í gær.
„Þetta var mjög erfitt,“ segir
Þorkell Pétursson, stýrimaður á
Bjarna. Hann segir einn skipverj-
anna hafa slasast á hendi þegar
Bjarni fékk á sig brot. „Það var
skelfileg sjón að þurfa að horfa á
skipið fara upp í fjöruna og geta
ekkert gert.“
Vír slitnaði og spil gaf sig
Gísli skipstjóri segir að á tímabili
hafi varla verið meira en 40–50
metrar á milli skipanna. „Við sett-
um tóg á milli strax en það slitnaði
nú fljótlega. Svo prófuðum við vír á
milli en hann slitnaði líka og þá var
bara orðið svo grunnt,“ útskýrir
Gísli. Reynt var að draga Baldvin á
spilinu en bremsurnar á því gáfu
sig og rör splundraðist með miklum
látum. Þá var reynt að festa vírinn
með lás en hann gaf sig einnig.
„Það var orðið örstutt á milli okkar,
fjörutíu eða fimmtíu metrar. Hann
tók niðri hjá okkur, það var orðið
það grunnt,“ segir Gísli.
Þegar hér var komið sögu varð
Bjarni Ólafsson frá að hverfa þar
sem Baldvin Þorsteinsson var kom-
inn í miklar grynningar. „Þetta tók
svona um klukkutíma frá því að við
komum á staðinn og þar til við urð-
um frá að hverfa enda vorum við
sjálfir komnir í brimgarðinn og
höfðum ekki meira flot,“ segir
Gísli. „Þeir höfðu strax samband
við okkur. Við vorum að veiða á
sama punktinum nánast og vorum
lausir í augnablikinu. Við vorum
því fljótt komnir á vettvang.“
Gísli segir að mörg skip hafi ver-
ið á þessum slóðum og nálægt landi,
„því að loðnan er nú bara þarna
uppi í fjöru og við eltum,“ útskýrir
hann en Bjarni Ólafsson var á leið
til Seyðisfjarðar til að ná sér í vír
og landa og síðan var stefnan tekin
á miðin á ný.
Tók niðri
við björgun-
artilraunir