Morgunblaðið - 20.03.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið í dag, laugardag, frá kl. 12.00-16.00
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 R, sími 517 0220, netsalan@itn.is
McLouis
húsbílasýning
Knaus
hjólhýsasýning
SÝNING
M. Benz Sprinter Eurostar Style
BÚIÐ er að ákveða hverjir koma til með að skrifa um þá
sem gegnt hafa embætti ráðherra Íslands eða forsætis-
ráðherra frá upphafi í bókinni Forsætisráðherrar Ís-
lands. Útgáfa bókarinnar er liður í að minnast 100 ára af-
mælis heimastjórnar á Íslandi og er stefnt að því að hún
komi út 15. september nk. Þá lætur Davíð Oddsson af
embætti forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, tekur
við.
Ráðherrarnir á þessu tímabili eru 24 talsins og verður
einn kafli, u.þ.b. 10–16 bls. að lengd, um hvern þeirra auk
fjölda mynda. Gert er ráð fyrir að bókin verði 350–400
bls. að lengd og er heildarkostnaður áætlaður átta millj-
ónir króna.
Í ritnefnd bókarinnar sitja: Júlíus Hafstein, formaður,
Haraldur Ólafsson prófessor, Ingólfur Margeirsson
blaðamaður, Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur og Sig-
urður Líndal prófessor. Ritstjóri er Ólafur Teitur Guðna-
son blaðamaður og segir í fréttatilkynningu frá honum að
kapp verði lagt á að bókin verði aðgengileg að allri gerð
fremur en þungt fræðirit. Tilgangurinn sé að draga fram
á einum stað heildstæða mynd af þessum forystumönn-
um, bakgrunni þeirra og hugsjónum.
Höfundar verða:
Hannes Hafstein: Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Björn Jónsson: Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur.
Kristján Jónsson: Dr. Jón Þ. Þór, sagnfræðingur.
Sigurður Eggerz: Dr. Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, prófessor.
Einar Arnórsson: Dr. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor.
Jón Magnússon: Sigurður Líndal, prófessor emeritus.
Jón Þorláksson: Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra.
Tryggvi Þórhallsson: Dr. Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor.
Ásgeir Ásgeirsson: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, cand. mag.
Hermann Jónasson: Tryggvi Gíslason,
magister og fyrrverandi skólameistari.
Ólafur Thors: Jakob F. Ásgeirsson, rithöfundur.
Björn Þórðarson: Guðmundur Magnússon,
sagnfræðingur.
Stefán Jóhann Stefánsson: Ingólfur
Margeirsson, blaðamaður.
Steingrímur Steinþórsson: Gerður
Steinþórsdóttir, cand. mag.
Emil Jónsson: Helgi Skúli Kjartansson,
sagnfræðingur, dósent.
Bjarni Benediktsson: Dr. Guðni Th.
Jóhannesson, sagnfræðingur.
Jóhann Hafstein: Birgir Ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri og fyrrverandi ráðherra og
alþingismaður.
Ólafur Jóhannesson: Dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, prófessor.
Geir Hallgrímsson: Jónína Michaelsdóttir,
blaðamaður.
Benedikt Gröndal: Guðmundur Árni Stefánsson,
alþingismaður.
Gunnar Thoroddsen: Dr. Jón Ormur Halldórsson,
dósent.
Steingrímur Hermannsson: Sigurður
Eyþórsson, framkvæmdastjóri.
Þorsteinn Pálsson: Steinar J. Lúðvíksson, ritstjóri.
Davíð Oddsson: Styrmir Gunnarsson, ritstjóri.
Ákveðið hverjir skrifa um
forsætisráðherra Íslands
ÞRÍR 19 ára piltar voru dæmdir
í 18 mánaða fangelsi hver í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær fyrir
vopnað rán í versluninni Bónus
við Smiðjuveg í Kópavogi að
kvöldi mánudagsins 8. desember
sl. Fjórði sakborningurinn, 18
ára drengur, var hins vegar
sýknaður af ákæru fyrir að lána
mönnunum afsagaðar hagla-
byssur sem beitt var við ránið.
Tveir piltanna komu inn í
vöruafgreiðslu verslunarinnar
eftir lokun með hulin andlit og
hvor með sína afsöguðu hagla-
byssuna að vopni sem þeir ógn-
uðu fjórum starfsmönnum versl-
unarinnar með, þeirra á meðal
samverkamanni sínum sem
dæmdur var með þeim.
Skipuðu þeir starfsmönnunum
þremur inn á kaffistofu og
neyddu þá niður á hnén. Þar stóð
annar ræningjanna vopnaður yf-
ir þeim meðan hinn, ógnandi með
byssu og líflátshótunum, neyddi
fjórða starfsmanninn inn á skrif-
stofu til að opna þar peningaskáp
og afhenda sér peningapoka,
sem í voru að minnsta kosti
621.102 krónur.
Pokann höfðu ræningjarnir á
brott með sér en ráðgert var að
þriðji aðilinn fengi hluta ráns-
fengsins. Ekkert varð úr því þar
sem lögregla handtók ræn-
ingjana skömmu síðar.
Við mat á refsingu ræningj-
anna tveggja var metið þeim til
refsiþyngingar að þeir beittu
skotvopnum og höfðu einbeittan
ásetning til verksins. Dómari
segir að þótt skotvopnin hafi ver-
ið óhlaðin og ekki hafi staðið til
að skaða neinn hafi þau verið
sérstaklega útbúin til ofbeldis-
verka og voru til þess fallin að
vekja mikinn ótta hjá þeim sem
fyrir urðu.
Hins vegar bæri einnig að líta
til þess að ákærðu ættu sér eng-
an sakaferil. Var litið á refsi-
næmi þáttar starfsmanns Bón-
uss í ráninu með sama hætti og
hinna þó að hann hafi ekki staðið
að hinni beinu framkvæmd ráns-
ins.
Af hálfu Bónuss var krafist
120.000 króna bóta úr hendi
ákærðu en þeirri kröfu hafnaði
dómari. Mennirnir þrír voru hins
vegar dæmdir til að borga allan
kostnað sakarinnar að 3/4 hluta,
þar með talin málsvarnarlaun
verjenda sinna, samtals að upp
hæð 690.000 krónur.
Sakarkostnaður þess sem
sýknaður var, þ.m.t. 140 þúsund
króna laun verjanda hans, fellur
á ríkissjóð.
Til frádráttar refsingu tveggja
mannanna af þremur kemur
gæsluvarðhaldsvist þeirra frá 9.–
23. desember sl. og frá 9. janúar.
Vopnað rán í Bónus í Kópavogi
Dæmdir í
18 mánaða
fangelsi hver
RÚSSINN Anatoly Karpov er fallinn úr
keppni á Reykjavík Rapid-skákmótinu
sem fram fer í Nasa við Austurvöll
þessa dagana. Karpov tapaði fyrir landa
sínum Alexey Dreev í annarri umferð
mótsins sem fram fór í gær.
Í undanúrslitum í dag mætir Dreev
Englendingnum Nigel Short. Hina und-
anúrslitaskákina tefla þeir Garry Kasp-
arov og Daninn Peter Heine Nielsen.
Báðar skákirnar hefjast kl. 16.30.
Sömu úrslit urðu í öllum skákum ann-
arrar umferðar í gær. Engin þeirra fór í
bráðabana heldur lauk þeim öllum með
einum og hálfum vinningi gegn hálfum
vinningi. Nigel Short sigraði Þjóðverj-
ann Levon Aroian, Nielsen sigraði Emil
Sutvosky frá Ísrael og Kasparov hafði
betur gegn hinum hollenska Jan Timm-
an.
Undanúrslitin verða sýnd í beinni út-
sendingu í Ríkissjónvarpinu.
Karpov beið lægri hlut
Morgunblaðið/Ómar
Dreev, stórmeistari frá Rúss-
landi, lagði landa sinn Karpov og
mætir Short í undanúrslitum.
FORSVARSMENN og stjórnendur
Samherja buðu Birni Bjarnasyni
dómsmálaráðherra, þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar og yf-
irmönnum hjá Gæslunni í gær til
hádegisverðar um borð í togar-
anum Vilhelmi Þorsteinssyn við
Vogabakka í Reykjavík.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir að tilefnið
hafi verið að fagna björgun Bald-
vins Þorsteinssonar af strandstað
á Skálarfjöru á Meðallandsfjörum
aðfaranótt fimmtudags. „Við vild-
um bara þakka þeim fyrir. Fá
tækifæri til að hitta þá undir öðr-
um kringumstæðum og sjá þá í
öðrum fötum en í þyrlugall-
anum,“ segir Þorsteinn.
Skoðun á skipinu
hefst í Noregi í dag
För Baldvins Þorsteinssonar til
Noregs frá því skipið var dregið
af strandstað í Meðallandsfjöru
aðfaranótt miðvikudags hefur
gengið vel. Skipið var í togi
norska dráttarbátsins Normand
Mariner og var búist við að skipin
tvö kæmu til hafnar seint í gær-
kvöldi.
Þorsteinn Már Baldvinsson seg-
ir að skipið verði skoðað í dag og
í framhaldi af því verði ákveðið
hvert farið veður með það til við-
gerða.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, býður fulltrúa Landhelgisgæslunnar velkomna um borð.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skenkir fulltrúum Landhelgisgæsl-
unnar eplasafa við hádegisverðinn um borð í Vilhelmi Þorsteinssyni. Við
hlið Björns er Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra.
Fögnuðu björgun
Baldvins af strandstað