Morgunblaðið - 11.03.2004, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2004 33
Á STUTTUM og fáskrúðugum
ferli mínum sem áhorfandi að barna-
sýningum hef ég komist að þeirri
niðurstöðu að börn koma ekki í leik-
hús til að hlæja. Samt eru nánast öll
barnaleikrit útötuð í bröndurum:
orðaleikjum, farsakenndri atburða-
rás og trúðskum uppátækjum af
ölllu tagi. Alla jafnan sitja börnin
bara og gapa, eða öskra og æpa þeg-
ar spennan verður illbærileg. Stund-
um gráta þau. En fullorðna fólkið
hlær. Ég held reyndar að margir
barnaleikritahöfundar séu búnir að
átta sig á þessu og matreiða grínið
fyrst og fremst með foreldrana í
huga, skrifa þá til að hafa ofan af fyr-
ir þeim eldri meðan börnin einbeita
sér að því sem þau vita að skiptir
mestu máli: sögunni.
Þessi tilfinning var mjög sterk á
frumsýningunni á Hatti, Fatti og
Siggu sjoppuræningja. Prýðilegir
orðaleikirnir sem Ólafur hefur útbú-
ið handa þeim félögum skemmtu for-
eldrunum meðan börnin fylgdust
með framvindunni og lærðu um
raunir þeirra sem ekkert éta nema
sætindi. Ekkert í ólíkindalegum bú-
skap hinna geimversku sígauna kom
þeim þannig séð á óvart, allt er sam-
þykkt um leið og það er borið fram.
Þeir borða krókódílahala og engi-
sprettur, hvað með það? Áfram með
söguna! Það var helst þegar gos-
þamb Siggu sjoppuræningja fór að
valda henni alvarlegum vindverkjum
að ungviðið skellti upp úr. Hvaða
lærdóm má draga af því? Jú: enginn
stenst kúk- og pisshúmor, ekki einu
sinni börnin.
Þetta leikrit um Hatt og Fatt er
mun betra en en hitt sem ég hef séð
og er að því ég best veit það eina
annað sem Ólafur hefur skrifað fyrir
svið um þessa ágætu menn. Þar var
verkið lítið annað en afsökun fyrir
því að syngja nokkur af þekktustu
lögum félaganna. Hér er hins vegar
bæði saga, ný lög og boðskapur.
Þessir sjálfsþurftartrúðar fá nefni-
lega í heimsókn Siggu nokkra sjopp-
uræningja, sælgætisgrís á flótta
undan réttvísinni. Löggan nær henni
ekki, en fylgifiskar sætindaátsins
grípa hana og Hattur og Fattur
þurfa að leysa hana úr klóm þeirra,
sem ekki er þrautalaust fyrir aum-
ingja Siggu. Mórallinn: barnið lifir
ekki á mæru einni saman. Ágætis
boðskapur það þó honum sé kannski
haldið á lofti af fullmiklu offorsi hér.
Pétur og Valur Freyr eru ágæt-
lega sniðnir í hlutverk Hatts og
Fatts. Pétur sem stór og valds-
mannslegur Hattur, Valur sem
hlægilega einfaldur Fattur. Alda
Arnardóttir fær ekki eins traustan
efnivið sem hin einæðingslega Sigga,
gaf okkur líka kannski of snemma
upp að hún væri fremur lítil í sér.
Best var hún í lokagervinu þegar
Sigga er búin að dulbúa sig sem tröll,
en verður að játa sig sigraða af tann-
pínunni.
Umgjörð, gervi og leikmunir eru
falleg og hugvitsamleg og bættu
miklu við upplifunina.
Hattur og Fattur og Sigga sjopp-
uræningi er snotur lítil sýning sem
gleður augað, heldur börnunum, inn-
prentar þeim góða siði og hlægir for-
eldrana. Ágætis dagsverk hjá tveim-
ur auðnuleysingjum og einum
afbrotaunglingi.
Hvað er best að borða?
LEIKLIST
Möguleikhúsið
Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson,
leikstjóri: Bjarni Ingvarsson, búningar:
Helga Rún Pálsdóttir, leikmynd og leik-
munir: Bjarni Ingvarsson og Helga Rún
Pálsdóttir, leikarar: Alda Arnardóttir, Pét-
ur Eggerz og Valur Freyr Einarsson. Frum-
sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm
fimmtudaginn 4. mars 2004.
HATTUR OG FATTUR OG
SIGGA SJOPPURÆNINGI
Morgunblaðið/Ómar
„Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi er snotur lítil sýning sem gleður
augað,“ segir m.a. í umsögninni.
Þorgeir Tryggvason
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
ver›ur haldinn í Borgarleikhúsinu föstudaginn
19. mars 2004 og hefst hann kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins ver›a eftirtalin mál:
1. A›alfundarstörf skv. 14. gr. samflykkta félagsins.
2. Tillögur um breytingar á samflykktum félagsins:
a. Breyting á 1. gr.: Nafn félagsins ver›i Bur›arás hf.
b. Breyting á 10. gr. um lánveitingar til samræmis vi›
ákvæ›i hlutafélagalaga.
c. Breyting á 21. gr.: Fækkun stjórnarmanna úr 7 í 5.
d. Breyting á 14. og 27. grein. Lagt er til a› felld ver›i
úr samflykktum ákvæ›i um sko›unarmenn.
3. Tillaga um heimild stjórnar félagsins til a› kaupa hluti
í félaginu skv. 55. gr. hlutafjárlaga.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á a›alfundi, skulu
vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi sí›ar en
sjö dögum fyrir a›alfund.
Frambo› til stjórnar skulu vera komin skriflega í hendur
stjórnar eigi sí›ar en fimm dögum fyrir a›alfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningar félagsins
ásamt sk‡rslu endursko›enda munu liggja frammi á
skrifstofu Eimskipafélagsins, Pósthússtræti 2 viku fyrir
a›alfund. Ennfremur ver›ur hægt a› nálgast flær á vefsí›u
félagsins www.ei.is frá sama tíma.
Fundargögn ver›a afhent hluthöfum e›a umbo›smönnum
fleirra á fundarsta› frá kl. 13.00 á fundardegi.
Sérstök athygli er vakin á flví a› fundurinn ver›ur nú í
fyrsta skipti í a›alsal Borgarleikhússins.
Reykjavík, 3. mars 2004.
Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands
A ‹ A L F U N D U R
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
96
8
0
3/
20
04
Innan tíðar verður nýr Prius kynntur.
Prius uppfyllir í dag kröfur framtíðarinnar. Hann
gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni. Þannig
eyðir hann aðeins 4,3 lítrum á hundraði. Samt
er hann einungis 11 sekúndur í 100 km/klst.
Hann er eini umhverfisvæni bíll í heimi sem er
f jöldaframleiddur. Auk þess býr hann yf ir
óviðjafnanlegum aksturseiginleikum. Viltu
kynnast honum betur? Nánari upplýsingar á
www.toyota.is
Sparaðu bensín með rafmagni!