Morgunblaðið - 20.03.2004, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það fer að verða grundvöllur fyrir stofnun sérbanka fyrir þá sem sætta sig ekki við skepnu-
skapinn í núverandi lánastofnunum.
Kynningarstarf Háskólans í Reykjavík
HR er persónu-
legur skóli
Háskólinn í Reykja-vík er í umfangs-miklu kynningar-
starfi um þessar mundir.
Kynningarstjóri þar á bæ
er Ásdís Ýr Pétursdóttir,
sem svaraði nokkrum
spurningum Morgun-
blaðsins.
– Þið eruð að kynna
námsleiðir ykkar sem
stendur … hvernig fer sú
kynning fram?
„Hjá Háskólanum í
Reykjavík fer fram öflugt
kynningarstarf enda telj-
um við okkur hafa margt
spennandi fram að færa í
lögfræði, tölvunarfræði og
viðskiptafræði. Við gáfum
m.a. út nýjan kynningar-
bækling í vikunni sem
stúdentsefni fá sendan
heim á næstu dögum. Aðrir
áhugasamir geta líka haft sam-
band við skrifstofu HR og fengið
bæklinginn sendan. Þá bjóðum
við framhaldsskólanemum í heim-
sókn til að kynna sér námið og
skoða skólann. Einnig kynntum
við starfsemi okkar í Norræna
húsinu á sunnudaginn í tilefni Há-
skóladagsins og erum að undir-
búa sérstakan HR kynningardag.
Svona mætti lengi telja.“
– Hvaða sérstöðu hefur Há-
skólinn í Reykjavík, t.d. er varðar
áherslur í námi?
„HR er persónulegur skóli þar
sem hver einasti nemandi skiptir
máli. Við leggjum áherslu á gagn-
virkar kennsluaðferðir og hvetj-
um nemendur til að taka virkan
þátt í náminu. Nemendur öðlast
því traustan fræðilegan grunn en
einnig þjálfun í að yfirfæra þá
þekkingu á raunverulegar að-
stæður, t.d. við úrvinnslu raun-
hæfra verkefna í samstarfi við
fyrirtæki. Þar njótum við góðs af
sterkum tengslum HR við at-
vinnulífið, en Verzlunarráð Ís-
lands er bakhjarl skólans auk
þess sem skólinn nýtur stuðnings
fjölda íslenskra fyrirtækja. Ný-
sköpun hefur verið eitt af leið-
arljósum skólans frá upphafi og
er fléttuð inn í námið. Við viljum
að allir sem útskrifast frá HR
kunni að skapa sér atvinnutæki-
færi, stofna fyrirtæki og þróa ný
störf. Samstarf okkar við alþjóð-
lega háskóla er ómetanlegt þegar
kemur að námsþróun, kennslu og
tækifærum nemenda til að taka
hluta af náminu erlendis. Þar að
auki er öflugt rannsóknastarf við
skólann, en rannsóknastofnanir
HR eru sex talsins. Að lokum vil
ég undirstrika þann einstaka
metnað, kraft og skemmtilega
anda sem ríkir í skólanum. Hér
vilja allir standa sig vel.“
– Segðu okkur frá helstu nýj-
ungunum sem þið eruð að
bjóða…
„Við bjóðum nám í lögfræði,
tölvunarfræði og viðskiptum.
Námið í lagadeild er spennandi
og í stöðugri þróun og tekur mið
af þeim breytingum sem orðið
hafa í íslensku atvinnulífi undan-
farin ár. Auk hinna
hefðbundnu kjarna-
greina er mikil áhersla
lögð á þau fög sem
vega þungt í starfi lög-
fræðinga í dag, s.s.
Evrópurétt, félagarétt, sam-
keppnisrétt, o.s.frv. Meistaranám
við lagadeildina er nú í undirbún-
ingi og hefst haustið 2005.
Helsta nýjungin í tölvunar-
fræðideild er svokallað einstak-
lingsmiðað nám sem mun hefjast í
haust. Nemendur fá þar svigrúm
til að sníða námið að eigin áhuga í
samráði við leiðbeinanda. Það
sem einkennir tölvunarfræði-
menntun við HR eru verkefna-
tengd námskeið að loknum skrif-
legum prófum í lok námsanna.
Umsjón með námskeiðunum er í
höndum færustu sérfræðinga
heims á ýmsum sviðum tölvunar-
fræðinnar. Auk þess er nú í annað
sinn í boði rannsóknatengt meist-
aranám í tölvunarfræði.
Í haust mun viðskiptadeild í
fyrsta skipti á Íslandi bjóða
tungumálatengt viðskiptanám.
Þetta mun styrkja stöðu þeirra
sem vilja starfa á alþjóðavett-
vangi, enda getur tungumála-
kunnátta og þekking á menningu
ólíkra þjóða skipt sköpum í vel-
gengni alþjóðaviðskipta. Einu ári
er bætt við hefðbundið BS-nám í
viðskiptafræði, þ.e. 30 einingum í
ensku eða spænsku. Mögulegt er
að ljúka náminu á þremur árum
með því að sinna hluta tungu-
málanámsins erlendis yfir sumar-
tímann. Í haust mun einnig nýtt
meistaranám í fjármálum hefja
göngu sína – MSIM (Master of
Investment Management).“
– Veitið þið nemendum og ný-
stúdentum tilhlýðilega ráðgjöf er
þeir sækja ykkur heim?
„Já, við bjóðum opna viðtals-
tíma mánudaga til fimmtudaga kl.
13–16 fyrir þá sem eru að íhuga
háskólanám og vilja fá námsráð-
gjöf eða kynningu á skólanum. Til
viðtals eru námsráðgjafar og
kennarar úr hverri deild. Einnig
er hægt að panta viðtalstíma hjá
námsráðgjafa í gegnum skrif-
stofu skólans.“
– Eru færri að komast að en
vilja hjá HR?
„Þegar á heildina lit-
ið eru u.þ.b. tveir um-
sækjendur um hvert
sæti. Í fyrra voru til
dæmis umsóknir rúm-
lega 800 en þar af hófu um 400
nám. Ég vil taka fram að við mat
á umsóknum tökum við ekki ein-
ungis tillit til einkunna á stúd-
entsprófi, heldur einnig frekari
menntunar, starfsreynslu, þátt-
töku í félagsstörfum og áhuga-
mála. Það er því mikilvægt að
umsækjendur geri grein fyrir öllu
því sem þeir telja geta orðið um-
sókn sinni til framdráttar.“
Ásdís Ýr Pétursdóttir
Ásdís Ýr Pétursdóttir er verk-
efnastjóri á markaðs- og kynn-
ingarsviði HR. Áður starfaði hún
í London hjá tæknifyrirtækinu
Matrox VITE og hjá Hotwire PR.
Ásdís er með BA-próf í almanna-
tengslum frá Mount Saint Vin-
cent University í Kanada en
stundaði einnig tungumálanám
við Ruprecht-Karls-Universität
Heidelberg í Þýsklandi og við
Universidad de Salamanca á
Spáni. Ásdís er stúdent frá VÍ og
er fædd í Reykjavík, 17. mars
1976.
Til að sníða
námið að
eigin áhuga
Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 27. mars 2004
Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 27. mars
frá klukkan 10.00 – 12.30, undir yfirskriftinni „Er tannheilsa íslenskra barna í hættu?“
Er tannheilsa íslenskra barna í hættu?
Tannlæknafélag Íslands
Málþing Tannlæknafélags Íslands
09.30 Morgunverður.
10.00 Ávarp: Heimir Sindrason, formaður Tannlæknafélags Íslands.
10.05 Setning: Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
10.15 „Tannheilsa íslenskra barna er í hættu!“ Reynir Jónsson, yfirtannlæknir
Tryggingastofnunar ríkisins.
10.30 „Á Tryggingastofnun ríkisins að sinna vörnum gegn tannsjúkdómum eða
aðeins viðgerðum?“ Sigurður Rúnar Sæmundsson, tannlæknir, MPH, PhD,
sérfræðingur í samfélagstannlækningum.
10.45 „Heimtur barna til tannlækna og fyrirhuguð rannsókn á munnheilsu á Íslandi.“
Dr. Helga Ágústsdóttir, yfirtannlæknir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
11.00 Kaffihlé.
11.15 „Tannskemmdir, glerungseyðing og meðferðarúrræði.“ Sigurður Örn Eiríksson
tannlæknir, M.S., lektor við Háskóla Íslands.
11.30 „Tannheilsa unglinga - lífsstíll - áhætta – stuðningur.“ Inga B. Árnadóttir,
dósent við Háskóla Íslands, sérfræðingur í samfélagstannlækningum.
11.45 „Er tannheilsa ómerkilegri en önnur heilsa?“ Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri
SAMFOKS, sambands foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur.
12.00 Fyrirspurnir og umræður.
12.30 Fundarlok.
Fundarstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Sætafjöldi er takmarkaður og því þarf að
tilkynna þátttöku til Tannlæknafélags Íslands í síma 575-0500 eða með því að senda tölvupóst
á netfangið tannsi@tannsi.is.
Dagskrá
A
P
a
lm
an
n
at
e
n
g
sl
/
H
A
D
A
Y
A
d
e
si
g
n