Morgunblaðið - 11.03.2004, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2004 37
UM leið og ég þakka Sigþrúði
Ármann fyrir ágæta grein um Há-
skóla Íslands í Morgunblaðinu 1.
mars vil ég benda á nokkur atriði
sem ekki komu fram í grein henn-
ar. Sigþrúður bendir réttilega á að
mikil menntun þjóðarinnar styrki
samkeppnisstöðu
landsins og að almenn
sátt hafi hingað til
ríkt um að menntun
sé greidd úr sameig-
inlegum sjóðum. Hún
telur hins vegar rétt-
látt að námsmenn
greiði stærri hluta
náms síns sjálfir en
nú er. Til rökstuðn-
ings þessu bendir hún
á að nýútskrifaður
lögfræðinemi geti sótt
um fjöldamörg störf
og sett fram ákveðnar
launakröfur.
Það er af hinu góða að rætt sé
um málefni Háskóla Íslands og
fjallað um möguleikann á að taka
þar upp skólagjöld. Það sem hins
vegar hefur ekki komið fram í um-
ræðunni hingað til er að þeir sem
kjósa að hefja nám á framhalds-
stigi eru nú þegar að taka á sig
töluverðan kostnað. Hvernig má
það vera? Er námið ekki frítt? Jú,
vissulega hleypur hið opinbera
nokkuð undir bagga með náms-
mönnum í núverandi kerfi með því
að niðurgreiða beinan kostnað við
námið. Á það ber hins vegar að líta
að fullorðinn einstaklingur sem
kýs að hefja framhaldsnám er að
taka þá ákvörðun að vera án tekna
næstu árin og safna auk þess
skuldum í formi námslána. Stærsti
kostnaðurinn við framhaldsnám er
skuldasöfnun og tekjuskerðing,
ekki kostnaður við námið sjálft,
jafnvel þó að full skólagjöld séu við
lýði.
Skoðum tvo ímyndaða nýstúd-
enta úr framhaldsskóla sem kjósa
að fara ólíkar leiðir. Annar fer
beint á atvinnumarkaðinn og fær
þar starf sem gefur af sér 150 þús-
und krónur á mánuði (þessi tala
gæti bæði verið hærri og lægri, en
upphæðin er í meðallagi fyrir ein-
stakling á þessum aldri með þessa
menntun). Upphæð hans eftir
skatt er u.þ.b. 120 þúsund krónur.
Hinn fer í framhaldsnám í Haskóla
Íslands og velur þar sagnfræði.
Sagnfræðineminn þarf að hafa í
sig og á og tekur þar af leiðandi
námslán. Hann fær fullt fram-
færslulán, í kringum 80 þúsund
krónur á mánuði níu mánuði árs-
ins. Á sumrin fær hann sömu laun
og hinn, 150 þúsund krónur. Þar
sem gert er ráð fyrir því að stúd-
entar við HÍ lifi af 80 þúsund
krónum á mánuði gefum við okkur
að á því þriggja ára
tímabili sem sagn-
fræðineminn stundar
sitt nám lifi báðir ein-
staklingarnir á þessari
upphæð, þ.e. 80 þús-
und krónum. Hver er
svo staðan eftir þrjú
ár? Einstaklingurinn
sem kaus að fara
beint á atvinnumark-
aðinn hefur lagt til
hliðar rúmlega 1,4
milljónir (40 þús. * 36
= 1,44 milljónir) og
hefur átt þess kost að
ávaxta þær nokkuð. Hann er auk
þess skuldlaus. Sá sem kaus að
fara í sagnfræðina skuldar að námi
loknu tæplega 2,2 milljónir í náms-
lán (80 þús. * 27 (9 mán./3 ár)), en
á í kringum 600 þúsund í afgang af
sumarlaunum þriggja ára.
Yfir þriggja milljóna munur er á
stöðu þessara einstaklinga eftir ár-
in þrjú. Þessar þrjár milljónir eru
sá kostnaður sem sagnfræðinem-
inn hefur greitt fyrir nám sitt.
Þegar kemur að fögum eins og
sagnfræði, mannfræði, þjóðfræði,
fornleifafræði, íslensku, heimspeki
og jafnvel sálfræði er ekki ljóst
hvort eða hve mikilli tekjuaukn-
ingu námið skilar og því langt í frá
öruggt að um góða fjárfestingu
hafi verið að ræða. Við þetta bæt-
ist svo sá möguleiki (sem raunar
er afar líklegur) að einstakling-
urinn sem fór beint út á atvinnu-
markaðinn í kjölfar stúdentsprófs
hafi fengið kauphækkun og/eða
stöðuhækkun á þeim þremur árum
sem hinn var í námi.
Það er nú bara þannig að það
eru ekki allar greinar við Háskól-
ann eins og lögfræði, læknisfræði
og tölvunarfræði, þar sem útskrif-
aður einstaklingur getur alla jafna
búist við mun hærri tekjum en fyr-
ir nám. Í þessu samhengi er t.a.m.
rétt að benda á kennara. Launa-
umslög grunnskólakennara eru
ekki of bústin í dag og ljóst er að
ef sett yrðu skólagjöld á nám við
Kennaraháskólann myndi það enn
frekar fæla gott fólk frá því að
hljóta menntun í þessu mikilvæga
fagi. Við viljum hafa kennara í
þessu landi og það sem meira er
við viljum hafa góða kennara hér.
Ef hér myndu ríkja lögmál mark-
aðarins í háskólanámi myndu lík-
lega einungis leggja í kennaranám
einstaklingar sem ekki kæmust inn
í hátekjugreinarnar, eða ein-
staklingar sem ættu ríka maka.
Slíkt viljum við ekki sjá og um það
held ég að allir geti verið sammála.
Það má vel íhuga að taka upp
skólagjöld við einhverjar deildir
Háskólans. Slík gjöld yrði hins
vegar að tekjutengja eftir að námi
lyki og mætti ekki setja á allar
deildir Háskólans. Ég er sammála
Sigþrúði um nauðsyn þess að
íhuga hvort ekki beri að taka upp
skólagjöld við þær deildir Háskól-
ans þar sem samkeppni ríkir við
aðra skóla. Slík gjöld verður hins
vegar að einskorða við ákveðnar
deildir og gætu þar af leiðandi orð-
ið erfið í framkvæmd.
Það er frábært fyrir Ísland að
hér hafi á undangengnum árum
sprottið upp háskólar sem veita
Háskóla Íslands aðhald. Þessir
skólar hafa skilað frábæru starfi
og séð til þess að Háskóli Íslands
verður að vera á tánum öllum
stundum. Margt af því sem Há-
skóli Íslands gerir er hins vegar
einfaldlega ekki mögulegt að gera
arðbært, en er nauðsynlegt eigi að
síður. Við viljum að hér búi fólk
með fjölbreytta menntun af öllu
tagi og til þess að svo megi vera er
nauðsynlegt að halda úti stórum
Háskóla fyrir alla. Það væri gjör-
samlega ótækt að efnilegt fólk
myndi nauðbeygt velja sér mennt-
un eftir því hve mikilli tekjuaukn-
ingu námið skilaði. Þrátt fyrir
ágæti umræðunnar um skólagjöld
ber að nálgast hana varfærnislega
og hafa í huga að ýmislegt er unnt
að bæta við Háskóla Íslands án
þess að taka þar upp skólagjöld.
Að ljúka námi
á eigin kostnað
Sölvi Tryggvason skrifar
um háskólanám ’Það má vel íhuga aðtaka upp skólagjöld við
einhverjar deildir
Háskólans.‘
Sölvi Tryggvason
Höfundur er nemandi í
hagnýtri fjölmiðlun.
1 4 4 4
Ertu að leita
þér að nýjum
skóm?
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
FASTEIGNASALAN
GIMLI
EINBÝLI
HLAÐBREKKA - TVEGGJA ÍBÚÐA
HÚS Nýtt á skrá. Sérlega vel staðsett og
mikið endurnýjað tveggja íbúða hús, stað-
sett neðan götu. Efri hæðin er 136 fm auk 28
fm bílskúrs. Fjögur svefnherbergi. Neðri
hæðin er jafnstór efri hæðinni, þar eru þrjú
svefnherbergi og sérinngangur. Búið er að
endurnýja þakvirki, ofna, gler, ídregið raf-
magn á neðri hæð og hluta efri hæðar. Verð
31,5 millj. Áhv. 2,5 millj.
FRAMNESVEGUR - LAUS STRAX
Nýtt á skrá. 118 fm einbýli á tveimur hæðum.
Tvö svefnherbergi og tvær stofur. Endurnýj-
að baðherbergi og lagnir. Verð 15,9 millj.
Áhv. 4,7 millj. byggsj. og húsbréf.
4RA HERBERGJA
BALDURSGATA HÆÐ OG RIS Um er
að ræða 80 fm íbúð á 3. hæð og í risi þar
sem búið er að útbúa einstaklingsíbúð og
þvottaaðstöðu fyrir íbúð. Eldhús með nýlegri
innréttingu og borðkrók. Stór stofa og þaðan
gengt út á vestursvalir. Parket og kókos-
teppi á gólfum. Verð 13,5 millj. Áhv. 3,4 millj.
HOLTSGATA Vorum að fá í einkasölu fal-
lega 98,4 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í
vesturbænum. Íbúðin er einstaklega vel
skipulögð með fallegu og björtu rými. Parket
er á allri íbúðinni nema nýlegur korkur á eld-
húsi og flísar á baðherbergi. Búið er að end-
urnýja m.a. rafmagn ídregið og rafmagns-
tafla endurnýjuð, járn á þaki var endurnýjað
fyrir nokkrum árum. Hús málað að utan og
viðgert sl. sumar. Verð 14,9 millj. Áhv. 5,3
millj.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR - LAUS
STRAX Erum með í sölu glæsilega 4ra-5
herbergja 124 fm íbúð á þessum frábæra
stað. Íbúðin, sem er á fyrstu hæð, skiptist í
hol með skápum, stofu/borðstofu, eldhús
með innr. úr kirsuberjavið og Blomberg-
tækjum, baðherb. flísalagt, með innréttingu
og baðkari. Svefnherb. eru fjögur, þar af eitt
með salernisaðstöðu í kjallara. Gólfefni er
parket og flísar. Sérgeymsla og þvottahús í
kjallara. Hús og íbúð hefur mikið verið end-
urnýjað. Verð 16,7 millj.
3JA HERB.
RAUÐARÁRSTÍGUR - 1. HÆÐ Vel
skipulögð og björt 3ja herb. 63 fm íbúð með
vestursvölum. Holið er rúmgott. Tvö svefn-
herbergi, annað með fataskáp. Rúmgóð
stofa. Járn á þaki endurnýjað og gler. Verð
9,8 millj. áhv. 5,0 millj.
KLAPPARSTÍGUR - HÆÐ OG RIS
Nýtt á skrá. Sérlega falleg og mikið endur-
nýjuð 3ja herb. 78,8 fm íbúð á 3. hæð með
austursvölum. Íbúðin er á tveimur hæðum.
Risið er nýtt sem eitt stórt rými. Eldhús með
nýlegri innréttingu, gaseldavél og borðkrók.
Baðherbergi með móasíkflísum í hólf og
gólf og sturtuklefa. Parket á öllu nema risi.
Verð 12,9 millj. Áhv. 6,0 millj.
FURUGRUND - LAUS STRAX Nýtt á
skrá. Falleg og vel skipulögð 3ja herb. íbúð
á 1. hæð í nýviðgerðu og máluðu fjölb. Tvö
svefnherbergi. Baðherbergi endurnýjað.
Suðursvalir úr stofu. Parket á gólfum. Tengi
fyrir þvottavél á baði. Verð 11,9 millj. Áhv.
5,8 millj.
GRENSÁSVEGI 13,
SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 588 4477
Vantar 50 íbúðir - staðgreiðsla
Okkur vantar strax 50 íbúðir, 2ja, 3ja og 4ra herbergja á höfuðborgarsvæðinu fyrir
opinbera stofnun. Staðgreiðsla í boði. Öll staðsetning kemur til greina og allar teg-
undir eigna þ.e. blokkir, lyftuhús, tvíbýli, þríbýli, fjórbýli o.fl. Hafið samband strax,
skoðum og verðmetum seljendum að kostnaðarlausu.
Seljandi góður! Við val á fasteignasölu skiptir miklu máli að starfsmenn fasteigna-
sölu búi yfir yfirgripsmikilli þekkingu, reynslu, fagmennsku og heiðarleika. Einnig þarf
fasteignasalan að búa við fjárhagslegt öryggi og traust til að höndla þá mikilvægu
umsýslu sem fylgir fasteignaviðskiptum. Valhöll fasteignasala og starfsmenn hennar
hafa allt þetta til að bera, yfir 100 ára samanlögð starfsreynsla við fasteignaviðskipti.
Látið ekki glórulaus og óraunhæf undirboð nýrra óreyndra aðila á markaði villa ykkur
sýn. Slíkt gefur oftast skammvinnan ábata. Gerið samanburð á verði, reynslu og
gæðum þjónustunnar.
Áratuga reynsla tryggir fagleg vinnubrögð.
Sölumenn: Bárður, s. 896 5221 (22 ára reynsla) - Ingólfur, s. 896 5222 (15 ára reynsla) -
Ellert, s. 893 4477 (15 ára reynsla) - Þórarinn, s. 899 1882 (15 ára reynsla).